Vísir - 30.11.1973, Qupperneq 9
Visir. Föstudagur 30. nóvember 1973.
9
Helmingi fleirí látast hlvt- ^
fallslega af völdum svefnlyfja
á Islandi en í Bandaríkjunum s£r
— Rannsökuð 39 dauðsföll, sem orðið hafa
á s.l. 5 árum af völdum svefnlyfja —
niðurstöður benda til þess að jafnvel
lœkningalegir skammtar af þessum lyfjum
hafi valdið dauða, ef áfengis eða
annarra slœvandi lyfja var neytt samtímis —
fyrsta rannsóknin sinnar tegundar hér á landi
Mikið hefur verið
rætt og ritað á undan-
förnum árum um
notkun og misnotkun
róandi lyfja og svefn-
lyfja á íslandi. Nú hafa
tveir læknar og einn
lyfjafræðingur ritað
grein um dauðsföll hér-
lendis af völdum
barbitúrsýrusambanda,
blaðsins undir fyrirsögninni
„þörf viðvörun” er sagt, að
grein þeirra Þorkels, Hrafnkels
og Ólafs gefi rikulegt tilefni til
að læknar hugsi sig um, hvað
snertir ávísun þessara lyfja. Er
bent á, að þau veiti sjúklinguin
ekki eðlilegan svefn, heldur
trufli eðlilegt svefnmynstur. Þá
segir einnig, að þau séu ávana-
og fiknilyf. Ávananeytendur
þeirra þurfa æ stærri vimu-
skammta án þess að þol
likamans gegn banvænum verk-
unum aukist. Þvi getur litil
viðbót við stóra dagskammta
Hér sjáum við tvær algengustu tegundir svefnlyfja á tsiandi,
fenemai og mebúmal, en þessar tegundir koma mjög við sögu f
rannsókninni, sem hér er greint frá.
sem eru svefniyf. Er
það i fyrsta sinn, sem
hér eru rannsakaðar til
hlitar banvænar eitr-
anir vegna þessara
lyfja. Niðurstöður eru
mjög athyglisverðar og
benda m.a. til þess, að
hér látist helmingi
fleiri hlutfallslega á ári
af þessum sökum en
t.d. i Bandarikjunum.
Þeir, sem rita þessa grein, en
hún birtist i siðasta hefti
Læknablaðsins, eru Þorkell
Jóhannesson, prófessor i lyfja-
fræði, Hrafnkeil Stefánsson,
nú lyfsali á fsafirði, og Ólafur
Bjarnason, prófessor i meina-
fræði. Höfundarnir gáfu góðfús-
lega leyfi til þess, að blaðið
fjallaði um greinina og segði frá
þessari rannsókn.
,,Þörf viðvörun” segir
i ritstjórnargrein
Læknablaðsins
1 ritstjórnargrein Lækna-
verið banvæn.
Þá er einnig á það bent, að
jafnvel 1ækninga1eg i r
skammtar geta valdið dauða, sé
lyfjanna neytt samtimis alkó-
hólieða öðrum slævandi lyfjum.
Mikil ásókn i
svefnlyf
Er i ritstjórnargreininni
itekað að starfandi læknum sé
mikill vandi á höndum að gæta
hófs um ávisun lyfjanna, þvi að
ásókn fólks sé mikil. Læknum
beri þannig að varast að ávisa
svefnlyfjum viðstöðulaust til
sjúklinga annarra lækna.
Þá er einnig vikið að þeim
alltof algenga sið, að halda
svefnlyfjum að sjúklingum á
sjúkrahúsum strax fyrsta
kvöldið til þess að tryggja þeim
svefn. Bent er á, að heilbrigðis-
yfirvöld þurfi að fræða al-
menning og vara við neyzlu
áfengis samtimis töku svefn-
lyfja.
1 umræddri grein er sagt frá
fyrstu dauðsfölium, sem vitað
er um hér á landi af völdum
barbitúrsýrusambanda. Það
var árið 1917, og voru dauðs-
föllin tvö, bæði af völdum
diemals. Samkvæmt
upplýsingum, sem fyrir liggja
úr Reykjavikur Apóteki og
Lyfjaverzlun rikisins, er
augljóst að af barbitúrsýru-
samböndum hefur langsamlega
mest verið notað af fenemali og
mebúmali á undanförnum
árum.
Viröist svo sem fenemal hafi
verið tekið með tilliti til róunar,
en mebúmal fyrst og fremst
sem svefnlyf.
Mebúmal i blóði 24
einstaklinga
Þau 39 dauðsföll, sem fjallað
er um f greininni, hafa verið
rannsökuð á undanförnum
árum,en talið er fullvist, að þau
megi öll rekja beint eða óbeint
til töku svefnlyfja. 1 sumum til-
fellum virðist einsýnt, að um
sjálfsmorð hafi verið að ræða,
en i öðrum virðast læknisfræði-
legir skammtar hafa átt þátt i
eða jafnvel orsakað dauðsfallið,
ef neytt var samtimis áfengis
eða annarra slævandi lyfja.
