Vísir - 26.04.1973, Side 5

Vísir - 26.04.1973, Side 5
Visir. Fimmtudagur 26. april. 1973. 5 AP/IVITB UTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Eldflaugarnar hittu íbúðarhús — ekki völlinn Hersveitir kommúnista geröu í gærkvöldi árás á flugvöllinn í útjaðri höfuðborgar Kambodiu, Phnom Penh. Að minnsta kosti tuttugu óbreyttir borgarar létu lífið í árás- inni og fjörutíu aðrir særðust. Beittu kommúnistar eldflaugum. Á þeim 15 mínútum sem árásin stóð yfir, er talið, að þeir hafi skotið um tuttúgu 122 mm eldflaugum að Pochen- tongflugvellinum. En samkvæmt fréttum frá Phnom Penh hittu aðeins fjórar eldflaugar flugvöllinn, en hinar hæfðu flestar fjölbýlishús hand- an við flugvöllinn. 1 húsum þessum bjó aðallega flóttafólk. Enda voru flestir hinna föllnu utanborgarfólk, sem leitað hafði hælis i þéttbýlinu. Eldflaugar þessar eru af sovézkri gerð og draga aðeins um 12 kilómetra, sem sýnir, hve þétt umsátursliðið hefur um- kringt borgina. Héfur eldflaug- unum verið skotið frá einhverj- um stað norðan við flugvöllinn, og er þetta i fyrsta skipti siðan 4. janúar, að skæruliðar skjóta eldflaugum að. höfuðborginni. Árásin var gerð samtimis þvi, að stjórnarher Kambódiu hóf sókn og reyndi að vinna á sitt vald aftur svæði hjá sveitaþorpi einu , sem er 17 km sunnan við höfuðborgina. En þeir mættu harðri andspyrnu og urðu að Snúa frá. Flóttamenn hafa streymt til Phnom Penh, höfuðborgar Kambódiu, —ýmist gangandi, hjólandi eða á einhverjum farartækjum, eins og hér á myndinni. En árásin I nótt sýndi, að fólkiö cr ekki frekar óhult þar. Kldflaugar hæfðu fjölbýlishús, þar sem flóttafólkið bjó. pillusalar í K-höfn Sleppa pólitískum föngum í Víetnam Fulltrúar Saigonstjórnarinnar og Þjóðfrelsishreyfingarinnar upplýstu i gær, að aðilarnir munu skipta á 1387 pólitiskum föngum núna á morgun. En i vopnahlés- samningunum fyrir Vietnam var ákveðið að öllum föngum ætti að vera búið að sleppa lausum fyrir aprillok. Saigonstjórnin mun sleppa 750 föngum en Viet Cong lætur lausa 637. Hvor aðilinn um sig hefur sakað hinn um að hafa fleiri fanga i haldi en þeir hafa opin- berlega kannast við. Fra vipræðum Saigonstjórnar- innar og Vietcong i Paris hafa borizt þær fréttir, að þær séu komnar i strand. Thieu forseti ætlar aö sleppa 750 pólitiskum föngum. Þýzkir teknir Tveir þýzkir rikis- borgarar og dönsk eigin- kona annars þeirra voru i gær úrskurðaðir í 14 daga gæzluvarðha Id i Kaup- mannahöfn, sakaðir um sölu á fíknilyfjum. Norsk stúlka, sem var trúlofuð öðrum Þjóðverjanum, var einnig sett í gæzluvarðhald. Þegar mál þeirra var tekið til úrskurðar i gær, kom i ljós, að ákæran gegn þessum fjórum byggist á framburði eins manns, sem greinilega hefur þekkt vel til þessara fjögurra. Sagði hann, að annar Þjóðverjinn ög danska eiginkonan hans hefðu fengið reglulega heimsóknir bróður Þjóðverjans sem hefði i hvert skipti haft með sér 10.000 preludintöflur. — A svarta markaðnum i Danmörku selst preludintaflan á 2 krónur danskar eða um 30 krónur islenzkar. Danska fikniefnalögreglan handtók þessi fjögur heima hjá norsku stúlkunni á þriðjudag. Heima hjá henni, þar sem hún rekur jafnhliða klámverzlun og nuddstofu, fundust nær 2500 preludintöflur i körfu með óhreinum þvotti. Hjónin hafa neitað sekt sinni, en norska stúlkan viðurkennir, að henni hafi verið kunnugt um, að unnusti hennar verzlaði með fiknilyf. Unnustinn játaði að hafa komið með i allt 15.000 töflur og hafa selt þær flestar til manna, sem hann komst i kynni við, eftir að hann byrjaði fyrir hálfu öðru ári að vinna fyrir sér með kynvillingsvændi. Fjðlda- morð í Santa Cruz 24 ára gamall maður, sem myrti stjúpforeldra sína fyrir tíu árum, var handtekinn í Santa Cruz í Kaliforniu, sakaður um að hafa myrt móður sína og sjö konur aðrar. Hann vartekinn í Pueblo, eftir að hann hafði sjálfur hringt til lögreglunnar og sagt henni, að hann væri vopnaður og mundi verða einhverjum að bana, ef hann yrði ekki tekinn strax. Maður þessi, Edmund Kemper að nafni, var vopnaður hagla- byssu og nokkrum skamm- byssum, þegar lögreglan handtók hann. Lögreglan fann lik móður manns- ins og vinkonu hennar i ibúð móðurinnar. Kemper hefur játað að hafa myrt sex konur aðrar, sem höfðu ætlað að snikja far á þjóðveginum. Ibúar i Santa Cruz hafá i vetur lifað i skugga óttans af sautján morðum, sem framin hafa verið á þjóövegum og eyðílegum stöðum utan við borgina siðan i janúar. Fyrir skömmu var hand- tekinn 25 ára gamall maður, fullur trúarofstækis og eiturlyfja- neytandi, og hefur hann verið ákærður fyrir tiu þessara morða. Mál hans verður senn tekið fyrir. Stíflugarðar rofnuðu Að minnsta kosti sex manns eru talin hafa farizt, drukknað, þegar flóðið rauf stiflugarða á mörgum stöðum við neðri hluta Missisippi i Bandarikjunum i nótt. Þúsundir ferkilómetra lands lögðust undir vatn, og ibúar á bökkum móðunnar urðu að flýja heimili sin I þúsunda tali. — Rikisstjóri Illinois hefur farið fram á það við Richard Nixon forseta, að hann lýsi yfir neyðarástandi i rikinu. Þessi flóð, sem staðið hafa i nokkrar vikur og farið jafnt og þétt vaxandi, eru þau mestu, sem orðið hafa i fljótinu siðustu 200 árin. — Þrátt fyrir miklar varúðarráðstafanir, sem gerðar hafa verið um þessar vikur, sem flóðin hafa staðið, gerð varnar- og stiflugarða, hrökk það ekki til, þegar garðarnir létu undan vatnsþunganum seint i gær- kvöldi. Flóðin hafa lagt undir sig þúsundir ferkilómetra lands og eyöilagt verðmæti fyrir milljónir dollara. Þessi mynd er tekin um 20 km norðan við St. Louis. Það er talið, að tjón á verö- mætum af völdum flóösins nemi fleiri milljónum dollara. Sérfræðingar telja, að flóðið verði i hámarki við St. Louis á laugardagskvöld og þykir þeim hreint ekki ótrúlegt, að slegið verði metið frá þvi árið 1764, þegar yfirborðið var 13 metrum hærra en venjulega.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.