Vísir - 24.11.1973, Síða 1
63. árg. — Laugardagur 24. nóvember 1973. — 272. tbl.
Olíuskortur
samdrátt í
orsakar
plastiðnaði
— baksíða
Nú þarf
að skera
i leiðara Visis i dag er
sagt, að ráðherrar og þing-
menn verði ,,að láta af
gegndarlausum tillögum sin-
um um aukin útgjöld og snúa
sér að þvi að skera miskunn-
arlaust niður þær tillögur,
sem þegar eru komnar inn i
fjárlagafrumvarp næsta árs.
Einhverjir mundu sjálfsagt
gagnrýna þá fyrir aö vera á
móti framkvæmd góðra mál-
efna. En hinir mundu
áreiðanlega vera miklu
fleiri, sem skildu nauðsynina
og virtu hreinlyndi niöur-
skuröarmanna”.
Sjá bls.6
★
Þjóna-
verkfallið
Þjónar mættu ekki til verk-
fallsvörzlu við Óðal i hádeginu
i gær. Komust þá allir gestir
inn sem vildu. En sæla þeirra
Óðalsmanna stóð stutt, því i
gærkvöldi voru þjónar aftur
mættir við Óöal og meinuðu
öllum inngöngu.
I viðtali við Visi eftir hádeg-
ið i gær sagði Haukur Hjalta-
son veitingamaður, að hann
væri að vona, að þjónar hefðu
séð að sér og séð, að þetta
yröi ekki unnið með ofbeldi,
eins og hann orðaði það.
„Þær ströngu aðgerðir
sem hafa verið við Óðal, féllu
niður i hádeginu, vegna þess
aö þá vorum við önnum kafnir
við að tryggja fullkomið
verkfall við hótelin i borginni.
Þjónar hættu störfum i hádeg-
inu, eftir að við höfðum hafnað
beiðni um frestun á þeirri
undanþágu, sem hefur verið
veitt gestum hótelanna.
Ástæðan fyrir þvi er sú, að
ekkert hefur þokazt i
samkomulagsátt”, sagði
Grétar Guðmundsson, vara-
formaður Félags framreiðslu-
manna i viðtali við Visi i gær.
— ÓG/ÓH.
— Sjá baksiðu.
★
Stórskotalið
gegn Dynamo
á mánudaginn
Landsliösnefnd hefur valið
liö Handknattleikssambands
islands, sem leika á við júgó-
slavneska liðið Dynamo
Pancevo á mánudagskvöldiö.
Þessir leikmenn eru i liðinu:
Gunnar Einarsson, Hauk-
um, Sigurgeir Sigurðsson,
Vikingi, markverðir, Axel
Axelsson, Fram, Björgvin
Björgvinsson Fram, Auðunn
Óskarsson FH, Gunnsteinn
Skúlason, Val, Agúst Svavars-
son ÍR, Sigurbergur Sigsteins-
son, Fram, ólafur H. Jónsson,
Val, Einar Magnússon, Vik-
ingi, Hörður Sigmarsson,
Haukum, Gisli Blöndal, Val.
Fimm breytingar eru á liö-
inu, sem lék viö Svia. Viðar
Simonarson, FH, Guðjón
Magnússon, Vikingi, og Vals-
mennirnir ólafur Benedikts-
son, Agúst ögmundsson og
Stefán Gunnarsson falla út.
— ÓG
Óánœgðir með eigin mann
— Smábátaeigendur á Neskaupstað vilja
togbátana burtu af miðum sínum
Fimmtán smábátaeig-
endur á Neskaupstað
sendu Lúðvík Josepssyni
sjávarútvegsráðherra
áskorun i byrjun nóvem-
ber.
Fóru þeir fram á, að ráðherr-
ann bannaði togveiöar á svæðinu
frá Norðfjarðarhorni að Seley, en
einmitt þar eru helztu fiskimið
smábátaeigenda.
Þessi mið stunduðu þeir með
góðum árangri i sumar og fram
á haustið, en frá og með 1.
nóvember voru togveiðar leyfðar
á svæðinu samkvæmt lögum.
„Lúðvik hefur nú svarað áskor-
un okkar,” sagði norðfirzkur sjó-
maður i samtali við Visi i gær-
kvöldi, „hann segir, að þar sem
togveiðar séu leyfðar þarna sam-
kvæmt lögum, leyfðar upp að
fjögurra milna mörkunum, þá sé
ekki hægt aö breyta þessu.
Okkur finnst svolitið undar-
legt”, hélt sjómaðurinn áfram,
„að Lúðvik skuli svara þannig
núna. Fyrir nokkrum árum, þeg-
ar Lúðvik var i stjórnarandstöðu
og Eggert G. Þorsteinsson var
sjávarútvegsráðherra, þá kom
hann eitt sinn i beitingaskúrinn til
okkar, og við kvörtuðum undan
þessum sama hlut.
Þá sagöi Lúðvik, að ráðherra
gæti breytt þessum lögum með
einu pennastriki. Nú er það ekki
hægt, einmitt þegar hann sjálfur
er i áhrifastöðunni.”
