Vísir - 24.11.1973, Blaðsíða 6
6
Vísir. Laugardagur 24. nóvember 1973.
VÍSIR
Otgefandi-.'Reykjaprttnt hf.
Framkvsmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
y Auglýsingastjóri: Skóli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiósla: Hverfisgðtu 32. Simi 86611.
Ritstjórn: Si&umúla 14. Simi 86611 (7,lfnur)
Askriftargjald kr. 360 á mðnuói innanlands
i lausasölu kr> 22:00 eintakib.
Blaöaprent hf.
Nú þarf að skera
Erlendis eru útgjöld til landvarna yfirleitt einn
stærsti þáttur rikisrekstrarins. Islendingar hafa
hins vegar engin útgjöld af landvörnum. Samt er-
um við i hópi þeirra þjóða, sem mest rikisútgjöld
hafa i samanburði við þjóðarframleiðslu.
Þessu var á annan veg háttað til skamms tima.
Áratuginn, sem viðreisnarstjórnin var við völd,
voru rikisútgjöldin yfirleitt um einn fimmti hluti
þjóðarframleiðslunnar. Þessi 20% nægðu til þess
að byggja ört upp margvislega opinbera þjónustu
og kosta stórfelldar byggingar skóla, sjúkrahúsa
og vega, svo að dæmi séu nefnd.
Siðan vinstri stjórnin tók við, hefur sneið rikis-
ins af kökunni vaxið með miklum hraða. Nú eru
horfur á þvi, að á næsta ári komist sneið rikisins
upp i 30% af allri kökunni. Þessi ofvöxtur rikis-
báknsins er eitt alvarlegasta vandamál fs-
lendinga um þessar mundir.
Þeim mun stærri sneið, sem rikið tekur, þeim
mun minni sneiðar verða afgangs harida
heimilunum og atvinnuvegunum. Þessi þróun
dregur úr getu þeirra, sem framleiðsluna stunda,
til að efla þjóðarhag, — stækka kökuna, sem er til
skiptanna.
Þar á ofan notar rikisvaldið einmitt góðærið til
að ganga berserksgang i útþenslu sinni, meðan
fólk vantar til nauðsynlegustu framleiðslustarfa
og umtalsverður hluti veiðiflotans liggur bundinn
við bryggju út af mannaleysi. Þessi staðreynd er
eitt helzta kynditæki verðbólgunnar, sem nú er
örari en hún hefur verið i manna minnum.
Rikið hefur enga ástæðu til að fara svona
gassalega. Uppbygging opinberrar þjónustu gekk
alveg nógu hratt á viðreisnartimanum, þótt þá
væru 20% kökunnar látin nægja. Þess vegna ber
ráðherrum og þingmönnum nú að stefna að þvi,
að á næsta ári minnki sneið rikisins úr 27% i t.d.
25%, i stað þess að auka hana upp i 30%. Siðan
þarf að halda áfram ár frá ári og láta ekki staðar
numið, fyrr en sneið rikisins er aftur komin niður
i 20%.
Jafnframt þarf að snúa við annarri öfugþróun.
Rikið hefur ekki eingöngu belgt sig út á kostnað
heimilanna og atvinnuveganna, heldur einnig á
kostnað sveitarfélaganna. Þessu má auðveldlega
snúa við, ef vilji er nógur. Heilsugæzlu, skólamál
og löggæzlu má að verulegu leyti flytja yfir á
herðar sveitarfélaganna og samtaka þeirra, svo
að nokkur mikilvæg dæmi séu nefnd.
Með þessum hætti má halda áfram að skera
niður sneið rikisbáknsins og koma henni niður i
15%. Það virðist ekki óeðlilegt, að hinir tveir
geirar opinberrar þjónustu, annars vegar rikið og
hins vegar sveitarfélögin, hafi hvor um sig um
15% kökunnar. Reynsla viðreisnaráranna sýnir,
að þrátt fyrir slikan niðurskurð er unnt að byggja
upp opinbera þjónustu nægilega ört.
