Vísir - 16.01.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 16.01.1973, Blaðsíða 3
Yisir. Þriðjudagur 16. janúar l!)7:i 3 „Afrakstur helgarinnar 40 þúsund króna tjón ó — segir leigubílstjóri hjó Bœjarleiðum er bílnum" nokkur furða, að maður kæri sig ekki um að vera að keyra þennan skril heim, þegar þella er borgunin, sem maður l'ær.” sagði leigubilstjórinn jai'n- l'ramt. Framrúða bilsins var brolin. en maður einn, sem leigubil- stjórinn hafði keyrt nú helgina, lók sig til og kastaði flösku i rúðuna. eftir að hann fór út úr bilnum. Einnig hal'ði umræddur farþegi beygl útvarpsstöngina á bilnum og eyðilagt hana. Annar l'arþegi, sem bil- stjórinn l'lutti nú um helgina, sparkaði i hlið bilsins, þannig að stór dæld myndaðist á hurðinni. Hafði bilstjórinn beðið manninn að gæta þess, að hurðin fyki ekki upp þarsem löluvert hvasst var þegar atburðurinn átti sér stað. Farþeginn varð móðgaður og þeytti hurðinni upp, þegar hann fór út, skellti henni siðan harka- lega at'tur og sparkaði i hana. Leigubilstjórinn sagði, að mennirnir, sem skemmdunum ollu, hefðu verið undir áhril'um. „Ég kærði auðvitað at- burðina, en hvað er gert? Maður biður hálftima til 45 minútur cftir að lögreglan komi, en þá er aðeins klappað á öxlina á þeim og þeim sagt að gera þetta ekki al'tur. Siðan er manni tilkynnt, að mennirnir séu ekki borgunarmenn fyrir tjóninu. Tryggingarnar borga ekkert al' þessu tjóni, þvi sit ég uppi með skaðann sjálfur”, sagði leigu- bilstjórinn að lokum. —ÞM Frainniðaii var brotin og skildist bnstjóraniim. að niðubrotið ætti að vera þakkla'liskvcðja fyrir aksturiiiii. ÞJÓFSNAUTAR GETA FENGIÐ ALLT AÐ 6 MÁNAÐA FANGELSI Afrakstiirinii eftir helgina var fjörutiu þiisuud króna tjón á bil- uin” sagði teigubílstjóri hjá Bæjarleiðuin, sem kom og sýndi hiaðamannj skemmdir. sem farþegar hans höfðu valdið á bil lians nii uni beigina. „Það er verið að tala um, að erfitt sé að l'á leigubila um helgar hér i bænum, en er það l.oflnetsstöng leigubílsins varð einnig fyrir barðinu á þakklátum farþcgum. Það borgar sig ekki alltaf að kaupa muni, sem menn vita að eru stolnir, þó verðið sé oft lágt. Menn, sem kaupa muni, sem þeir vita að eru stolnir, eiga á liættu að fá háar sektir eða varð- haldsdóma. Margir þjófar ganga i hús og bjóða þýfið til sölu, og i mörgum tilvikum ætti fólki að vera full- komlega ljóst, að hluturinn er stolinn. Að sjálfsögðu ber að til- kynna slikt til lögreglunnar, en oft sleppa menn þvi og kaupa sér heldur ódýrt útvarpstæki eða aðra þá muni, sem falir eru. Ef sannast, að einhver sé þjófsnaut- ur eða „hylmari”, á hann á hættu að fá sektir eða varðhaldsdóma, eins og fyrr segir. Ef um endur- tekið brot er að ræða eða viðkom- andi hefur áður gerzt brotlegur, er hægt að dæma menn i allt að 6 mánaða fangelsi. Slikir dómar Ölvaður ó stolnum bíl Tveir ökumenn, báðir undir áhrifum áfengis, urðu fyrir þvi að aka farartækjum sinum út af og stórskemma þau núna um heig- ina. Annar mannanna fór út af veg- inum á Vesturlandsvegi, á móts við Höfðabakka. Lögreglubill var næsti bill á eftir, og hafði verið að fylgjast með bil þessum. Ekki hafði lögreglan neina vissu um, að ökumaðurinn væru undir áhrifum, heldur var aðeins verið að fylgjast með ökumanninum, þar sem ökulagið var eitthvað einkennilegt. Allt i einu missir ökumaðurinn stjórn á bilnum, og sáu lögreglu- mennirnir á eftir bilnum út af veginum og á hvolf. Reyndist ökumaðurinn vera ölvaður og á stolnum bil. Hafði maðurinn stolið bilnum á Grettisgötu, af stæði við bifreiðaverkstæði. ökumaðurinn slasaðist eitt- hvað. Hentist maðurinn út úr bilnum, og reyndist hann meðal annars viðbeinsbrotinn. Þá ók annar maður bil sinum út af veginum á svipuðum slóðum nú um helgina. Skemmdist billinn mikið, en ökumaðurinn slapp að mestu ómeiddur. Var maðurinn einnig undir áhrifum áfengis. — ÞM. Nýtt ambassadors- embœtti — Island og þýzka alþýðulýð veldið, — Austur-Þýzkaland, hafs ákveðið að taka upp stjórnmála samband og skiptast á sendi herrum með ambassadorsstigi Övist er enn hvar ambassador arnir munu hafa aðsetur, hvort nýtt ambassadorsembætti verður stofnað til viðbótar, en Þjóð- verjarnir hafa ákveðið að nú- verandi viðskiptafulltrúi hér á landi, Kurt Lindner, verði sendi- fulltrúi til bráðabirgða. munu ekki vera mjög algengir hér á landi, en eru þó ekki alveg óþekktir. — ÞM. Stór