Vísir


Vísir - 19.02.1973, Qupperneq 20

Vísir - 19.02.1973, Qupperneq 20
VÍSIR Mánudagur 19. febr. 1973. Brotizt inn Einhver hefur oröiö svangur s.I. nótt, en þá var brotizt inn i kjötbúö Noröurmýrar. Ekki var hægt að segja með vissu hverju hafði veriö stolið úr verzluninni, en þarna skammt frá fundust matvörur, sem sennilega eru úr búðinni. Voru þaö egg og laukur sem skilið hafði verið eft- ir. Skotar þeir sem teknir voru fyrir innbrot og þjófnaði fyrir nokkru voru á ferli i nágrenninu og voru þeir handteknir. Ekki er sannað að þeir hafði átt þátt i inn- brotinu, en þeir verða yfirheyrð- ir. Skotar þessir höfðu brotizt inn á nokkrum stöðum fyrir skömmu, en verið handteknir. Þá höföu þeir meðal annars brotizt inn i verzlun i Kópavogi og stolið þaö- an matvælum. ___________________— ÞM. Átti að fara að hefja leit — en þó komu stúlkurnar fram Hefja átti leit aö tveimur stúlk- um frá Akureyri á laugardags- kvöld. Stúlkurnar höföu ætlað að fara i skátaskáia sem er nefndur Fálkafell. En þegar þær skiluðu sér ekki þar átti að hefja leit að þeim. Talið var að stúlkurnar hefðu ætlað að ganga austur af fjallinu beint niður i bæinn þar sem þær fundust ekki i skálanum, en slæmt veður var og bylur. Kölluðvar saman sveit skáta, er átti að leita að stúlkunum. En rétt um það bil sem leit átti að hefjast komu stúlkurnar fram. 1 stað þess að fara i Fálkafell höfðu þær farið i skála sem nefndur er Skiðastaðir og er um 10 minútna gang frá hinum skálanum. Ekk- ert var að stúlkunum og höfðu þær aðeins farið i annan skála en ætlað var i upphafi. —ÞM Tveir teknir með stolið óvísanahefti Hrotizt var inn i bát, Sæfara Ak. 171 scm lá viö Verðbúðarbryggj- una hjá Ilafnarbúðum um helg- ina. Úr bátnum var stoliö nýjum sjónauka, en engu öðru og ekkert var skemmt. Útvarpstæki var stolið úr bil er stóð við Ægisgarð. Þrir menn voru handteknir fyrir að selja falsaðan tékka i nætursölunni i Umferðarmiðstöðinni. Af- greiðslustúlkan sá að tékkinn var falsaður en hann var að upphæð 1300 krónur og hringdi hún i lög- regluna. Skömmu seinna komu mennirnir aftur að Umferðarmið- stöðinni og voru þeir þá hand- teknir. Höfðu þeir stolið tékkheft- inu. Mennirnir hafa oft áður verið teknir fyrir ávisanafals. —-ÞM Góð loðnuveiði Landað fró Skaganum til Raufarhafnar Agæt loönuveiði var i gærkvöhli og i nótt. i morgun höfðu 23 skip tilkynnt afla að magni 5.500 tonn. Flest skipanna voru þá á lcið til Austfjaröahafna meö aflann, þó flest á leið til Haufarhafnar. Að- eins fjögur voru á vesturleið, þar af tvö á leið til Akrancss. Flotinn er nú allur að veiðum austur af Ingólfshöfða, þar sem loðnugangan stöðvaðist vegna vestanáttarinnar. Búast má við þvi, að hún haldi nú áfram að ganga vestur með suðurströnd- inni. Nákvæmar tölur liggja ekki fyrir um heildaraflamagnið. Það mun þó vera nálægt 120-130 þús. tonnum, sem er allverulega betra en á sama tima i fyrra.— VJ. HRAUN RENNURí TIL BÆJAR frystistöðin og önnur fyrirtæki og hús, sem standa þar nálægt, eru i hættu, ef hraunrennslið heldur áfram, en það rennur vestan við gamla hraunið. ÁTT Jarðfræðingar voru allir staddir við gosið þegar við reyndum að ná sambandi við þá. —EA — Fjðldi mannvirkja í hœttu Nýtt hraunrennsli hefur myndazt i Vest- mannaeyjum, og renn- ur nú hraun i átt til bæjar. Siðustu fréttir sem við höfum frá Eyj- um eru þær, að hraun rennur með eins metra hraða á klukkustund, og rennur norðvestan megin á nýja fjallinu. Norðvestan megin opnaðist op þar sem hrauniö sprengdi sér leið út, og stefnir það nú á þau hús, sem standa austast i byggðinni. Virðist hraunið hafa tekið stefnu á ytri hafnargarð- inn, og búast má við að hraunið renni austur við garðinn. Það er augljóst, að Hrað- Stigablll slökkviliösins kemur aö góðum notum i tilfellum eins og þessu. Hér gægjast slökkviliðsmenn inn I ibúðina á Ljósvallagötu á laugardagskvöldið. (Ljósmynd Visis Bj. Bj.) LOGAÐI UT UM GLUGGA í RISI Eldur kom upp i ibúðarhúsinu að Ljósvallagötu 12 nú siöasta laugardag. Kviknað hafði i ris- ibúð hússins. tbúðin var mann- laus þegar eldurinn kom upp. Það var kl. 19.44 á laugardag, sem tilkynning um eldinn barst til slökkviliðsins. Þegar var farið með allt lið slökkviliðsins á stað- inn, en