Vísir - 08.06.1973, Síða 19
19
□ □AG | D KVÖLD | Q □AG j D * < Q: r □ Q □AG |
Sjónvarpið í kvöld kl. 20.30:
„Karlar í krapinu"
Hvað gera Smith og Jones
til að bjarga sér
20 óra fangelsi?
A dagskrá sjónvarpsins i kvöld
eru „Karlar i krapinu”, þeir vin-
irnir Smith og Jones, sem aldrei
þreytast á að lenda i ævintýrum.
1 þetta sinn eru þeir á flótta
undan lögreglusveit og eru búnir
að vera hundeltir i 3 sólarhringa.
Þeim hugkvæmist ráð til að
skipta um ferðamáta, þegar þeir
sjá konu akandi i hestvagni. Til
að gera grein fyrir þvi, hvaö þeir
séu að gera þarna, segja þeir kon-
unni, að hestar þeirra hafi drukk-
ið eitrað vatn og drepizt.
Konan, sem gift er kennara, á
heima á mjög afskekktum bónda-
bæ, og tekur hún þá heim með
sér. Bóndi hennar liggur þá i fót-
broti. Þau hjónin segja Smith og
Jones, að ekki verði ferð i kaup-
stað fyrr en eftir tvær vikur, og
láta þeir sér þetta vel lika. Ráða
þeir sig sem kaupamenn til að
vinna fyrir fæði og húsnæði.
Þarna kynnast þeir tveimur
dætrum hjónanna, brellnum
stelpum.
Eftirleitarmenn hafa samt ekki
gefizt upp, og einn daginn birtast
þeir öllum að óvörum, og nú biður
þeirra Smith og Jones fangelsis-
vist i 20 ár.
Nú eru góð ráð dýr, og við fáum
svo að sjá, hvernig fer fyrir þeim
félögum.
Þýðandinn er Kristmann
Eiðsson. __E.V.I.
SJONVARP
FÖSTUDAGUR
8. júni
20.00 Fréttir-
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Karlar i krapinu. Þraut-
góðir á raunastund.
Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.25 Skautadansar Sovézk
skemmtidagskrá. Megin-
efni dagskrárinnar er list-
dans á skautum og eru þar
sýndir dansar frá ýmsum
heimshornum. Þýðandi
Haraldur Friðriksson.
22.15 Watergate-máliö Kvik-
mynd frá CBS. Þýðandi Jón
O. Edwald.
23.05 Dagskrárlok.
SJONVARP
LAUGARDAGUR
9. júni
20.00 Fréttir-
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Hve glöö er vor æska.
Húsbóndi á sinu heimili.
Þýöandi Ellert Sigur-
björnsson..
20.50 Rió trió.Þáttur frá kvöld-
skemmtun, sem trióið hélt i
vetur i Austurbæjarbiói.
21.25 Daglegt lif indverskrar
heimasætu. Fimm Bræður,
fimm systur. Fyrsta
myndin af þremur um
daglegt lif 16 ára stúlku og
fjölskyldu hennar i Ind-
landi. Þýðandi og þulur
Ellert Sigurbjörnsson
CNordvision — Danska
sjónvarpið)
22.05 Thérese Raquin Frönsk
biómynd frá árinu 1953,
byggð á sögu eftir Emile
Zola. Leikstjóri Marcel
Carne. Aðalhlutverk
Simone Signoret, Raf
Vallone og Jacques Duby.
Þýðandi Sigrún Helgadóttir.
Thérese býr með eigin-
manni sinum á heimili
móöur hans i Lyon. Hún
hefur gengið að eiga
Camilli, mann sinn, af
þakklæti fyrir aðstoð á
æskuárunum og i hjóna-
bandi þeirra fer litið fyrir
ástrikinu. Loks verður hún
ástfangin af vörubilstjóra,
sem reynir að telja hana á
að yfirgefa Camille.
23.45 Dagskrárlok.
Þeir Smith og Jones.
í kvöld eftir fréttir:
SÓÐARNIR
Astæða er til að vekja athygli á
sérstæðri mynd i auglýsinga-
tima sjónvarpsins I kvöld. Það
er mynd, sem Heilbrigðiseftir-
litið hcfur látið gera um sóða-
skap og afleiðingar hans. Þetta
er teikniinynd, og eru sýndar
glefsur úr lifi sýklanna og
þeirra, sem valda þeim.
Sýklarnir syngja þarna baráttu-
söng sinn, og ætlum við að birta
hann hér, ef einhverjir skyldu
vilja syngja með. Textinn er
sunginn við lagið „Jón og ég, við
vorum eins og bræður...”.
fíg cr sýkill, sjúkdómanna
vinur,
sóðalegur lubbi er mér kær.
fíg fylgi með, er hár af
kolli hrynur,
og helzt ég reyni að lenda
matnum nær.
Ofan I mann
ætla ég mér
sko, sjáið hann
á spitala ferl —ÓH
Útvarpið í kvöld kl. 19.20: „Fréttaspegill"
ÞÁÐU V-ÞÝZKIR ÞINGMENN MÚTUR?
i útvarpinu i kvöld er m.a.
„Fréttaspegill” i umsjá Gunnars
Eyþórssonar.
SJONVARP
Sunnudagur
10. júni 1973
Hvitasunnudagur
17,00 Hátiðaguðsþjónusta Sr.
Valgeir Astráðsson á Eyr-
arbakka prédikar i sjón-
varpssal. Kirkjukórar
Gaulverjabæjarkirkju og
Stokkseyrarkirkju syngja.
Söngstjóri Pálmar Þ.
Eyjólfsson.
