Vísir - 31.07.1973, Side 7

Vísir - 31.07.1973, Side 7
7 Visir. Þriðjudagur 31. júli 1973. niMiMi I SÍÐAN J ZZZL ~ Umsjón: Edda Andrésdóttir Hvers ber að gœta pegar smíðað eða keypt er hlað- rúm? Kaupið aldrei hlaðrúm sem samanstendur af tveimur samsettum rúmum, án þess að athuga fyrst hversu vandlega þau eru sett sam- an. Hristið rúmið vel. Gefur það sig? Hvernig eru rúmin sett sam- an? Klifrið upp I efra rúmið. Er það traust? Athugið hvort nógu mikið pláss er á milli efra og neðra rúms þegar dýnan er i neðra rúminu. Fylgir stigi með hlaðrúm- inu? Hvernig er annars hægt að komast upp i það efra? Hvernig eru brikurnar á rúminu? Efra rúmið of hátt til þess að þægilegt sé að búa um það? Hlaðrúm, eða „kojur” svokallaðar, njóta mikilla vin- sælda i barnaherbergjum svo og i sumarbústöðum. Er það þá helzt vegna þess hve litið gólfrými rúmin taka. Þar fyrir utan finnst börnunum ákaflega gaman að leika sér og klifra i slikum rúm- um. Margir foreldrar eru þó hrædd- ir um að börnin detti og meiði sig þegar þau leika sér i hlaðrúmun- um, en þá er eins gott að athuga rúmiö gaumgæfilega áður en það er keypt og aðgæta hvort það stenzt flestar kröfur. Litil börn ættu ekki að sofa i efra rúminu. Barnið getur auð- veldlega fallið niður, ef það t.d. vaknar upp um miðja nótt og þarf á klósettið eða annað. Jafnvel þó að rúmið hafi sæmilega háar brfkur á hliðunum. á hliðunum. Mörg börn kæra sig heldur ekki um að sofa i efra rúminu. Þá get- ur móðirin eða faðirinn ekki setið á rúmbrikinni og lesið upp sögur. Hún eða hann verður að ná sér i stól til þess að stiga upp á þegar barnið er kysst góða nótt og svo er erfitt að vera veikur i efra rúm- inu. Það er erfiðara að búa um efra rúmið, en hins vegar eiga mörg börn sér enga ósk heitari en að fá að sofa i efra rúminu. í Sviþjóð tóku sig til tveir húsgagnaarkitektar Renée Lönn og Ehrling Degermark og rannsökuðu hlaðrúm, hvernig þau eru samansett og hvort þau eru hættulaus. Húsgagnaarkitektarnir klifr- uðu upp I rúmin eins og þeir lifandi gátu. Þeir hristu rúmin til og ýttu þeim fram og aftur til þess að athuga stöðugleikann. Þeir at- huguðu botninn og einnig hvernig rúmin voru slipuð og frá þeim gengið. Það er mjög mikilvægt, að rúmin séu vel slipuð svo að ekki séhætta á að börnin fái flisar i hendurnar vegna slæms frá- gangs og kannski litils verðs. Loks athuguðu þeir hvort hægt væri að sitja þægilega uppréttur i neðra rúminu. Arangur rannsóknarinnar sýndi svo, að sum hlaðrúm upp- fylla ekki nærri allar þær kröfur, sem til þeirra þarf að gera. önnur stóðu sig hins vegar ágætlega, en ekkert var gallalaust af þeim 11 tegundum sem athugaðar voru. Rúm fyrir fullvaxinn þarf að vera um það bil 90 sm breitt og 200 sm langt. Fyrir minni börn þarf rúmið ekki að vera svo stórt, en það verður að vera hæfilega mikið rúmpláss fyrir barnið. Botninn verður að vera traustur, annaðhvort fjalabotn eða úr krossviði. Það verður lika að hugsa um að botn efra rúmsins liti vel út neðan frá. Brikin i kringum rúmið þarf að vera svo há að hún haldí dýnunni vel á sinum stað, um það bil 4 sm, en hún má ekki ná upp fyrir dýn- una. Ef brikin er hærri er erfitt að sitja á henni og klifra út úr rúm- inu. Efra rúmið á að vera eins neðarlega og unnt er til þess að minnka fallhættuna fyrir barnið, en bilið á milli neðra rúmsins og þess efra á að vera það mikið, að fullorðinn maður geti auðveld- lega setið uppréttur i þvi neðra. Við rannsókn og könnun hús- gangaarkitektanna sænsku, kom- ust þeir að þeirri niðurstöðu að bilið á milli neðra og efra rúmsins þyrfti að vera að minnsta kosti 75 sm. Hlaðrúm sem eru smiðuð föst Þetta hlaðrúm reyndist vera bezt úr garði gert i könnun sænsku húsgagnaarkitektanna tveggja. 1 alla staði reyndist vel frá þvi gengið, botnar voru sterkir og traustir og litu vel út. Brikur voru hæfilega háar og mjög þægilegt var að draga skúffurnar út. Eini gallinn var að enginn stigi fylgdi rúminu, en nokkuð erfitt er að komast upp i það á rimlunum. Rúmið var dýrt, en vel þess virði. Þetta rúm, sem leit sérlega vel út, reyndist næsta óhæft. Verðið var einnig hátt. Rúmið var mjög óstöðugt, og það gat jafnvel verið hætta á þvi að maður fengi efra rúmið yfir sig, þegar hafið var klifur upp i það. Bríkin var allt of há, og ekki var þorandi að gripa I hana, þegar klifrað var upp i rúmið. Það hefði mátt eiga von á að allur gaflinn fylgdi með. Það eina sem gott var við rúmið, var stöðugur og góður stigi. saman eru stöðugri en þáu rúm sem hægt er að taka i sundur.Þó er hentugt að geta tekið rúmin I sundur, og gert eitt að tveimur. Við könnun Svianna, kom það þó i ljós, að samansett hlaðrúm eru ekki nærri nógu traust. í sumum tilfellum þarf ekki mikið til þess að þau geti hreinlega dottið niður eða gefið sig. Það er alltaf hætta á þvi, að barn sem sefur í efra rúminu geti fallið niður. Þess vegna ætti að fyrirfinnast einhvers slags brik, sem hægt er að koma fyrir og fjarlægja að vild. Hægt er að koma henni fyrir á kvöldin þegar barnið fer að sofa, og siðan má fjarlægja hana strax um morgun- inn. Slík brík þarf að vera minnst 8 sm hærri en dýnan, og ætti að byrja i axlarhæð, eða um það bil 35 sm frá höfðagaflinum, ef hún nær þá ekki yfir alla hliðina. Loks verður svo að fyrirfinnast stigi, svo að auðvelt sé fyrir barn- ið að komast upp i efra rúmið. — EA.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.