Vísir - 26.01.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 26.01.1973, Blaðsíða 3
Visir. Föstudagur 26. janúar 1973 3 Ungfrú Reykjavík kjörin í gœrkveldi: HÚN ER Á LAUSU ..Kjánalegt aö þurfa að sýna sig i sundbol,” segir Ungfrú Reykja- vík. En prísar sig sæla fyrir að þurfa þó ekki að bera sundhettu með.... Núerekkert að van- búnaði: það er hægt að ráðast i framkvæmd aðalkeppni fegurðar- samkeppninnar og vel.ja landinu fegurðaídrottningu ársins 1973. Forkeppn- inni lauk i gærkveldi með því, að valdar voru þrjár fegurðar- drottningar úr Reykja- vík, en sú þeirra, sem varð númer eitt, Ásta Ilalldórsdóttir, hlaut titilinn Ungfrú Reykjavik. Keppnin fór fram i Veitinga- húsinu við Lækjarteig að við- stöddum átta til niuhundruð manns. Keppendurnir voru fimm og komu fram upp úr klukkan ellefu á öllum þrem hæðum hússins. Siðan fengu gestir hússins ráðrúm til að greiða atkvæði — og þegar þau atkvæði voru svo talin, reyndist vera aðeins tveggja atkvæða munur á þeim tveim, Astu og Kristjönu Ólafs- dóttur. Þegar talið var úr at- kvæðakössunum af tveim neðri hæðunum voru þær jafnar, en við talningu úr siðasta kassan- um komst Asta þessum tveim atkvæðum framúr. Sú sem varð númer þrjú heitir Margrét Jónsdóttir og er við nám i Verzlunarskólanum. Asta er við nám i Menntaskólanum við Hamrahlið, en Kristjana vinnur að skrifstofustörfum. Hún hefur áður tekið þátt i keppni af þessu taginu, nefni- lega um titilinn „Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1970”. „Ég er ekki tilbúin að ganga i gegnum slik ósköp serh fegurðarsamkeppni er að nýju,” sagði hún i viðtali við Visi. „Það var af fljótfærni, sem ég samþykkti áðan að taka þátt i þessari keppni.” „Af herju ég er að þessu,” svaraði Asta hins vegar spurn- ingunni. „Just to freak out. Hafðu það eftir mér.” Og Asta ypptir öxlum. Hún segist vera á lausu, piltar! —ÞJM VERÐUR AÐ BJARGA ÞVÍ SEM BJARGAÐ VERÐUR Hermannsson „Það er ekki spursmál, það þarf aö senda sem mestan mann afla og skip til að bjarga þvi sem bjargað verður”, sagði Guð- mundur Hermannsson, aðstoðar- yfiriögregluþjónn við komuna tii Reykjavikur i gærdag, en hann hefur verið með mönnum sinum i Eyjum undanfarin dægur við gæzlustörf ásamt kollegum i Eyj- um. „Ég held að Almannavarnaráð hafi ekki brugðið nógu skjótt við eftir að öllum var bjargað, að gefa leyfi til að menn björguðu eigum sinum eftir megni. Vitan- lega þarf slikt að gera skipulega, en það dugir ekki að hika, þetta þarf að gera strax og hægt er, eft- ir einn, tvo eða þrjá daga getur vikurregnið skollið á og lokað öll- um möguleikum á að bjarga dýr- mætum eigum fólksins”. Og i gærkvöldi fór svo vikur- regnið að dynja á bænum eins og kunnugt er, en eitthvað slotaði i morgun, og e.t.v. gefst Eyja- mönnum og öðrum björgunar- mönnum tækifæri til að ná i meiri verðmæti áður en ver fer. —JBP— Er gígur að myndast við íþróttavöllinn? Edda Andrésdóttir i Eyjum: Um kvöldmatarleytið i gær hafði gossvæðiö verið afgirt og lögregian stóö vörð um svæðið til þess, að engir kæmust innfyrir nema þeir, sem nauðsynlega þurftu að bjarga eigum sinum Skammt frá gosstöðvunum — nánar tiltekið við iþróttavöll, sem stendur nálægt byggð, var talið að gæti farið að myndast gigur eða gos. Þar var reykur farinn að koma upp úr jörðinni á einum stað, en óvist var, hvort hann stafaði af steini, sem fallið hafði úr gosinu eða hvort þar var — sem áður segir — að myndast gigur. I Dalfjýlli svonefndu var heitt vatn farið að skvettast úr 800 metra djúpri borholu, sem þar var boruð á árunum 1968—69. Menn frá Orkustofnuninni voru sendir til Eyja þegar gos hófst, og komust þeir að þeirri niðurstöðu, að hitinn hækkar um átta gráður i vatninu við mælingar á sólar- hring. 1 gær hitnaði vatnið þó um eina gráðu á þremur timum. Hitastig vatnsins var i gærdag um 64 gráður en 61 gráða á 800 metra dýpi. Til þess að gos kæmist þar upp, þarf hitastig vatnsins að vera um 170 til 180 gráður. Vatnið tók að koma úr borhoi- unni tæpum sólarhring eftir að gosið hófst. Til þess að hindra að þar fari að gjósa verður að koma ventli fyrir i holunni. Ventill fannst þó ekki þegar til átti að taka, en' menn frá Orkustofnun- inni fóru frá Eyjum i gær til að leita að einum slikum, og eru þeir væntanlegir til baka i dag. Enn ekki vitað hvað olli hrapi þotunnar Nei, Karl Einarsson grinisti var ekki f hópi keppenda, en það var hann, seni kýnnti þær fyrir áhorfenduni og krýndi Ungfrú Iteykjavik, sem situr sæl með boröann fyrir framan