Tíminn - 04.01.1966, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.01.1966, Blaðsíða 5
ÞRB>JUDAGUR 4. janúar 1966 TÍMINN Útgefandl: FRAMSOKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórt: Krtstján BenedBctsson Rltstjórar: Þórartnn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og tndriðl G. Þorstetnsson FuUtrúl rttstjóraar Tómas Karlsson Ang- lýsingastj.; Steingrlmtir Gíslason Ritstj.skrifstofnr i Eddn- búsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur. Bankastræti 7 Af- greiðslusími 12323 Auglýsingaslml 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300. Ásikriftargjald kr. 95.00 á mán. ínnanlands — í lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan ETDDA b.t Hert á höftunum Nýársboðskapur ríkisstjórnarinnar til þjóðarinnar var sá -ð iierða enn að mun á framkvæmda. og framleiðslu- höituin þeim, sem hún hefur beitt landsmenn. Þetta er enn ein yfirlýsingin í verki um gjaldþrot „viðreisnar”- stefmumar, enn ein tilraun til þess að bjarga gróða- frelsi peningainannanna með illvígum höftum á kostnað einstaMings- og félagsframtaks almennings í landinu. Þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum, kenndi hún sig umfram allt annað við „frelsi” og kvað höft ekki til í sinni biblíu. En hún setti þó á illvígustu tegund hafta, sem til er, okurvaxta- og lánsfjárhöft, sem styrkt voru með frystingu á verulegum hluta sparifjár lands- manna. Þessum aðgerðum lýstu ýmsir oddvitar fram- leiðslunnar sem eitri og lömun í þjóðarlíkamanum, enda komu hin skaðvænu áhrif fljótt í ljós. Áhrif þessara hafta megnuðu ekkert gegn dýrtíð og verðbólgu nema gerðu aðeins illt verra Fjölbragðamenn peningagróðans höfðu einir hag af þeim. Eftir harða gagnrýni Framsókrv armanna voru okurvextirnir loks léttir lítið eitt, en sparifjárfrystingunni haldið áfram sem áður og frost- rós sparifjárbindingarinnar hefur verið eitt helzta skraut- blóm „viðreisnarinnar” fram á þennan dag. Á s.l. ári snaraðist enn á ógæfuhliðina fyrir „viðreisn- inni” og hin gömlu húsráð hnnar stækustu íhaldsstefnu, meira vaxtaokur og meiri frysting, eru enn hið eina úr- ræði, sem stjórnin sér, af því að það eitt tryggir hag sér- gróðaspekúlantanna, en það er æðsta boðorð ríkisstjórn- arinnar. Því er nú enn við þessi áramót hert mjög á hinum ill- vígu framkvæmdahöftum, þar sem skynlaust vald pen- inganna skal eitt ráða ferðinni. Skynsamleg áætlunar- gerð og val verka eftir þýðingu þeirra fyrir þjóðina kemur ekki til greina af því að gróðagámarnir fá þá ekki nóg- Þeir, sem þurfa að fá lán til nytsamlegra framkvæmda, bygginga og framleiðslu, skulu borga hærri okurvexti og fá minna þrátt fyrir stórauknar þarf- ir. Aðra jafnvægisleið þekkir ríkisstjórnin ekki. Ríkisstjórninni er nú nauðsynlegt að færast enn meira í fang en áður í þessari hatrömmu haftapólitík, vegna þess að hún þarf nú ekki aðeins að hugsa um hag hins innlenda sérgróðalýðs, heldur brjóta hinu erlenda fjár- magni leið í samkeppninni um framkvæmdaaflið í land- inu. Þess vegna verða nú framkvæmdir inlendra manna að víkja enn betur og til þess er hert á okurvaxta- og lánsfjárhöftunum. Ýmsir fyrirmenn þjóðarframleiðslunnar t.d- Haraldur Böðvarsson á Akranesi, hafa lýst því skorinort, hvernig vaxta- og lánapólitík ríkisstjórnarinnar kemur í veg fyr- ir, að lífsnauðsynleg vinnuhagræðing og framfarir verði