Vísir


Vísir - 31.03.1973, Qupperneq 2

Vísir - 31.03.1973, Qupperneq 2
2 Vísir. Laugardagur 31. marz 1973. visissm-- Ætlar þú að láta einhvern hlaupa april? Guðmundur Jónsson, málari. Nei, það ætla ég ekki að gera og hef aldrei gert. Það hefur kannski slysazt til, að ég hafi verið gabbaöur sjálfur. GIsli Benjaminsson, mdrari: Það gæti alveg eins verið. Þaö hefur stundum komið fyrir að ég hafi gert það. Hitt hefur líka komið fyrir, að ég hafi verið látinn hlaupa. Ilalldór Benjaminsson, húsa- smiðanemi: Ég mun reyna og gera það ef ég get. Mér hefur stundum áður tekizt það. Og hef orðið að hlaupa sjálfur. Þetta er skemmtilegur siður og mér fyndist miður að hann legðist niður. Halldór Ilagnar Halldórsson, I Mýrarhúsaskóla: Já, ég ætla að reyna að láta pabba hlaupa. Mér hefur ekki tekizt að láta nein í hlaupa áður, en hef einu sinni verið gabbaður sjálfur. Jens Gunnar Ormslev, ncmi:Nei, ég er litið fyrir plat. Ég hef ein- hverntima verið plataður sjálfur, en man ekki hvernig eða hvenær Helgi Óskarsson, nemi: Ég veit það ekki, það getur verið. Ég hef aldrei verið plataður, þó að það hafi verið reynt. Heimsmet á áfengissviðinu? íslendingar taldir hafa verið með lengsta áfengisbannið • Bann eða ekki bann • Ekki flanað að neinu • Sœlutíð í „þurru,, landi • Brennivínið sem lœknislyf • „Konsúlabrennivín" • Saltfiskur og spánarvín • Rangœingar harðastir á móti banni • Missum af metinu Þessi bruggtæki, sem sjást á myndinni, voru gerð upptæk af lögregl- unni fyrir nokkrum árum. A bannárunum er sagt, að slfk tæki hafi ver- ið notuð á mörgum stöðum, og oft fann lögregian þau og eyðilagði. Þau eru ekki mörg heimsmetin, sem viö islendingar getum státaö af, þaö er aö segja ef ekki er miö- að viö fólksfjölda. Okkur er þó eignaö eitt slikt i frægri bók — Guinness Book of Records —sem gefin er út af brezku fyrirtæki, þvi sama og framleiðir hinn fræga Guinness bjór. 1 bók þessari, sem birtir met og afrek á hinum óliklegustu svið- um, er talið aðá islandi hafi veriö lengra áfengisbann en I nokkru öðru landi. Er þar sagt, að bannið hafi staöið i 26 ár, eða frá 1908—1934. Ekki geta útgefendur heimilda fyrir staöhæfingu sinni, en hér mun nokkur frjálslega vera farið með staðreyndir. Afengisvandamál og áfengis- bönn hafa lengi verið deilumál manna á milli og ekki virðist neitt lát á. Að margra áliti er hér þó um að ræöa einn stærsta vanda mannkynsins i dag. t kringum siðustu aldamót var hér á landi mjög sterk bindindis- hreyfing — Góðtemplarareglan — sem barðist gegn neyzlu áfengis og hélt uppi mjög sterkum áróðri fyrir algjöru áfengisbanni. En að áliti forystumanna þessarar hreyfingar var það vænlegasta leiöin til að útrýma áfengisbölinu. Góðtemplarareglan náði góðri fótfestu hér á landi og hafði starf hennar fjölþætt áhrif, eins og til dæmis á ýmsa aðra félagsstarf- semi. Höfuðbaráttumál hennar var þó alltaf áfengisbann, og tókst félögum hennar að vinna þvi fjölda fylgismanna. Fór svo, að alþingi ákvaö árið 1905 að láta fara fram þjóðarat- kvæðagreiðslu um hvort kjósend- ur vildu láta banna aðflutning á- fengis til landsins eða ekki. t næstu alþingiskosningum, áriö 1908, var kosiö um þetta, og var meirihluti kjósenda fylgjandi að- flutningsbanni á áfengi. Ekki var þó verið að flana að neinu. Alþingi samþykkti að visu lög um bann við aðflutningi á- fengra drykkja strax á næsta þingi. Það átti siðan að taka gildi i áföngum, aðflutningsbannið 1. janúar 1912, en leyfilegt var að selja áfengi til 11. janúar 1915. Allt gekk samkvæmt þvf sem til var ætlazt, og hefur margur templarinn vafalaust talið, að upp mundi renna sannkölluð sælu tiö i „þurru” landi, En ekki var sopið kálið þó i aus- una væri komið. Ærinn kurr mun hafa verið I mörgum andbann- ingnum, og sumir þeirra söfnuðu sér birgðum til mögru áranna. Einnig kom I ljós — eins og oftast jafnhliða öllum bönnum — að mannskepnan hefur oftast ein- hverja útvegi, ef viljinn er fyrir