Vísir - 31.07.1973, Page 2

Vísir - 31.07.1973, Page 2
Visir. Þriðjudagur 31. júli 1973. ■ tl vimm Hvert haldið þér að verði næsta skref i byggingamálum Seðla- bankans? Már Egilsson, viðskiptafræöing- ur: — Ég held, að húsið verði byggt. Það tel ég benda til þess, að bankavaldið sé sterkt. En þótt húsiö verði byggt, og ég spái þvi, þá er ekki þar með sagt aö ég sé )byggingunni meðmæltur. Kristin Jónsdóttir, húsmóöir: — Ég hef ekkert hugsað út i þetta, en býst frekar við að húsið verði byggt. Mér finnst algjör óþarfi að vera að byggja Seðlabankann. Frekar mætti byggja nýtt hús undir Stjórnarráð. Jóhannes Eliasson, bankastjóri: — Ég tel öruggt að byggingu hússins verði haldið áfram. Bankastjórn og bankaráð hafa ákveðið að það skuli gert, og hafa gert samning við verktaka um framkvæmdina. Bankaráð og bankamálaráðherra fara með yfirstjórn bankans. Iluida Hafsteinsdóttir, skrifstofu- stúlka: — Ég held að bankinn veröi að láta undan kröfum al- mennings, og hætta viö aö byggja Seðlabankann á Arnarhóli. Aftur á móti mætti reisa bankahúsið einhvérs staðar annars staöar. Ég held að ríkisvaldið veröi að gripa fram i fyrir bankastjórninni til að stjórna þessu. EÍin Arnadóttir, gjaldkeri: — Ég er hlutlaus i þessu máli. Það er svo óskaplega misjafnt hvaða skoðanir fólk hefur á þessu, og ég treysti mér ekki til að segja neitt um þetta, enda ekki nógu kunnug málinu. Ragnar Leifsson, sjómaður: — Eins og hefur sýnt sig, verður byggingin reist. Það er nefnilega oftast með mótmæli sem hafa ris- ið út af svona málum, að þau eru áberandi fyrst, en hjaðna svo niður. En ég er á móti þvi, að byggingin verði reist, það er komið nóg af þessu, og verja á fénu i eitthvað annað. Hœtta á raf- magnsskorti nœsta vetur — ef ekki tekst að Ijúka nýju aðflutningslínunni í tœka tíð ,,Ef ekki tekst að ljúka þessum framkvæmdum timanlega, þá má ekkert út af bera til að ekki verði rafmagnsskortur á dreifikerfi Rafmagns- veitu Reykjavikur”, sagði Aðalsteinn Guð- johnsen, rafmagnsstjóri i samtali við Visi i gær. Hér er átt við lagningu jarð- strengs og sæstrengs frá spenni- stöö við Korpúlfsstaði til aðveitu- stöðvar 3, sem er við Lækjarteig. Einnig þarf að stækka þá stöð verulega. Þetta nýja kerfi á að bæta úr brýnni þörf fyrir aukna flutnings- getu á rafmagnsorku til borgar- innar og einnig að vera til aukins öryggis i raforkumálum, þvi þá verða aðflutningslinurnar orðnar tvær i stað einnar áður. Heildarkostnaður við þessar framkvæmdir er áætlaður 147 milljónir króna. Ætlunin var, að þessum fram- kvæmdum yrði lokið fyrir áramót en nú þegar hafa orðið seinkanir á framkvæmdum bæði vegna fjár- skorts og afgreiðslutafa á efni frá verksmiðju i Danmörku. Að sögn Aðalsteins, fékk Raf- magnsveitan nýlega heimild til lántöku i Bretlandi að upphæð 50 milljónir króna, en ekki hefur ennþá verið afgreidd umsókn þeirra um heimild til að hækka gjaldskrár um 17%. En það sagði rafmagnsstjóri nauðsynlegt til að geta lokið þessum framkvæmd- um. Bygging stöðvarhússins við Sýnishorn af jarðstrengnum, sem notaður er f nýju raflinuna. Til samanburðar er eldspýtnastokkur. Endahólkur rafiinustrengsins við Korpúlfsstaði. Þaðan á jarð- strengur að liggja til Reykjavíkur. Lækjarteig, væri nú orðin 3 mán- uðum á eftir áætlun og yrði fyrir- sjáanlega ekki tilbúin fyrr en i marz 1974. Lagningu jarðstrengs- ins yrði væntanlega lokið i janúar næst komandi. „Þó við höfum haldið áfram þessum framkvæmdum og byrjað á byggingu stöðvarhússins eftir aö 50 milljóna lántökuheimildin fékkst, þá er þetta allt i tvisýnu, meðan við fáum ekki þessa 17,1% hækkun,” sagði Aðalsteinn Guð- johnsen ennfremur. „Hækkunarheimildin var