Vísir - 26.04.1973, Page 7
Visir. Fimmtudagur 26. april. 1973.
7
í «.1 Nýiustu hárgreiðslurnar
^íoANjog klippingarnar frá
Umsjón
Edda Andresdóttir
PARIS:
Okkur langar til þess að
breyta örlítið til þegar sól-
in fer að hækka á lofti.
Fatnaður, skótau, hár-
greiðsla og allt. Við erum
farin að verða leið á
vetrarflíkunum og öllu
því sem tilheyrir vetrin-
um og engin furða, við
eigum svo langan vetur
hér uppi á islandi.
Hárið er höfuðprýði manns-
ins, og það er eins og það skipti
öllu máli hvernig það er og
hvernig það fer. Ef hárið er
óhreint liður okkur illa, og mað-
ur hefur það á tilfinningunni að
likaminn sé allur óhreinn.
Það er þvi eins gott að halda
hárinu hreinu og snyrtilegu þvi
að við það virðist velliðanin
aukast. Sumir segja, að hár-
þvottur oftar en einu sinni til
tvisvar i viku hafi slæm áhrif á
hárið. Sliti þvi og verði til þess
að hárið fitni meira. Aðrir segja
hins vegar, að það saki litið þó
að hárið sé þvegið oftar i viku,
jafnvel á hverjum einasta degi.
Hárið er þá að minnsta kosti
alltaf hreint og á meðan liður
manni vel.
Og ef hárið er klippt reglulega
eða aðeins sært af þvi, ætti hár-
þvotturinn ekki að saka.
Siða hárið virðist yfirleitt
rikjandi yfir vetrartimann. En
um leið og fer að vora i lofti
kemur löngunin til þess að
klippa hárið. Enda er stutt hár
öllu þægilegra i sól og hita, og
auðveldara er yfirleitt að ráða
við það.
Við birtum nú myndir af nýj-
ustu hártizkunni, sem fyrir
stuttu leit dagsins ljós i Paris.
Við birtum einnig leiðbeiningar
um það, hvernig á að beita
skærunum og fara að þegar
hver greiðsla er klippt.
Yfirleitt virðast hár-
greiðslurnar fremur einfaldar
og nokkuð er um það að hárið sé
blásið. Það gefur andlitinu
hressilegan og skemmtilegan
svip.
að bæði er hægt að greiða hann
beint fram og út á hlið.
Eftir klippinguna er hárið sið-
an þvegið og það loks þurrkað
með hárþurrku og bursta. Hár-
greiðslumennirnir ráða vist vel
við að þurrka hárið þannig með
þurrkunni, að það liggi eins og
bezt verður á kosiö, en sjái mað-
Virðist eðlilegt en krefst síns tímo
Með þessum þremur myndum
sýnir Jean-Louis David, hár-
greiðslumaður i Paris, hvernig
á að fara að þegar þessi hár-
greiðsia er klippt. Hárið er sitt
fyrir. Hárgreiðslan er mjög
frjálsleg og eðlileg, en hún
krefst samt sins tima.
i byrjun er hárið allt greitt
niður frá hnakkanum. Síðan er
byrjað að klippa og er byrjað I
hliðunum, eins og fyrsta myndin
sýnir.
A annarri myndinni er hárið
tekið aftur i tagl, það er að segja
allt nema undirhárin svoköll-
uöu. Þau eru siðan klippt eins
og linan sýnir. Toppurinn er
klipptur hæfilega mikið, þannig
betra verði við það að eiga og
auðveldara að fá það til þess að
rúllast upp á við.
Nú, svo má nota hárlagn-
ingarvökvann ef ekki dugar að
setja rúllurnar i svolitiö vott
hárið.
Skemmtileg greiðsla fyrir þter með
langa hálsinn
Carita er frönsk hárgreiðslu-
kona i Paris. Hugmyndina að
þessari greiðslu segist hún hafa
frá van Dongen, frönskum list-
málara, sem eitt sinn málaði
fræga mynd af Brigitte Bardot.
Hárgreiðslan er nokkuð barna-
leg en skemmtileg.
Og það er litið sem þarf fyrir
henni að hafa. Engar rúllur,
enginn hárlagningarvökvi eða
hvað sem þetta nú allt saman
heitir, ja, nema þá hárið sé
þeim mun verra viöureignar.
Sama sidd er á hárinu allt um
kring, frá hnakka og fram á
kinnar. Stuttur toppur er klippt-
ur, og siðan er hægt að breyta
hárgreiðslunni jöfnum höndum.
Annaðhvort er toppurinn
hafður beint fram á enniö, eða
þá að hárinu er skipt langt út á
annarri hliðinni og það siðan
greitt á ská fram yfir ennið. i
annarri hliðinni veröur hárið þá
all miklu styttra. Enda eru
undirhárin höfð styttri.
Hárgreiðslunni má svo gefa
skrautlegri svip með þvi að
spenna hárið aftur.
Nú kemur hárliðunarjárnið
í góðar þarfir
Einn af 15 beztu hárgreiðslu-
mönnum i Paris, er sagður vera
David Harlow. Hann kemur
fram með þessa greiðslu, sem
þegar er reyndar farið að bera
nokkuð á. Liðaður toppur en
slétt hár i hliöunum.
Klippingin sjálf er mjög lfk
klippingu Jean-Louis David,
sem sýnd er hér á siöunni. En nú
er toppurinn liðaður.
Hárið er lagt eins og myndirn-
ar sýna, og nú er gott að notast
við hárliðunarjárn, þó að alveg
eins gott sé að nota litlar rúllur.
Illiðarhárið er aðeins burstað
hressilega, en skemmtilegt er
þó að setja i það liði,
þannig að það rúllist aöeins inn
á við.
—EA