Vísir - 01.10.1973, Side 8
8
Vísi»\ Mánudagur 1. október 1973
Hin nýja HÚSEIGENDATRYGGING
innifelur eftirfarandi tryggingar:
• Vatnstjónstryggngu
• Glertryggingu
• Foktryggingu
• Brottflutnings- og Húsaleigutryggingu
• Innbrotstryggingu
• Sótfallstryggingu
• Ábyrgðartryggingu húseigenda
1 hinni nýju húseigendatryggingu eru sameinaðar I eina
tryggingu fasteignatryggingar, sem hægt hefur verið að
kaupa sérstaklega undanfarin ár. Með þessari sameiningu
hefur tekist að lækka iðgjöld verulega.
Ath. að 90% af iðgjaldi er
frádráttarbært til skatts
Brunabótafélag Islands
Laugavegi 103 — Simi 26055
^fréttirnlx vism
5í=ii86611
,,Kkki grunaði mig, að ég ætti eftir að komast i „litteratiirinn”,” sagði
(luðrún A. Simonar.
„ANNARS HEF
ÉG ÁHUGA Á
AÐ SKRIFA
KATTABÓK"
segir Guðrún Á. Símonar. í haust er
vœntanleg á markaðinn bók um hana
sem heitir: „Eins og ég er klœdd"
,,Ég er nú orðin svo leið á þvi
að tala um sjálfa mig, að mig
langar inest tii þess að kasta
upp. Ég er búin að tala um
sjáifa mig siðan i marz,” sagði
Guðrún A. Simonar, þegar við
heimsóttum hana og röbbuðum
litiliega við hana i gær i tilefni
þess, að i október, liklega kem-
ur út bók um Guðrúnu frá því að
hún fæddist og fram á þennan
dag. Bókin á að heita, Eins og ég
er klædd.
„Þeir vilja láta hana heita
þetta, þvi að þeim finnst ég
koma þannig fram, eins og ég er
klædd. Þannig kem ég Gunnari
M. Magnúss. fyrir sjónir.”
Og það er einmitt Gunnar M.
Magnúss., sem skráir bókina.
Hann vill láta kalla sig skrá-
setjara, þar sem bókin byggist
upp á viðtölum við Guðrúnu,
úrklippum og dagbókum
hennar.
„Ég hef alltaf skrifað dagbók.
Ég skrifaði dagbók lengi fram
eftir, og var afskaplega ná-
kvæm t.d. á námsárunum min-
um. Þá skrifaðiég allt sem ég
eyddi, nema þá i strætisvagn-
ana og lestirnar. Núna skrifa
ég, ef það er eitthvað sérstakt
sem ég þarf að gera.”
„Það eru svona 4-5 ár siðan
það var talað um þetta við mig
fyrst, en ég hafði engan áhuga á
þessu. Ég hló bara og mér
fannst þetta fyndið. En svo var
það, að ég hitti Gunnar M.
Magnúss. niður i Otvarpi, og
hann sagðist hafa mikinn áhuga
á þvi að skrifa bók i sambandi
við mig. Jú, jú, sagði ég. Ég er
til i allt. Nú, við athuguðum
málið. Við höfðum þrjá útgef-
endur, en Geir Björnsson var
svo ákveðinn að lokum. Nú,
þannig fór svo þessi bók að
skapast. Annars hef ég áhuga á
að skrifa kattabók sjálf.”
Bókin verður 170 blaðsiður og
81 mynd, en Guðrún tók það
fram, að það yrðu aðeins tvær
myndir af henni i bókinni. „Og
forsiðan verður rauð, eldrauð en
ég er samt ekki eldrauð hérna,”
sagði Guðrún og benti á kollinn.
Það er sagt frá ýmsu i
bókinni, og Guðrún hefur frá
ýmsu að segja og talar um það
frjálslega og hispurslaust. „Og
svo eru ýmsir samtalskaflar i
bókinni, og þar segi ég frá ýms-
um skoðunum minum, sem fólki
hefur ekki likað.”
— Það má alveg búast við þvi
að þetta verði metsölubók?
„Haldið þið það. Ja, það ætla
ég að vona, þá fær ég meiri
peninga,” sagði hún og hló.
Það er þá ekki úr vegi að birta
nokkrar setningar úr einum
kafla bókarinnar: — „Ég var
nú grönn þá, ekki nema 62 kiló.
En mér fannst ég alltof
brjóstastór. Þegar ég var i Eng-
landi, gekk ég alltaf með skóla
töskuna upp við brjóstin til þess
að hylja þau.”