Vísir - 31.07.1973, Síða 5

Vísir - 31.07.1973, Síða 5
Vísir. þriðjudagur 31. júli 1973. 5 AP/IMTB ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Greiða 5000 thalidomiska Sættir hafa tekizt með brezka fyrirtæk- inu Distillers Co., sem setti lyfið thalidomide á markað i Bretlandi, og svo samtökum þeirra foreldra, sem eignuðust örkumla börn, vegna þess að mæður þeirra tóku inn lyfið á meðgöngutim- anum. Tólf ára deilum um, hve mikið fyrirtækið ætti að greiða i skaða- bætur, lauk með þvi að sætzt var 5000 milljón króna greiðslu. 1500 milljónum verður útbýtt meðal 433 fórnardýra thali- domidelyfsins og fjölskyldna þeirra. Hinar 3500 milljónirnar verða lagðar i sjóð til að tryggja framtið fórnarlambanna, sem mörg hver verða aldrei vinnu- fær. Lyfið, sem var framleitt af þýzku fyrirtæki, var tekið inn af mæðrum á árunum 1958 til 1961 sem róandi. En sum barna þess- ara mæðra fæddust handa- og fótalaus, eða þá með ýmsum öðrum likamsgöllum. DistillersCo., sem hefur borið af sér að hafa sýnt gáleysi i meðferð lyfsins, bauðst i upphafi til að leggja fram 1250 milljón króna bætur, en hefur á þessum tólf árum hækkað boð sitt tvis'var, eftir þunga sókn foreldrasamtaka og brezkra dagblaða. Forystumenn foreldrasam- ■takanna höfðu hvatt til þess að hætt yrði að kaupa vörur fyrir- tækisins i Bretlandi og i Banda- rikjunum. Allmörg brezk stór- magasin og krár höfðu neitað að verzla við fyrirtækið, sem selur ýmsar tegundir af viski og svo lyfjategundir margar. Verðbréf Distillers Co. hröpuðu niður úr öllu valdi á verðbréfamarkaðn- um, þegar voldugir aðilar á kaupsýslumarkaðnum þrengdu að fyrirt.ækinu til þess að fá það til að sýna meira örlæti við fórn- arlömb meðalsins. Nú er einungis eftir að skipta þessum 5000 milljónum króna meðal einstaklinganna, en óvist er að allir verði á eitt sáttir um, hvernig það skuli metið i hverju einstöku tilviki. Má mikið vera, ef það kostar ekki önnur réttar- höld. Þó skal nefnd lögfræðinga Þúsundir barna um heim allan búa við slik örkuml frá fæðingu vegna thalidomides. og lækna fjalla um hvert ein- stakt mat. Foreldrasamtökin tóku 5000 milljón króna sáttaboðinu eftir að lögfræðingur þeirra benti þeim á, að upphæðin væri svo svipuð þvi, sem fengist, i heildina ef hverjir einstakir foreldrar færu i mál við fyrirtækið — að nær yrði ekki komizt. Það voru meira en 5000 fórnarlömb thalidomide i V- Þýzkalandi, 1000 voru i Japan, en engar slikar áætlaðar tölur liggja fyrir um önnur Evrópu- lönd eða Norðurlöndin. 3,8 milljónir sögðu JÁ — 1 milljón sagði NEI Fimm sænskir þingmenn, sem voru við þjóðaratkvæða- greiðsluna i Grikklandi um helgina, hafa allir sem einn fordæmt, hvernig að þvi var staðið. „Væri ég Grikki, liti ég á þessa atkvæðagreiðslu sem móðgun. Það voru engir valkostir nema Já stjórnarinnar”, sagði Anders Wijkman, cinn i íhaldsamari þingmannanna. Þingmennírnir, sem eru fulltrúar jafnmargra flokka i Svi- þjóð, fengu að skoða kjörklefana i Aþenu og úti á landi, og eins kjörseðlana og luku allir 'upp einum munni um: „Þetta er dæmigert fyrir það gervilýðræði, sem er við liði i Grikklandi”. Kjörsókn var 84%, og greiddu rúmlega 78% með Jái stjórnar- innar, sem þýddi samþykki á breytingu á stjórnarskránni og aö Fapadopoulos yrði forseti áfram. Voru það rúmlega 3,8 milljónir atkvæða. — En riflega 1 milljón atkvæða voru á móti. Kristján í harðri Geimflugveikin þjakar þá enn „Svo kann að fara, að hætta verði við frekari