Vísir - 31.07.1973, Page 6

Vísir - 31.07.1973, Page 6
Visir. Þriöjudagur 31. júli 1973. VISIR ■ B; Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjóri Fréttastjóri Ritstjórnarfulltrúi Auglýsingastjóri Auglýsingar Afgreiösla Ritstjórn -Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Valdimar H. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Slmar 11660 86611 Hverfisgötu 32. Slmi 86611 Slöumúla 14. Simi 86611 (7.1Ihur) Askriftargjald kr. 300 á mánuöi innanlands I lausasölu kr> 18.00 einíakiö. Blaöaprent hf. 50 tapaðar — 200 unnar Um það bil 85 riki i heiminum eru nú samþykk 200 milna efnahagslögsögu, sem felur m.a. i sér fiskveiðilögsögu. Okkar menn, sem eru á undir- búningsfundi i Genf fyrir hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, hafa talið saman þessi riki. Og þeir segja, að 200 milna rikjunum fari ört fjölgandi. í heiminum eru um það bil 150 riki. Er reiknað með, að flest þeirra muni taka þátt i hafréttar- ráðstefnunni i Santiago á næsta ári. Það gæti þvi þurft allt að 100 atkvæði fyrir 200 milunum til að ná 2/3 meirihluta, sem þarf til að ályktun ráð- stefnunnar hafi alþjóðalagagildi. Enn eru um 60 riki, sem hafa ekki tekið þátt i undirbúningi hafréttarráðstefnunnar, og hafa fæst haft tækifæri til að láta i ljós skoðun á mál- inu. Ekki þarf að ná stuðningi nema um það bil 15 þessara rikja til þess að koma 200 milna efna- hagslögsögunni i heila höfn. Enn sem komið er virðast aðeins um 20 riki eða færri vera andsnúin 200 milna efnahagslögsögu og sum þeirra eru ekki mjög örugg i trúnni. Þetta eru lönd eins og Bretland, Vestur-Þýzkaland og Sovétrikin, sem vilja halda i tólf milurnar. Þessi tólf milna fylking er i algerum minnihluta, um það bil 20 riki gegn um það bil 85 rikjum. Enginn minnist á 50 milna éfnahagslögsögu, ekki einu sinni sem samkomulagsgrundvöH. ís- land er þvi fremur undarlegur fugl i styrjöldinni um 12 og 200 milur. Rikisstjórn okkar og alþingi hafa enn ekki lýst þvi yfir, að nú skyldum við skipa okkur á bekk með 200 milna rikjunum, né yfir þvi, að við ætlum okkur 200 milna fiskveiði- lögsögu að lokinni hafréttarráðstefnu. Við stöndum þvi i furðulegri styrjöld við Breta og Þjóðverja um 50 milna landhelgi. Bretar, Þjóðverjar og við erum að eyða timanum i til- gangslaust strið um úrelta 50 milna landhelgi. Þorskastriðið kann að kitla hégómagirnd þjóð- ernissinnaðra Breta og íslendinga, en er eigi að siður marklaust strið. Landhelgisdeilan hefur nú staðið næstum ár. Deilan hefur ekki verið leyst á miðunum. Þar veiða Bretar og Þjóðverjar eins og ekkert hafi i skorizt. Úti á miðunum er 50 milna fiskveiðilög- sagan ekki komin til framkvæmda. Deilan hefur ekki heldur verið leyst á samn- ingafundum. Viðsemjendur okkar virðast lifa i sérstökum heimi gamla timans og ekki átta sig á þvi, að 200 milna reiðarslagið er að koma yfir þá. Frekari fundir virðast þvi hafa takmarkað gildi. Eftir ellefu mánaða strið og kif er 50 milna landhelgin ekki enn komin til framkvæmda. Ekk- ert bendir til þess, að við getum komið henni i framkvæmd fyrir hafréttarráðstefnuna, sem hefst að rúmlega hálfu ári liðnu. Við getum þvi alveg eins einbeitt okkur að 200 milna landhelgi eins og að halda uppi málastappi við Breta og Þjóðverja. Við skulum þvi sýna ærlegan lit og skipa okkur heils hugar i sveit200 milna rikjanna. Við skulum lýsa yfir 200 milna fiskveiðilögsögu með fyrir- vara um samþykki hafréttarráðstefnunnar. Við skulum framkvæma þetta nú þegar og einbeita okkur siðan að þvi að fjölga stuðningsrikjum 200 milna efnahagslögsögunnar úr 85 i 100 á næstu mánuðum. Við vinnum nefnilega ekki landhelgis- deiluna i byssuleik né karpi, heldur á hafréttar- ráðstefnunni i Santiago á næsta ári. Uolda Meir og flokksforystan eru algerlega andvlg Dayan og Golda hefur látiö undan beiöni vina og stuöningsmanna um aöbjóöa sig fram einu sinni enn. Dayan hefur í hótunum i Moshe Dayan, varnarmálaráö- herra tsraels, elur meö sér drauma um aö