Vísir - 20.03.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 20.03.1973, Blaðsíða 1
VÍSIR 63. árg. —Þriftjudagur 20. marz. 1973 —67. tbl. LÁTA HÚSMÆÐUR KJÖT, SMJÖR OG OSTA HVERFA AF BORÐUM?— BAKSÍÐA Frjáls- lyndir klofna form- lega —sjá baksíðu Furðuverk í Grindavík Grindvikingar eiga faileg- asta félagsheimili landsins. Og á dögunum lögbu leikarar Þjóðleikhússins upp suður þangaö og frumsýndu I fyrsta sinn utan veggja leik- hússins. Grindvíkingar tóku þessari nýbreytni vel. Fréttamaður Visis slóst I hóp með leikhúsfólkinu og segir frá för sinni á bls. 2, en á bls. 7 er gagnrýni á Furðuverk- inu, en svo nefnist barnaleik- ritiö, sem hér um ræðir. — • „Sérkennilegur minnisvorði" „Það yröi sérkennilegur minnisvarði, sem núverandi kynslóð reisti sér, ef hún ætl- ar sér að verða fyrsta kyn- slóðin, sem blæs af hátiða- höld á landsafmæli”, sagði Indriði G. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri þjóð- hátlðarnefndarinnar 1974, er við ræddum við hann um þá gagnrýni, sem komið hefur fram að undanförnu. — Sjá bls. 3 • Vann léttilega á snjó, blönduðum Vestmanna- eyjaösku — Sjá íþróttir í opnu Blökkumenn leika með ísl. poppsveit Tveir þeldökkir hljóðfæra- leikarar hafa barizt i þvi að fá atvinnuleyfi hér á landi. Þeim hefur nú loksins tekizt það og leika nú með islenzk- um hljóðfæraleikurum. — Sjá POP-punkta á bls. 4 I dag er fyrsti dagur f Einmánuði og áöur fyrr nefndu Vestfiröingar dagur. Við ætlum aðhalda okkur við skoöun Vestfiröinga og birtum þvf segjum frá blómunum I fréttinni hér á siðunni. Óánœqja með hann stúlknadag. Annarsstaðar á landinu var hann þó nefndur pilta- mynd af þessari fallegu stúlku en hún heitir Marla Kristmanns. Við innflutninginn — blómaframleiðendur telja sig hafa misst spón úr aski sínum Amarilles, Coral, Sírena, Kóngaliljur, túlípanar og páskaliljur, eru nokkrar þeirra blómategunda, sem blómaverzlanir bjóða upp á þessa dagana. Undanfarna vetur hafa blóma- verzlanir I Reykjavik gert nokkrar tilraunir með innflutning á afskornum blómum. Eru þau flutt flugleiðis aðallega frá Frakklandi, ltaliu og Hollandi. Tveir aöilar hafa einkum staðið fyrir þessum innflutningi,Alaska og Blómaval I samstarfi við nokkrar aðrar blómaverzlanir. Samkvæmt upplýsingum þeirra Bjarna Finnssonar hjá Blómaval og Hendriks Berndsen hjá Alaska eru blómin flutt inn á þeim tlma, sem lltið úrval er aö fá frá inn- lendum framleiöendum. Manuöina desember til loka marz eru eingöngu ræktuð hér laukblóm, svo sem túltpanar og páskaliljur Verzlanirnar hafa þvl flutt inn rósir, nellikkur og fleiri tegundir til þess að geta boðið viðskiptavinum sinum meira úr- val. Innfluttu blómin eru dýrari, enda er lagður á þau 100% inn- flutningstollur og flutningskost- naður er tiltölulega hár. Nokkurrar óánægju með inn- flutninginn mun hafa gætt hjá innlendum framleiðendum, sem telja sig missa spón úr aski sinum. Að sögn Björgvins Guð- mundssonar skrifstofustjóra 1 viðskiptaráöuneytinu hafa borizt kvartanir yfir þessum innflutn- ingi til Framleiösluráös land- búnaðarins, og landbúnaðar- ráöuneytisins, einkum i vetur. Björgvin sagði, aö blóm væru á frilista, þannig að ekki þyrfti að sækja um leyfi til innflutnings. Innlend blómarækt nýtur þó tölu- verörar verndar, þar sem tollur er 100% og staðarverndin veru- leg. Að áliti Björgvins er hér ein- göngu um að ræða innflutning til aö fylla upp i eyöur hjá Islenzkum framleiðendum.og sagðihann, að viðskiptaráöuneytiö hefði beitt sér fyrir stofnun frjáls samstarfs framleiðenda og seljanda um inn- flutning, þegar hans væri þörf. Hefðu aöilar tekið vinsamlega af- stööu til málsins og væri ráðu- neytið bjartsýnt á, að málið leystist þannig, að allir mættu vel viö una. —ÓG Lögbmn á kjörfund stúdenta! Utankjörstaöakjörfundur hafði verið opinn I fimmtán minútur I morgun þegar hópur manna kom og iagöi iögbann á það sem fram fór. Hér var um að ræða kosningu til Háskólaráös. Kjörstj. hafði farið að beiöni náttúrufræði- nema um að mega kjósa utan- kjörstaöar vegna þess að þegar kosningin fer fram, næsta föstu- dag, þá verða þeir I Færeyjum. Hér er um áttatlu og fimm manns að ræða og er þessi ferð farin til að skoða náttúru Fær- eyja. Svo var það eins og áður segir kiukkan rúmlega tlu I morgun þegar kjörfundur hafði nýiega hafizt, að Davlö Oddss., aðal- frambjóðandi Vöku kom á fund- inn með fógeta og lögfræðing I fylgd með sér. Lögöu þeir bann viö kjörfundinum og fer þetta mál nú fyrir bæjarþing Reykja- vlkur. Ekki mun vera getiö sérstak- lega um utankjörstaöaatkvæða- greiðsiu I kosningaiögum tii Háskólaráðs. — LÓ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.