í fiskiðnaði landsmanna Þann róður skal enn þyngja til þess að hliðra til fyrir gróðaframkværpdum erlendra aðila í landinu. Með því að hækka nú vexti og auka frystingu sparifjár er verið að tryggja útlendingum for- gangsrétt að framkvæmdaafli þjóðarinnar Ríkisstjórnin hefur nú sitt eftirlætisbarnið á hvorum handlegg. Á öðrum situr innlendi sérgróðalýðurinn, og á hinn er komið erlent gróðafjármagn Nú þarf mikils við til að ala bæði kjörbörnin. og því eru höftin hert að framtakssemi og uppbyggingu almenmngs í landinu. Það er og helzta von íhaldsins, að kjörbörnin styðji hvort annað til gagnkvæmra hagsbóta, þegar þeim vex fiskur um hrygg. Kristinn dómur og íslenzkt þjóö- erni dafni hlið við hlið í landi Góðir fslendingar, nær og fjær! Ég þakka öllum gamla árið, sem nú er liðið í skaut aldanna, og óska yður öllum góðs og far- sæls nýs árs! Gleðilega hátíð! Ávarp forseta íslands, herra Ásgeirs Ásgeirssonar 1. janúar 1966. Ásgeir Ásgelrsson Eg á þar við, að nýjársdagur- inn, sem nú er talinn, var raun- ar áður um miðbik jólanna, sem náðu frá aðfangadagskvöldi til þrettánda. Jólin eru upphaflega ævafom miðsvetrarhátíð, sem kristin kirkja hefur helgað frá kristni- töku. Enn eru um jólin sagðar sögur frá fomeskju, og rifjuð upp gömul minni frá heiðni, án þess að nokkur amist við. Hinn mikli fagnaðarboðskapur jólanna er þó engu að síður jólaguðspjallið, María og Jósep, jatan og Jesúbarnið, jólastjam- an, friður á jörðu og velþóknun með mönnunum. Þrettándinn var og áður haldinn heilagur, ýmist í minningu vitringánna frá Austurlöndum eða skírnar Jesú og opinberunar Heilags Anda í dúfulíki. Jólaguðspjallið er oss í blóð borið, og það skiptir ekki öllu máli, hvort menn líta á það sem sannsögulega frásogn eða tákn og helgisögu að einhverju leyti. Um slíkt er varla lengur deilt, og sízt á jólum. Helgisögur geta verið sannar á sinn hátt eins og allur hinn hæsti skáldskapur. Upp úr jólum fer sólin aftur að hækka á lofti, daginn að lengja. „Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, var að koma í heiminn." „Orðið varð hold, og hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika“. Það er því meiri helgi yfir jólunum en öllum öðr um hátíðum, nema vera skyldi páskunum, hátíð upprisunnar. Það er skammt milli jólatrés- ins og krosstrésins, og þó er það hin helgasta og háleitasta saga, sem gerzt hefur hér á jörð. Hún fyllir hug vorn friði og velþóknun enn þann dag í dag, þó stutt vilji á stundum verða í vopnahléum eins og dæmin sýna. Jólaboðskapur- inn ætti þó að ná til alls árs- ins; Á áttunda dag jóla, eins og nýjársdagurinn var áður nefnd- ur, er venjan að minnast sér- staklega sögu hins nýliðna árs, og framtíðarvona. Það gerum vér öll í hjörtum vorum. Ára- mótagreinar og ræður svo margra annarra hafa það aðal- viðfangsefni, svo ég mun á fátt minnast í þessu stutta ávarpi. Gamla árið var góðæri, ein- munatíð og afli, nema hvað helzt grasbrestur á Austurlandi. Metafli var á sjó og verðíag á útflutningsafruðum hag- stætt. í slíku góðæri má ekki gleyma hörðu árunum. f vorri sögu hafa jafnan skipzt á góð- æri og hallæristímabil. Og þó hallæri sé máske fullsterkt orð á vorri tækniöld, þá mun svo enn verða, að árferði og afla- sæld gangi í öldum. Ekki hefur síldin reynzt árviss, síðan þær veiðar hófust að nokkru ráði. Hátekjur þjóðarinnar verður að nota til