Vísir - 07.05.1973, Page 17
Vísir. Mánudagur 7. mai 1973
I > 1 KVÖ L □ pag 1
^•☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★■☆★☆★■^★☆★☆■★☆1
«-
**
□ “ _
17
^ll
LÖ
:f;
f:
*£*
*
spa
Sjónvarp kl. 20.55:
Til bœjarins að kaupa
ramma
Sjónvarpið sýnir i kvöld leikrit
sem heitir Ramminn. Það er
finnskt og er eftir finnska ieik-
skáldið Lauri Leskinen.
I leikritinu segir frá miðaldra
bændahjónum sem búa i fremur
afskekktri byggð þar sem litið á
sér stað umfram hið vanalega og
hversdagslega.
Ekki er hægt að'segja að þau
hjónin séu ung en samt sem áður
nýgengin i hjónaband. Dag nokk-
urn ákveða þau að lifga dálitið
upp á tilveruna. Þau segja skilið
við búið sitt i bili og bregða sér til
bæjarins. Þar ætla þau að kaupa
ramma utan um brúðkaupsmynd
sina.
Með aðalhlutverk fara ToivoV.
Pettenen og Bertta Korpi. Leik-
stjóri er Eila Arjomaa.
Leikritið verður sýnt kl. 20.55.
-EA.
Útvarp kl. 15.25: Popphornið:
„Æðra þessum
hlutum"
t popphorninu i dag fáum við að
heyra i nokkuð merkilegri hljóm-
sveit. Flestir kannast við hana og
sjáifsagt ekki nema af góðu einu.
Magnús Þrándur Þórðarson hef-
ur i hyggju að kynna hljómsveit-
ina Procul Harum fyrir hlustend-
um.
„Þetta er latneskt heiti á
hljómsveitinni,” sagði Magnús
okkur. ,,Að visu er ég ekki sterkur
i latinunni, en þetta skilst mér að
þýði eitthvað á þessa leið: Æðra
þessum hlutum. Og þetta nafn
gefur eiginlega beztu lýsinguna á
tónlist hljómsveitarinnar.”
Stutt er síðan hljómsveitin gaf
út sina sjöundu plötu, en plötuút-
gáfa hefur verið árlegur við-
burður. Magnús ætlar að kynna
nýjustu plötu hljómsveitarinnar,
sem heitir Grand hotel.
Procul Harum er ættuð frá
Englandi. Músik hljómsveitar-
innar er mikið byggð á
klassiskum stefjum, og textarnir
eru oft mjög merkilegir. Stund-
um kannski of háfleygur en ekki
einfaldir eins og svo margir aðrir.
Fyrsta lag þeirra sem sló i gegn
heitir Whiter shade of pale, og
hver minnist þess ekki. Lag það
er samið utan um Bach-kantötu,
og lagið komst strax i fyrsta sæti
vinsældarlistans. En þegar það
gerðist fannst hljómsveitin ekki,
engin vissi svo mikið sem hver
hún var.
En hún fannst samt sem áður.
Þó hafa tveir meðlimanna sem þá
skipuðu hljómsveitina aldrei
kpmið fram i sviðsljósið, en þrir
skipa hljómsveitina ennþá.
Hljómsveitin var stofnuð árið
1966 og fyrst i stað lék hún I
Wales.
En Magnús mun segja okkur
nánar frá hljómsveitinni og leika
nokkur lög klukkan 16.25 i dag.
-EA.
★
«■
★
«•
★
«-
★
«-
+
«-
★
★
★
«-
★
«-
★
«-
*
«-
★
«■
★
«-
★
«-
★
«-
★
«-
★
«-
★
«-
★
«•
★
«■
★
«-
★
«-
★
«-
★
«-
★
«-
«-
★
«■
★
«-
★
«-
*
«-
★
«-
+
«-
Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 8. mai.
Hrúturinn,21. marz-20. april. Þú þarft sennilega
að taka duglega til hendinni i dag. Þú kemur
sennilega mun meiru I verk, en þú hefur þorað
að gera ráð fyrir.
Nautið,21. april-21. mai. Gerðu ekki neitt sem
máli skiptir i dag, án þess að hugsa þig vel um
áður. Helzt ættirðu ekki að taka mikilvægar
ákvarðanir, ef þú kemst hjá þvi.
Tvlburarnir,22. mai-21. júni. Þér gengur margt
vel I dag, sumt sérlega vel. Þú færð sennilega
eitthvert tilboð, sem betur varðað þig allmiklu,
en flanaðu ekki að neinu.
Krabbinn,22. júni-23. júli. Þú átt annrikt i
dag, og talsverðar áhyggjur i þvi sambandi,
einkum hvað einhvern annan aðila snertir, en
mun þó óþarfi.
Ljónið, 24. júli-23. ágúst. Það litur út fyrir að
dagurinn verði þér að mörgu leyti góður, en þó
verða á döfinni einhverjir samningar, sem þér
falla ekki.
Meyjan, 24. ágúst-23. sept. Þú færð að öllum
likindum bréf, sem veldur þér nokkurri undrun.
Þú færð þó ef til vill skýringu á þvi að einhverju
leyti, áður en langt um liður.
Vogin, 24. sept.-23. okt. Taktu ekki neinar mikil-
vægar ákvarðanir i dag ef þúkemsthjá þvi. Að
mörguleyti verður dagurinn þér annars hinn
ánægjulegasti.
