Vísir - 07.05.1973, Page 12
Visir. Mánudagur 7. mal 1973
Stefnir í úrslitaleik
milli Framara og Vals
Reykjavíkurmeistarar
Fram og Valur halda
áfram sigurgöngu sinni
gegn Reykjavíkurfélögun-
um í Reykjavíkurmótinu.
Það stefnir nú greinilega i
hreinan úrslitaleik milli
liðanna. Bæði hafa sjö stig
úr leikjum sinum við
Reykjavíkurfélögin og þau
leika innbyrðis 12. mai —
næstkomandi laugardag.
Valur sigraði Þrótt 1-0 á
laugardaginn á Melavellinum og
var þaö heldur slakur leikur, sem
liöiö sýndi, þó það næöi báöum
stigunum - slakasti leikur liösins i
mótinu. Eina mark leiksins skor-
aði Þórir Jónsson á fyrstu minút-
um hans.
A föstudagskvöld léku Fram og
KR og þar var einnig eins marks
sigur. Fram skoraði eina markið i
leiknum og var Erlendur
Magnússon þar aö verki og
tryggði Fram þar meö dýrmæt
tvö stig i keppninni.
Mótiö heldur áfram I kvöld og
leika þá Vikingur og Armann.
Annaö kvöld leika KR og Vest-
mannaeyingar.
Staöan i mótinu er nú þannig og
telja stig IBV þar ekki i keppninni
um meistaratitilinn
Fram
Valur
KR
IBV
Vlkingur
Þróttur
Ármann
0 14-3
0 0
6-2
8-2
2-1
4-5
0-7
1-15 0
QQQ
rStebbi er eins og hálfs, - og
matvandur. Stundum vill hann
ekkert boröa á morgnana. Þó
neitar hann aldrei TROPICANA
appelsínusafa. þaö er eins og
hann Stebbi viti, aö hver dl. af
TROPICANA appelsinusafa inni-
heldur nærri 40 mg. af C- vítamíni.
TROPICANA er líka alltaf
ferskur og góóur. Stebbi fer sjálfur
í búöina meö mömmu sinni til aö
vera viss um aö TROPICANA fernan
sé keypt úr kæli. Mamma athugar
um leiö síöasta leyfilega söludag
TROPICANA fernunnar, sem er
greinilega stimplaöur á umbúóirnar.
Hann Stebbi veit hvaö hann
syngur. Þaö vita þeir hjá TROPICANA
líka: Eitt glas af TROPICANA jafn-
gildir nefnilega um þaö bil fimm
nýjum appelsínum aö gæöum.
O
sólargeislinn
frá Florida
Markahæstu leikmenn mótsins
eru:
Simon Kristjánsson, Fram,
Björn Pétursson, KR
Eggert Steingrimss. Fram,
Erlendur Magnússon, Fram,
Hermann Gunnarsson, Val,
Sigurþór Sigurjónsson, KR,
Þórir Jónsson, Val,
Keflavík og
Breiðablik
sigruðu
Tveir leikir voru háöir á
iaugardag I meistaraflokki I
Litlu bikarkeppninni. Kefl-
vlkingar unnu góöan sigur á
Akurnesingum I Keflavik 3-0
og hafa þar meö unnið báöa
leiki sina gegn Akurnesing-
um I keppninni.
I Hafnarfiröi lék Breiöa-
blik við Hauka og sigraöi
með 3-1. Keflavik og Breiöa-
blik eru einu liðin, sem
sigurmöguleika hafa nú I
keppninni.
Bobby Charlton er greinilega djarfur maöur. Eins og sagt var frá hér í
biaðinu nýlcga bauö Preston honum framkvæmdastjórastööu hjá
félaginu — og Bobby hefur þekkzt boöið — tekur við félaginu innan
skamms. Myndin hér að ofan er frá leik Mnch.Utd. og Verona I ensk-
Itöslku keppninni. United sigraöi 4-1 og Bobby skoraði tvö af
mörkunum. Hér hirðir hann knöttinn I netinu eftir að hafa skorað
siðara markið — slðasta mark hans fyrir Manch.Utd.