að brúa yfir lágtekju- kaflana, bæði með því að safna sjóðum og skapa fjölbreyttari og vaxandi afkomumögu- leika. Gildir það jafnt um þegna sem þjóð. Til þjóðfélagsins eru gerðar miklar kröfur og vaxandi og gott að heyra úr ýmsum átt- um viðurkenning á því. að ekki sé unnt að gera allt í senn. Þarfimar eru miklar, og vart hægt að fullnægja á hverjum tíma nema forgangskröfum. En áróðurinn er áleitinn, og flokkskapp fer oft fram úr hófi. Áróðurstækni hefur e kki síður færzt í aukana en önnur tækni vaxandi blaðakostur, útvarp o.s. frv. Flokkaskipting er að visu nauðsynleg og samvaxin lýð- ræðisskipulagi. Flokkur er sjald an betri en meðaltal þeirra, sem flokkinn fylla. Og þó hver flokk ur og sé góður fyrir sinn hatt, þá eiga allir að baki og fyrir hönd- um samstarf við aðra, enda sjálf ir samsteypa ólíkra hags- muna og sjónarmiða. Fullkomið eða svokallað „vísindalegt skipulag, sem sé óháð mannlegu eðli, kostum þess og göllum, fyrirfinnst ekki. Það er enginn kolsvartur né drifhvítur eins og í riddarasögum, heldur allt líkara mannlýsingum fslendinga sagna, þar sem ágætum mönn- um getur yfirsézt og engum þó alls varnað. Þó jólafriðurinn sé skammær, þá er engin nauðsyn, að áróður- inn sé daglegur og árlangur. Skylt er þó að játa, að minni bejzkja og fjandskapur virðist nú manna á meðal en stundum hefur áður verið í íslenzkum stjórnmálum. Og innan skefja þarf að halda öllum átökum, ef lýðræði og þjóðareining á að varðveitast. Ég læt ekki undir höfuð leggj ast að minnast eins höfuðatburð ar frá íslenzku sjónarmiði á Iiðnu ári, en það er samþykki Þjóðþings Dana á afhending ís- lenzkra handrita til vor, sem eigum þar geymda mikla sögu og mestu bókmenntaafrek for- feðranna. Þau eru kjörgripir og helgir dómar þessarar þjóðar. Það verður aldrei ofmetið. hvem þátt hinar einstöku og heimskunnu fornbókmenntir eiga í endurreisn og fullveldi vorrar fámennu þjóðar. „Norður landaþjóðir eru náskyldar og um margt áþekkar,“ segir einn af þekktustu sagnfræðingum vorra tíma, Arnold Toynbee, „en það var fámennasta þjóðin, íslendingar, sem um langt skeið ortu Ijóðin og rituðu söguna. Þetta fæ ég hvorki skýrt né skilið.“ Vér getum sjálfir rakið ýmis rök, og fært fram ástæður, en þó hygg ég, að ekki verði komizt hjá því að telja, að fslendingar hafi að eðlisfari verið öðrum hneigðari til skáld- skapar og bóklegrar iðju, enda hefur þráðurinn ekki slitnað til þessa dags. En slíkt þjóðareðJi verður erfitt „að skýra og skilja“, eins og Toynbee komst að orði. Það er mikið drengskapar bragð af Dana hálfu að gera slíka samþykkt, og binda þann- ig endahnút á langa viðuriegn. f þeirri sjálfstæðisbaráttu á öll- um sviðum, sem nú er lokið, hafa fslendingar þroskazt til sjálfstjómar og fullveldis. Það er aðdáunarvert, að Jón Sigurðsson setur í upphafi mark ið svo hátt, að það þuriti meira en mannsaldur umfram hans eigin ævi til að ná þvi marki. Það ber allt að sama brunni um hans stórhug og réttdæmi um sögu þjóðarinnar frá upp- hafi og framtíðarstefnu. Þaff er vissulega samband milli sögu og samtíðar, og nú er það vort að" sýna og sanna, að íslenzk þjóð sé enn, og verði áfram, samboðin fornu þjóðveldi og trausti Jóns Sigurðssonar. Og víkjum nú sögunn hingað til Bessastaða. Það er langur ferill og heldur óskemmtilegur, Framhald á bls 12

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.