Vísir


Vísir - 31.03.1973, Qupperneq 4

Vísir - 31.03.1973, Qupperneq 4
4 Visir. Laugardagur 31. marz 1973. ÞÚ HEFUR Jóh. 13. 36-38 Þegar fastan stendur yfir og maður les pislarsögu Drottins I guðspjöllunum og hlustar á Passiusálmana lesna i útvarpinu, þá cru það alltaf einhverjar setn- ingar, sem birtast manni i nýju ljósi, opinbera einhverja óvænta hluti vekja hjá oss aðrar hugs- anir en áður, opna manni nýja 'sýn, glæða hjá oss annan skilning heldur en vér höfum áður haft á hinum helgu atburðum og frá- sögnum. Þessvegna er það ekki litið áriðandi fyrir oss — ár hvert — að rifja upp þessa helgu alvörjiriku sögu, eins og hún er skráð i guðspjöllunum og út frá henni ort af Hallgrimi i hans ódauðlegu Passiusálmum. Þannig fór þetta lika við upphaf þessarar föstu þegar lesið var þetta vers, sem hér fer á eftir — 38. versið i 13. kap. Jóhannesar guðspjalls. Jesús er að svara Pétri og segir: Vilt þú leggja lif þitt i sölurnar fyrir mig? Sann- lega segi ég þér, ekki mun haninn gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar. Það var engu likara en að fjögur næst seinustu orðin — Þú hefur afneitað mér — það var engu likara en þau beinlinis tækju sig út úr setningunni, kæmu upp úr blaðsiðunni og stilltu sér alveg sérstaklega upp fyrir framan mig eins og þetta væri við migsagt: Þú hefur afneitað mér. Er ekki eins og hér sé verið að tala við hinn kristna heim og jafnframt hvern einstakling, þrátt fyrir allar trúariátn- ingarnar, þrátt fyrir allar lof- gerðirnar, allan dýrðarsönginn og þakkaróðinn, já þrátt fyrir þetta allt. En i hverju kemur þá þessi afneitun fram? Hún kemur fram bæði i persónulegu lifi einstaklingsins, og 1 samtökum flokka, stétta og starfshópa innan þjóðfélagsins og svo i þriðja lagi samskiptum þjóðanna þar sem striðshættan rikir og styrjaldir brjótast út. Af hverju stafar þetta? Hvað veldur þessari ógæfu mannkynsins? Ekki vantar visindin og þekk- inguna, menntunina og verklegar framkvæmdir á öllum sviðum. En visindin og þekkingin er ekki nóg, þekkingin getur meira að segja gert vont verra. „Þekkingin blæs upp”, segir Páll postuli i 2. Korintubréfinu. Og hann bætir við þvi, sem ekki er siður athyglisvert: En kærleikur- inn byggir upp.Og það er einmitt þetta. Það sem oss skortir er kær- leikurinn. t næstu versum áður i sama kapitulanum (Jóh. 13) og greint er frá orðaskiptum Simonar Péturs og meistarans, talar hann um hið nýja boðorð sem hann gefur lærisveinum sinum, þetta: Þér skuluð elska hver annan á sama hátt og ég hef elskað yður. Af þvi skulu allir þekkja að þér eruð minir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars. Hér er ekki verið að tala um hagvöxt eða hækkandi laun, ekki Tuttugasti og fjórði Passíu- sálinur er um purpuraklæðið og þyrnikórónuna: Þyrnikórónu þungri þeir þrengdu að Herrans enni. Báleldi heitum brenndu meir broddar sviðandi á enni. Augun hans bæði og andlit með allt i blóðinu litast réð, slikt trúi ég kvala kenni. Fyrir óhlýðni Adams var öll jörðin lýst i banni. Ávöxt þvi likan af sér bar orð Guðs trúi ég það sanni. AFNEITAÐ MÉR vöru-úrval