Vísir


Vísir - 26.01.1973, Qupperneq 6

Vísir - 26.01.1973, Qupperneq 6
6 Vísir. Föstudagur 26. janúar 1973 vísrn Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Fétursson Ritstjófnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: llverfisgötu 32. Simar 11660 66611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 66611 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 66611 <7 dnur) Askriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Cnn er tjónið lítið Fiskifræðingar telja, að loðnan fari ekki að veið- ast að gagni fyrr en um mánaðamótin. Þá má búast við, að þeir bátar og áhafnir frá Vestmannaeyjum, sem höfðu búið sig út á loðnu, verði til i tuskið. Sem betur fer virðist sem unnt verði að útvega þessum bátum löndunaraðstöðu. Svipað er að segja um vetrarvertiðina. Fyrstu at- huganir benda til þess, að veita megi þorra báta- flota Eyjamanna aðstöðu i höfnum á Reykjanes- svæðinu, frá Þorlákshöfn til Reykjavikur. Má þvi búast við, að róðrar á Eyjabátum hefjist strax upp úr helginni. Enn er eftir feikilegt starf við að skipuleggja at- vinnu landfólks úr Vestmannaeyjum. Þar þarf að tengja saman vinnu i fiskvinnslustöðvum og þjón- ustustöðvum sjávarútvegsins annars vegar og hins vegar húsnæðismöguleika fyrir heilar fjölskyldur, möguleika á skólagöngu og til barnagæziu. En ekki er ástæða til að efast um, að þessi skipulagning geti borið töluverðan árangur á örfáum dögum, ef tekið er til óspilltra málanna. Það eru þvi ekki horfur á, að Vestmannaeyingar verði lengi tekjulausir. Samfélagið mun þvi ekki hafa gifurlegan kostnað af þeim þætti vandamáls- ins. Ef vel gengur, verður það aðeins einnar eða tveggja vikna tekjutap, sem brúa þarf. Sé litið til þjóðarbúsins i heild er ljóst, að tekjutap Eyja- manna veldur aðeins óverulegri rýrnun þjóðar- tekna, mun minni rýrnun en nemur eðlilegri aukn- ingu milli ára. Vitanlega er þar með ekki öll sagan sögð. Þótt þjóðartekjurnar minnki ekki milli ára af völdum gossins i Heimaey, hefur samfélagið af þvi mikil út- gjöld. Kostnaðurinn við flutninga á landi og sjó, björgunarstörf og annað slikt er töluverður, en samt ekki meiri en svo, að þjóðfélagið ber hann með léttum leik. Langsamlega alvarlegasti þáttur dæmisins er það eignatjón, sem verða kann i Vestmannaeyjum. Ef kaupstaðurinn grefst i ösku og vikur, er hætt við að tjónið á eignum fari fljótt að skipta milljörðum. Húsbúnaður eyðileggst og hús verða fyrir skemmd- um. Það, sem menn óttast langhelzt er, að hraun eða önnur gosefni loki höfninni, þvi að þá kann að bresta grundvöll þess, að aftur verði hægt að taka upp þráðinn i atvinnulifi Vestmannaeyja. Enn sem komið er nemur eignatjónið i Eyjum að- eins fáum tugum milljóna. Ef eldgosið fer að hjaðna úr þessu eða hagar sér á þann hátt, að höfnin lokast ekki, verður aftur að einhverjum tima liðnum hægt að nýta á nýjan leik eignirnar i Eyjum. Ef sú verður þróunin, hefur samfélagið sloppið fjárhagslega ákaflega vel frá þessu hættulega gosi. Eins og málin standa nú getur samfélagið borið með léttum leik það tekjutap, sem orðið hefur, þann kostnað, sem orðinn er, og það eignatjón, sem orðið hefur. Eina óbærilega byrðin er eignatjónið, sem fylgja mundi i kjölfar varanlegrar lokunar hafnarinnar i Eyjum. Þar með mundu allar fastar eignir i kaup- staðnum verða verðlausar i einu vetfangi. En það er engan veginn enn ljóst, að svo muni fara. Við skul- um þvi ekki byrja strax að barma okkur um of, meðan við höfum enn von um að sleppa fjárhags- lega jafn vel úr hildarleiknum og Eyjamenn sluppu vel i land nóttina fyrstu. YIÐNAM Gosiö i Vestmannaeyjum hefur fram til þessa markazt mest af mörgum ótrúlega heppilegum til- viljunum. Sprungan rifnaði þar scm hún