Af þessum 39 dauðsföllum
voru 35 samtals af völdum
mebúmals, ailýprópýmals og
pentymals, og eru þau flokkuð i
sjö fíokka eftir magni efnanna i
blóðinu. Var um að ræða
mebúmal i 24 tilfellum,
allýprópýmal i 7 tilfellum og
pentýmal i 4 tilfellum. Eitur-
áhrif þessara þriggja barbitur-
sýrusambanda eru svo svipuð,
að fjalla má um þau sameigin-
lega. Auk þess höfðu fjórir ein-
staklingar tekið fenemal eða
diemal.
12 með 20-50 mikróg/ml
i blóðinu.
1 hópnum númer 5, 6 og 7,
en í þeim tiltellum tunausi
meira en 20 mikróg/ml (þ.e.
mikrógrömm i millilitra) eru
tólf tilfelli. Kom ekkert fram við
krufningu, sem gæti beinlinis
skýrt dauða þeirra. Einkenni
frá öndunarvegi (berkjubólga,
berkjulungnabólga, lungna-
bólga), sem er algengt að komi
fram, ber vafalaust i flestum
tilfellum að skoða frekast sem
afleiðingu af eitruninni. A
grundvelli þeirra upplýsinga, er
fyrir liggja, er talið vafalaust,
að rekja megi dauða þessara
einstaklinga til töku allýprópý-
mals, mebúmals eða pentý-
mals, enda þótt neyzla áfengis
hafi verið meðverkandi orsök i
dauða f sumum tilfellum.
13 með 10-20
mikróg/ ml
Talið er, að magn af
mebúmali i blóði, sem nemur
12-15 mikróg/ml, geti leitt til
banvænna eitrana, ef ekki næst
I lækni i tima. Virðist svo sem
einstakiingar i hópum þrjú og
fjögur (10-20 mikróg/ml), sem
eru 13 talsins, falli hér undir.
Allar upplýsingar varðandi
þessa 13 einstaklinga benda og
eindregið til þess, að dauða
þeirra megi rekja tii töku
barbitúrsýrusambanda. Ástæða
er til að ætla, að eftir töku ein-
stakra, stórra lækningalegra
skammta af allýprópýmali,
mebúmali eða pentýmali fari
magn þeirra i blóði ekki yfir 4
mikróg/ml. Magn barbitúr-
sýrusambanda i blóði þeirra 10
einstaklinga i hópum eitt og tvö
(5-10 mikróg/ml) er ekki talið
fjarri þvi, er búast má við eftir
töku iyfjanna i lækningalegum
skömmtum til lengdar. Sama
gildir um þá fjóra einstaklinga,
er tóku diemal eða fenemal.
hinum 10 kom ekkert fram, er
skýrt gæti andlát þeirra. 1 blóði
og þvagi sex var hins vegar
umtalsvert eða mikið magn
alkóhóls. Hjá tveimur til
viðbótar mátti staðfesta, að þeir
hefðu tekið verulegt magn lyfja,
er hafa slævandi verkun á mið-
taugakerfið. Um þann niunda er
vitað, að hann fékk slævandi lyf,
auk diemals, og sá tiundi er
talinn hafa verið drykkfelldur.
9 eða 10 létust
trúlega af neyzlu
venjulegra skammta,
auk áfengis eða
annarra
slævandi lyfja
Er þeirri spurningu varpað
fram i greininni, hvort taka
þessara lyfja i venjulegum,
iæknislegum skömmtum, geti i
raun leitt til dauða, sé samtimis
neytt áfengis eða annarra
Á árunum 1966-1971 voru rannsökuð 39
dauðsföll á rannsóknastofum Háskóla
islands i lyfjafræði og meinafræði með
tilliti til barbitúrsýrueitrunar. Dauðsföllin
dreifast þannig á árin:
1966 4 dauðsföll I 1969 10 dauðsföll
1967 4 dauðsföll I 1970 6 dauðsföll
1968 6 dauðsföll I 1971 9 dauðsföll
Ekkert kom fram
við krufningu á 10,
er höfðu 5-10
mikróg/ml
Krufningaskýrslur gefa til
kynna, að tveir þessara samtals
14 einstaklinga hefðu getað
látizt úr hjartabilun, þriðji
vegna höfuðáverka og dauða
þess fjórða mætti rekja til þess,
að hann iagðist fyrir úti, eftir að
hafa tekið stóran skammt af
fenamali. Við krufningu á
siævanai íyija. n.r Komrzi ao
þeirri niðurstöðu, að spurning-
unni hljóti að verða að svara
játandi, og séu um 9 eða 10 ein-
staklingar i hópnum, sem hal'i
látizt af þessum sökum.
Helmingurinn konur
Af þessum 39 einstaklingum
voru 20 konur og 19 karlmenn á
aldrinum 27-76 ára. Meðal-
aldurinn var tæplega 49 ár.
Virðist dauðsföllunum fremur
fjölga meðárunum en fækka, en
tiðni þeirra er birt hér annars
staðar á siðunni. —ÞS
RICOMAC
VERD KR. 24.900.00
& ^ £
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
-r Hverfisgötu 33
’ X Simi 20560 - Pósthólf 377