Vísir - 19.02.1973, Síða 12
Vlsir. Mánudagur 19. febr. 1973.
Sjálfsmark og 2 stig í
saf nið hjá vopnabúrinu
— Liverpool náði jafntefli gegn Manch.City eftir að fyrirliðinn Tommy Smith hafði verii
rekinn af leikvelli
Tvö stig bættust í safn
vopnabúrsins á laugar-
daginn, þegar Lundúna-
liðið sigraði Leicester á
sjálfsmarki miðvarðar
Leicester, Manley, strax á
sjöundu mínútu, en á
sama tima náði Liverpool
jafntefli á Maine Road í
Manchester. Það var tals-
vert afrek gegn Manch.
City liði, sem ekki hefur
tapað leik á þessu ári, og
Liverpool tókst að jafna
mark Tommy Booth sið-
ast í fyrri hálfleik eftir að
fyrirliði liðsins hafði verið
rekinn af leikvelli, Það
var á 67. min. að dómar-
inn rak Tommy Smith af
vellinum — en 11 min. síð-
ar jafnaði Phil Boersma
fyrir Liverpool.
Staðan i toppi og botni 1.
deildarinnar ensku er mjög op-
in. Arsenal er nú tveimur stig-
um á undan Liverpool — hefur
44 stig i 31 leik, en Liverpool hef-
ur 42 stig i 30leikjum, en þaö ber
að taka með i reikninginn að
staða Arsenal er talsvert erfið
að þvi leyti, að liðið á aðeins
fjóra leiki eftir á heimavelli —
Liverpool sjö. Fast á hæla þess-
ara liða fylgja Leeds — sem að-
eins tókst að ná jafntefli gegn
Chelsea á heimavelli á laugar-
dag — og Ipswich, sem vann
Manch. Utd. örugglega á Port-
land Road. Leeds hefur 40 stig
úr 29 leikjum og hefur þvi ekki
tapað fleiri stigum en Arsenal
og Liverpool. Það er eins með
Leeds og Arsenal, að liðið á mun
fleiri leiki eftir á útivöllum. Og
Ipswich hefur 38 stig eftir 29
leiki — hefur aðeins tapað
tveimur stigum meira en
Arsenal. Ipswich hefur þvi enn
góða möguleika á
meistaratitlinum.
t botninum er WBA neðst með
19 stig — en Manch. Utd. er nú
aftur komið i næst neðsta sæti.
Hefur 22 stig ásamt Stoke, en
Crystal Palace, Birmingham og
Norwich hafa 23 stig — Sheff.
Utd. 24. Þarna má þvi búast við
gifurlegri hörku lokaumferðirn-
ar — jafnvel lið eins og Leicest-
er og Everton eru ekki alveg
sloppin úr fallhættunni.
En það er nú vist kominn timi
til að lita á úrslitin á
laugardag og þá eru þaö fyrst
úrslitin i getraunaleikjunum.
1 Arsenal-Leicester 1-0
1 C.Palace-Stoke 3-2
1 Derby-Southampt. 4-0
- Evert.-Norwich frestað
1 Ipswich-Manch.Utd. 4-1
X Leeds-Chelsea 1-1
X Manch.City-Liverp. 1-1
2 Sheff.Utd.-Birmingh. 0-1
X Wolves-Newcastle 1-1
X Carlisle-Burnley 1-1
1 Fulham-Sheff.Wed. 1-0
1 Sunderl.-Middlesbro 4-0
ÍR sigraði
ÍR sigraði KR með 20
stiga mun —92-72 —i 1.
deiíd íslandsmótsins i
körfubolta i gærkvöldi,
og hefur þar með tekið
forustu i keppninni.
Nánar á morgun.
Mike Jones skoraöi fyrsta markið Ileik Leeds og Chelsea, en hann hefur ekki skorað mikið I vetur og oft
verið frá leikjum hjá Leeds vegna meiðsla.
önnur úrslit:
1. deild.
Coventry-Tottenh. 0-1
WestHam-WBA 2-1
2. deild.
QPR-Swindon 5-0
Aston V.-Preston l-l
Blackp.-Huddersf. l-l
Bristol C.-Brighton 3-1
Luton-Cardiff l-l
Portsm.-Nottm.For. 2-0
Hull C.-Millw. 0-2
Oxford-Orient 2-1
Þrátt fyrir sjálfsmarkið verð-
skuldaði Arsenal sigur gegn
Leicester — liðið lék mjög vel
fyrri hálfleikinn, en enski lands-
liðsmarkvörðurinn Peter
Shilton átti snilldarleik i marki
Leicester. Hann réð þó ekki við
sjálfsmarkið á 7. minútu. Það
var John Radford, sem lék upp
völlinn og gaf fyrir markið.
