Vísir - 19.02.1973, Page 9

Vísir - 19.02.1973, Page 9
Ein stjarna kviknar þó önnur bliknar... Gunnar tók að sér hlutverk Geirs gegn hvítu Ijónunum! Það liðu ekki margar minútur af leik FH og Za- greb á laugardaginn áður en fyrsti leikmaðurinn var úr leik. Geir Hallsteinsson var þá neyddur til að yfir- gefa völlinn nefbrotinn og varekki með meira í leikn- um. En um leið kviknaði ný stjarna, sem fyllti skarðið alveg ótrúlega vel, en það var hinn kornungi Gunnar Einarsson. Troðfull Laugardalshöll kom til að horfa á FH og hvitu ljónin, sem voru andstæðingar þeirra. Greinilega hafa laugardagarnir ýmislegt sér til ágætis sem keppnisdagar. bað var eins og fyrri daginn að markvarzlan er okkar veika hliö, og það jafnvel hjá FH, sem flagg- ar þó með tvo landsliðsmark- verði, hvorki meira né minna. Þeir Hjalti og Birgir voru nefni- lega ekki i essinu sinu, en yfirleitt er Hjalti þó ekki mistækur i leikj- um sinum. Markvarzla Júgóslav- anna var aftur á móti stórkostleg á köflum. Leikurinn var nokkuð jafn, 6:6 var staðan eftir rúmar 10 minút- ur, talsvert markaregn, en þó tókst FH að skora 3 mörk i einni svipann og staðan orðin 9:6. Þetta jafnaðist þó undir lok hálfleiksins og var staðan i hléi 11:10. 1 seinni hálfleik jöfnuðu Zagrebmenn og komust 2 mörk yfir þegar i byrjun, 13:11 og héldu siðan forystu, en þrivegis jöfnuðu Hafnfirðingar þó undir lokin, i 16:16 , 17:17 og 18:18. Júgóslavarnir voru greinilega harðari aðilinn i leik þessum og undir lokin ætlaði allt hreinlega um koll að keyra og hrein handa- lögmál að brjótast út. Þá var greinilegt á öllu, að Júgóslavarn- Urðu að biðja dómarona afsökunar ó auglýsingunni Leikur FH og hvitu ljónanna frá Zagreb hófst meö nokkuö óvanalegum hætti, — KR- ingar, sem stóðu að heim- sókn liðsins, urðu að biðja dómarastéttina afsökunar fyrir orðalag á auglýsingu, sem KR hafði látiö birta i morgunbiöðunum þá um daginn. Var þar deilt á dómarastéttina með þessum orðum: ,,Val tókst að sigra — þvi miður með hjálp dómara. Tekst FH-ingum þaö án slagsmáia og hjálpar dóm- ara?” Dómarar voru að vonum af- skaplega óánægðir meö þetta og heimtuðu þegar aö réttir aðilar bæðust afsökun- ar, sem var gert, en þó held- ur fátækiega, þvi fólk áttaöi sig ekki aliskostar á orðalagi formanns handknattieiks- deildar KR. —JBP— — en vítaskotin lokuðu sigurmöguleikum fyrír FH ir reyndu leiktöf og tókst það reyndar, enda þótt hálfri minútu væri bætt viö timann. Raunasaga þessa leiks var ann- ars ekki fyrst og fremst mark- verðirnir. Það voru öllu frekar vitaskyttur liösins. Þegar Geir var úr leik var Þórarinn Ragnarsson látinn taka viti, sem var varið, þá kom Birgir Björns- son og lét enn verja. Og enn voru tvö viti til viðbótar varin. Fjögur mörk, sem ekki komu til skila, mörkin, sem vantaði til að vinna þennan leik. Viðar Simonarson er góð vitaskytta, en hann var held- ur ekki með i þessum leik. Gunnar Einarsson kom skemmtilega á óvart með þvi aö fylla skaröið að svo miklu leyti sem hægt var, þegar langbezti maður liðsins var frá. Enginn