Vísir - 26.01.1973, Blaðsíða 12
12
Vísir. Föstudagur 26. janúar 1973
BÆRINN SEM BÍÐUR
VESTMANNAEYJAR,
— bærinn á Heimaey, sem
nú er hvað mest umtalaður
allra bæja í veröldinni,
biður nú síns dóms. Verður
hann lagður í eyði af hinum
villtu og ægilegu náttúru-
hamförum, — eða hlifir
gosið bænum fyrir frekari
eyðileggingu. Eða tekst
kannski mannlegu hugviti
að leiða gosið frá honum
eins og nú mun standa til
með sprengiregni, jarð-
ýtum og vatni?
☆
1 Eyjum gera menn sinar
ráðstafanir ef svo skyldi fara, að
náttúruöflin yrðu manninum yfir-
sterkari i þessum hildarleik.
Menn vilja komast undan meö
þaö sem hægt er að veraldlegum
gæðum og er það ekki nema eðli-
legt.
☆
Myndsjáin, sem viö birtum á
siöunni, er frá þessum aögerðum
og ýmsu ööru úr bæjarlifinu i
Eyjum i gær. Myndirnar tók
Bragi Guðmundsson, ljós-
myndari okkar, sem hefur verið i
Heimaey frá þvi gosið hófst,
ásamt blaðakonu úr ritstjórnar-
liði Visis, Eddu Andrésdóttur.
l>að er rétt eins og húsin himi þarna og biði sins dóms undir hinu nýja gosfjalli, sem trónar yfir þeim
æ uggvænlegra með hverjum deginum sem liður. (Ljósmynd Leifur Þorsteinsson)
Heimilis vélar, rúmdýnur,
fatnaður og húsgögn, — allt á
bilpallinn. Hér unnu margar
hjálpiúsar hendur við
björgunarstörf — og I bak-
grunninn reiða eldguðirnir
svipu sina til höggs, eins og I
áminningarskyni.
Hér er einn hinna höröu Eyja-
manna, sem starfar af kappi við
björgunarstörfin, Einar Sv.
Jóhannesson, skipstjóri á
Lóösinum.
Guðmundur aðalvarðstjóri
Guðmundsson hefur ekki notið
mikils svefns, sfðan gosið hófst,
en hér er hann I skrifstofu sinni,
nýkominn utan úr öskugosinu.
...og hér er nauðsynleg klæði tek
in með i skipið til Þorlákshafnar
en margir voru heldur klæðlitlii
eftir flóttann til Reykjavikur.
Hér hefur hraunið ruðzt
gegnum húsið og hlífir
engu sem á leið þess
verður, jafnvel sterkustu
húsveggir geta látið
undan ofurþunganum.
Ingólfur netagcrðarmeistari
Theódórsson situr hér einn og
yfirgefinn á hinu mikla verk-
stæði slnu. ,,Hér er vist Htið aö
gera", hugsar hann og horfir I
gaupnir sér. Búiö var að hirða
flest allt af verkstæðinu, aðeins
litilsháttar eftir.
jr.
- 4
D