18.00 Brimaborgarsöngvar-
arnirKanadisk barnamynd.
Hér er gamalt og vinsælt
ævintýri fært i leikbúning og
er það að miklu leyti flutt af
leikbrúðum, en i sumum
hlutverkum eru þó lifandi
leikarar i gervi dýra og ým-
issa ævintýrapersóna. Þýð-
andi Gylfi Gröndal.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veðurfegnir
20.25 Eddukórinn Kórinn
syngur lög frá ýmsum lönd-
um i sjónvarpsal.
20.50 Hvitir hestar Austurrisk
kvikmynd af hátiðasýningu,
sem haldin var i tilefni 400
ára afmælis Spænska reið-
skólans i Vinarborg.
21.40 Roger Whittaker Siðari
sjónvarpsupptakan af
tveimur, sem gerðar voru á
Charles Dickens Pub i
Stokkhólmi, þegar hinn vin-
sæli brezki visnasöngvari og
blistrari kom þar fram i
fyrra. (Nordvision —
Sænska sjónvarpiðl Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
22.20 Þættir úr hjónabandi
Framhaldsleikrit eftir Ing-
mar Bergmann. 6. þáttur,
sögulok. Um miðja nótt i
dimmu húsi einhvers staðar
i heiminum. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Efni 5.
þáttar. Jóhann og Marianna
hafa ákveðið að ganga end-
anlega frá skilnaðarmálinu.
Þau hittast á skrifstofu Jó-
hanns til að skrifa undir
skjölin. Mariönnu hefur
aukizt kjarkur og sjálfsör-
yggi siðan Jóhann yfirgaf
hana, en hann er aftur á
móti óánægður með árang-
ur sinn i starfi og sambúð-
ina við Paulu. Fundur Jó-
hanns og Mariönnu endar
með heiftarlegu rifrildi og
þau skrifa undir skjölin i
haturshug. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
23.10 Dagskrárlok
Margrét Bjarnason mun tala
um Watergate-hneykslið i Banda-
rikjunum I ljósi siðustu atburða,
þar sem böndin berast meira og
meira að Nixon sjálfum.
Þorsteinn Thorarensen talar
um Steiners-hneykslið i V-Þýzka-
landi, hvort mútuþegar þing-
manna hafi forðað stjórn Willy
Brandts frá falli.
Að siðustu mun Sigvaldi
Hjálmarsson tala um hörmungar
af völdum þurrka i Indlandi.
Þurrkarnir eru einíwerjir þeir
verstu, sem komið ,iafa I Ind-
landi, og valda uppskeiúbresti og
hungurdauða hjá fjöida manns.
Sjónvarpið á laugardagskvöld kl. 20.25:,Hve glöð er vor œska'
HVAÐ FÆR AUMINGJA
DENNIS AÐ GERA-'I^Zf
1 sjónvarpinu á laugardags-
kvöld fáum við einu sinni enn að
fylgjast með 5. c. og kennurum
hans.
Það liður að þvi, að krakkarnir
i 5. c.ljúki sinu gagnfræðaprófi.
Flestir hafa þeir getað tryggt sér
vinnu, nema Dennis, hann langar
mest að vera einhvers staðar ná-
lægt dýrum, þvi hann er mikill
dýravinur. Hedges kennara tekst
á endanum að útvega honum
vinnu i hesthúsi hjá ölgerð, sem
keyrir bjórinn út á hestvögnum,
og á hann að hirða hrossin.
Hann er alveg i sjöunda himni
yfir þessu, en þegar allt er orðið
klappað og klárt, kemur babb i
hesthúsinu?
bátinn. Faðir hans haröneitar að
samþykkja að Dennis fari að
vinna þarna, þvi að honum hafði
einhvern tima verið hent út úr
knæpu, sem ölgerðin átti.
Þýðandi er Ellert Sigurbjörns-
son. -EVI.
Sjónvarpið í kvöld kl. 21.25: „Skautadansar"
Dansar frá ýmsum heimshornum
í sjónvarpinu I kvöld verður
sýndur listdans á skautum, og
dansar þar mjög frægur dans-
flokkur frá Rússlandi.
Dansarnir verða frá ýmsum
löndum, t.d. Spáni, Mexikó,
Rússlandi og Austurlöndum og
magadans frá Egyptalandi.
Mun dansflokkurinn klæðast
tilheyrandi búningum frá þeim
löndum, sem liann sýnir
dansana frá. E V I.
SJONVARP
Mánudagur
11. júni 1973
Annar i hvitasunnu
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Fallvölt er heimsins
dýrðt mynd þessari greinir
frá ferðalagi sem fulltrúi
baptistasamtaka i Banda-
rikjunum fer til að heim-
sækja og skoða fornar borg-
ir I Litlu Asiu. Allar komu
þessar borgir rnjög við sögu
I Opinberunarbókinni, en
eru nú rústir einar. I mynd-
inni er rakin saga þeirra, og
einnig að nokkru leyti saga
kristninnar á þeim tíma.
Þýðandi óskar Ingimars
21.20 Galdra-Loftur Leikrit
eftir Jóhann Sigurjónsson.
Áðurá dagskrá á annan dag
jóla 1970. Leikstjóri Sveinn
Einarsson. Leikendur:
Baldvin Halldórsson, Inga
Þórðardóttir, Valgerður
Dan, Jón Sigurbjörnsson,
Pétur Einarsson, Þorsteinn
Gunnarsson, Kristbjörg
Kjeld, Brynjólfur Jóhannes-
son, Margrét Pétursdóttir
og fleiri. Leikmynd Björn
Björnsson. Stjórn upptöku
Andrés Indriðason.
23.25 Dagskrárlok