Drekinn,24. okt.-22. nóv. Það getur farið svo að
þér verði eitthvað til mikilla hagsbóta i dag, og
þá sennilega á þann hátt, sem þú áttir alls ekki
von á.
Bogmaðurinn, 23. nóv.-21. des. Það gengur ekki
allt samkvæmt áætlun i dag, en margt mun
ganga að minnsta kosti sæmilega. Láttu ekki
aðra ráöa fyrir þér i peningamálum.
Steingeitin,22. des.-20. jan. Heldur erfiður dagur
fram eftir. Eitthvað sem þú hefur dregið of lengi
að koma i verk, en kemur þér nú i koll — ekki
samt alvarlega.
Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Farðu gætilega i
ákvörðunum, og flanaðu ekki að neinu i peninga-
málum. Það litur út fyrir að þú eigir i samkeppni
við einhvern.
Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. Flýttu þér hægt i
dag. Þú átt ferðalag fyrir höndum, sem þú skalt
undirbúa vel. Allt virðist ganga i haginn fremur
en hið gagnstæða.
Eru aftur fáanlegir
í öllum stœrðum
Póstséndum samdægurs.
SJONVARP
DOMUS MEDICA,
'Egilsgötu 3
pósthótf 5060.
Simi 18619.
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Gaidur. Fyrri hluti.
Upptaka frá keppni þriggja
sjónhverfingamanna i Osló.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið) Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
20.55 Ramminn. Sjónvarps-
leikrit eftir finnska leik-
skáldið Lauri Leskinen.
Leikstjóri Eila Arjomaa.
Aöalhlutverk Toivo V. Pent-
tinen og Bertta Korpi. Þýð-
andi Guðrún Hettinen. Aðal-
persónurnar eru miðaldra
bændahjón i fremur af-
skekktri og viðburðasnauðri
byggð. Þótt þau séu ekki
beinlinis ung, eru þau ný-
gengin i hjónabandið, og
dag nokkurn ákveða þau að
létta sér upp frá hversdags-
amstri við búið og bregða
sér til bæjarins til að kaupa
ramma utan um brúðkaups-
myndina. (Nordvision —
Finnska sjónvarpið)
21.55 Hirósima. Hollenzk
kvikmynd úr myndaflokki
um þróun nokkurra borga
frá striðslokum. Þessi mynd
er tekin i Hirósima i Japan
árið 1970, þegar aldarfjórð-
ungur var liðinn frá þvi
kjarnorkusprengju var
varpaö á borgina. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
22.35 Dagskrárlok.
UTVARP
14.30 Siðdegissagan: „Sól
dauðans” eftir Pandelis
Prevelakis Þýðandinn Sig-
urður A. Magnússon les (3)
15.00 Miðdegistónleikar: Fou
Ts’ong leikur á pianó Svitu
nr. 14 i G-dúr eftir Handel og
Capriccio i B dúr eftir Bach.
Ida Haendel leikur á fiðlu
Sónötu i G%dúr eftir
Tartani, Prelúdia og Alle-
gro eftir Pugnani / Kreisler,
Scherzo-Tarantellu op. 16
eftir Wieniawski og Til-
brigði á g-streng eftir
Paganini.
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar.
18.00 Eyjapistill. Bænarorö.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson cand. mag.
flytur þáttinn.
19.25 Strjálbýli — þéttbýli
Þáttur i umsjá Vilhelms G.
Kristinssonar fréttamanns.
19.40 Um daginn og veginn
Vésteinn ólason lektor
talar.
20.00 tslenzk tónlist
20.30 David Livingstone, —
100. ártið Ólafur Ólafsson
kristniboði talar.
20.55 ,,Myndir úr þorpi”
(Dorfszenen) eftir Béla
Bartók Irmgard Seefried
syngur. Eric Werba leikur á
pianó.
21.10 tslenzkt mál Endur-
tekinn siðasti þáttur dr.
Jakobs Benediktssonar.
21.30 (Jtvarpssagan: „Músin,
sem læöist” eftir Guöberg
Bergsson Nina Björk Árna-
dóttir byrjar lesturinn.
22.00 Fréttir
22.15 Veöurfregnir Búnaöar-
þáttur Guðmundur Jósa-
fatsson frá Brandsstöðum
talar um fóðrun og afurðir.
22.35 Hljómplötusafnið i
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 20.30:
Nú fúum
við að
sjó
galdra
Það verður liklega nokkuð
liflegt I einum þætti sjón-
varpsins í kvöld, en þaö er
þáttur sem ber nafnið:
Galdrar. Og jú, það er rétt.
Þarna eiga sér stað hinir
furðulegustu galdrar.
Reyndar ekki eins og þeir
gerðust bezt I forneskju, eins
og við höfum margheyrt talað
um. Heldur er hér um að ræða
töframenn eða réttara sagt
sjónhverfingamenn, sem ætla
að sýna listir sinar.
Allir eru þeir skandinaviskir
og sýna listir sinar I Osló að
þessu sinni. Þar átti sér staö
keppni á milli og verður sú
keppni sýnd I tveimur hlutum i
sjónvarpinu. Ekki hefur þó
verið tekin ákvörðun um
hvenær seinni hlutinn verður
sýndur.
Hvort þeir fá kanfnur eða
dúfur upp úr höttum eða
vasaklúta og slæður fram úr
ermum, vitum við ekki, en
sjónhverfingamennirnir eru á
dagskrá klukan 20.30.
-EA.