Tíminn - 04.01.1966, Page 14
TÍMINN
Áramót á Ólafsfirii
BS—Ólafsfirði, mánudag.
Áramótafagnaður fór hér fram
í allgóðu veðri. Stuítu eftir hádeg
ið á gamlársdag lék Lúðrasveit
Ólafsfjarðar hjá félagsheimilinu
undir stjórn Magnúsar Magnússon
ar söngstjóra. Nokkru seinna
hvessti á austan með miklum renn
ingi, voru horfur á að ekkert gæti
orðið úr áramótabrennunni, en
úr þessu rœttist þó. Um kvöldið
kl. 6 messaði sóknarpresturinn,
sr. Ingþór Indriðason, við ágæta
kirkjusókn. Þegar fólk kom úr
kirkju var hann heldur farinn að
hægja og kl. 8 um kvöldið var
kveifct í margra metra háum bál
kesti hér á sandinum vestan við
bæinn, sem félagar úr íþróttafélag
inu Leiftri höfðu undirbúið dag
ana áður. Va,. þetta mikil og stór-
fengleg brenna. sem fjöldi fólks
skemmti sér við að horfa á fram
eftir kvöldi. Kl. 12 á miðnætti
kveiktu skátar á áramótablysum
uppi ' hlíðinni fyrir ofan bæinn
og mynduðu þau ártalið 1966 fag
urlega. Skemmtu margir bæjarbú
ar sér við að horfa á þetta sér-
kennil. fyrirbæri í rúml. klukku
tíma. Áramótadanslekur hófst um
miðnætti og lauk kl. fjögur um
nóttina, hljómsveitin Skuggar og
Sigvaldi léku o gsungu fyrir dans
inum, var hann fjölsóttur og fór
hið bezta fram.
Nýja árið heilsaði okkur með
leiðindaveðri, norðaustan hríð,
sem hélzt einnig í gær en þá var
hann mun hvassari og mikil snjó
koma. í nótt birti hann upp, og í
dag hefur verið heiðskírt veður
með 13—15 stiga frosti. Menn
hyggja nú á að hefja sjóróðra að
nýju. Fer Guðbjörgin nú út í
kvöld í sinn fyrsta róður á þessu
ári. Hinir bátarnir. Anna, Þorleif
ur og Sæþór munu hefja róðra
annað kvöld eða næstu daga.
Snemma í morgun fór mótorbát-
urinn Ármann með fjörutíu manns
inn á Akureyri. Meirihlutinn af
þessu fóliki er að fara í atvinnu-
1-eit suður á land, en nokkrir til
náms. Vetrarvertíð brást gersam-
lega hér í fyrravetur, svo að fólk
hér þorir auðsjáanlega ekki að
eiga allt sitt undir duttlungum
Ægis og fer því heldur að freista
gæfunnar í allsnægtunum fyrir
sunnan.
Hræðsla í blokk
KJReykjavík, mánudag.
Slökviliðið var kvatt út þrívegis
í kvöld. Fyrst skömmu fyrir klukk
an níu að íbúðablokkinni Ljós-
heimar 16—18 en þar er talið,
að böm hafijcveikt í haug af
einangranarefni í kjallara, og
komst eldurinn í einangrun utan
um rör er lágu upp á hæðimar.
Mikill reykur varð af þessu, og
greip um sig ótti meðal kvenna
og bama í blokkinni vegna reyks-
ins. Slökkviliðið var á staðnum
í klukkutíma, en síðan kvatt að
Háveg og Reykjanesbraut í Kópa
vogi. Var þetta skúr, sem átti að
fjarlægja fullur af drasli Þá kom
brunakall frá Austurbrún 2, vegna
eldflyksa, sem komu úr reykháfi
hússins, en kviknað hafði í sóti-
Gjafir í Heimilissjóð
taugaveiklaðra
barna
Heimilissjóði taugaveiklaðra
barna hafa borizt höfðinglegar
gjafir. Gefnar voru kr. 20.342.10
til minningar um Guðrúnu Björns
dóttur ljósmóður frá Dýrafirði.
Gefandinn óskar, að nafns hans
verði ekki getið.
Rétt fyrir jól barst Heimilis-
sjóði önnur gjöf, 60 þúsund krón-
ur, sem gefin eru til minningar
um hjónin Þorstein Jóhannesson
og Lovísu Loftsdóttur og son
I þeirra Svavar. Gefandinn óskar
i að nafns hans verði ekki getið.
Stjórn Heimilissjóðs þakkar
þessar stórmannlegu gjafir.
f Heimilissjóði eru nú nálega
11 hundruð þúsund krónur, sem
safnazt hafa af gjöfum einstakl-
inga og framlögum Barnaverndar-
félags Reykjavíkur. Þess má geta,
að gjafir í Heimilissjóð tauga-
veiklaðra bama eru undanþegnar
skatti.