hann, en við lilið hennar situr Kristjana, sem varð núnter tvö. Aftast standa Jónina Ilalldórsdóttir, Margrct JÖnsdóttir og Hjördis Skúiadóttir. Við látum ekki rífa sundur frystihúsin — svo svartsýnir erum við ekki ennþá, segir forseti bœjarstjórnar. „Við gerum auðvitað allt sem við getum til að hjálpa bátunum að komast i gagnið, og þeir hafa verið að koma hérna af og til og ná i nætur og annaö, svo að þeir geti hafið veiðarnar,” sagði Sigurgeir Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyj- um i sin tali við Visi i gær. „Þaö kemur ekki til greina að hefta för báta, sem konta i þess- um erindagjörðum,” héit hann áfram. Hitt er svo annað ntál, að okkur finnst ekki koina til greina að fara að flytja tæki úr fiskvcrkunarstöðvum hér. Við erum ekki orðnir svo svartsýnir cnnþá. Aður en verður ráðist i nokkur þess konar stórvirki, verður ástandið að hafa versnað mikið frá þvi, sem nú er.”—LÓ Sauðféð í Eyjum komið í hús Verður flutt til lands öllu sauðfé I Eyjum hcfur nú verið komið i hús nálægt flug- veliinum og er féö á gjöf. Ætiunin er, að flugvél Fragtflugs fari til Eyja og sæki féð nú um helgina. Ætlunin var að fara til Eyja i dag og sækja féð, en vél Fragt- flugs átti að fara til Noregs, en seinkaði á Akureyri vegna snjó- komu. Kemur vélin þvi ekki aftur frá Noregi fyrr en á laugardag eða sunnudag. Verður þá strax flogið til Eyja til að sækja Téð. Einnig eru eftir i Eyjum fimm kálfarog verða þeireinnig fluttir með vélinni frá Eyjum. Mikið er af hænsnum i Eyjum, en þeim hefur verið komið fyrir i sérstökum kössum, og verða hænsnin flutt með skipi til lands. Að sögn Asgeirs Hannesar Eirikssonar hjá Dýraverndunar- sambandi Islands var óþarfi að slátra nautgripunum i Eyjum, þvi það heföi verið hægt að flytja þá til lands með vél Fragtflugs. -ÞM. „Síðumúli" lokað gœzlu- fangelsi fyrir unglinga Enn mun ekkert hafa komið í Ijós hvað orsakaði slysið þegar bandarisk þota frá varnarliðinu fórst sl. mánudag. Þotan, sem var af gerðinni F 102, var að koma úr eftirlitsflugi ásamt annarri þotu af sömu gerð. Bilun mun hafa orðið i radiótækj um þotunnar og var hin þotan að lóðsa hana inn til lendingar. Það var kl. 18.19 á mánudaginn, að þotan hrapaði i sjóinn. Var þá strax hafin leit að flugmanninum. Slysið var strax tilkynnt Slysa- varnarfélaginu, sem hafði strax samband við báta á Faxaflóan- um, og voru þeir beðnir að að- stoða við leitina. Einnig voru flugvélar frá varnarliðinu á sveimi yfir slysstaðnum, og hentu þær út blysum til að lýsa upp svæðið. Það var um kl. 23 um kvöldið, að báturinn Bjarni Ólafsson fann kortamöppu úr flugvélinni. Mappan fannst 11 sjómilur vest- norð-vestur af Akranesi. Þá voru fengnir bátar frá Akranesi til við- bótar til að taka þátt i leitinni. Skömmu seinna fannst hjálmur flugmannsins, en nafn flug- mannsins stóð á hjálminum. Var hjálmurinn þegar tekinn upp i þyrlu, sem flutti hann með sér til Keflavikur. Einnig fannst gúmmibátur sem var i þotunni, en var hann óhreyfður með öllu. Ekkert fleira kom fram við- vikjandi þotunni þessa nótt. Morguninn eftir voru flugvélar varnarliösins að aðstoða við flutningana frá Eyjum, og var það ekki fyrr en upp úr hádeginu, að þær hófu leit aftur. Þá fannst einnig brak úr þotunni og voru fengnir bátar til að sækja það. Ekkert meira fannst eftir það og var þvi leit hætt þá um kvöldið. Menn, sem voru að vinnu við slippinn á Akranesi á mánudag- inn, sögðust hafa séð bjartan blossa úti á Faxaflóa á milli kl. 18.15 og 18.20. —ÞM Nú hefur fangelsið i Síðu- múla verið tekið i notkun til bráðabirgða sem gæzlu- fangelsi fyrir unglinga. I húsinu verður komið fyrir unglingum, sem talið er að þurfi að vera i gæzlu á meðan rannsókn fer fram á málum þeirra. Unglingarn- ir verða ekki í lökuðum klefum, heldur geta þeir gengið frjálsir um þau her- bergi, sem til afnota eru. Þarna er um þrjú herbergi að ræða, sem áður voru varðstofur. Húsið heyrir undir stjórn up'p- tökuheimilisins i Kópavogi og mun gegna sama hlutverki og heimiliið gegndi áður en þvi var breytt i núverandi form, þ.e.a.s. i opið heimili. „Siöurnúlinn” mun aðeins gegna þessu hlutverki þar til önn- ur lausn.er fundin. Lokað gæzlu- hús hefur vantað að undanförnu, og hefur orðið að láta unglinga, sem gerzt hafa sekir um eitthvert afbrot, lausa aftur svo til strax og þeir hafa verið teknir. I framtfð- inni er ætlunin, að „Siðumúlinn” verði kvennafangelsi og fyrir gæzluvarðhaldsfanga. —ÞM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.