Tíminn - 04.01.1966, Side 16

Tíminn - 04.01.1966, Side 16
Bóksala ald rei jaf n ari og betri en nú Myndin var tekin skömmu eftir að v. s. Þór fór á hliðina i Slippnum i Reykjavlk. Greinilega sézt hvernig skipið hefur lagzt út í uppistöður dráttarsleðans. (Tímamynd K. J.) SJ—Reykjavík, mánudag. Þrátt fyrir miki'ð vöruúrval í verzlunum var góð sala í bókum í desembermánuði og bóksalar, sem Tíminn ræddi við ánægðir með sinn hlút. Helzta einkennið var jöfn og góð sala í mörgum bókatitlum. Nokkrir bókatitlar seldust alveg upp, og ljóst er. að allir helztu bókaútgefendurnir mega vel við una, enda eru margir þeirra furðu vissir í sinni sök. Af vandaðri bókum er bókin um Davíð Stefáns son efst á blaði, en margir bóka titlar fylgja fast á eftir. Bóksalarn ir töldu að mjög fáir útgefendur hafi farið verulega halloka, mun færri en í fyrra. Talið er að Setberg hafi selt barnabækur einna jafnast og bezt. en sala í barnabókum var mjög mikil. Bók Ármanns Kr. Einarssonar seldist mjög vel og endurútgáfa Sögunnar af Hjalta litla seldist einnig ágætlega, enn- fremur bækur eftir Enid Blyton. Þegar í desemberbyrjun komst góður skriður á bókasöluna og var salan jöfn allan mánuðinn. Meðal þeírra bóka sem þraut h.iá bóksölum var Káinn. Ævin- týrabrúðurin eftir Höllu Linker, Vilhjálmur Stefánsson og Myndir daganna eftir séra Svein Víking. Aðalfundur fulltrúa ráðs Framsóknar- félaganna í Rvík verður haldinn föstudaginn 7. jan úar næst komandi, að Tjarnar götu 26. Hefst hann kl. 20.30. Dag skrá: 1. venjuleg aðalfundarstörf, 2. lagabreytingar, 3. önnur mál. ÞÓR FOR A HLID- INA í SLIPPNUM KJ—Reykjavík, mánudag Það óhapp vildi til skömmu fyr ir klukkan fjögur í dag, þegar verið, var að taka varðskipið Þór upp í slipp hér í Reykiavík, að skorður fóru undan skipinu bak borðsmegin og valt skipið við það á hliðina á uppistöður dráttarsleðans. Nokkurt hvassviðri var á þegar taka átti skipið upp, og þegar Eyja úr sæ HZ—Reykjavík, mánudag. Mikið gos var í nýju eld stöðvunum við Surtsey í dag og var gosið slitrótt framan af en síðan stöðugt. Ný eyja er risin úr sæ, er það ca. 100 metra langt rif og gýs aska og reykur upp úr tveim gígum, sem mynd ast hafa- Blaðið hringdi í Sigurð Þórarinsson, jarð- fræðing og spurði hann frétta um eyjuna. Framhald á bls. 14. þar við bættíst að ekki hafði verið gengið nægjanlega vel frá skorð unum bakborðsmegin féll skipið til hliðar þegar stefnið var komið nokkuð upp úr sjónum. í mestu rokunum rambaðti skipið allt til, og forðuðu því flestír starfsmenn irnir sér frá borði. áður en skip ið valt. Einn af starfsmönnum Slippsins stóð á brú, sem er á uppistöðum dráttarsleðans, og þegar hann sá skipið bókstaflega koma yfir sig, tók hann á það ráð að henda sér í sjóinn, og varð að synda nokkra vegalengd út í Slippsbryggjuna, í gæruúlpu og öðrum hlífðarfötum. Honum mun ekki hafa orðið meint af volkinu. Brú skipsins lagðist utan í uppi- stöður dráttarsleðans, og skekkt ist sleðinn allur. auk þess sem brúin og skipsskrokkurinn dælduð ust, en leki mun ekki hafa komið að varðskipinu. Framhald á bls. 14. Fannst látinn