geröi minnst tjón, hrauniö hefur runniö I sjó út, vindátt veriö hagstæö, það er eitt kraftaverkið að landsynningurinn skuli ckki vera i Vestmannaeyj- um, og loks vildi svo heppilega til fyrir fræga og rómaða mann- flutninga, að allur bátaflotinn skyldi vera i höfn, en hann gat langieiöina rúmaö aila íbúana. Margt fleira leystist sjálfkrafa, svo sem hinar undraverðu mót- tökur flóttafólksins i Rvk. Það hefur veriö rómað, hve stjórn Al- mannavarna hafi tekizt vel. Ráðið kom saman i skyndi og stjórnunarkerfi þess fór fljótt i gang. Viss atriði einkum á sviði eftirlits, flutninga og móttöku gengu einstaklega snurðulaust. Vegna stjórnsemi ráðsins var fjölmennt lögreglulið sent fljótt til Eyja, strætisvagnar og eftirlitslið til Þorlákshafnar, stöðvuð truflun forvitinna og gestrisnismóttöku fyrir flóttafólkið strax komið á i Reykjavik. 1 þessum atriðum öll- um höfðu Almannavarnir lið- kandi áhrif, það var mikilvægt að hafa eina sameiginlega stjórn meö fjarskiptum og heildaryfir- sýn. En þó er varla hægt aö segja aö i þessum aðgerðum komi fram sérstakur framtaksvaki. Þær eru allar þess eðlis að þær hefðu verið framkvæmdar sjálfkrafa, skip hefðu stefnt til Eyja, floti Eyja- manna siglt úr höfn, lögregla verið send þangað og umferðar- takmörkunum komið upp, jafnvel hefði sjálfkrafa verið óhjákvæmi- legt að taka Rvk-strætisvagnana, þó engar Almannavarnir heföu verið til. En skipulagið allt gengiö stirðara með meiri bið, erfiðleik- um og þjáningum fyrir flótta- fólkið. A öðrum sviðum hafa Almannavarnir minna látið aö sér kveða, þar sem troða hefði þurft nýjar brautir i varnarað- gerðum og taka ákvarðanir sem hefðu kostað ábyrgö. Þaö var litið leitað fyrir sér, hvað fleira heföi mátt framkvæma en að senda lögreglu til að standa vörð. Það sem mest skorti og skortir enn má túlka með einu orði, — það vantaði viðnám. Allar að- gerðir i sambandi við eldgosið hafa einkennst af sérstöku við- námsleysi, uppgjöf móti krafti náttúruaflanna. Mannflóttinn frá Eyjum, hversu fljótt og vel sem hann var framkvæmdur sýndi i rauninni aðeins algera uppgjöf. Allt björgunarstarf hefur boriö svip af þessari uppgjöf og flótta. Eftir að allir ibúarnir eru flúnir, taka sumir að snúa aftur, en aðeins til að sækja i mesta hasti verðmæti og föt, sem gleymdust i asanum, taka burt fiskinn úr frystihúsunum, flytja burt veiðarfæri, bjarga lúxusbilunum sinum, eftir fylgja kannski flutningar á húsmunum og at- vinnutækjum. Það er verið að leggja Vestmannaeyjar i eyöi, þessar yndislegu grænu eyjar eru vegna viðnámsleysis að breytast i nýjar Hornstrandir. Nú verð ég að taka fram, að ég ætla mér nú ekki að fara að spila neinn stóran karl. Nei samfara djúpri samúð til fólksins, verð ég að viðurkenna að ef ég hefði búið sjálfur i einhverju húsanna viö Kirkjubæ, þá hefði ég oröið allra manna hræddastur og hlaupiö með konu og börn á nærbuxunum beina leið niður i mótorbátinn Gideon eða Halkion. Og ég dreg heldur ekki úr þeim ábyrgðar- hluta að láta þúsundir manna dveljast i eyjunum skelfingu lostin, með ábyrgðinni af þvi aö imynda sér að ný eldgjá kynni að myndast einhvers staðar um miðjan bæinn og gleypa hús og menn. En slika ábyrgö, hversu skelfileg sem hún er, verða forustumenn að kunna að taka. Til þess eru þeir forustumenn. Við höfum aldrei kynnzt hér á landi ógnum styrjalda. En eld- gosið i Eyjum ásamt þeim ráö- stöfunum sem gera þurfti, likjast hvað mest ógnvekjandi styrjaldarástandi.