Vísir - 08.06.1973, Qupperneq 15
o*o*o«
Visir. Föstudagur 8. júni 1973.
15
George Harrison,
Three Dog Night
og Barry White!
I þættinum Tiu á toppnum á
morgun verða kynnt þrjú ný
lög. Nýtt lag með George Harri-
son, Give Me Love. Nýtt lag
með Threé Dog Night,
Shambala og nýtt lag með
bandariska söngvaranum
Barry White, I’m Gonna Love
You Just a Little Bit More Baby.
Tvö fyrrnefndu lögin eru á fullri
ferð upp vinsældalista viða um
heim og lag Barry White er nú
alveg upp við toppinn i
Bandarikjunum.
„VÆRI EKKI TIL NílNS AÐ
HITTA HINA BÍTLANA" iC
Hin nýja LP plata Wings, Red
Rose Speedway, er nú I efsta
sæti i Bandarikjunum og lagiö
My Love er einnig i efsta sæti
listans yfir 45 snúninga plötur.
En engum Bitlanna liefur tekizt
að eiga samtímis plötur I efsta
sæti á báðum listunum, eftir að
þeir slitu samstarfinu, nema
McCartney núna.
Wings eru nú að leggja upp i
sitt fyrsta hljómleikaferðalag
um England og i tilefni þess
héldu þau blaðamannafund til
að tala um hina nýju plötu sina
og hið fyrirhugaða hljómleika-
ferðalag. En eins og búast mátti
við snerust spurningar blaða-
mannanna fyrst og fremst um
Bitlana, fortið þeirra og fram-
tið. En nú skulum við heyra
smávegis af þvi, sem fram fór á
þessum fundi.
Ég er ánægður með, hvernig
Wings eru núna, sagði Paul
McCartney. Mér finnst ég
góður. Mér likar við mig. Já,
mér finnst ég stórgóður, og ég
kann vel við mig, en þið? Ég
veit, að stundum er ekki svo, en
ég reyni að skilja þá hlið máls-
ins lika, alveg eins og stundum
kann ég ekki við ykkur, þó þið
gerið það!
Spurning: Hvað finnst þér um
siðustu plötu John Lennons?
Paul: Hann hefur nú ekki gert
mikið undanfarið, er það.
Sp.: En það sem hann gerði
með Elephants Memory?
Ég óska honum bara hins
bezta, en ég hlusta ekki mikið á
það, sem hann er að gera. Ég
hlusta miklu frekar á Stevie
Wonder eða reggae (tónlist frá
Jamaika), það er meira við
okkar hæfi.
Sp.: Þú spilaðir á plötunni
hans Ringo?
Jú, vegna þess að hann er
vinur minn. Ég mundi spila með
Alltó
Rod Stewart, ef hann bæöi mig.
Sp: Hittirðu hina Bitlana
oft?
Ég hitti þá eiginlega aldrei,
enda væri það ekki til neins. Við
náðum takmarki okkar, og það
er ekki hægt aö ætlast til, að viö
endurtökum það. Við gerðum
allt, nema vinna deildarbikar-
inn. Það eina slæma var,
hvernig þetta endaöi. Við héld-
um alltaf, aö okkur myndi
ganga vel sem einstaklingum,
en svo hefur þó ekki verið. Að
öðru leyti höfum við náð tak-
marki okkar.
Sp.: John gagnrýndi þig mikiö
um tima, jafnvel á plötum sin-
um?
Hann meinti það á þeim tima.
Þegar hann sagði þessa hluti, þá
tók ég þá i fyrstu illa upp og
hugsaði, sá er aldeilis með skit-
kast, en þá gerði ég mér grein
fyrir þvi, að þetta var hans
vandamál, ekki mitt.
Sp.: Þú býst auðvitað ekki
við, að Wings verði eins stórt
númer og Bitlarnir voru?
Af hverju „auðvitað ekki”.
Bitlarnir voru strákar frá
Liverpool, sem sóttust eftir heil-
miklu. Nú hef ég þaðallt saman.
Mig langar að spila, mig langar
að lifa lifinu og skemmta mér.
Sp: Hver finnst þér eftir-
minnilegasta Bitlaplatan?
Please Please Me.
Sp.: t alvöru?
Já Please Please Me Fjórtán
stundir, búmm, fullgerð. ” _
Sp.: Af hverju heldur þú, að
allir hérna séu að mestu leyti að
spyrja þig sömu spurningarinn-
ar?
