Vísir - 22.02.1974, Side 1
64. árg. —Föstudagur 22. febrúar 1974. — 45. tbl.
„Blessaðir,
farið þið
að semja"
Þrir ráðherranna hafa varla
vikið úr Hótel Loftleiðum
siðustu daga. Þeirganga á milli
„viglina” og hvetja menn til að
semja. Hér er Lúðvik með
flokksbræðrum sinum, Eðvarð
Sigurðssyni og Snorra Jónssyni.
ASÍ felldi sáttatillöguna einróma
undirbýr nýja tillögu—hugsanlega lögð fyrir félögin
Flóðin í Þorlákshöfn:
Kjallarinn
fylltist á
klukkutíma
— baksíða
• •
Omurlegu
húsnœði
lokað!
„Án þess að ég vilji vera að
blúsa þetta mál nokkuð upp,
verð ég að segja, að húsnæð-
ið, sem við vorum að reka
fólkið út úr i Njarðvik á mið-
vikudaginn, er það ömurleg-
asta, sem Brunamálastofnun
in hcfur haft afskipti af,”
sagði Bárður Danielsson,
þegar Visir hafði tal af hon-
um i morgun. Tilefnið var
lokun fbúðarhúsnæðis sem
Karvel Ögmundsson út-
gerðarmaður hafði leigt út,
en dæmt var óibúðarhæft af
fjórum eftirlitsstofnunum
hins opinbera.
— Sjá bls. 3.
¥
Forsœtisráðherra
segir álit sitt
á undirskrifta-
söfnuninni
— sjá bls. 6
★
JÓLATRÉÐ,
SEM VILDI
EKKI DEYJA
Þessir brumsprotar eru
ekki á neinu venjulegu greni-
tré. Þeir eru nývaxnir á jóla-
tré sem var höggvið i Dan-
mörku einhvern tima i októ-
ber, og flutt hingað til landsv
Það bar jólaskraut um jólin,
og stóð i jólatrésfæti með
vatni i. En þá fór húsbóndinn
á hcimilinu að taka eftir svo-
litlu i sambandi við
tréð...Um það lesum við á
bls. 2
lögu sinni/ og var taliö, að
ný sáttatillaga kæmi frá
henni, þegar fundir byrja
aftur upp úr hádegi.
Hugsanlega lætur sáttanefnd
bera málamiðlunartillögu undir
almenna atkvæðagreiðslu i ein-
stökum félögum verkafólks og
vinnuveitenda, ef hún verður felld
af samningamönnum. Þó verða
aðrar leiðir þrautreyndar fyrst.
Tillaga sáttanefndar gekk út á,
að hin almenna kauphækkun yrði
1100 krónur á mann á mánuði til
viðbótar 7 prósent kauphækkun
strax og tvisvar sinnum 3 prósent
siðan á tveggja ára timabili.
Þetta er töluvert langt frá sið-
ustu tilboðum ASt, sem gengu út
á 1500 krónu hækkun á mann á
mánuði til viðbótar prósentu-
hækkun, söm yrði samtals 28% á
tveggja ára timabili.
I tillögu sáttanefndarinnar
felst, að lægsta kaup mundi
hækka um nálægt 19%, þegar
framangreind hækkun bætist við
tilfærslu taxta hjá þeim launa-
lægstu. Hjá öðrum yrði hækkun
þvi minni að hundraðshluta, sem
kaup þeirra er hærra, þar sem þá
verða 1100 krónurnar þvi minni
hækkun i prósentum og ekki um
að ræða færslur milli flokka.
Talsvert ber þvi enn á milli, og
timinn rennur út. Allsherjarverk-
fall er boðað á miðnætti næstkom-
andi. Þvi verður ekki frestað,
segja ASl-menn, nema þvi að-
eins, að búið verði að ná saman
þá en aðeins eftir að ganga
endanlega frá málum. Þá yrði
hugsanleg sólarhrings frestun
eða svo.
Helgarverkfall?
„Vonirnar minnka,” sagði
Björn Jónsson ráðherra um mið-
nættið. „Þó er ekki útséð um mál-
in. Menn eru að vona að verði
verkfall þurfi það ekki að standa
nema um helgina.”
VR-menn voru kampakátir og
sögðu, að vel hefði unnizt i þeirra
málum i gær. Þeir eru nú mikið
einir á báti i samningunum og
taldi Magnús L. Sveinsson og
Guðmundur Garðarsson, að það
hefði gefið góða raun.