hendi. Það var snemma almannaróm- ur, að trú ýmissa lækna á mátt áfengisins sem lyfs við mörgum sjúkdómum hefði vaxið mjög eft- ir banniö. Sumir þóttust lika verða varir viö ókennileg skip fyrir landi meö óvissan farm inn- anborðs, og stundum fannst jafn- vel áfengi — mikið eða litið — ef að var gáð. Farið var að tala um „læknabrennivin” — „lyfseöla” og meira að segja „konsúla- brennivin”. Auðvitað var stofnað félag um málið og var það kallað Andbanningafélagið. Skiptust menn mjög i hópa á þessum árum eftir skoöunum sinum á bannlög- unum. En sjaldan er ein báran stök, og nú barst andstæöingum bannsins óvæntur stuðningur sunnan frá Spáni. Arið 1921 sögðu Spánverj- ar upp viöskiptasamningum viö okkur og tilkynntu, að ekki yrði um endurnýjun á þeim að ræða nema við hæfum innflutning á vinum frá þeim með alft að 21% áfengismagni. Nú var úr vöndu að ráða, þvi Spánverjar voru helztu kaupendur okkar á salt- fiski. En á þessum tima var út- flutningur hans jafnvel mikilvæg- ari fyrir efnahag þjóðarinnar en allur freðfisksútflutningur okkar er i dag. Stóð i miklu þófi um mál- ið, en að lokum samþykkti alþingi undanþágu frá bannlögunum, og Spánverjar héldu áfram að borða saltfisk frá Islandi. Þótti nú sumum, að „Trójuhestur” hefði komizt inn fyrir múrana, en aðrir kættust mjög. Ahrif bannsins minnkuðu siðan stöðugt á næstu árum, en ávallt voru i gangi málaferli út af áfengissmygli og bruggi. Arið 1933fórsiðan fram almenn atkvæðagreiðsla — jafnhliða al- þingiskosningum — um það, hvort bannið skyldi gilda áfram eða ekki. Var þá meirihluti kjós- enda kominn á þá skoðun, aö hætta ætti við bannið, og var það gert skömmu seinna. Þegar skoðaðar eru tölur úr kosningunum 1908 og 1933 um áfengisbannið má sjá ýmislegt skemmtilegt. Kjósendur i Heykjavik, sem voru fylgjandi banni að miklum hluta, eða 77% árið 1908,voruá alveg gagnstæðri skoðun 1933. Þá vildu 72% þeirra fella niður áfengisbann. Rangæ- ingar voru aftur á móti manna harðastir andbanningar 1908 og höfðu hreint ekkert skipt um skoðun 26 árum seinna. Staðfast- astir bindindismenn hafa eftir kosningaúrslitunum verið Vest- firðingar. Liklega erum við Islendinga þvi ekki löglegir handhafar heims- metsins i áfengisbanni, þar sem varla er hægt að halda þvi fram, að hér hafi verið algjört áfengis- bann nema i sex og hálft ár. En i bók Guinness eru Sovétrikin og Bandarikin talin hafa haldið vin- banni 1 lengri tima. Formælendum algjörs áfengis banns mun hafa fækkað á seinni árum og nú er svo komið, að margir telja, að bann i einstökum löndum sé ekki framkvæmanlegt. Valda þvi vafalaust greiðar sam- göngur um heiminn og hve auð- velt er að framleiða áfengi, ef á- hugi er á. Hætt er þvi við, að við verðum enn um sinn að leita nýrra leiða til lausnar áfengis- vandanum. - ÖG ÞYKIR SAGA ÞORBERGS KLUR Gömul kona hringdi: „Þessa dagana er verið að lesa upp i útvarpi sögu eftir Þórberg Þórðarson. Fyrir minn smekk er þessi saga afskaplega klúr og hreint ekki til lestrar i útvarpi. Hún á ekkert erindi fyrir eyru unglinga. Kjartan og Sigurjón í „Kvöldstundina // Húsmæður á Grensásvegi skrífa: „Okkur húsmæðurnar hér i blokkinni á Grensásveginum // langar til að bera fram þakkir til sjónvarpsins fyrir þátt þann, sem sýndur er hálfsmánaðarlega und- ir nafninu Kvöldstund i sjón- varpssal. 1 vetur hafa verið starf- andi tveir ungir hljómlistarmenn undir nafninu Hljómsveit Kjart- ans og Sigurjóns hér i borg. Ýms- ar sögur hafa farið af þessum tveimur listamönnum og okkur langar til að grennslast fyrir um, hvort ekki sé möguleiki, að hljómsveitinni bregði fyrir á skerminum innan tiðar”. En þar fyrir utan finnst mér þó alveg taka úr steininn — og það er mér tilefni til þess að hringja og hafa orð á þessu — að þeir flytja þessa sögu strax á eftir upplestri Passiusálmanna! Það sýnir nú smekkleysið hjá þessum herrum”. HRINGIÐ I síma86611 KL13-15

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.