Shilton virtist eiga létt með að
ná knettinum þegar félagi hans
Manley rak út fótinn — breytti
stefnu knattarins, sem skoppaði
i markið. Rétt á eftir átti Rad-
ford góða tilraun — lék á tvo
varnarmenn, en hörkuskot hans
var varið i horn. 1 siöari hálfleik
kom Leicester meira i spilið og
Len Glover fór þá illa með opið
færi. En Bob Wilson i marki
Arsenal var einnig i miklu stuði
og varði vel. Undir lokin kom
Charlie George inn á i stað Jeff
Blockley hjá Arsenal. Frank
McLintock lék með i stað Peter
Simpson, sem var meiddur.
Liverpool hefur ekki unnið
deildaleik siðan 6. janúar og
staðan var allt annað en góð
lengi vel gegn Manch. City —
liðinu, sem sló Liverpool út i
bikarkeppninni. City lék prýði-
lega og á 44. min. skoraöi miö-
vörðurinn Tommy Booth meö
skalla eftir aukaspyrnu Mike
Summerbee. öllu virtist lokið
hjá Liverpool, þegar fyrirliðinn
Tommy Smith var rekinn af
velli á 67. min. fyrir að rifast við
dómara. En það var þó ekki —
vörn Liverpool var sterk án
Smith og á 78. min. skoraði
Boersma eftir fyrirgjöf Brian
Hall, sem haföi komiö inn sem
varamaður fyrir Steve High-
way. Ray Clemence átti stórleik
i rnarki Liverpool.
Chelsea byrjaði leikinn mjög
vel gegn Leeds — Leedsliðið var
leikið sundur af leiknum leik-
mönnum Chelsea i 25 min., en
ekki var skorað. Svo náði Leeds
upphlaupi og Mike Jones skor-
aði. Eftir það var Leeds-liðið
sterkari aðilinn i leiknum —
leikmenn Chelsea fóru að verða
grófir og þrir bókaðir. En á 58.
min. tókst Chelsea að jafna.
Garner skallaði þá knöttinn fyr-
ir fætur Peters Osgood, sem
renndi honum i mark.
Lokaminúturnar hélt Leeds upp
mikilli pressu og þá voru Peter
Lorimer og Mike Bates óheppn-
iraðskora ekki — auk þess, sem
Phillips átti snilldarleik i marki
Chelsea.
Ipswich lék slakt lið Manch.
Utd. sundur og saman á Port-
land Road i Ipswich. Strax á 2.
min skoraði Bryan Hamilton
fyrir heimaliöið eftir að Mike
Lambert hafði átt skot i þverslá.
Colin Harper, bakvöröur, skor-
aði annað mark liðsins á 29. min
eftir hornspyrnu með skalla.
Aðeins góð markvarzla Alec
Stepney kom i veg fyrir fleiri
mörk Ipswich i fyrri hálfleikn-
um. Hamilton kom Ipswich i 3-0
áður en Lou Macari skoraði eina
mark Manch. Utd. Rétt á eftir
skoraöi George Graham eftir
aukaspyrnu Bobby Charlton, en
linuvörður dæmdi markið af —
og sama skeði hinum megin,
þegar fyrirliðinn og bakvörður-
inn Mick Mills sendi knöttinn i
markið með stórglæsilegu skoti.
Rangstaða var dæmd á leik-
menn, sem engin áhrif hafði.
Siðasta mark Ipswich skoraði
Suður-Afrikumaöurinn Viljoen
úr vitaspyrnu eftir aö Buchan
hafði varið með hendi. Hið unga
liö Ipwswich leikur mjög glæsi-
lega og Lambert var hreint
óstöðvandi lengstum. Hann lék
Forsyth grátt framan af — og
skiptu bakverðir United þó um
stöðu. Tony Dunne tók Lambert
að sér og gekk ekki alltaf of vel.
Vörn Manch. Utd. átti slakan
leik — skilningurinn virðist afar
bágborinn hjá varnarmönnum
innbyrðis, þó greinilegir hæfi-
leikar þeirra sjáist oft. Einu
mennirnir, sem eitthvaö gátu i
liöi United voru Charlton og
Brian Kidd, sem kom i stað
Willie Morgan. Hann meiddist i
landsleiknum á Hampden i
miðri siðustu viku. Það er áfall
fyrir Manch. Utd. þvi Morgan
hefur verið bezti maður liðsins i
vetur.
Eftir gifurlega gagnrýni á
Ðerby, sem lék með hreinu
varamannaliði gegn Stoke i
miðri viku (félagið verður jafn-
vel sektaö fyrir það) og sagt, að
Derby hugsi aðeins um leiki i
bikarkeppni, lék liðið með beztu
mönnum sinum gegn Sout-
hampton. Og það varð auðvitaö
stórsigur — Hector skoraði tvi-
vegis i s.h., en Hinton skoraði
fyrsta mark leiksins. A milli
sendi bakvörðurinn Bob
McCarthy knöttinn i eigið mark.