Vegna þess að þeir halda að
bitlarnir geti komið saman
aftur,_ klikk, og haldið áfram
eins og ekkert hafi i skorizt En
það á aldrei eftir að ske.
Sp.: Hvað fannst þér um
gagnrýnina, sem fyrsta Wings
platan fékk?
Fyrstu mánuðina hugsaði ég,
guð minn góöur, þetta tekst
aidrei, við verðum gagnrýnd i
hvert skipti sem við opnum
munninn, vegna þess að við er-
um ekki The Beaties. En þetta
hefursamt tekizt furðanlega, og
við verðum alltaf betri og betri.
Sp.: Einhverjar áætlanir eftir
hljómleikaferðalagið?
Ekkert okkar þekkir raun-
verulega lifið, og ég lifi þvi
bara. Þess vegna veit ég ekki,
hvað muni ske, þegar þessu
ferðalagi er lokið, nema það að
sumarið biður okkar.
A meðan þessu fer fram,
hefur Linda nóg að gera með aö
verja sig.
Sp.: Hvað segir þú við þaö
fólk, sem segir, að þú kunnir
litið fyrir þér i tónlist?
Linda: Ég er að læra. Ég geri
mér grein fyrir þvi, að ég er að
byrja, og þvi meirsem ég spila,
þvi betri verð ég. Nú er ég t.d.
að læra á Moog og Mellotron.
Annars var ég aldrei gagnrýnd
fyrir tónlistarkunnáttu mina,
áður en ég giftist Paul, þess
vegna hefur það ekki áhrif á
mig núna.
Sp: Sumir segja, að þú hafir
eyðilagt Paul. Hvernig
hjálpaðir þú honum?
Ég hjálpaði honum mest,
þegar Bitlarnir hættu. Það var
erfitt timabil fyrir hann. Hljóm
sveitin hans búin að vera og öll
þau illindi, sem þvi fylgdu En ég
var þar til að hjálpa honum.
Sp.: Hvað fannst þér, þegar
þú heyrðir um stúlkuna, sem
skrifaði um ástarsamband sitt
við Paul? Hún ætti að vera
hreykin af sjálfri sér. Hún hefur
þá allavega reynt einn bólfim-
an. Annars mundi ég aldrei
skrifa um kynferðislif mitt.
I’aul McCartncy cr drýgindalegur á þessari mynd, engu síður en
i viðtalinu, scm við hirtum hér til hliðar. Þar segir liann m.a.
frá viðhrögðum sinum við niði John Lcnnons og margumræddri
endurvakningu The Beatles.
plötunni er fullkomið...
George Harrison:
Living in the
Material World.
Það eru aldeilis læti i þeim
bitlabræörum núna. Paul á
toppnum, George með nýja
plötu og væntanleg er ný plata
með Ringo. Það er orðið langt
siðan George Harrison sendi frá
sér plötu, og þvi kominn timi til
að fá að heyra i honum. Hvernig
er svo útkoman eftir allan
þennan tima? Hún er stórkost-
leg, og vist er, að biðin borgaöi
sig.
Eftir að hafa hlustaö á Living
in the Material World, er ég
sannfærður um, að þessi plata
er sú langbezta, sen nokkur
þeirra bræðra hefur gert. Allt er
fullkomið hvar sem á plötuna er
litið. Tökum t.d. hljóðfæraleik-
inn, hann er frábær, þó sérstak-
lega trommuleikur þeirra Jim
Keltners og Ringos. En frábær-
astur allra er þó George Harri-
son, en hann sér einn um allan
gitarleik á plötunni og er hann
mjög fjölbreyttur. Harrison
sannar þarna, að hann er einn af
þeim örfáu súper-gitarleikur-
um, sem til eru.
Það er eitthvað heillandi við
þessa plötu, maður getur bara
ómögulega hætt að spila hana.
Jafnvei þó maður ætli nú að fara
að pæla i einhverju öðru þá er
það ómögulegt, og innan
stundar er Living in the Materi-
al World farin að snúast á fónin-
um. Maöur slappar af gleymir
sér og nýtur þessarar frábæru
tónlistar.
George Harrison ásamt undirleikurum sfnum aö plötunni „Living In The Material World”. Þaö er Ringó Starr, sem situr lengst til vinstri við boröið, en aörir á
myndinni eru auk Harrison : Nicky Hopkins, Gary Wright, Klaus Voormann, Jim Keltner og Jim Horn.