Vísir - 31.07.1973, Síða 4

Vísir - 31.07.1973, Síða 4
4 Visir. Þriðjudagur 31. júli 1973. I Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir Vetrartízkan 1973-4 í Meðal helztu viðburða ársins í Paris eru hinar úrlegu haustsýn- ingar, þar sem vetrartizkan er kynnt fyrir fréttamönnum og ýmsum heimsfrægum persónum. Það er ekki laust við, að glansinn sé svolitið farinn að fara af þess- um „heimsviðburði" og líklega París má aö einhverju leyti kenna sjálfri tízkunni um: Það er ekki i tizku að vera i tizku, eins og ein- hver sagði. Tizkan er oröin svo frjálsleg og full af imyndunarafli og skemmtilegheitum, og tfzku- kóngarnir, sem á hverju ári kynna ýmsa nýjungar eru ekki Það var margt mætra manna og kvenna til staðar þegar Saint Laurent sýndi vetrartizkuna. Hérna sjáum við Catherine Deneuve, tizkukóng- inn sjálfan, skáldkonuna Sagan og dansmeyjuna ZiZi Jeanmaire. lengur þeir einu sem valdið hafa i þessum efnum. Þvi er þó ekki að neita, að fyrstu haustsýninganna i Paris er alltaf beðið með dálitilli eftir- væntingu og svo var einnig i ár. Enda var það enginn annar en Yves Saint Laurent, sem reið á vaðið eftir nokkurt hlé, og vakti mikla athygli með flikum sinum. Hann sýnir kvenleg föt og leggur aðallega áherzlu á tvennt: Leður á daginn og svart flauel á kvöldin. Það sem þó vakti hvað mesta at- hygli, voru litlir, svartir flauels- hattar, sem klæða áreiðanlega ekki alla, en eru mjög nýstárleg- ir, og ólikir þeim höttum, sem til þessa hafa verið vinsælastir. Og þá á að nota allan daginn og fram á kvöld, við öll tækifæri. Jakkar og kápur, með eða án bundins beltis, vöktu einnig athygli, en með þeim ganga svo viðu buxurn- ar úr flanneli eða jersey. Og skórnir eru bundnir sandalar eða háhælaðir klossar. Siddin er svona hér og þar, en aðallega rétt neðan við hnéð. Blússurnar eru gjarnan úr „crepe de chine” með slaufum i hálsinn og keðjum. Leðúrfatnaðurinn er gjarnan með refaskinnsbryddingum og járnhneslum. Ný sidd var kynnt ! siðdegiskjólunum og kvöldkjólun- um, en það er siddin á milli ökkla og kálfa, sem ekki hefur sézt i mörg herrans ár. Og svarta flau- elið er greinilega i mestu uppá- haldi. Gagnsæir kjólar eru alltaf meðhjá Laurent, sem var fyrstur til að kynna þá um árið, og vekja miklar deilur. Emmanuel Ungaro þótti ekki takast eins vel upp i þetta sinn og oft áður. Hann hefur snúið bakinu við fölum litum og kvenlegum flikum og sýnir nú sterka græna, gula og rauða liti og gjarnan áprentuð efni. Kamelullar- frakkarnir hans vöktu mesta at- hygli, en þeir voru aðallega rauð- ir og hvitir. Væntanlega fréttist meira innan skamms um nýjustu tizkuna i Paris, eins og tizku- kóngarnir túlka hana. — ÞS Pierre Cardin kynnir þennan ull-. arkjól á sýningum sinum i Paris þessa dagana, en hann er i Ijósum lit með „japönsku pilsi.”

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.