eða visitölubætur eða önnur einkenni velferðar þjóð- félagsins. — Nei hér er aðeins eitt, sem er næsta nóg og kemur i stað fyrir þetta allt, sem oss finnst nauðsynlegt að standa vörð um svo að lifi og heill sé borgið. — Þetta kemur allt af sjálfu sér ef kærleikurinn fær að vera hið skapandi, vekjandi og leiðandi afl i hjarta mannsins. Þá verkar það á sama hátt i samfélaginu. En þvi er nú miður ekki að fagna að svo sé. Hér rikir tor- tryggnin. Af henni sprettur svo óvildin og óttinn og keppnin um auð og völd og stöður til að koma sér sem bezt fyrir, skapa sér sem sterkasta aðstöðu við öflun lifs- gæðanna á þessu allsherjar markaðstorgi heimshyggjunnar. En þessu skyldi ekki svo farið með kristnum mönnum, læri- sveinum hans, játendum trúar hans, sem kom til vor mannanna ekki til að láta þjóna sér heldur til þess að þjóna og til þess að láta lif sitt sem lausnargjald fyrir marga. Við oss, sem þannig högum lifi voru hlýtur hann að segja eins og við Simon Pétur forðum og aðra lærisveina sina: Ætlið þér einnig að fara burt? Og svar vort verður hið sama og þeirra: Herra! Til hvers ættum vér að fara. Þú hefur orð eilifs lifs. Fylgjum honum fagnandi i auðmýkt hjartans og gleði. — Gerum það að yfirskrift og inni- haldi daganna á þessum föstu- tíma. — Þyrnikórónan. Við norðanverðan Breiðafjörð er kirkjustaðurinn Garpsdalur I Gciradal. Þar var prestssetur fyrrum. t kaþólsku var kirkja þar helguð með Guði, Mariu, Pétri postula og heil. Þorláki. Einn helgigripa Garpsdals- kirkju er Kristsmynd úr eik, 46,5 cm að hæð, en faðmurinn út /á fingur 50,5 cm. Myndin er „allgott tréskurðarverk, og heildarsvipurinn er sterkur.” Óvist er um aldur hennar, gæti verið frá fyrri hluta 17. aldar. Hún hefur eflaust verið á altaristöflu, áreiðanlega is- len/.kt verk, en höfundur ókunnur.------Þannig segir i grein eftir dr. Kristján Eldjárn i Árbók Fornleifafélagsins 1966. Þaðan er tekin mynd sú, sem hér með fylgir. Þar segir einnig, að myndin hafi verið til at- hugunar og viðgerðar i Þjóð- minjasafni veturinn 1960-61. Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi setti hana á nýjan eikar- kross og endurnýjaði þyrnana i kórónunni. — Svo búinn var róðukross þessi sendur aftur heim i kirkju sina vorið 1961.---- Jónas Hailgrímsson og Jón Sigurösson. „Ólikustu menn, sem ég hefi þekkt á ævi minni, hvað Jónas var dauðans latur en Jón stáliðinn. Ég bjó sin tvö árin með hvorum þeirra. Við Jón bjuggum saman i Klausturstræti rétt hjá bústað Finns Magnússonar próf. Hann bauð okkur stundum inn til sin helzt á laugardagskvöldum, og sátum við þá hjá honum þetta til kl. 11. Þá fór ég strax að hátta, en þá settist Jón alltaf við að lesa eða skrifa og sagðist þurfa að ná þvi, sem hann hafi af sér haft við útiveruna.” (N. Kbl. ritað eftir Páli Melsteð.) Þessum bölvunar þyrni krans þrengt var að höfði lausnarans til huggunar hrelldum manni. ...................