stækka Landiö heiga. Hann hefur lagt upp I krossferö til aö fá rikisstjórnina til aö taka upp þessa stefnu. Svo er ákafinn mikill, aö hann hefur jafnvel gefiö I skyn, aö hann segöi af sér, ef hann fengi þessu ekki ráöiö. A meöan sumir Israelsmenn krefjast formlegrar innlimunar þeirra Arabalandsvæöa, sem ísrael náöi á sitt vald I sex daga striöinu 1967, þá vill Dayan herða tök ísraels á hinum hernumdu svæðum meö öðrum hætti. Með þvl aö láta Gyöinga byggja land- iö, kaupa það, yrkja þaö og stofna fyrirtæki þar. Til þess að hnýta sem traust- astan hnút milli Israels og þeirra landsvæða, sem Dayan vill láta halda eftir, þá hvetur hann til þess, að gengiö verði enn lengra I notkun Arabavinnuafls I atvinnu- llfi Israels. Og Dayan hefur varaö við þvi, að ,,hann treysti sér ekki til þess aö bjóða sig fram með Verkalýðs- flokknum (sem nú er við stjórn)” nema þetta verði tekið inn á stefnuskrá flokksins. — Hann fór ekki í neina launkofa með þessar kröfur, þegar hann varpaði þeim fram í ræðu, sem hann flutti stuðningsmönnum sinum i flokknum núna nýlega. En innan flokks hans er megn andstaða gegn þessum hugmynd- um. Þarna virðast þvl vera blikur á lofti, og menn velta þvi fyrir sér, hvort af leiði klofning innan flokksins og að hinn vinsæli Day- an kunni hugsanlega aö bjóða sig fram utan flokka I kosningunum eftir þrjá mánuöi. Það hefur verið óopinbert leyndarmál, að honum hefur leikið hugur á forsætisráð- herraembættinu, og meöan taliö var að Golda Meir mundi ekki bjóða fram aftur, mátti búast viö baráttu innan flokksins um for- ystuhlutverkiö. — Það var allra hald, aö Moshe Dayan, þrátt fyrir vinsældir sinar út á við, mundi ekki njóta nægilegs stuðnings inn á viö I flokknum og þvi ekki veröa útnefndur. Hann hefur þvi varla harmað það, þegar Golda Meir gaf kost á sér aftur og mun bjóða fram. En I sex daga striöinu 1967 lagði Israel undir sig 390.000 ferkíló- metra svæði, og það er gizkað á, að 60.000 Arabar af þessum svæö- um starfi innan Israels á isra- elskum launalistum. Stór hluti þessara svæða eru einungis auðn og eyöimörk, sem Israelsmenn mundu fúsir á að láta af hendi I friðarsamningum. En Golan-hæðir, syðri mörk Sinaieyöimerkurninnar, hlutar af hinni hernumdu Vestur-Jórdaniu og Gazalengjunni gætu oröið gagnleg Gyðingarikinu. Dayan hefur rekið áróður fyrir þvl aö fleiri Gyðingar settust að á hernumdu svæðunum. Hann vill leyfa Gyðingum að kaupa land af Aröbum, byggja upp iðnað Gyð- inga á þessum svæöum og veita fleiri Aröbum atvinnu I Israel. lsrael hefur þegar leyft landnám á 42 stööum á hinum hernumdu svæðum. Dayan heldur þvi fram, að slik útþensla væri heppileg fyrir ísra- el og gæfi aukna möguleika á sambýli lsraelsmanna og Araba og „skapa einstakt tækifæri til að hrinda síonismanum I fram- kvæmd.” Þessi tilvitnun úr ræðu Dayan bergmálar þá skoðun margra Israelsmanna, að hin hernumdu svæði séu hluti af „fyrirheitna landinu,” sem fjallað er um I bibliunni, og sé því hluti $Ionis- mans, boöskaparins um heim- hvarf Gyðinga til feðralandsins. En ráðamenn flokksins, sem Dayan hefur orðiö að beygja sig fyrir, — þar á meðal Golda Meir — eru algerlega andvígir þessum skoðunum hans. Og þeir hafa flokksvélina á valdi sínu, en án hennar er útilokað að Dayan hafi minnsta möguleika til aö ná kjöri sem forsætisráöherra. Þessir andstæöingar hans — og þeirra á meðal eru Abba Eban, utanrikisráðherra, og Pinhas Sapir, fjármálaráðherra — halda þvi fram, að tillögur Dayan mundu: — draga úr vilja Araba til þess að undirrita friðarsamninga við tsrael. — veikja Gyðingasvipmótið á tsrael meö of mikilli blöndun við Araba. — verða of mikill baggi á efna- hagslifi tsraels, þegar styrkja þyrfti landnámið og uppbyggingu iðnaðarins á hernumdu svæðun- um, sem Dayan vill. Moshe Dayan (t.h.) varnarmálaráðherra, rennir hýru auga vill tengja þau sem traustustum böndum við tsrael. hernumdu svæðanna I Vestur-Jórdaniu og

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.