Vísir - 08.06.1973, Síða 5
Visir. Föstudagur 8. júni 1973.
5
AP/IXITB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Þýzki kanslarínn
sœkir gyðinga heim
Willy Brandt kanslari
og Golda Meir forsætis-
ráðherra munu halda
áfram viðræðum sinum i
dag, sem hófust við
heimsókn kanslarans til
ísraels núna i vikunni.
Er það fyrsta heimsókn
þýzks þjóðhöfðingja til
Gyðingarikisins.
Brandt átti rólegt kvöld i gær á
,,Kibbutz”-inu (samyrkjubú)
heima hjá Allon aðstoðarfor-
sætisráðherra, en það er nærri
Beatitutdes-f jalli, þar sem
Kristur flutti fjallræðuna.
Kanslarinn vottaði virðingu
sina minnisvarða sex milljóna
Gyðinga, sem teknir voru af lifi i
landi hans i heimsstyrjöldinni
siðari, og hann sagði við Goldu
Meir, að þessi heimsókn ,,væri
eitt stærsta augnablik mins
stjórnmálaferils.”
öflugar öryggisráðstafanir
höfðu verið gerðar vegna heim-
sóknar þýzka kanslarans, en til
þessa hefur ekki bólað á öðrum
mótmælum en þeim, að nokkur
hundruð unglingar hrópuðu við
athöfnina hjá minnisvarðanum:
..Þjóðverji, farðu heim.” — Hefur
þvert á móti hitt vakið nokkra
athygli, að engir þeirra 300.000
Gyðinga i tsrael, sem eiga um
sárt að binda vegna ofsóknanna i
Þýzkalandi i striðinu á sinum
tima, hafa látið á sór kræla.
Orðstir Brandts vegna baráttu
hans gegn nazistum á striðsárun-
um er talin ástæðan fyrir þvi.
1 heimsókninni hefur Brandt
gætt þess vandlega að fara ekki
yfir á hernumdu svæðin, sem
áður voru lönd Araba, til þess að
styggja ekki Arabarikin. Þau
Golda Meir hafa rætt um sam-
búðina milli austurs og vesturs og
um ástandið fyrir botni Miðjarð-
arhafsins.
LÍTIL SKRÚFA OLLI
ÖLLU KLANDRINU
Geimfararnir löguðu í nótt Skylabgeimstöðina
Tveir geimfaranna í
Skyiabgeimstöðinni gengu
út úr stöðinni í nótt í síðustu
tilraun tii þess að bjarga
Sky lab-áætluninni — og
tókst það.
Geimstöðin fékk þegar í
stað aukna raforku frá
sólarskermunum, sem
Conrad og Kerwin tókst að
losa og fá til þess að breiða
úr sér.
„Ein litil lúsug skrúfa hélt öllu
föstu”, sagði Conrad fararstjóri
þeirra geimfaranná. Og eftir að
hafa losað hana tókst þeim
félögum að koma skermunum i
rétta stöðu.
Smám saman hitnuðu
mótorarnir og fóru að snúast, og
geimstöðin fékk aukna orku, sem
ætti að gera mögulegt að inna af
hendi þær tilraunir i geimstöð-
inni, sem upphaflega hafði verið
gert ráð fyrir. Þegar vélarbilunin
kom upp i geimstöðinni, horfði til
þess að ekki yrði hægt að gera
þessar tilraunir vegna
orkuskorts.
Niðri á stjórnstöðinni á
Kennedyhöfða biðu menn milli
vonar og ótta, meðan ekkert
heyrðist i geimförunum á bak við
geimstöðina. Var þetta eitt hættu-
legasta augnablikið i ferðum
manna úti i geimnum. — Conrad
og Kerwin komu fyrir taug i stóra
skerminn og lögðust siðan báðir á
að toga i strenginn. Losnaði
skermurinn snögglega og þeir
félagarnir kútveltust um, þegar
svo óvænt var gefið eftir á
strengnum. Þegar þeir höfðu
staðið upp, voru skermarnir
komnir á sinn stað.
Þessi mynd var send ofan úr Skylabgeimstöðinni og sýnir Conrad að verki inni i „búri” geimstöðvar-
innar. Conrad er fyrir miðju, en kassarnir kringum hann innihaida matarbirgðir.
Chapall sýnir í Moskvu
Maya Pisetskaya, ballerina við Bolshoi, sést hér hcilsa list-
málaranum Mare Chagall og hvisla að honum nokkrum orðum um
leið og hún gengur inn i sýningarsalinn i Tretyakov Gallery i
Moskvu. Chagall heldur þar sýningu þessa dagana á verkum
siiuim. Chagall, fæddur Hússi, hafði ekki komið til ættjarðar sinnar
i rúm 50 ár. Ilann er 85 ára að aldri.
Hnífsórið var
útilokað við
lœknisrannsókn
Heilablœðing talin líklegt banamein
George Getty II
George F. Getty II, elzti
sonur oliubilljónamærings-
ins, J. Paul Getty, mun
ekki hafa látizt af hnífsári
því, sem hann var meö,
þegar hann var lagður inn á
sjúkrahús í Los Angeles á
þriöjudagskvöld.
Að lokinni læknisrannsókn
hefur hnifsárið verið útilokað sem
banamein hans, en læknaskýrslur
telja mögulegt að heilablæðing
hafi orðið honum að aldurtila.
Lögreglan hefur skýrt frá bvi.
að Getty hafi fengið hnifsárið,
þegar hann féll á sundlaugar-
barminum i garðinum og stakk
hann sig á hnif, sem hann hafði
haldið á i hendinni.
Eginkona hins |átna hefur skýrt
lögreglunni frá þvi, að Getty hafi
tvivegis hnigið niður þetta kvöld.
Eftir seinna fallið missti hann
smám saman meðvitund og þá
fluttur á sjúkrahúsið. Hann var
lagður inn undir fölsku nafni til
þess að vekja ekki of mikla
athygli.
Gullœðið grípur um
Gamlar gullnómur opnaðar aftur
Sihækkandi verðlag á
gulli á Evrópumarkaði
hefur hrundið af stað
nýju gullæði, sem leiðir
til þess, að vinnu-
krafturinn streymir
aftur i námur, er búið
var að loka. Er nú verið
að opna aftur gullnámur
i Svörtu hæðum i Suður
Dakota, i Alaska og i
Dominikanska lýð-
veldinu.
„Homestake Mining Corp”.,
sem þegar hefur þrefaldað tekjur
slnar frá þvi I fyrra, hefur opnað
aftur námu, sem India'nabaninn,
George Custer hershöfðingi, fann
1874. Félagið hikar ekki við að
vinna gull úr námunni, þótt únsan
sig á ný
gæti kostað sextiu til sextiu og
fimm dollara.
„En til þess að notfæra sér
gullkapphlaupið”, skrifar
Business Week Magazine i dag,
„þá hefur Homestake þegar á
þessu ári aukið námuvinnsluna,
og er núna að verki i nýju rikjum
Bandarikjanna, frá Kaliforniu til
Suður Dakota, Ariozona og
Alasaka. Fyrirtækið hefur nýlega
fest 7 milljón dollara i Suður
Dakotanámunni”.
önnur fyrirtæki eru einnig
gripin gullæðinu. „New York og
Honuros Rasario Mining Co”.
segjast ætla að opna aftur næst
stærstu gullnámu i Ameriku, I
Dominikanska lýðveldinu. Einnig
stendur til að opna aftur
yfirgefnar námur i Alaska og
Kaliforníu.