Vísir - 06.12.1973, Blaðsíða 6

Vísir - 06.12.1973, Blaðsíða 6
6 Vlsir. Fimmtudagur 8. desember 1973. vísrn <7tgefandi:-Reykjapi;»nt hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 AfgreiBsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611, Ritstjórn: SIBumóla 14. Slmi 86611 (T.lfnur) Askriftargjald kr. 360 á mánuBi innanlands t lausasölu kr> 22100 eintakiB. BUBaprent hf. Eðlilegt verð á landi Verð á jörðum hefur löngum verið lágt hér á landi. Það hefur ekki fylgt verðbólgunni eins og verð annarra fasteigna. Bóndi, sem keypti jörð fyrir 20 eða 40 árum, fær nú minna verðmæti fyrir hana, þótt hann fái fleiri krónur en hann gaf fyrir á sinum tima. Þetta lága verð hefur vissulega auðveldað bændaefnum jarðakaup. En það hefur um leið rýrt eignir bænda, svo sem sárast kemur i ljós, þegar þeir hyggjast bregða búskap fyrir aldurs sakir eða af öðrum ástæðum. Að öllu samanlögðu hlýtur það að vera hagur bænda, að jarðir þeirra séu sem verðmætastar. Nú eru töluverð umskipti að verða á þessu sviði, einkum i nágrenni kauptúna og kaupstaða, sem eru i örum vexti. Miklar umræður hafa orðið um nýjustu dæmin á þessu sviði, og hafa sumir hneykslazt ákaflega. Er þó verðið á þvi landi hlægilega lágt i saman- burði við verð á landi i þéttbýli, þvi að dæmi eru um, að fermetrinn i einbýlishúsalóðum fari upp i 1000 krónur. Nokkrir tugir króna eru litilfjörlegir i samanburði við það. Auk þess má telja mjög vafasamt, að verð- hækkunin, sem orðið hefur á landi i nágrenni kauptúna og kaupstaða á t.d. tveimur áratugum, hafi i fullu tré við verðbólguna á sama tima. Aðr- ir fasteigendur, svo sem þeir, er eiga sinar eigin ibúðir, hafa þó fengið bætta verðbólguna. Og það er eðlilegt, að landverð hækki eins og aðrar fast- eignir i samræmi við verðbólguna. Menn sjá ofsjónum yfir þvi, er jarðir seljast á milljónir og jafnvel tugmilljónir króna, það er að segja á verði eins eða fárra einbýlishúsa. Þessi andúð getur verið skiljanleg i þeim tilvikum, er verðhækkunin er langt umfram verðbólgu, en annars ekki. Stungið hefur verið upp á fasteignasölu- hagnaðarskatti að bandariskri fyrirmynd sem lausn á þessu vandamáli. Slikur skattur yrði ákaflega vandmeðfarinn hér á landi vegna verð- bólgunnar. Hann gæti auðveldlega hindrað fjöl- skyldur i að stækka við sig húsnæði með aukinni fjölskyldustærð, svo að dæmi sé nefnt. Ef slikum skatti væri komið upp hér, yrði hann að taka fullt tillit til verðbólgunnar frá kaupdegi fasteignar til söludags, þvi að á þvi bili fæst að- eins imyndaður hagnaður. Og skatturinn ætti þá að renna til sveitarfélagsins á þeim forsendum, að það ætti hlutdeild i þeirri verðmætisaukningu lands, sem útþensla sveitarfélagsins hefur skap- að. Hingað til hefur þetta ekki verið vandamál, þvi að landverð hefur verið lágt. Nú er hins vegar ris- inn töluverður æsingur út af fullkomlega lögleg- um og eðlilegum sölum. Þessu hafa fylgt árásir á landeigendur og lögfræðinga, sem hlut eiga að sölunum, svo og forsvarsmenn sveitarfélaga, sem hlut eiga að kaupunum. Vonandi er þessi æsingur bóla, sem hjaðnar, svo að hægt sé að ræða i skynsemi um, hvernig beri að tryggja með lögum eðlilega meðferð þess- ara mála i náinni framtið. —JK Það hefur stundum verið sagt um Chicagóbúa, svona yfir höfuð talað, að þeir ekki aðeins sætti sig við vissa spillingu meðal embætt- ismanna sinna, heldur beinlinis ætlist til hennar Kosningaapparat demókrataflokksins kippti umbótasinnanum Martin Kennelly, borgarstjóra, út af lista hjá sér fyrir kosningarnar 11955 og buðu heldur fram Richard Daley. Þegar talning um kosninga- nóttina sýndi öruggan sigur Daley, er sagt, að bareigendur hafi stigið dans í gleði sinni og sungið: „Chicagó kærir sig ekki um neinar um- bætur.” En nú kann sú stund að vera runnin upp, að Chicagóbúar verði að láta sér lynda hreinsanir og umbætur allt frá Daley borgar- stjóra niður til sendilsins hjá borgarráði. Borgin nánast leikur á reiðiskjálfi vegna einhverrar útbreiddustu spillingar í lög- regluliði, sem um getur i sögu Bandarikjanna. Alrikisyfirvöld hafa núna lengi unnið að rannsóknum i þessu hneykslismáli og hafa sextiu Chicagó-lögreglumenn reynzt vera bendlaðir við múluþægniog fjárþvinganir. t>egar hér er komið sögu, hafa 40 þeirra verið dæmdir, en átta sýknaðir. Og núna i siðustu viku voru gefnar út stefnur i þrem tilvikum vegna ruddaskapar lögreglumanna. Einn lögreglu- þjónn var kærður fyrir að hafa barið vegfaranda, sem brotið hafði umferðarreglur. Annar var ákærður fyrir að hafa i ölæði lamið með byssu sinni þrjá menn, sem