En þá verða ráðherrar og þingmenn lika að
láta af gegndarlausum tillögum sinum um aukin
útgjöld og snúa sér að þvi að skera miskunnar-
laust niður þær tillögur, sem þegar eru komnar
inn i fjárlagafrumvarp næsta árs. Einhverjir
mundu sjálfsagt gagnrýna þá fyrir að vera á móti
framkvæmd góðra málefna. En hinir mundu
áreiðanlega vera miklu fleiri, sem skildu nauð-
synina og virtu hreinlyndi niðurskurðarmanna.
—JK
Gleyma þeir fornum
fjandskap og ganga
saman til kosninga?
Sósialdemókrata-
flokkurinn er kannski sá
flokkurinn, sem harðast
verður úti vegna van-
trausts danskra kjós-
enda i garð gömlu flokk-
anna i stjórnmálalifi
Danmerkur.
Anker Jörgensen, formaöur
sósiaidemókrata, viðurkenndi
sjálfur, aö flokkur hans og sósia-
liski þjóðarflokkurinn mundu
vart haída meirihluta eftir næstu
kosningar.
1 þingkosningunum
1971 hafði þessi flokkur
yfirgnæfandi stærstan
hluta atkvæða, eða
37,3%. Þeim sess mun
flokkurinn sjálfsagt
halda áfram eftir kosn-
ingarnar 4. desember
næstkomandi, en at-
kvæðatölurnar verða til-
finnanlega lægri. Sið-
asta skoðanakönnun i
Danmörku, sem sagt
var frá hér i blaðinu,
sýnir, að um 22% fylgja
st jórnarflokknum.
Þetta er ekki litið fylgistap,
sem þarna má horfa fram á, enda
hefur Anker Jörgensen, forsætis-
ráöherra og formaður sósiai-
demókrata, viðurkennt, að flokk-
urinn muni varla ná meirihluta i
samvinnu við sósialiska þjóðar-
flokkinn i þessum kosningum. —
Þeirrar trúar hafa líka flestir
verið um alla gömlu flokkana.
Það er talið', að þeir muni allir
tapa það miklu fylgi, að engir
tveir nái nægilegum meirihluta til
þess að mynda stjórn.
í þessum kosningum, sem
framundan eru, munu einir ellefu
stjórnmálaflokkar bjóða fram, og
siðasta skoðanakönnun bendir til
þess, að átta þeirra muni fá at-
kvæði. Þar sem atkvæðin munu
tvistrast I svo margar áttir og
fyrirsjáanlegt, að nýjustu
flokkarnir munu hljóta töluvert
fylgi, hefur ríkt nokkur örvænting
meðal eldri stjórnmálaflokkanna
(frá þvi fyrir strið), sem telja þá
nýju ábyrgðarlausa i stefnumál-
um sinum.
Þvi kom það til tals á blaða-
mannafundi nýlega, þar sem
saman voru komnir formenn
sósialdemókrata, radikala,
vinstri flokksins og ihaldsflokks-
ins, sem sé allra fjögurra gömlu
flokkanna, að vel kæmi til greina,
að þessir fjórir efndu til sam-
starfs um myndun stjórnar eftir
kosningarnar.
Slikt eru nokkuð byltingar-
kenndar hugmyndir, sem þykja
með miklum ólikindum, eftir all-
ar erjur þessara fjögurra i gegn-
um árin. Að visu voru sósialdemó-
kratar og radikalar i fjölda mörg
ár saman i stjórn, en þegar sósia-
liski þjóðarflokkurinn hlaut öllum
að óvörum mikið fylgi, sleit Jens
Otto Krag samstarfinu við radi-
kala og batt trúss sósialdemó-
krata við hina nýkomnu. Radikal-
ar gengu i bandalag við stjórnar-
andstæðingana, vinstri flokkinn
og ihaldsflokkinn, og tókst þeim
með þvi bralli að auka fylgi sitt
um helming. Vinstri flokkurinn
og Ihaldsflokkurinn hafa ekki átt
sæti i stjórn i tugi ára og verið i
andstöðu við hana til skiptis.
Eftir að hafa átt i erjum svo
lengi, þarf ekki litið til, svo að
þessir andstæðingar sameinist.