Coventry sótti nær stöðugt
gegn Tottenham, en aldrei tókst
liðinu að skora og svo 15 min
fyrir leikslok mistókst Alan
Dugdale að spyrna frá eftir fyr-
irgjöf Martin Peters. John Pratt
sendi knöttinn i markið. West
Ham haföi næstum kastað frá
sér stigi gegn WBA. Billy Bonds
skoraði fyrir WH á 19. min., en
50 min siðar, átti McDowell
slæma sendingu til markmanns,
sem Tony Brown náði og hann
skoraöi auðveldlega og jafnaði.
Leikmenn Bobby Moore sóttu og
sóttu lokaminúturnar — og i
„meiðslatima” sendi Moore
hnitmiðað á Robson úr auka-
spyrnu, sem skoraði sigur-
markið.
Crystal Palace hafði yfirleitt
góð tök á leiknum gegn Stoke. 1
hálfleik stóð 2-0 fyrir Lundúna-
liðið — Poosee og Alan Whittle
skoruðu. I byrjun siðari hálf-
leiks skoraði Jimmy Greenhoff
fyrir Stoke. Það stóð ekki lengi.
Don Rogers kom CP i 3-1 eftir
mikið sólómark. Rétt undir lok
in skoraði svo Dennis Smith
annað mark Stoke, og spenna
var um stund.
Leikur úlfanna og Newcastle
varð nokkurs konar einvigi milli
Hibbitt-bræðranán. Ken Hibbitt
náði forustu fyrir úlfana á
21.min., en Terry Hibbitt jafnaði
fyrir Newcastle. Derek Parkin
lék nú með Úlfunum eftir langt
hlé vegna hjartasjúkd'óms.
Úlfarnir hefðu átt að ná báðum
stigunum. Derek Dougan fór illa
að ráði sinu — komst framhjá
markverði Newcastle, en féll
fyrir framan galtómt markið og
tækifærið var um leið glatað.
1 fallbaráttuleiknum i Sheff-
ield tókst Birmingham að
tryggja sér bæði stigin með
marki hins 18 ára Trevor
Francis á 26. min. Harka var
mikil i leiknum og Bob Hatton
hjá Birmingham var rekinn af
velli, en samt tókst liðinu að
halda báðum stigunum.
Staðan i deildunum er nú
þannig:
1. deild Arsenal 31 18 8 5 43-27 44
Liverpool 30 17 8 5 53-32 42
Leeds 29 16 8 5 51-30 40
Ipswich 29 14 10 5 43-29 38
Derby 31 14 6 11 40-43 34
Newcastle 30 12 9 9 48-39 33
West Ham 30 12 8 10 51-40 32
Manch. C. 29 11 8 10 41-41 30
Tottenh. 29 11 7 11 37-34 29
Chelsea 29 9 11 9 40-38 29
Wolves 28 11 7 10 41-40 29
Southampt. 30 8 13 9 29-34 29
Coventry 29 10 8 11 30-32 28
Everton 28 9 8 11 28-26 26
Leicester 30 8 9 13 34-41 25
Sheff. Unt. 29 9 6 14 31-44 24
C. Palace 28 7 9 12 32-36 23
Birmingh. 29 7 9 13 34-44 23
Norwifh 29 8 7 14 26-43 23
Stoke 29 7 8 14 43-44 22
Manch. Unt. 30 6 10 14 29-49 22
W.B.A. 28 6 7 15 25-43 19
2. deild Burnley 29 15 12 2 50-28 42
Q.P.R. 30 15 11 4 56-32 41
Aston Villa 29 13 10 6 36-29 36
Fulham 29 12 10 7 45-32 34
Oxford 30 14 5 11 37-30 33
Blackp. 30 12 9 9 43-36 33
Luton 29 12 9 8 36-32 33
Middlesbro 31 11 10 10 28-35 32
Sheff. Wed. 30 11 8 11 45-41 30
Millwall 30 11 7 12 40-34 29
Bristol C. 29 10 9 10 38-38 29
Hull 29 9 10 10 43-39 28
Portsm. 29 10 8 1 35-33 28
Preston 30 10 8 12 29-45 28
Nottm. For. 29 9 9 11 31-36 27
Carlisle 28 9 8 11 41-34 26
Sunderl. 26 8 9 9 37-34 25
Huddersf. 30 6 12 12 26-38 24
Cardiff 27 9 5 13 31-40 23
Orient 29 6 11 12 27-36 23
Swindon 29 6 11 12 34-49 23
Brighton 30 3 9 18 31-68 15