dældf hurð bílsins, en þetta álti bilstjórinn að hafa fyrir að hafa heðið farþegana að gæta þess, aðhurðiii fyki ekki upp. IÐNOMALIÐ A NY TIL SAKSOKNARA Saksóknari fær hið svonefnda Iðnómál væntanlega lil með- fcrðar að nýju öðruhvorumegin við næstu hclgi. Sakadómur taldi sig hafa lokið rannsókn i þvi máli og sent saksóknara öll gögn þar að lúlandi, cn hann ekki gcrt sig fyllilcga ánægðan og óskað cftir frekari yfirheyrslum. „Það voru ekki ýkja miklar upplýsingar, sem saksóknari fór fram á til viðbótar. Við höfum yfirheyrt fleiri úr stjórn beggja félaganna, sem hlut eiga að máli, og ættum að geta skilað máls- skjölum til saksóknara jafnvel i þessari viku”, sagði Jón A. Ólafs- son, sakadómari, i viðtali við Visi i morgun. Málaferlin risu sem kunnugt er á siðasta sumri, þegar eigendur Iðnó hækkuðu húsaleiguna við Leikfélag . Reykjavikur allt að 50 prósent. Vegna blaðaskrifa um leigumálið fyrirskipaði dóms- málaráðuneytið þá dómsrann- sókn i málinu, sem nú mun vera að ljúka —ÞJM SPANN VEIÐIR LAND- Braut upp sex hurðir Farið var inn i Kennaraskólann sl. nótt, en ekki er enn vitað, hvort nokkru hafi verið stolið. Innbrotsmaðurinn hefur brotið litla rúðu i húsinu og fariðþar inn. Þegar inn var komið, fór maðurinn i gegnum sex hurðir, en hann hefur sparkað þeim upp. Engar skemmdir voru sjáanlegar i húsinu aörar en á hurðum þeim, sem maðurinn braut. Engin truflun verður á kennslu áf völdum innbrotsins. Málið er enn i algjörri frumrannsókn, og þvi gat lögreglan litlar upp- lýsingar gefið um málið. En eins og sagt var. var ekki hægt að sjá i fljótu bragði, hvort einhverju hefði verið stolið. -ÞM HELGI KANADA TIL 76 Kanada og Spánn hafa gert meö sér samkomulag um< að Spánn dragi úr fiskveiöum sinum viö strendur Kanada, einkan- lega austurströndina/ en þar hafa Spánverjar helzt sótt á fiskimið Kanada- manna. Þegar kanadiska þingið vikkaði út landhelgi sina 1970 úr þrem milum upp i 12 milur, var gert ráö fyrir veiðisvæðum innan landhelginnar, og sér- stakt ráð fékk til meðferðar að ákveða nánar þessi svæði. f febrúar 1971 lauk ráðið við afmörkun þessara veiðisvæða, og var þá þegar gert ráð fyrir, að erlendum fiskiskipum skyldi bönnuð veiði á sumum þeirra — eins og t.d. St. Lawrence-flóa. Voru þá hafnar viöræöur við rikisstjórnir þeirra þjóða sem helzt hafa stundað fiskveiðar við Kanada. Ekki alls fyrir löngu komst Kanada að samkomulagi við Stóra-Bretland, Danmörku, Noreg og Portúgal um, að þessi lönd hættu veiðum á þessum svæðum. Ennfremur náðist samkomulag við Frakkland, sem bjó að eldri samningum við Kanada um veiðiréttindi innan landhelginnar. 1 samkomulaginu við Spán samþykktu Spánverjar að hætta öllum fiskveiðum innan hinnar nýju landhelgi frá og með 31.júli 1976. Milli Kanada og Banda- rikjanna eru hins vegar samn- ingar, sem veita fiskimönnum hvors rikisins fyrir sig undan- þágu til þess að veiða i landhelgi hins. VETUR, fyrr eða síðar! Viða hér i höfuðborginni má sjá. að grasfletir og tún eru farin að grænka. Enda ekki furða. þar sem hlýindi hafa verið nú um nokkurn tima, og það. sem af er vetri, hefur veðurfar verið ákaflega milt. Blaðið hafði samband við Markús Einarsson, veður- fræðing, og sagði hann, að þó að hlýindakafli væri núna, gætum við átt veturinn eftir ennþá. „Ég hef reyndar sjálfurséð, að það er farið að grænka i görðum. bæði hér og til dæmis i Hafnarfirði, en það kemur vetur fyrr eða siðar.” Markús sagði, að það væri ekki einsdæmi. þó að slikir hlýindakaflar kæmu og að þá grænkaði. en i vetur hafa ekki verið neinir kuldar. Aðeins kólnaði þo i nóvembermánuði. 1 fyrra á sama tima hófst hlýindakafli skömmu eftir jól og stóð fram að 16. janúar. Þá kom smá kuldakafli, en siðan hlýindi aftur, þá voru reyndar óvenju langir hlý- indakaflar. en enn heíur þessi núverandi hlýindakafli ekki slegið metið, þar sem hann hofst rétt eftir áramót. Ekki kvaðst Haíliði Jónsson garðyrkjustjóri hafa trú á þvi, að nokkuð væri farið að gra'nka úti á landi, þegar blaðið hafði samband við hann, en hann sagði, að það væri ekki óliklegt. að nýjar grasflatir væru farnar að fá á sig grænan lit og sömuleiðis lóðir upp við hús. Hann sagði, að hærri sól þyrfti á loíti til þess, að tún færu almennt að grænka, en allur klaki er farinn úr jörðu fyrir þó nokkru. — EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.