- úr Saurbæjarkirkju. Þegar minnzt er föstunnar og vitnað i Passiusálmana á Kirkjusiðu, á það ekki illa við að birta mynd af hinni fögru og sérkennilegu altaristöflu I kirkj- unni á prestssetri Hallgrims — Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Svo sem alþjóð veit, er altaristaflan freskómynd eftir finnska listamanninn Lennard Segerstrále. Sést hann hér á myndinni til vinstri ásamt að- stoðarmanni sinum, Þóri Berg- steinssyni múrara. Altaristaflan er gjöf frá Hval h.f. i Hvalfirði, en eigandi og forstjóri þess fyrirtækis er Loft- ur Bjarnason útgm. i Hafnar- firði. Frœkorn Þetta bið ég um. Og þetta bið ég um að elska yð- ar aukist ennþá meir og meir með þekkingu og allri greind svo að þér getið metið rétt þá hluti, semmunur er á til þess að þér sé- uðhreinirogámælislausirtil dags Krists, auðugir að réttlætisávexti þeim, er fæst fyrir Jesúm Krist til dýrðar og lofs Guði. (Fil. 1.9.-11.) Tvenns konar sjónarmið. Varðandi viðhöfn i guðsdýrkun- inni hefur i kirkjunni ávallt rikt spenna milli tveggja sjónarmiða. Annars vegar er krafan um ein- faldleika á öllum búnaði kirkj- unnar og athöfnum, hinsvegar stöðug tilhneiging til aukinnar fegurðar og iburðar. Fyrra sjónarmiðið byggir á þvi, að tilbeiðslan sé andleg athöfn og að ekki megi láta efnislega hluti draga athygli frá hinu andlega viðfangsefni hennar. Siðara sjónarmiðið byggir á þvi, að ailt það, semlýturað guðs- dýrkun, eigi að vera svo fagurt og vandað sem mest má. (S.P. Kirkjuritið ’72.) Allt lífið er menntabraut. Það má ekki gefa þeirri hugsun undir fótinn, að menntun sé sama og skólanám og menntun sé að- eins hægt að öðlast með þeim hætti. AUt lifið er menntabrautog það er glæpur gegn þjóðfélaginu að reyna að afmá þau sannindi úr þjóðarvitundinni. (J.P. Jugl.v. Lagarfoss) Hvi skyldi þá? Hvi skyldi þá mitt skelfast hjartað veika? Hvi skyldi ég þá af kviða beygðurreika? Þin gæzka, Drottinn, aldrei, aldrei dvin. Þótt vötn og eldur veröld hartum spenni i von og trú ég augum til þin renni Guð þó til þin. (H.H.) FAÐIR VOR í FALLHLÍFARSTÖKKI Séra Valdimar Eylands i Winnipcg sagði mér i sumar frá þvi atviki, er nú skal greina: Einhverju sinni sem oftar fór hann i sjúkrahús og átti þar tal við pilt, sem verið hafði fall- hlifarhermaður i siðasta ófriði. Talið barst að þvi, er pilturinn hafði fyrsta sinni varpað sér úr flugvél út i tómið. „Varstu ekki hræddur?" spurði séra Valdi- mar. ,,Jú, vist var ég hræddur og hélt, að min hinzta stund væri kornin”. ,,Og hvað gerðir þú þá?” ,,Ég fór að lesa faðirvoriö initt i ákafa”. ,,Nú, og svo?” ,,Já, svo spenntist fallhlifin út, og þá hætti ég við faðirvorið”. Þessi saga er merkileg og mannleg i senn. Slikt sem þess- um pilti er oss flestum farið. i ýtrustu neyð trúum vér og biðjum, enda þótt vér þorum eigi að kannast við trú vora, þegar betur blæs. Ég hygg, aö trú vor sé eigi þegin af öðrum, heldur meðfæddur, brjóstborinn eiginieiki, eins konar andlegt liffæri, ef svo má að orði kveða, sem dafnað hafi i rás þróunar- innar, á svipaðan eða sama hátt sem hönd vor, og ég hygg, að hlutverk hennar sé að veita oss styrk og staðfestu gegn, ógnum lifs og dauða. (Ofanritað er úr erindi Pálma rektors Hannessonar i Visindi tækni og trú).

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.