dvöl geimfaranna þriggja uppi í Skylab-geimstöðinni, ef þeir ekki jafna sig af krankleikanum, sem fylgir þyngdarleysinu og geim- ferðinni',, sagði einn yfir- Ó Alan Bean, Owen Gairiott og Jack I.ousma við cldflaugina, sem flutti þá siðan á laugar- dag upp i Skylabgeimstöðina. Fleiri g.eimfarar hafa þjáðst af geimflugveikinni. manna heilbrigðisdeildar Geimferðarstofnunar- innar, Willard Royce Hawkins, í nótt. Geimfararnir Alan Bean, Owen Garriott og Jack Lousma glima enn við velgju og vanliðan vegna geimflugveikinnar. Gönguferð þeirra út i geiminn til að setja upp enn eina sólhlif fyrir geimstöðina hefur verið frestað aftur, og er nú ekki ráðgerð fyrr en á fimmtu- dag. Þeir hafa tekið inn lyfjatöflur við þessum ára, og stjórnendur niðri á jörðunni gera sér vonir um, að þeim batni sóttin, eftir að hafa hvilzt út. Þeir eru nú orðnir tveim dögum á eftir starfsáætlun sinni vegna lasleikans og tækni- erfiðleika, sem þeir rákustá, eftir að upp var komið Einkum gengur þeim erfiðlega að losna við raka úr ibúðarklefa geim- stöðvarinnar. baráttu og jafnri í unglingaskákinni Hœttir eftirlitinu eftir hálft árið Friðargæzlusveitir Kanada fóru frá Vietnam i dag, eftir hálfs árs störf með alþjóðaeftirlits- ráðinu með vopnahléinu þar i landi. Alls fóru 275 liðsforingjar og óbreyttir hermenn með flug- vélum frá Saigon i morgun, en starfandi formaður kanadisku nefndarinnar, Vernon Turner, verður um kyrrt í Saigon i nokkra daga, til þess að leggja siðustu hönd á verk Kanadamanna i friðargæzlunni Fulltrúar hinnar þriggja aðilanna i alþjóðaseftirlitsráðinu, Ungverjalands, Indónesiu og Pól- lands voru staddir á flugvell- inumi Saigon, þegar kanadiska sveitin var kvödd. Tveir fulltrúar voru frá Saigonstjórninni, en enginn frá Vietcong. Einn Kanadamaður lét lifið, þegar Vietcong skaut niður þyrlu friðargæzlunnar, og tveir liðsfor- ingjar voru i haldi Vietcong i tvær vikur þetta hálfa árið, sem Kanada vann að friðargæzlunni. Tók Kandada mjög virkan þátt i starfi eftirlitsráðsins og hlaut bæði lof og gagnrýni fyrir, Lauk þó svo, að Kanadamenn sögðu, að tveir aðilanna i ráðinu væri svo hlutdrægir, að það hallaði á annan aðila vopnahlésins, þvi að hinir tveir i ráðinu væru hlut- lausir. Sögðu Kanadamenn, að það þyrfti tvo aðila jafn hlut- dræga með Saigonstjórninni i ráðið, ef ekki ætti að hallast á. Heldur en glata orðstir sinum sem hlutlaus aöili i alþjóða- málum, vildi Kanada draga sig i hlé úr störfum ráðsins. - Slavojub Marjanovic frá Júgóslaviu hélt for- ystu sinni i heimsiueist- aramóti unglinga i gær með þvi að vinna i sjö- undu umferðinni einn aðalkeppinaut sinn, Tony Miles frá Eng- landi. Annar Englendingur, Michael Stean, þokaði sér þó upp i annað sætið með þvi að vinna i 7. umferð Leslie Leow frá Singapore, en áður hafði Stean unnið biðskák sina frá 6. umferð á móti Rússan- um, Alexander Belyavsky. Marjanovic er með 7 vinninga, Stean með 6 vinninga, Belyavsky með 5 1/2 vinning og Carry Christiansen frá Bandarikjunum með 5 vinninga. 1 b-riðlinum, þar sem Kristján Guðmundsson teflir, hefur bar- áttan verið hörð og jöfn. í 6. um- ferðinni vann Kristján Herbert Scheichel frá Austurriki, en i 7. umferð tapaði hann fyrir Karl Podzielny frá V-Þýzkalandi. Podzielny hefur þá 4 1/2 vinn- ing, Göran Rörvall (Sviþjóð) 3 1/2 og biðskák, Kristján 3 1/2 og Luis Muniz frá Puerto Rico er með 3 vinninga og biðskák.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.