þá logaði út um glugga ibúðarinnar. Eldur var töluverð- ur og skemmdist eitt herbergið i ibúðinni mikið. Einnig urðu skemmdir á öðrum herbergjum og gangi af völdum eldsins. Slökkvistarfið gekk mjög vel og tók aðeins 15-20 minútur að ráða niðurlögum eldsins. Vatns- skemmdir urðu sáralitlar og aðr- ar ibúðir i húsinu sluppu alveg við skemmdir. Ibúðin var mannlaus og var verið að lagfæra hana og átti að fara að flytja þar inn. Þegar var búið að flytja eitthvað af hús- gögnum i ibúðina. Eldsupptök eru ókunn. — ÞM. Lögreglan flýr lögreglustöðina í Eyjum Lögreglan í Vest- mannaeyjum verður nú að skipta um aðsetur. Lögreglustöðin er-staðsett í miðbænum, við Báru- götu, það er að segja á miðju hættusvæðinu. „Við erum ekki fluttir ennþá," sagði Óskar Einarsson lögreglumaður í viðtali við blaðið í morgun, "en við flytjumst í dag eða á morgun, og þá upp á Höfðaveg, þar sem við munum líklegast verða í tveimur húsum." „Þau hús eru ákaflega vel staðsett. Nálægt flugvellinum, og ekki langt frá höfninni, ef eitthvað kynni að koma fyrir. Við höfum lika mjög gott útsýni yfir gosið sjálft frá húsunum.” „Það er ekki verandi i þessu helviti lengur,” sagði Óskar og meinti sjálfa lögreglustöðina. „Gasið er farið að gera vart viö sig, en miðstöðin er nú samt i gangi ennþá, og hér logar ennþá á kertum.” En lögreglustöðin er i húsi, sem er ákaflega lágt, og aðeins ein hæð. Gólf eru öll mjög óþétt og litið hægt að þétta. A hættu- svæðinu er þvi ekki unnið nema á tveimur stöðum, rafstöðinni og bæjarstjórnarskrifstofunum. Svo virðist sem gas aukist — hefur setzt að i einbylishusi i vesturbœnum þegar flóð er, en minnki aftur á fjöru. í flóðinu kemur á það meiri þrýstingur. Höfðavegur, þar sem lög- reglan mun nú taka til starfa, er staðsettur vestast i bænum sjálfum, og þvi litil hætta ennþá á gasmengun. Telur lögreglan, að þeir geti hafzt þar við áfram. Ráðgert er, að um 100 manns verði sendir frá Vestmannaeyj- um i dag, það eru menn sem ekki starfa undir skipulögöu björgunarstarfi. Þá eru eftir um 480 manns i Eyjum. -EA hefur aukið við Heimaey, fyrri linan er frá 26. janúar, en sú sem er lengra frá landi er frá þvi I gærmorgun. Hefur rekið frain og til baka á björgunarbátunum — ef það hefur raunverulega verið björgunarbátur af Sjöstjörnunni, sem TF-SYR sá á laugardaginn „Mér er ekki kunnugt um fjölda þeirra skipa, ’sem nú eru við leit aö björgunarbátunum tveim af Sjöstjörnunni, en það veit ég, að þau eru mjög mörg. Og flestöll eru þau nú við leit á þvl svæði, þar sem leitarmenn i flugvél töldu sig hafa séð gúmbát seint á laugardaginn,” sagði Iiannes Hafstein hjá Slysavarnafélaginu i viðtali við Visi i morgun. Leitarskilyrði voru með versta móti i gær, suðvestan 9 til 10 vind- stig og þykk og dimm él. I morgun var hinsvegar komið ágætis veður og lofaði það góðu til leitar. Klukkan átta var þar v-suð- vestan 5 vindstig og skyggni 10 kilómetrar. Auk skipanna, sem eru við leitina, hafa tvær flugvélar flogið yfir svæðinu. Það var að kalla i einu horni leitarsvæðisins eins og það var á laugardaginn, sem flugvél land- helgisgæzlunnar taldi sig sjá björgunarbát. Flugvélin mun þá hafa verið i beygju inn á leitar- svæðið aftur, en leitarsvæðið tak- markaðist þá af breiddarbaugun- um 59 gr. til 62 gr. norður og lengdarbaugunum 10 gr. til 16. gr. vestur. Björgunarbátinn taldi flugvélin sig hafa séð við norð- vesturhorn leitarsvæðisins. Ef flugmenn landhelgisgæzlu- vélarinnar hafa raunverulega séð þarna björgunarbátinn, er hann staddur á svo gott sem sama stað og Sjöstjarnan KE 8 sökk fyrir átta dögum. Staðarákvörðunin, sem báturinn gaf upp I neyðar- kallinu var 100 milur aust-suð- austur af Dyrhólaey. — Það var 95 sjómilur suður af Dyrhólaey, sem TF Sýr taidi sig hafa séð björgunarbátinn. Til glöggvunar á þeim vega- lengdum, sem hér er um aðræða, má geta þess, að frá Dyrhólaey til Færeyja eru tæpar 350 milur. Þegar Visir fór i prentun nú i hádeginu, hafði ekkert sézt til björgunarbátanna, en ’leit veröur haldiö álram við þau góðu leitarskilyrði sem komin eru. Leitarskipin eru flest frá Fær- eyjum, en annars eru við leitina fjöldi islenzkra og brezkra skipa.- ÞJM.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.