HS—Akureyri, mánudag. Tuttugu og níu ára gamall Ak ureyringur Jón Hjaltalín drukkn aðí í Akureyrarhöfn á gamlárs kvöld eða á nýársnótt. Hafði hann farið að heiman frá sér klukkan um 10 á gamlárskvöld, og þegar hann kom ekki heim til sín um nóttina var farið að leita hans. Um morguninn fannst l£k hans í flæðarmálinu við niðursuðuverk smiðjuna. Dauðaleit að manni KJ—Reykjavík, mánudag. í nótt voru leitarflokkar kallað ir út til að leita vistmanns af Reykjalundi í Mosfellssveit, sem ekki hafi sézt síðan um klukkan níu i gærkveldi. Fannst maður inn látinn í dag við Álafoss. Hér er um að ræða 53 ára gaml an mann, sem hafði dvalizt að FramhaW á Ms. 14. FRAMSÓKNARVISTIN Á SÖ6U Annað spilakvöldið í fimm verðlaun. Miðapantanir í sím kvölda keppninni verður að um ^55'64 16066. °S á skrif Hotel Sogu sunnudaginn 9. jan Tjarnargötu 26 Tryggið yður úar, n. k. og hefst klukkan 8.30. miða tímanlega. Munið hin glæsilegu heildar Framsóknarfélag Reykjavíkur 534 brunaútköll KJ-Reykjavík, mánudag. Gunnar Sigurðsson varaslökkvi- liðsstjóri gaf Tímanum þær upplýs- ingar í dag að á árinu 1965 hefði slökkviliðið í Reykjavík verið kvatt út 534 sinnum, og hafa aldr- ei verið jafn mörg brunaútköll á einu ári hjá slökkviliðinu. Næst kemur árið 1959 með 475 útköll. Þessi 534 brunaútköll skiptast þannig að í 93 skipti var um grun um eld að ræða, 56 sinnum var slökkviliðið gabbað og fimm sinn- um var um mikið tjón af völdum elds að ræða. Þessi fimm skipti eru eldsvoðar í Trésmiðju Birgis Ágústssonar í Brautarholti, Rör steypunni í Kópavogi, vélbátnum Kára er lá við Grandagarð, að Kringlumýrarbletti 5 þar sem gam alt timburhús gjöreyðilagðist - af eldi og bruninn að Setbergi fyrir ofan Hafnarfjörð. í hin 380 skipt- Framhald á bls. 14. BÍLLI HÖFNINA Á AKUR- EYRI - MAÐUR DRUKKNAR HS—Akureyri, mánudag I.aust fvrir klukkan hálfníu á gamlársdagsmorgun var hringt til lögregluniiar og tilkynnt að vöru bifreið htfði ekið fram af Torfu nesbryggju. Var látið fylgja með að óvíst væri hvort maðu.r hefði verið í bifreiðinni, en það uppgötv aðist um klukkustund síðar að svo hafði vcrið, er froskmaður fann Heimi Baldvinsson látinn í bílnum í höfninni. Lögreglan fór þegar á staðinn, en yfirlögregluþjóninn Gísli Ólafs son settí sig í samband við kaf arann Jóhann Gauta Gestsson, sem brá skjótt við og kafaði niður að hinum sokkna bíl. Erfitt var um köfun þar sem þykkur ís er á höfninni, og því dimmt niðri, auk þess sem benzín úr bifreiðinni fór í sjóinn. í fyrstu tilraun fann kafarinn ekkert, en í annarri til- raun fann hann Heimi í bílnum, og hafði hann skorðazt undir mælaborðinu hægra megín. Frá því látið var vita um slysið og þar til búið var að ná manninum upp, leið um ein klukkustund. Heimir heitinn var starfsmaður Olíuverzlunar íslands á Akureyri, og fór til vinnu á venjulegum tíma um morguninn. Var hann að koma úr viðgerðarferð ofan af brekku Framhald á 14. síðu. Á myndlnni til vinstrl er kafari að fara niður af bryggjunni 4 Akur- eyrl, en til hagri er verlð að draga vörubílinn upp úr sjónum. (Tímamyndr HS)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.