Gjaldkeri Heimilissjóðs er séra
Ingólfur Ástmarsson biskupsritari.
(Frá stjórn Heimilissjóðs).
BÍLL Í HÖFNINA
Framhald af 16. síðu.
og ók vömbíl sem Olíuverzlunin
á, niður Þingvallastrætl og Kaup
vangsstræti. Lenti bíllinn á homi
hússins þar sem áður var verzlun
in Heba, klippti þar niður út-
byggingu, og síðan áfram niður á
hús Eimskipafélags íslands, sem
dældaðist og þaðan fram af Torfu
nesbryggju. Talið er að Heimir
hafi fengið aðsvif undir stýri.
Bílnum var síðan náð upp með
aðstoð kafara og kranabíls.
Heimir Baldvinsson átti heima
að Ásbyrgi í Glerárhverfi og var
hann rúmlega þrítugur að aldri.
Fluttist til Akureyrar í fyrrahaust
lir Bárðardal.
REKl AF ARLIS
Framhald af bls. 1.
það er skoðun margra hér.
Á undanförnum árum hefur
ekki verið mikið um það að
rekavið hafi borið á land,
hefur það jafnvel verið tal
inn viðburður, ef ein og ein
spýta hefur slæðzt hingað-
Er þessi rekaviður þvi mjög
vel þeginn hér.
ÞAKKARÁVÖRP
Hugheilar þakkir til ykkar allra, fiær og nær, sem
glöddu mig á sjötugsafmæli mínu, með heimsóknum,
höfðinglegum gjöfum og heillaóskum.
Jón Jónasson, Reykjum.
Hjartans þakklr fyrir auSsýnda samúS oci vináttu viS andiát og
jarSarför móSur okkar og tengdamóSur
Jóhönnu Þór
Einnig þökkum viS þeim, sem önnuSust hana og glöddu meS heim-
sóknum f veikindum hennar.
Kristín Hulda Þór,
Ólöf Þór, Gunnar H. SigurSsson
Sverrir Þór, Ebba B. Þór,
EiginmaSur minn, faSir okkar tengdafaSir og afi
Jóhannes Jónsson
ÞorlelfsstöSum,
andaSist á sjúkrahúsi SkagfirSinga 31. desember
MálfríSur Benediktsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
ÞRIÐJUDAGUR 4. janúar 1366
Hestamannafélag
á SuBurnesjum
GS-Keflavík.
Stofnað hefur verið hestamanna
félag hér og standa að því áhuga-
menn hvaðanæva af Suðurnesjum.
Stofnfélagar voru 40 og var for-
maður félagsins kjörinn Hilmar
Jónsson og meðstjórnendur þeir
Birgir Scheving ritari, Maríus Sig
urjónsson gjaldkeri og Þórður
HANOI SVARAR EKKI
Framhald af bls. 1.
áður ræddi hann við Shastri, for-
sætisráðherra Indlands. Frá Pakis-
tan fór Harriman til Teheran til
viðræðna við ráðamenn þar, en á
morgun hittir hann Nasser Egypta
landsforseta í Kairó.
Aðstoðamtanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Mennen Williams,
átti í dag fund með Haile Se-
lassie, keisara Eþíópíu, í Addis Ab-
eba, og fór síðan til Mombasa í
Kenya.
Hanoi-blaðið Nhan Dan skrifaði
í dag, að aðgerðir Johnsons væru
sviksamlegar og falskar. f hvert
skipti, sem Bandaríkin töluðu um
friðarviðræður, ykju þau styrj-
öldina í Víetnám. Hið sama ætti
sér stað nú, skrifar blaðið.
Phan Van Dong, forsætisráð-
herra N—Víetnam, sagði í dag að
Bandaríkin kæmust ekki hjá því
að tapa í Víetnam. Hann sagði
að árásarstefna Bandaríkjanna
væri hið eina, sem kæmi í veg fyr-
ir frið í Víetnam.
Franski diplómatinn Jean Chau-
vel, sem var í Peking og Hanoi
í síðasta mánuði, skrifar í Parísar-
blaðið Le Figaro, að Víetnamdeil-
an sé átök milli Kína og Banda-
ríkjanna, og að Peking-stjórnin
telji ekki enn þá kominn tíma til
lausnar þeirrar deilu.
Johnson hefur, í gegnum ríkis-
stjórnir nokkurra kommúnista-
ríkja, komið þeim skilaboðum til
Peking og Hanoi, að Bandaríkin
setji engan ákveðinn frest, en þó
verði ríkisstjórnir þessara ríkja að
taka ákvörðun bráðlega um það,
hvort þær vilji friðarviðræður.
Bandaríska þingið kemur saman
eftir viku, og þar munu koma
fram kröfur um aukin útgjöld
vegna styrjaldarinnar í Víetnam
vegna hugsanlegrar útvíkkunar
styrjaldarinnar.