Lúðvik Jósepsson svaraði
áskorun smábátaeigendanna með
bréfi til hvers þeirra um sig, þar
sem hann benti þeim á, að lögin
um togveiðar upp að fjórum mil-
um myndu falla úr gildi um næstu
áramót. Hann sagði þeim einnig,
aö i uppsiglingu væri frumvarp á
Alþingi, þar sem reiknað væri
með, að togveiðar yrðu ekki
leyföar á miðum fyrir Austur-
landi, nema utan viö tólf sjómilna
mörkin.
— GG
HYGGJAST GERA ISLENZKA KUREKAMYND?
— Nota dýrin í íslenzka dýrasafninu við kvikmyndagerðina ósamt lifandi dýrum
lill
„Viö höfum rætt um það að
gcra fslenzka kúrekamynd og
nota þá dýrin i fslenzka dýra-
safninu I kvikmyndina ásamt
lifandi dýrum. Málið er þó rétt
aöcins á byrjunarstigi enn scm
komið cr, en við munum gera
eitlhvað i þessum málum
slrax."
Þctla sagði eigandi islcnzka
dýrasafnsins, Kristján Jósefs-
son, I viðtali við blaðið, en hann
fékk nýlega heimsókn frá Hafn-
firöingi, Kristjáni Jónssyni,
sem hcfur áhuga á að gera
kúrckamynd og nota þar is-
lcnz.ka dýrasafnið við gerð
myndarinnar.
Krislján Jósefsson sagði, að
nafni hans Jónsson væri i sam-
bandi við aðila i Bandarikjunum
og væri málunum mjög kunnug-
ur. Virðist rikja talsverður
áhugi á gcrð myndarinnar.
Enn er ekkcrt hægt að segja
um kostnað við gcrð myndar-
innar, hvcrjir leikendur verða
cða hvenær kvikinyndataka
hefst, cn Kristján sagði, að farið
yrði að athuga málið mjög fljót-
lega.
Sjálfur á Kristján Jónsson
„ckta” kúrekabúning, sem ekki
á sinn lika hér á landi, og mun
hann liklega verða notaður i
kvikinyndinni. Það má gcta
þcss, að hann verður i kúreka-
búningnum i dýrasafninu á
sunnudaginn og sýnir gcstum.
Ef til vill liður þá ekki á löngu,
áður en islenzkir njóta kúreka-
kvikmyndar i rammislenzku
umhverfi. —EA
Þannig litur alíslenzkur kúreki
út hjá þeim I dýrasafninu.
(Ljósmynd Visis BG.)
Köstum ekki tíu öryrkjum
n
út á á gaddinn
ii
„Þessa frásögn konunnar úr
öryrkjahúsinu myndi ég kalla úlf-
alda, en ástandið i húsinu mý-
flugu, sem úlfaldinn hefur veriö
gerður úr”.
Guðmundur Löve, starfsmaður
öryrkjabandalagsins, hefur ýms-
ar athugasemdir að gera við frá-
sögn konunnar um hús öryrkja-
bandalagsins að Hátúni lOa. Sú
frásögn birtist á miðvikudag.
„Það er nú fyrst og fremst ekki
satt, að sjötiu manns hafi hótað
að flytja úr húsinu. Að visu er
satt, að fólkið sendi okkur bréf i
vor. En þá voru það tæplega
fimmtiu manns, sem skrifuðu
undir. t þvi bréfi var enga hótun
aö finna um brottflutning. En efni
þess bréfs var á þá leið, að
óreglumaður bjó i húsinu, og olli
hann slikum vandræðum, að fólk-
ið vildi fá hann burt hið fyrsta.
Erfiðlega gekk aö koma
manninum burt, en það tókst þó
að lokum”, sagöi Guðmundur.
„En þaö er satt, aö fáeinir
menn i húsinu hafa brotiö
húsreglurnar, og valdið óánægju.
En þetta eru allt öryrkjar, og i
húsi, þar sem yfir hundrað manns
búa, má svo sem alltaf búast við
einhverju vandræðafólki. En við
höfum fullt eftirlit með þessu
fólki. Það er aftur á móti ekki
hægt áð ætlast til, að um tug
öryrkja sé hent út á gaddinn, af
þvi að þeir valda vandræöum.
Þaö er staðreynd, að þaö vantar
sérstakt húsnæði fyrir það fólk,
sem ekki getur verið vandræða-
laust innan um aöra”, sagði Guð-
mundur einnig.
Aö sögn Guðmundar velja
aðildarfélög öryrkjabandalags-
ins sjálf þá, sem fara i húsin. Er
þá yfirleitt miðað við að taka þá
inn, sem mestri örorku eru haldn-
ir.
„En maðurinn, sem slasaði
unga manninn um seinustu helgi,
flytur héöan burt á mánudaginn.
Nú á næstunni mun svo verða
haldinn hússtjórnarfundur, þar
sem þessi mál veröa tekin fyrir”,
sagði Guðmundur Löve aö lokum
— ÓH.