Vísir - 26.01.1973, Blaðsíða 8
Badminton í
4 flokkum!
Einliðaleiksmót TBR
í badminton fer fram i
Laugardalshöllinni á
sunnudag. Keppni hef-
st kl. 12 með ieikjum í
B-flokki. Keppt verður
i þremur flokkum karla
á mótinu og einum
kvennaflokki.
1 meistaraflokki eru þátt-
takendur 20, i A-flokki 10 og
B-flokki 37. Einnig verður
keppt i A-flokki kvenna og
eru þátttakendur þar sjö.
Mót með þessu fyrirkomu-
lagi, þar sem keppt er i svo
mörgum flokkum, þjónar
tvennum tilgangi. bað er i
fyrsta lagi að gefa þeim, sem
ekki eru komnir langt i
iþróttinni tækifæri til að
keppa við jafningja sina og
losna þeir þá við að lenda á
móti sterkum meistara-
flokksmönnum strax i fyrsta
leik eins og oft hefur komið
fyrir i mótum. Margir hafa
misst móðinn við það að fá
núll i báðum leikjum.
Þátttakan i B-flokki sýnir
vel vinsældir þessa keppnis-
fyrirkomulags. 1 öðru lagi
gefa svona mót sigur-
vegurunum i A og B-flokki
stig, sem tekin eru til greina,
þegar raðað eri flokka fyrir
næsta keppnistimabil.
1 meistaraflokki keppa all-
ir okkar beztu badminton-
menn eins og Haraldur
Korneliusson, Sigurður
Haraldsson og öskar
Guðmundsson. í A-flokknum
eru aðallega ungir menn úr
Reykjavikurfélögunum og
munu þeir berjast hart um
sigurinn og fyrsta áfangan á
leið sinni i meistaraflokk. 1
B-flokki eru keppendur viða
að af landinu, meðal annars
frá Akranesi, Njarðvikum,
Selfossi, Borgarnesi, Siglu-
firði og svo Reykjavik.
Áætlað er, að úrslita-
leikirnir hefjist kl. fjögur.
Keppt verður um fagra verð-
launabikara, sem gefnir eru
af Sportval.
Sá finnski sveif lengst
öðru stökkinu, sem var hálfum
metra lengra.
Eftir tvö fyrstu mótin i Sviss er
staða efstu manna þannig:
1. Kæyhkö, Finnlandi, 497.1
2. H. Schmid, Sviss, 460.4
3. NordgrenSviþj. 460.0
4. Kodejaska, Tékk. 454.6
5. Pawlusiak, Póll. 449.4
6. R. Höhnl. Tékk. 447.7
7. W. Steiner, Sviss, 447.7
8. Sjeglanov, Sovét, 442.1
9. Skarseth, Noregi, 437.8
10. R. Bachler, Aust. 431.9
Sveinn G. Jónsson, verzlunarstjóri i Sportval, með verðlaunin, sem
verzlunin gefur. Ljósmynd RV.
og líka fallegast!
Vinstri handar högg George
Foreman er þarna að senda
heimsmeistarann Joe Frazier i
gólfið i sjötta og siðasta sinn
keppni þeirra i Kingston á
Jamakia uni heimsmeistara-
titiiinn i þungavigt aðfaranótt
þriðjudags. örstuttu siöar var
nýr heimsmeistari krýndur —
mikill meistari, sem aldrei
hefur tapað leik, og oftast unnið
á rothöggi. Enn er ekkert vitað
um áform Foremans i sam-
bandi við vörn á meistara-
titlinum.
var meðal hinna fremstu eftir
fyrra stökkið, sem mældist 84.5
metrar. Hann féll hins vegar i
Þrjór greinar
œfðar í Gerplu
Vegna fréttar hér í opn-
unni nýlega um stofnun
boröten ni sde i Ida r hjá
Breiðabliki í Kópavogi skal
það tekið fram, að Iþrótta-
félagið Gerpla hefur fleiri
en eina íþróttagrein á
stefnuskrá sinni. Hjá félag-
inu eru þrjár deildir fim-
leika- borðtennis- og
badmintondeild.
Að fleiri deildir hafa ekki verið
stofnaðar innan Gerplu hefur
húsnæðisskortur til iþróttaiðkana
komið i veg fyrir. Breiðablik hef-
ur alveg gengið fyrir i sambandi
við iþróttahúsnæði i Kópavogi.
Sama er einnig að segja um
starfsemi Handknattleiksfélags
Kópavogs. Húsnæðisskortur háir
starfsemi félagsins og vegna þess
hefur ekki verið hægt að stofna
þar fleiri deildir.
Finnski skíðastökk-
maðurinn Tauno Kæyhkö
hefur haft gífurlega yfir-
burði á svissnesku skíða-
stökkvikunni, sem nú
stenduryfir. Tvívegis hefur
verið keppt í stökkinu og
Tauno sigrað í báðum.
I St. Moritz i miðri vikunni vann
Finninn með 13 stiga mun — ná-
kvæmlega sami munur og hann
sigraði með i fyrstu keppninni.
Það var i Engelberg sl. sunnudag
og myndin að ofan sýnir Finnann
i keppninni þar:
Tauno Kæyhkö, sem er 22ja
ára, á stökkmetið i Olympiu-
stökkpallinum i St. Moritz, en
1971 stökk hann þar 88 metra. t
keppninni nú stökk hann tvivegis
86 metra, eftir að hafa fallið i
reynslustökki, sem mældist 83
metrar. Annar i keppninni varð
Anatolij Sjeglanov Sovétrikjun-
um, en i þriðja og fjórða sæti
Tékkarnir Rudolf Höhnl og Karel
Kodejska.
Norðmaðurinn Nils P. Skarset