Wilson kallaði í dag sovézka
sendimanninn í London á sinn
fund og tilkynnti honum, að brezka
stjórain styðji friðarumleitanir
Bandaríkjanna, og er talið, að Wil-
son hafi sent Kosygin einkabréf,
þar sem lagt er til, að ný Genfar-
ráðstefna verði haldin um Víetnam.
Wilson hittir Kosygin í Moskvu
21.—24. febrúar n.k. og mun m.a.
ræða um Víetnammálið. Bretland
og Sovétríkin skiptu með sér for-
mannsstörfum á Genfarráðstefn-
I unni um Indókina árið 1954.
j Miklir bardagar voru í Suður-
j Vietnam í dag á hrisgrjónaekrun-
I um í Mekong-dalnum, og segir
bandarískur talsmaður, að Viet
Cong hafi mistekizt að ná í hrís-
grjónauppskeruna á þessu svæði og
misst marga menn, eða á annað
hundrað. Sagt er, að Viet Cong
hafi neytt bændur til þess að af-
henda sér hrísgrjónauppskeruna,
sem þegar er komin í geymslur,
en þá hófu Bandaríkjamenn og
stjórnarhermenn árás á Viet Cong-
menn og hröktu þá á flótta. Tára-
gas var m.a. notað. Köstuðu fall-
hlífarmenn, sem voru um borð í
þyrlum, táragasinu yfir stöðvar
Viet Cong-manna í því skyni að
hrekja þá upp úr felustöðum sín-
um, en það þar ekki tilætlaðan
árangur.
Guðmundsson og Valgeir Guð-
mundsson.
Félagið hlaut nafnið Máni, og er
því ætlað það hlutverk, að sam-
eina hestaeigendur um bætta að-
stöðu og einnig að vekja áhuga
Suðurnesjabúa almennt á hesta-
mennsku.
Ekki er enn afráðið, hvar að-
stöðu skal fá til byggingu hests-
húss, en hún mun víða vera mjög
góð hér í nágrenninu.
ÞÓR VALT
Framhald af 16. síðu.
Strax var hafizt handa um að
ná Þór á flot aftur, en það gekk
ekki sem bezt og í kvöld hafði það
ekki tekist Þrátt fyrir ítrekaðar
tllraunir.
Varðskipið Ægir fór á hliðina
í Slippnum í hitteðfyrra. einmitt
þegar verið var að taka bann upp,
og sömu sögu er að segja um afla
skipið Sigurpál. Er Þór því að
mínnsta kosti þriðja skipið sem
fer á hliðina í þessum sama drátt
arsleða, og virðist þetta vera lang
alvarlegasta tilfellið, þar sem ekki
er hægt að hreyfa skipið til né
frá.
Sjópróf munu væntanlega fara
fram í þessu máli eins og öðmm
skipsskaðamálum.
DAUÐALEIT
Framhald af 16. síðu.
Reykjalundi um hálfsmánaðar
tíma. Sást hann síðast Þar um
klukkan níu í gærkveldi, en þegar
hans var leítað þar um kvöldið
fannst hann hvergi, svo lögregl
unni var gert viðvart. Sporhund
urinn Bangsi úr Hafnarfirði var
fenginn til að leita mannsins. og
kom hann leitarmönnum á slóð-
ina. Jóhannes Briem hjá Slysav.
félagínu hafði stjóm leitarinnar
með höndum, og munu um 60
manns hafa tekið þátt i leitinni
Voru það piltar úr hjálparsveit
úm skáta úr Reykjavík og Hafn
arfirði og Björgunarsveit Ingólf.s
Maðurinn fannst svo látinn um
miðjan dag í dag.
534 ÚTKÖLL
Framhald af 16 síðu.
in var um minna tjón að ræða.
Sjúkraflutningar á árinu 1965
voru 7160 sem er mjög svipað og
á árinu 1964, þar af 556 slysaflutn-
ingar, sem er um 60 slysaflutning-
um fleira en 1964.
Þótt brunaútköll hafi verið
svona mörg á liðna árinu, þá hafa
tjón af völdum bruna ekki aukizt
að sama skapi.
EYJA ÚR SÆ
Framhald ar 16. síðu.
Þegar Sigurjón Einarsson
flugmaður flaug þarna yfir
í dag tók hann eftir því að
gosið við Surtsey hafði
aukizt mikið og gaus úr
tveim gígum, sem voru með
fimmtíu metra millibíli.
Aska og reykur komu úr
báðum gígum og auk Þess
hraunslettur úr þeim syðri.
Taldi hann eyjuna vera
orðna 100 metra langa og
50 m breiða. Eg hafði enga
aðstöðu til þess að fara og
kanna málið í dag og á morg
un er spáð roki svo ósenni
legt er, að flogið verði á
morgun. Það er ekkí ólík
legt að eyjan sökkvi, þegar
sjórinn fer að sleikja eyj
una óblíðlega í storminum.