Vísir - 31.03.1973, Síða 5
Vfsir. Laugardagur 31. marz 1973.
5
AP/NTB (JTLÖNDí MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjon Guðmundur Pétursson
; ■
Liza Minelli slær hins vegar ekki hendinni á móti styttunni, sem Welch réttir henni.
Roger Moore og Liv Viimann hlýða furöuiostin á erindi Litlu-fjööur.
Óskar — nei
því miður!
„Nei, hinkrið aðeins
við — hann segir nefni-
lega nei takk,” og unga
Indiánastúlkan,
Sacheen Litla-fjöður,
bandaði hendinni á móti
óskarsstyttunni, sem
„Dýrlingurinn” ætlaði
að rétta henni.
Eins og viö sögöum frá hér i
vikunni, afþakkaði Marlon
Brando Oskarsverölaunin. Hann
mætti reyndar ekki sjálfur, held-
ur sendi i sinn staö Indiánastúlku.
HérJúrtum viö fyrstu frétta-
myndirnar, sem borizt hafa frá
verölaunaafhendingunni, sem
réyndar var sjónvarpaö og i
gegnum gervihnetti endurvarpaö
milli heimsálfa — þótt viö hér
höfum ekki notið góös af þvi. (En
viö sjáum lika danskeppnirnar i
staöinn, svo aö þaö er bættur
skaöinn!)
Brando var valinn bezti karl-
leikarinn 1972 fyrir „Guðfööur-
inn”, en kvikmyndin fékk þrenn
Óskarsverðlaun.
Bezta leikkonan var valin, eins
og komiö hefur fram, Liza Min-
elli, fyrir leik sinn i myndinni
„Cabarett”, en sú mynd fékk
hvorki meira né minna en 8
Óskarsverðlaun. Hér á myndinni
til vinstri þiggur leikkonan verö-
launin úr hendi stallsystur sinnar,
Racquel Welch, meðan Gene
Hackman, sem i fyrra var valinn
bezti karlleikarinn, horfir á. Min-
elli sló viö Liv Ullmann, sem ann-
ars þótti allra liklegust til þess aö
hljóta hnossiö.
Þyrla sœkir slasaðan
Siysin hafa elt Norömenn til sjós, eins og okkur islendinga, og auk
þriggja sjóslysa meiddist maöur alvarlega um borö i „Sandvikinni”
núna I vikunni, þegar hún var stödd skammt frá San Francisko.
Þyrla var fengin úr landi til þess aö sækja manninn út f skipiö og
flytja hann á sjúkrahús. Sést hún hér hifa manninn um borö.
HERÆFINGAR
EÐA VÍSINDI
Maður gæti haldið af
myndunum hérna við
hliðina, að þær væru
teknar einhvers staðar á
vigvöllunum, en þær eru
þó af ósköp friðsamleg-
um, hávisindalegum
rannsóknum.
Norski herinn, vegagerðin og
jarðfræðirannsóknastofnunin
norska tóku höndum saman til
þess að rannsaka og mæla skriður
i Grasdalnum, Strynsfjallinu og
við Skriðustrendur hjá Hornin-
dalsvatni.
Herinn lagöi til sprengjuvörpur
til þess að sprengja burtu kletta
og nibbur, sem þóttu líkleg til
þess aö losna, velta niöur og leiða
af sér skriður. — Visinda-
mennirnir, sem völdu fyrir þá
skotmörkin notuðu tækifæriö til
þess aö viröa fyrir sér, hvernig
veltandi björgin hrundu af stað
skriðum.