Vísir - 07.05.1973, Qupperneq 3
Visir. Mánudagur 7. mai 1973
3
íbúar vinabœjarins
gófu 80 kr. á mann
Almenn söfnun hefur fariö fram
i vinabæ Vestmannaeyja I
Danmörku, Friörikshöfn á N-Jót-
landi. A laugardaginn afhenti for-
maöur söfnunarnefndarinnar,
Finnur Erlendsson, læknir,
söfnunarféö viö stutta og látlausa
athöfn á bæjarskrifstofunum I
Eyjum. Sigurgeir Kristjánsson,
forseti bæjarstjórnar veitti fénu
viötöku, um 2.5 miiljónum króna.
Þessi upphæö samsvarar þvi, aö
hver bæjarbúi I Friörikshöfn hafi
gefiö um 80 krónur,. en bæjarbúar
eru rúmlega þrjátiu þúsund tals-
ins.
Auk fjárins afhenti Finnur
Erlendsson Sigurgeiri eftir-
likingu af múrsteini úr ryöfriu
stáii meö áletruninni:
„Byggingarsteinn i nýtt heimili
Heimaeyinga— Friörikshöfn
1973”.
—VJ
NU MEGUM VIÐ BUAST VIÐ
RIGNINGU! En betri vonir um morgundaginn
Ekki fáum við aö njóta sólar-
innar lengi hér á landinu. Nú
spáir hann rigningu, og sólin
var ekki á lofti nema i stuttan
tima.
Að þvi er veðurfræðingar
sögðu okkur i morgun, þegar við
höfðum samband við þá, er
þegar farið að rigna á Vest-
fjörðum, og mun þetta regn-
svæði færast austur yfir landið i
dag og i nótt.
Sunnan kaldi eða stinnings-
kaldi fylgir rigningunni, og i dag
má búast við að aöeins fari aö
vökna i höfuðborginni. En þó að
hann blási aðeins, þá vilja
veðurfræðingarnir ekki kalla
þetta „rok”, og þeir gefa aðeins
betri vonir viðvikjandi morgun-
deginum.
Þá spá þeir, að hann létti til
með norðvestanátt, en um leið
mun eitthvað kólna 7-9 stiga hiti
mun verða hér i dag, en er liða
fer á lækkar hann niður i 4-6
stig.
Sólskin er enn á fáum stöðum
á landinu, og hiti á láglendi er 3-
8 stig.
—EA
IANDSFUNDURINN HAFINN
Myndin er tekin I anddyri Há-
skólabiós, þegar fulltrúar Sjálfs-
stæöisflokksins voru aö koma til
setningar landsfuiular I gær-
kvöldi. Frá vinstri Birgir ísl.
Gunnarsson, borgarstjóri og
Sonja Bachmann, eiginkona
hans, Ragnheiöur Hafstein ásamt
Jóhanni Hafstein, formanni Sjálf-
stæðisflokksins.
í gær flutti Jóhann Hafstein ræöu
viö setninguna og er hennar getiö
nánar i leiðara blaösins i dag. t
morgun hófust svo almennar
stjórnmálaumræöur I Súlnasal
Hótel Sögu. Munu umræöur halda
áfram i dag og langt fram á
kvöld.
Jón Sólnes bankastjóri var einn
þeirra, sem töluöu I morgun.
Hann kom fram meö nýyröi i
ræðu sinni, „sjálfstæöissósialist-
ar”. Kvaö hann þá ekki betri en
aöra sósíalista.