Þærþjóöir sem þekkt hafa styrjaldir skilja það betur en við að fyrsta boðorðiö á hættunnar stund er að byggja upp viðnám. Þar flýja ekki allir undir eins staði sem sprengjuárásir eru gerðar á, heldur skipuleggja sig og snúast til varnar með öllum ráðum, öflugar björgunar- og vinnusveitir taka til starfa viö að stööva elda, forða frekara tjóni, hefja viðgerðir og atvinnulif hiö bráöasta aftur. Menn segja kannski, að óliku sé saman að jafna, sprengjuárásum og stórkostlegum óviöráöanleg- um náttúruöflunum, sem allir standa magnþrota gegn. En er það vist, að ekkert frekara hafi mátt gera i Eyjum? Heföi ekki veriöréttara að reyna að efla við- námið? Ein fyrsta spurningin sem nagar mann, er hvort fjölda- flóttinn frá Vestmannaeyjum hafi verið nauðsynlegur og hvort flóttamennskan kosti fólkið ekki enn meiri þjáningar og erfið- leika? Viö sjáum nú, auðvitað eftirá, að ekkert verulegt hefur enn gerzt sem réttlæti flóttann. Það eru aðeins 5 eða 6 hús, sem hafa brunnið höfnin er opin, vatnsleiöslur og rafleiðsla enn óskemmd, simasamband óskert. Það er að visu sót og aska á göt- um, en væri ekki jafnvel hægt að byrja á jafn tilgangslausu verki og að sópa göturnar, þó það yrði ekki til annars en að reisa við- námsviljann? Jafnvel frystihúsin standa þarna óhreyfð? Hver hefur reynt það til ýtrasta hvort hægt sé að vinna þar? Og væri ekki einhver bátur fáanlegur að koma með fyrsta loðnuaflann inn og setja bræðsluna af stað. Þó það væri ekki til annars en að sýna, að Vestmannaeyingar ætla sér alls ekki að gefast upp fyrr en i fulla hnefana. Enn hefur sem sagt ekkert gerzt, sem raunverulega hefur réttlætt allsherjarflóttann. En mig langar aðeins að vikja að nokkrum atriðum sem áttu þátt i að magna flóttann. Megin- ástæðan var að sjálfsögðu ótti og skelfing sem greip um sig, margir þustu sjáifkrafa niður að höfn. Samfara þessu var óttinn og vanþekkingin i myrkrinu, hvað raunverulega væri að ske? Þó voru lika margir, sem ætluðu sér hvergi að fara, vissu það frá heimsóknum i Surtsey að hraun- straumur rennur sjaldan með hraða fljóts. Kunnugir hafa jafn- vel tjáð mér að sennilega hefði meirihluti Eyjaskeggja hvergi farið, ef þeim hefðu ekki borizt gegnum útvarp beinar fyrir- skipanir Almannavarna um að allir ibúarnir ættu að hafa sig á burt. Mér sýnist, að þessi fyrirskipun hafi haft alger úrslitaáhrif um hinn mikla flótta. Og mér finnst nú að það hafi verið misráðið af Almannavörnum að gefa hana. Ég veit að visu að þarna sitja þessir menn með hina stóru ábyrgð og sjá fyrir sér, hvern dóm þeir muni hljóta, ef Vest- mannaeyjar sökkva allar i sæ eða gapandi eldgjá myndast og gleypir byggðina. Að þvi leyti var fyrirskipunin skiljanleg og mann- leg. En slika ábyrgð verða menn að þora að bera á hættustundum og þora að standa viö þá frum- skyldu að byggja upp viðnám. Annað atriði hafði enn frekari áhrif til að fullkomna flóttann. Þegar mörg hús voru yfirgefin og mannlaus, óttuðust forráðamenn gripdeildir og innbrot. Til aö fjar- lægja þá hættu voru gefnar enn strangari fyrirmæli um að allir yrðu aö hafa sig á braut. Þessu hefði þó verið hægt að mæta með öðrum hætti, strangri og skipu- legri varðgæzlu i hverju hverfi og götu. Maöur skilur lika hina mann- legu og tilfinningalegu hlið, þegar flótti var hafinn, að hver heimilis- faðir vildi sjálfur fylgja eiginkonu og börnum i land, þá öryggistil- finningu sem fylgir þvi að öll fjöl- skyldan sé saman komin. Slikt hefði þó aldrei viðgengizt með þjóðum sem vanar eru heima- vörnum. Þar hefði viðnámið verið skipulagt með öðrum hætti, hjálparsveitir stofnaðar til að hjálpa og flytja konur og börn, sjúklinga og gamalmenni á brott, en verkfærum karlmönnum skipað i björgunar- o,3 baráttu- sveitir. Þar hefði aldrei við- gengizt að allt starfsfært lið færi i burtu. Kannski segja menn að þar sé óliku saman að jafna, móti ægikrafti eldgoss megi mannafliö sln einskis. En er það vist að svo

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.