af- greidd i borgarráði fyrir löngu, fór sfðan til iðnaðarráðuneytisins og þaðan til Framkvæmdastofn- unar rikisins og þar hefur hún legið til umsagnar um nokkra hrið. Slika hækkun á gjaldskrá mun verða að leggja fyrir rikis- stjórnina til ákvörðunar”. „Ég get nefnt til dæmis um nauðsynina á hækkun gjaldskrár Rafmagnsveitu Reykjavikur, að á árunum 1970-1973, hefur Lands- virkjun, sem selur Rafmagns- veitunni rafmagn i heildsölu hækkað taxta sina um 56%. Okkar taxtar hafa hækkað um 26% á sama tima. Sú hækkun, sem Rafmagnsveit- unni hefur verið heimiluð á þessu timabili nægir til að standa undir hækkuðu rafmagnsverði frá Landsvirkjun. Ekkert er afgangs til að standa undir öðrum rekst- urskostnaði, svo sem launum og öðru, sem hefur hækkað gifurlega á þessum árum.” „Það er nú svo komið”, sagði Aðalsteinn Guðjohnsen, raf- magnsstjóri að lokum, „að alvar- legar bilanir á jarðstrengskerfi'nu geta haft mjög alvarlegar afleið- ingar á mesta álagstimanum, þegarrafmagnsnotkunin er mest, frá desember-febrúar getur orðið slæmt ástand, jafnvel rafmagns- skömmtun.” —ÓG DÝRASPITALINN í MELTUNNI Guðrún A. Simonar, Mávahlið 37, hringdi: „Það sem þið skrifuðuð um keisaraskurðinn. á siamskettin- um uppi i Mosfellssveit vakti at- hygli mina. (Nema ég dreg i efa, að það hafi verið siamsköttur, þvi að af myndinni að sjá, finnst mér hann ekkert siamslegur, þótt hann geti sjálfsagt verið blandað- ur. Hreinræktaðir siamskettir verða ekki alhvitir, og þótt annað auga hans sé blátt, þá sannar það ekkert um siamsskyldleikann, þvi að hvitir kettir eru oft blá- eygðir. Mér sýnist hann frekar likur Vestmannaeyja-Gosa.) — En hvað um það. Ég átti mjög fallega siamslæðu, sem var kettlingafúll, en húri gat ekki gotiö, er stundin var kom- in. Þetta var 1966, og enginn treysti sér til þess að bjarga henni, og hún dó. Að minu viti mátti alveg koma i veg fyrir það, þvi að það er min skoðun, að spítala geti maður sett upp við hvaða aðstæður sem er, ef bara viljinn er fyrir hendi. En það hefur mér alltaf fundizt um Islendinga, að' þeim hafi þótt stappa næst vitleysu að hafa eitt- hvað fyrir dýrum, sem ekki voru hafðar af einhverjar beinar nytj- ar. — Nema ef væri þá hesturinn, sem nýtur ennþá umönnunar, þótt hann sé ekki lengur þarfasti þjónninn. Ég varð full af áhuga, þegar Mark Watson ætlaði að gefa Dýraverndarsambandi Islands dýraspitala, eins og þið sögðuð frá i Visi. Hann skipti siðan um LESENDUR HAFA ORÐIÐ skoðun og bauð heldur rikinu dýraspitalann, en rikisstjórnin tók sér frest til að hugsa málið og er vist enn að hugsa. Nú er ég spennt að vita, hvort hérna verður blandað saman landhelgismálinu og þessu dýra- spítalamáli, og spitalinn ekki þeginn, vegna þess að Breti á hlut að. — Eða hvers vegna þarf þetta svona langrar umhugsunar við?” Grjótgarðurinn hindrar ökumönnum útsýnið, og laðar til sfn smábörn, sem eru í stórhættu vegna umferðarinnar. Hœttulegur grjótgarður Einn úr Þingholtunum skrifar: „Hérna öðrum megin við Verzlunarskóla Islands er sund, sem heitir Hellusund, en hinum megin er hruninn grjótgarður, sem ég vildi ögn drepa á. Grjótgarðurinn hefur einhvern tima verið hlaðinn utan um húsa- garð, en það hús er fyrir löngu horfið. Eftir stendur aðeins grjót- hrúgan. (Hverjum skyldi annars bera að fjarlægja þetta grjót?) Margir árekstrar hafa orðið þarna á gatnamótunum vegna þess að ökumenn sjá ekki nóg til fyrir grjótgaröinum, sem hindrar útsýnið. Þó er hitt verra, að börn- in hafa svo gaman af að leika sér þarna og þar á meðal eru smá- börn, sem hjóla á þrfhjólum sin- um aftur og fram á þessum hættulega stað.”

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.