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN
Fyrsta skóflustungan að grunni
hins nýja húss Sjálfstæðis-
flokksins var tekinn af Jóhanni
Hafstein, formanni flokksins,
við hátiðlega athöfn klukkan
15.00 i gær. A myndinni eru
talið frá vinstri: Albert Guð-
mundsson, stdrkaupmaður,
Jóhann Hafsteinn, formaður
flokksins Páll Stefánsson,
starfsmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Hjörtur Hjartarson, stór-
kaupmaður , Garðar Halldórs-
son, arkitekt, Geir Hallgrims-
son, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, Geirþrúður Bernhöft,
ellimálafulltrúi, Halldór Jóns-
son, arkitekt, Viglundur bor-
steinsson, framkvæmdastjóri,
Ásgeir Einarsson, fram-
kvæmdastjóri, Sigurður Haf-
stein, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins og Bjarni
Kristinsson, verkfræöingur.
Hún ætti aö lyftast eitthvaö brúnin á starfsmönnum Viölagasjóös f
Heimaey, ef þeir eiga von á því aö fá jafn indælar sendingar til sin á
næstunni og þessa hérna frá tsafiröi.
SKEMMTiFERÐAMENN
VID GOSSTÖDVARNAR
Margir skemmtiferöamenn
lögöu leiö sina til Heimaeyjar um
helgina til aö skoöa gosstöðvarn-
ar og ástandiö á Heimaey meö
eigin augum. Þaö er af sem áöur
var, aö enginn mátti stiga þarna á
land, nema hann heföi brýnum
erindum aö gegna. Menn eru
einnig farnir aö venjast nábýlinu
viö jaröeldana og jafnvel hætt
viö, að lslendingar hætti að bera
tilhlýöilega viröingu fyrir eld-
fjöllum almennt.
Ferðafólkið keypti sér far meö
Flugfélagi tslands til Heima-
eyjar. Verður sennilega áfram-
hald á þeirri starfsemi í sumar.
Má þvi búast við, að margt veröi
ferðamanna á Heimaey í sumar,
ef ástandið breytist þar ekki
verulega.
Um helgina mun Flugfélagið
hafa, flutt um 500 manns út
iEyjar,þar á meöal hópa frá tsa-
firöi, SIS, og Sjálfsbjörg.
—VJ
Stöðugt málað og
hreinsað í Eyjum
Menn keppast stöðugt viö aö
hreinsa i Eyjum, og um helgina
var málaö þak slökkvistöövar-
innar. Eitt hús hefur einnig veriö
málaö, og þó aö alltaf geti veriö
hætta á öskufalli yfir kaup-
staöinn, finnst mönnum þaö alveg
timabært.
Um 10 götur hafa nú verið
hreinsaðar, og stöðugt fleiri halda
með skóflur út í garða sina til
þess að hreinsa. Einn hefur meira
að segja sáð i garð sinn, en einnig
hefur verið sáð i svæði fyrir ofan
Gagnfræðaskólann.
Einn bátur, Kristbjörg VE,
hefur nú tekið upp netin og eru
þau þurrkuð i Eyjum. Gos var
litið um helgina og hraunrennsli
allt til suðausturs. örlitið hraun-
rennsli var þó i átt að bænum,
rann læna i suðvestur, -en fæstir
tóku þó eftir þvi, fyrr en hún
stöðvaðist eftir að hafa runnið
tæpa 200 metra.
—EA
Bílvelta á Skúlagötu
Ungum bifreiðarstjóra fataöist
stjórn jeppabifreiðarinnar, sem
hann ók cftir Skúlagötunni, um
miönætti I nótt, með þeim
afleiöingum uö hún valt.
Tildrögin voru þau, að pilturinn
ók austur Skúlagötuna á vinstri
akrein, en hugöist siðan fara yfir
á þá hægri. I sama mund fór
önnur bifreið framúr og við það
mun hafa komið fát á ökumann
jeppabifreiðarinnar, sem nýlega
hefur lokið ökuprófi, og missti
hann vald á ökutækinu, með fyrr-
greindum afleiðingum.
Farið var með hann á Slysa-
deild Borgarspítalans til rann-
sóknar, en hann reyndist ekki
mikið meiddur og fékk aö fara
heim til sin. Bifreiðin er mikið
skemmd.
—ÓG
búð fyrir allar stúlkur
Hafnarstrœti 15