Það væri þá helzt, ef til kæmi ein-
hver þriðji aðilinn, sem hinir
sameinuðust móti. Að flokkur
Mogens Glistrups, Framfara-
flokkurinn, með skattaafnáms
/ M- sttörk
t or Akattm. Avpt/tar
Mogens Glistrup lögmaöur stofn-
aöi Framfaraflokkinn, ,,nýja
bólu, sem senn mun hjaöna,”
spáöu leiötogar gömlu flokkanna.
Flokkur hans hefur þó enn I dag
10% fýlgi, nær ári eftir stofnun.
Erhard Jakobsen geröist liö-
hlaupi og stofnaöi enn nýjan
flokk, centrum-demókrata.
Illlllllllll
M)
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
stefnu sina, þyki nógu voðaleg-
ur, til þess að hinir sliðri eitt
andartak sverðin og snúist gegn
honum, verður tæpast sagt. Leið-
togar stjórnmálaflokkanna höfðu
ekki mikinn beyg af honum i
fyrra, þegar flokkurinn var
stofnaður, og sýndu þó skoðana-
kannanir, að Glistrup naut ótrú-
legs fylgis meðal kjósenda. Siðan
hefur það rénað allverulega, og
þótt siðasta skoðanakönnun sýni,
að 10% fylgja honum enn, virðist
spá hinna gömlu, um, að Fram-
faraflokkurinn sé einungis ný
bóla, sem muni hjaðna aftur, ætla
að rætast.
Hinn nýstofnaði flokkur Erhard
Jakobsens, Centrumdemókrata-
flokkurinn, boðar i stefnu sinni
engan veginn neinar þær róttæk-
ar breytingar, sem megna að
þjappa svörnum óvinum i eitt
bandalag til varnar gegn honum.
Jakobsen höfðar til hægri manna,
sem óánægðir voru innan raða
sósialdemókrata vegna vaxandi
áhrifa framgangs vinstri mann-
anna hinna yngri. Ofugt við
Glistrup lögmann, sem er um-
deildur mjög vegna stjórnmála-
skoðana sinna, nýtur Jakobsen
virðingar sem athafnasamur
borgarstjóri eins úthverfa Kaup-
mannahafnar. Þótt vinstri
sinnaðri sósialdemókratar séu
honum eðlilega sárir fyrir lið-
hlaupið, sem leiddi til falls stjórn-
arinnar, þá hafa hinir flokkarnir
ekki þá óbeit á honum.
Það sem hrundið hefur af stað
umræðum um hugsanlegt sam-
starf gömlu flokkanna fjögurrá,
er sá stuggur, sem mönnum
stendur af öllum flokkaglund-
roðanum. Þeir óttast, að fylgið
dreifist svo, að ógerlegt reynist
að mynda starfhæfa meirihluta-
stjórn, sem leitt geti svo til þess,
að lýðræðinu verði stefnt i hættu.
Eldri flokkarnir telja sig
ábyrgðarmeiri en svo, að þeir
megi sitja aðgerðarlausir og
horfa upp á slfkt. Þá er betra að
kyngja gömlum væringum og
óvild og vinna saman.
Nú er langt frá þvi, að allir beri
slikan kviðboga fyrir lýðræðinu
eða fyrir fylgi gömlu flokkanna
fyrir þær sakir. T.d. er varafor-
maður sósialdemókrata, Kjeld
Olesen, fyrrverandi varnarmála-
ráðherra, alls ekki sammála for-
manni sinum, Jörgensen, um, að
núverandi stjórnarflokkar,
sósíaldemókratar og þjóðar-
flokkurinn, nái vart meirihluta i
þessum kosningum. Hann segir
að sósialdemókratar muni samt
fara fram á stuðning kjósenda við
þá stefnu, sem þessir tveir ráku i
stjórn.
,,Þegar fólk smátt og smátt
kemur auga á, hvað liggur að
baki þessum nýju flokkamyndun-
um, centrumdemókrötum og
Framfaraflokknum, þá mun það
hugsa betur sitt ráð og ljá gamla
flokknum atkvæði sitt,” sagði
hann núna i vikunni.