Vísir - 08.06.1973, Side 12
Á dagskrá um
Þriðja deildin verður i sviðs-
ljósinu um helgina og er fremur
litið um að vera á öðrum vig-
stöðvum knattspyrnunnar.
t kvöld klukkan 20 leiða saman
hesta sina á Arbæjarvelli Fylkir
og Grótta á Seltjarnarnesi. Bæði
félögin ung að árum en ætla sér
stóra hluti i framtiðinni þegar
þeim vex fiskur um hrygg.
Siðan eru f jórir leikir á laugar-
daginn einn i Vik i Mýrdal og
hinir þrir á Austurlandi. t Vik
keppa Ungmennasamband
Vestur-Skaftafellssýslu og Viðir
Sandgerði.
t Austurlandsriðlinum, sem 6
lið eru i, leika Valur á Reyðar-
firði gegn Leikni, Fáskrúðsfirði.
Huginn á Seyðisfirði gegn Austra,
Eskifirði, og á Hornafirði leikur
Sindri gegn Spyrni frá Egils-
stöðum.
Allir 3. deildar leikirnir sem eru
á laugardaginn hefjast klukkan 4
eftir hádegi.
Golfmenn verða á stjái að venju,
hæst ber þar Pierre Roberts
keppnina, sem fram fer á Nes-
vellinum. Segja má að keppnin sé
þreföld að þessu sinni þvi auk
þess að keppt er að sigri i Pierre
Roberts keppninni sjálfri, gefur
framhaldskeppni 24 efstu manna
stig i stigakeppni Golfsambands
tslands. Siðast en ekki sizt eru 5
menn að berjast um sjötta sætið i
landsliðinu, sem keppir i Evrópu-
helgina
meistaramótinu, sem fram fer
um næstu mánaðamóti Portúgal.
A mánudaginn klukkan 18,
hefst fyrri hluti drengja- og
stúlknameistaramóts Reykja-
vikur á Laugarlalsvellinum.
Alan Ball fékk „reisupassann" í leiknum gegn Pólverjum
STECHER BRAUT 11
SEKÚNDNA MÚRINN
ENSKIR SÁRIR YFIR
— tapinu gegn Pólverjum
Nú eru Englendingar
sárir og reiðir og
skamma Sir Alf Ramsey
og leikmenn landsliðsins
fyrir tapið gegn Pól-
verjum.
— Þetta var algjör
ósigur, og enska liðið
var gjörsigrað og niður-
lægt af sér betra liði. —
Svona er tónninn i ensku
pressunni og þar kemur
mikil gagnrýni fram á
landsliðseinvaldinn, Sir
Alf.
Englendingar eru þó alls ekki
búnir að missa möguleikana á
þvi að komast áfram i heims-
meistarakeppnini, öll löndin
Wales, Pólland og England eru
ennþá i baráttunni.
— Maðurinn, sem leiddi okkur
til sigurs i heimsmeistarakeppn-
inni 1966, á sök á niðurlægingunni
núna — segir i Daily Mail. —
England héfur sjaldan tapað leik
á svo leiðinlegan hátt og sjaldan
tekið ósigri eins illa. — segir
blaðið einnig. Og Daily Express
telur, að brottvisun Allan Ball af
leikvelli i lok leiksins hafi verið
verðugur endir á sýningu
Englendinganna á, hvernig ekki á
að haga sér á knattspyrnuvelli en
skapillska þeirra hafi verið það,
sem mestan svip setti á leikinn.
r
;/#//
'mk. NÓ-'
A^tLVNOtt 2i i- m,-
RITZ 702. 6! l? 55;
jurta.s«jó^)’o 'L*&. (j{ S? 61/
5j\ppas>rtos*\fi |i« |(); V- 86 r
goii>ÖV8^«-/ Jc »5: 179;
SxfKZi 176 j. »8:178;
1Æ
Renate Stecher austur-
þýzki olympiumeistarinn i
100 metra hlaupi setti nýtt
heimsmet i 100 metrunum á
frjálsiþróttamóti i Tékkó-
slóvakiu á þriðjudaginn.
Hún hljóp á timanum 10.9
sekúndur og er þar með
búin að brjóta 11 sekúndna
múrinn, sem hefur verið
talað um hjá konunum i 100
metra hlaupi, svipað og haft
var á orði um 4 minútna
múrinn i 1 milu hlaupi
karla.
Bezti timi Renötu var
áður 11 sekúndur, sem var
heimsmet þar til nú og átti
Renata það ásamt Wyomia
Tyus frá Bandarikjunum,
Chi Cheng, Formósu og Evu
Gleskovavaz frá Tékkó-
slóvakiu.
Nú er aðeins að biða og
sjá, hvort skriðan kemur á
eftir Renötu, eins og þegar
Roger Bannister braut
niður 4 minútna hindrunina
i milunni.
Magnús f stað Sigurðar
Akveðið er nú, að Magnús Guömundsson KR gæti marksins hjá Iandsliðinu i
leiknum gegn Færeyingum um helgina. Kemur hann þar i stað Sigurðar Dags-
sonar Val, sem brákaðist á hendi i ieik fyrir nokkrum dögum. Magnús hefur
verið einn af okkar beztu markvörðum um árabil, en af einhverjum ástæðum
ekki fyrr leikið Iandsleik.