Tuttugasti bikar-
sigur Rangers!
Það var allt á suðu-
punkti á Hampden-leik-
vanginum i Glasgow,
þegar Glasgowliðin
stóru, Rangers og
Celtic, léku til úrslita i
skozku bikarkeppninni
— 88. úrslitaleikur
keppninnar og i niunda
sinn, sem þessi félög
leika innbyrðis til úr-
slita. Rangers sigraði
3-2 i æsispennandi leik
og er það fyrsti sigur
liðsins i keppninni siðan
1966, en fimmti sigurinn
gegn Celtic í úrslita-
leikjum.
Leikvangurinn, sem er hinn
stærsti i Evrópu, var þétt-
skipaður áhorfendum — 134
þúsund — og lögreglan hafði nóg
að gera. Margir fengu aðsvif i
troðningnum — eöa eitthvað
þaðan af verra — og sjúkrabilar
voru stöðugt á ferðinni milli leik-
vangsins og sjúkrahúsa. Eftir
leikinn logaði allt i slagsmálum
— en slíkt þykir varla tiöindi,
þegar Rangers og Celtic leika.
Yfir 50 handteknir.
Leikurinn var ótrúlega spenn-
andi og vel leikinn — knötturinn
gekk markanna á milli, hraði og
mikill og markatækifæri afar
mörg.
Celtic-liöiö, sem fyrir nokkrum
dögum vann skozka meistara-
titilinn áttunda áriö i röð einu
stigi á undan Rangers, varð fyrri
til aö skora — enda hölluöust
flestir aö sigri liösins. Þaö var
miðherjinn Dalglish, sem skoraði
á 25 min., en það stóö ekki lengi —
tiu minútum siðar tókst Parlane,
sem varð tvitugur á laugardag,
að jafna. 1-1 í leikhléi.
Rangers hóf siðari hálfleikinn
með miklum krafti og strax i
fyrsta upphlaupinu skoraði Alfie
Conn — fékk knöttinn rétt utan
vitateigs, lék á varnarleikmann,
siðan markvörðinn Hunter og
renndi knettinum i mark 2,-1 fyrir
Rangers og Hampden sprakk,
næstum.
En gleði aðdáenda Rangers var
ekki langvinn. Fimm minútum
siðar var vörn Rangers tætt i
sundur — Dixie Deans fékk
knöttinn i „dauðafæri” og renndi
honum i autt markið, en á siðustu
stundu tókst framverðinum Greig
að kasta sér og slá knöttinn út
fyrir stöng. Vitaspyrna og John
Conolly skoraði örugglega 2-2.
Aftur náði Rangers forustunni —
það liðu aðeins sjö minútur, þar
til Billy Forsyth hafði sent knött-
inn i mark Celtic eftir góðan
undirbúning fyrirliðans Derek
Johnstone, unga piltsins, sem lék
hér fyrir nokkrum árum með
skozka unglingalandsliðinu. Það,
sem eftir var leiks, hafði Rangers
nokkra yfirburði og liöið var nær
þvi að skora fleiri mörk, en
Cheltíc að jafna. Parlane var
fyrir opnu marki, en mistókst, og
varnarmönnum Celtic tókst að
spyrna frá á marklínu.
Heldur óvæntur sigur Rangers
var i höfn, þó liðið hafi staðið sig
vel siðari hluta vetrar. Celtic
vann bikarinn bæði 1972 (vann
þá Hibernian i úrslitum 6-1) og
1971, en þá sigraði liöið Rangers
2-1 i aukaleik — eftir 1-1 i fyrri
leiknum. Glasgow Rangers
sigraði nú i skozku bikarkeppn-
inni i tuttugasta sinn og var vel að
sigri komið, þvi leikmenn liösins
höfðu betra úthald en mót-
herjarnir. Glasgow Celtic hefur
unnið bikarinn 22. sinnum.