Vísir - 08.06.1973, Qupperneq 1
63. árg — Föstudagur 8. júní 1973—130. tbl.
LÆRÐI SPEKI AF
SÁLUSORGARA
BÍTLANNA
— sjó frétt bls. 3
Matvönikaupmenn fara
í stríð við heildsala
„Hvort ég ætla út úr bænum
um hvítasunnuhclgina? Nei,
það hugsa ég ekki. Þessi helgi
laðar mig ekkert út úr bænum
öðrum helgum fremur’’ sagði
Kristin Valdimarsdóttir, sem
við sjáum hér á litmyndinni
fyrir ofan.
Kristin er úr Reykjavik og er
við nám i meinatækni. Hún
segir okkur, að henni Hki vel við
fagið, en námið taki samfleytt
tvö ár. „Fyrra árið er tekiö i
Tækniskóianum, en hið siðara á
spitala og þá fyrirlestrar stund-
aðir samhliða”, útskýrði
Kristin, en hún iýkur námi i
haust. Stúdentspróf þarf sá aö
hafa, sem fer i mcinatækni.
Stúdentshúfu sina sótti Kristin
til Menntaskólans i Hamrahlið.
,,Ég hef hug á að komast til
starfa viö einhvert sjúkra-
húsanna i borginni, eftir að
námi lýkur”, sagöi Kristin, en
hún var ekki tilbúin til að upp-
lýsa meira að svo stöddu.
— verzla ekki
við heildsala,
sem taka
vexti af
úttektarvíxlum
Jú, hiklaust má reikna með þvi,
að til nokkurs vöruskorts gcti
komið, cf lausn finnst ekki á strfði
okkar við 19 helztu heildsölufyrir-
tækin, sagði einn af kaupmönnum
borgarinnar i viðtali við VIsi i
gær. Kaupmenn i Félagi mat-
vörukaupmanna og Félagi kjöt
kaupmanna hafa nú bundizt sam-
tökum um að verzla ekki við þá
heildsala, sem taka vextiaf vöru-
kaupavixlum.
Forsaga málsins er sú, að
seinnihlutann i mai skrifuðu 19
heildsölufyrirtæki, sem mikið
verzla meö matvæli, dreifibréf til
matvörukaupmanna og tilkynntu,
að eftir 1. júni yrðu teknar upp
nýjar reglur i viðskiptum með
matvöru og snyrtivöru. Vegna
ákvörðunar Seðlabanka um
hækkun vaxta væru þeir tilneydd-
ir nú til aö taka 1% vexti á mánuöi
fyrir vörur, sem seldar væru gegn
vixilgreiðslu, eftir að úttektar-
mánuði lýkur.
Hingað til hefur algengasta
reglan verið sú, að matvöru-
kaupmenn hafa fengið vöruna til
tveggja mánaða auk úttektar-
mánaðarins vaxtalaust. Annað
form hefur þekkzt, sérstaklega,
ef fullt traust hefur ekki verið á
milli aðila.
Okkar starfsemi er ekki rekin
með slikum hagnaði, að viö
þolum aö bæta á hana 12% vöxt-
um á alla úttekt hjá heildsölum,
sagöi kaupmaðurinn, sem viö
töluðum við. Viö skiljum mætavel
erfiðleikana hjá heildsölum
vegna vaxtahækkananna. Hins
^vegar teljum við það ódrengilegt
að velta þessum bagga beint yfir
á okkur og ætlast til þess, aö viö
náum fram álagningarhækkun
hjá okkur, sem þessu nemur.
Þarna munar strax hundruðum
þúsunda I rekstrinum á ársgrund-
velli. Þvi miður hefur afkoman
ekki veriö slik, að hún þoli þetta.
Ég vil taka það skýrt fram, að
viö erum ekki i neinum „stræk”
við heildsala. A fundi matvöru-
kaupmanna og kjötkaupmanna
var aðeins samþykkt, að við
hefðum ekki efni á þvi að verzla
upp á þessi kjör. Þvi höfum við
beint viðskiptum okkar til þeirra
heildsala, sem ekki krefjast þess-
ara vaxta, en þeir eru allmargir.
t ljós hefur komið, að þeir viröast
eiga meira i pokahorninu af
góðum vörum eri t.d. ég hélt. Það
er þvi ekki vist, að til svo alvar-
legs vöruskorts þurfi að koma, þó
aö heildsalarnir 19 láti ekki und-
an. Þó eru óneitanlega margir
helztu heildsalararnir þar á
meðal, sagði kaupmaðurinn okk-
ur.
Vísir hafði samband við for-
stjóra O. Johnsons & Kaaber,
Olaf Johnson, i gær vegna þessa
máls, en fyrirtæki hans er eitt af
þeim nitján, sem undirrituðu
dreifibréfið til matvörukaup-
mannanna. Hann neitaði, að
nokkurra erfiðleika gætti vegna
breyttra reglna um vörukaupa-
vixla. — VJ
Sannur
Víkingur!
Ginn mesti vlkingur allra
tima, a.m.k. síðan Þorgeir
Hávarsson leið, hefur göngu
sina I blaðinu I dag. Hrollur
nefnist hann, en á frum-
málinu heitir hann Hagar
thehorrible, og er hann eftir
Dik Browne, höfund LIsu og
Láka, sem vinsæi eru af
siðum Visis.
Raunar er Hrollur ólíkur
starfsbræðrum sinum frá
fyrri öldum að því leyti, aö
hannglimir við 20.öldina,og
20. aldarmenn með allri
þeirri tækni og visindum,
sem dunið hafa yfir. Að auki
þjakar það Hroll, hvernig
fjölskyldulifinu er háttað.
Þaö er erfitt aðeiga son, sem
neitar að láta hár sitt vaxa
og þvær það á degi hverjum.
Höfundurinn, Dik Brown,
er Bandaríkja m aður,
víkinglega vaxinn, hár og
herðabreiður, um 190 senti-
metrar, nær 55 ára gamall og
varð fyrst kunnur fyrir um-
búðarteikningar fyrir
Camel, Liptonste og Sikita-
banana, en sögur hans hafa
öölazt mikla frægð. Hrollur
er nýkominn á markað og er
aö hefja söngu I fjölmörgum
blööum viða um heim, enda
varð þegar mikii barátta um
að hreppa söguna milli blaða
vlða erlendis.
—Sjá bls. 13