hann hafði grunaða um rán. Sá þriðji er grunaður um að hafa skotið og sært fyrrverandi leigjanda sinn, sem hafði skilið eftir rusl i ibúðinni, þegar hann flutti. Hneyksli þetta hefur blettað orðstir mánna i æðstu embættum innan lögreglunnar. Yfirlögreglu- þjónninn, James Conlisk, var neyddur til að hætta störfum i októbermánuði siðast, og yfir- maður einnar hverfisstöðvar- innar var fundinn sekur um fjár- þvingun og meinsæri. Einn af saksóknurum rikisins, repúblikaninn James R. Thompson, sem að rannsókninni vinnur, hefur gengið frammeð oddi og egg i málinu. Skæðasta vopn hans hefur verið loforð um uppgjöf saka, ef menn vitnuðu fyrir sækjandann. „Betra að vera vottur núna heldur en kannski sakborningur siðar,” hefur hann lýst yfir. Með loforð upp á vasann um að verða ekki sóttir til saka hafa margir þeirra, sem látið hafa þvinga út úr sér fé, og reyndar sumir þeirra, sem þvinguðu, borið vitni. Fyrstu dómarnir féllu i fyrra. Sjö lögreglumenn voru fundnir sekir um að hafa hirt 50 til 100 dollara mánaðarlega fyrir að „vernda” dansstaði og vinbari við Rush- stræti. „Ég hélt að þetta væri viðtekinn viðskiptamáti i bæn- um,” sagði einn öldurhúsa-eig- andinn. En það kom ekki i ljós fyrr en i réttarhöldum i sumar, hversu djúpt spillingin stóð, þegar sóttur var til jjaka yfirvarðstjóri, sem verið hafði yfirmaður umferðar- lögreglunnar og alls unnið 21 ár i lögregluliði borgarinnar. Heil röð af vitnum bar um, hvernig næturklúbbar höfðu verið mjólkaðir allt frá þvi árið 1967. Múturnar námu allt að 1000 dollurum á mánuði. Voru varð- stjórinn og átján undirmenn hans dæmdir fyrir fjárþvinganir. 1 fyrstu tóku Daley borgarstjóri og Conlisk yfirlögregluþjónn upp hanzkann fyrir liðið. „Enginn er fullkominn,” sagði borgar- stjórinn. En siðan bar svo við, að Conlisk, sem sætti yfirheyrslu Daley borgarstjóri (t.v.) og Rochford yfirlögregluþjónn eru áhyggju- fullir vegna spillingar innarn lögreglunnar. LÖGREGLA CHICAGÓ SJÁLF A SAKABEKK sem ætlunin er, að taki lögregl- una upp til hópa rækiiega til bæna. Félagið heldur þvi fram, að það brjóti i bága við stjórnar- skrána að vikja úr störfum lög- reglumönnum.semneita að bera vitni, „vegna þess að vitnisburð- ur þeirra kunni að sakfella þá sjálfa”! Og félagið berst með oddi og egg gegn þvi, að lyga- mæliprófanir verði gerðar á 75 yfirmönnum i liðinu. Segir félagið, að lygamælar séu óáreiðanlegir. Margir lögreglumenn halda þvi fram, að þessar ofsóknir séu af pólitiskum toga spunnar. „bað er strið milli Nixons og Daleys, og þessum lögreglumönnum er fórnað i eldinn fyrir þær sakir,” segja þeir. Thompson, saksóknari — stjórnandi rannsóknarinnar — álitur, að flestir lögreglu- mannanna séu blindir á kjarna málsins. „Þeir verða að gera sér ljóst, að heiðarleiki verður að ganga fyrir misskilda tryggð þeirra hvers gagnvart öðrum,” sagði hann. Hann heldur þvi fram, að liðið verði aldrei hreinsað af spillingunni, fyrr en einhver atvinnulögreglumaður, laus við öll pólitisk tengsli, fái óskoruð völd sem lögreglustjóri. stjóri. Til þessa hefur Daley borgarstjóri reitt sig á James Rochford, sem tók við af Conlisk yfirlögregluþjóni. Þeir áttu það sameiginiegt báðir, að hafa unnið sig upp i gegnum raðir lögreglunnar. Nú er það almanna álit, að repúblikanar muni bjóða Thompson fram á móti Daley i borgarstjórnakosningunum 1975, Þykir liklegt, að hreinsanir innan lögregluliðsins verði eitt af helztu baráttumálunum. Nú er það svo, að Daley hefur fimm sinnum náð kjöri sem borgarstjóri Chicago, og þeim árangri hefði hann naumast náð, efhann ekki vissi óskir kjósenda sinna. Telji hann, að Chicago- búar vilji umbætur, er ekkert lik- legra en að hann veiti þeim þær. (Þýtt úr Newsweek) nefndar borgara, brast 1 grát undir yfirheyrslunni. Eftir réttar- höldin yfir varðstjóranum ákvað Daley, að eitthvað yrði að hafast að. 10. október kallaði hann öllum á óvart blaðamenn til fundar og tilkynnti þeim, að Conlisk hefði sagt upp starfi. Hvort yfir- lögregluþjónninn vissi um „uppsögnina” sjálfur, þykir alls óvist, þvi að hálfri annarri stundu áður flutti hann ræðu i klúbbi borgara og lýsti þar framtiðar- áformum sinum varðandi lög- regluna. Það er ekki að undra, þótt andinn sé óhress i lögregluliði Chicagó. En lögreglan sýnist hafa minni áhyggjur af spillingunni innan íiðsins heldur en rannsókninni á spillingunni. Lögreglumannafélagið, sem er herskátt stéttarfélag 8000 manna úr 13.000 manna lögregluliði borgarinnar, stendur i stima- braki við ráð óbreyttra borgara.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.