vafi er á þvi að i Gunnari er okkar bezta handknattleiksmannsefni i dag, maður, sem á eftir að gera marga góða hluti fyrir FH og landsliðið i framtiöinni. Birgir Björnsson sýndi aö hann getur skorað, hann skoraöi 3 af fyrstu 5 mörkum liðs sins og bætti siðar við einu til viðbótar. Júgóslavneska liðið lék léttan og skemmtilegan handknattieik. Enginn vafi á aö liðiö er gott. Hins vegar fannst mér örla fyrir leik- þreytu hjá leikmönnum, þegar á leikinn leið. Markvörðurinn Zdenko Zorko, þriðji markvöröur Olympiuliðsins, var frábær og Tomislav Dragun, stórskemmti- legur leikmaður. Gunnar skoraði 6 af mörkum FH, Birgir 4, Auðunn 3, Jón Pétur og Ólafur Einarsson 2 hvor og Gils eitt, — og það var úr viti, þvi eina sem FH heppnaðist i leikn- um. —JBP— 1 i 1 í !• i K Joe Hooley á miðri myndinni ásamt llafsteini Guðmundssyni og nokkrum leikmönnum Keflvikinga. Myndina tók Bjarnleifur f Laugar- dalshöllinni i gær. Leizt vel ó þoð sem hann só — Enski þjólfarinn Joe Hooley kom til landsins í gœr og tekur senn við þjólfun hjó Keflavík í knattspyrnu — Hann getur bara verið spennandi, þessi handbolti, sagði enski knattspyrnu- þjálfarinn Joe Holley, þeg- ar hann horfði á leik is- lenzka landsliðsins og Za- greb í Laugardalshöllinni í gær og síðan á leik Keflvík- inga við Þrótt. En, bætti hann við, ég skil nú ekki mikið í leiknum — hef ekki horft á handbolta áður, því hann þekkist varla i Eng- landi. Joe Hooley kom hingaö til lands i gær gagngert til þess að kynna sér aöstæöur i knattspyrnunni hjá Keflvikingum, en Alan Wade, for- maður knattspyrnuþjálfara i Englandi, hefur mjög mælt meö honum sem þjálfara fyrir Kefl- vikinga i sumar. Hooley kom um miöjan dag i gær og eftir aö Haf- steinn Guömundsson, formaður Iþróttabandalags Keflavikur, haföi boðið honum i kaffi á Sögu var ferðinni heitið i Laugardals- höll og voru fleiri forustumenn IBK með i þeirri för. — Það vantar aðeins nauðsyn- leg leyfi og eftir er að ganga frá formsatriöum, en ég tel nokkuð öruggt að við ráðum Hooley sem þjálfara Keflvikinga i sumar, sagði Hafsteinn Guðmundsson viö Visi i gær. Viö munum ráða hann til sjö mánaða — frá miöjum marz fram i miðjan október eða meðan knattspyrnutimabilið stendur hér. Joe Hooley hefur veriö þjálfari hjá Colchester, liðsins I 4. deild i elztu borg Englands, siöustu tvö árin að þvi undanskildu, að sið- astliðið sumar var hann þjálfari Olympiuliðs Sudan á leikunum i Vestur-Þýzkalandi. — Þeir buðu mér samning til tveggja ára i Sudan, en ég hafði ekki hug á að vera þar svo lengi — tók ekki boöinu. Auk þessa tilboðs Keflvikinga stendur mér til boöa þjálfun I fjórum öðrum löndum, sagði Joe Hooley. Hann var áður leikmaður i Sheffield — enda Yorkshirebúi — varð atvinnumaöur 15 ára, en hætti28ára vegna meiðsla. Þá fór hann á námskeið i þjálfun og hef- ur i næstum áratug verið knatt- spyrnuþjálfari. Hooley dvelur hér fram á þriðjudag, en heldur þá heim aftur, og ef aö likum lætur kemur hann aftur um miðjan marz.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.