Þrir ráðherranna, Björn, Hall-
dór og Lúðvik eru nær öllum
stundum á Hótel Loftleiðum og
reyna að koma endunum saman.
„Við höldum, að við látum gott af
okkur leiða,” segir Björn Jóns-
son.
Sáttasemjurum fjölgar stöðugt,
og eru þeir nú orðnir sex.
—HH
Samninganef nd ASI
felldi einróma um mið-
nættið tillögu sáttanefnd-
ar, og fundir stóðu til
morguns. Sáttanefndin
vann að því að breyta til-
Og Þorbjörn togaði í Þorbjörn....
— Björgunarsveitin Þorbjörn var ekki kvödd á staðinn
Báturinn Þorbjörn frá
Grindavik strandaði I
innsiglingunni þar i nótt, er
hann var að leggja upp i
linuróður. Þorbjörn annar gerði
tilraunir tilaðná honum út, en
festist lika og gat sig ekki hreyft
dágóða stund. Aldrei kom þó til,
að björgunarsveitin Þorbjörn
yrði kölluð út.
„Klukkan var rétt rúmlega
fjögur i nótt, þegar ég var
vakinn upp með fréttunum af
strandi Þorbjarnar,” sagði
Tómas Þorvaldsson út-
gerðarmaður i viðtali við Visi.
„Ég fór á staðinn og fylgdist
með björgunaraðgerðum Þor-
bjarnar II, hélt Tómas áfram.
„Bátinn hafði borið upp i grjótið
og það fjaraði mjög íljótlega
undan honum. Hann stóð að lok-
um á þurru og þvi litið hægt áð
gera annað en að biða eftir flóð-
inu i kvöld.”
Björgunarskipið Goðinn er
komið á vettvang og mun
freista þess að ná Þorbirni út.
Ekki var búið að kanna
skemmdirnará bátnum, en þær
munu hafa orðið óverulegar.
Skipverjarnir á Þorbirni
hafa hafzt við um borð. Veður
hefur verið gott þar syðra og
litil hætta á að báturinn laskist
meira en orðið er. -ÞJM.
Skipsstrand í nótt:
Þannig stóð Þorbjörn á þurru við innsiglinguna I morgun. Búizt er
við, aðhann náist út aftur á flóöinu i kvöld. — Ljósm.: Visis BG.
Hvað stöðvast í verkfalli ?
— miklar líkur eru á allsherjarverkfalli — og þar með þurrð á neyzluvörum
Líkur eru á verkfalli
frá og meö miðnætti í
nótt.
Ef til þess verkfalls
kemur, er naumast um
annað að ræða en alls-
herjarverkfall.
Svo til öll félög innan ASt
standa að verkfallsboðun,
þannig að lif manna verður að
taka allmiklum breytingum um
helgina, ef til verkfalls kemur.
Bensinstöðvar loka, svo og
verzlanir sem selja nauðsynja
vöru, svo sem mjólk.
Mjólk verður ekki flutt til
þéttbýlissvæða, þvi mjókur-
fræðingar, bilstjórar og fleiri
aðilar, sem við mjólkina vinna,
verða i verkfalli.
Verzlunarmenn eru nú þegar i
verkfalli, en margar búðir eru
þó opnar, þar eð eigendur geta
gegnt störfum afgreiðslufólks.
Með allsherjarverkfalli er hætt
við, að erfiðara verði um útveg-
un á varningi frá heildsölum og
innflutningsaðilum, þannig að
vörur hlýtur að þrjóta snemma
i búðum.
Dagblöðin halda áfram að
koma út, ef að likum lætur, þvi
prentarar klufu sig frá ASI-
blokkinni, og hafa ekki enn boð-
að verkfall, hvað sem verður.
Hugsanlega lenda dagblöðin
þó i erfiðleikum með að pakka
blöðum og dreifa.
Samgöngur leggjast að mestu
niður m.a. vegna lokunar
bensinstöðva. Sjúkrahús hljóta
að lenda i miklum erfiðleikum,
þvi allt hreingerningafólk er inn
an vébanda ASt.
Vitanlega er útilokað að segja
fyrir um, hve lengi verkfall
muni standa, og einnig er vont
að sjá fyrir allar afleiðingar
allsherjarverkfalls, þar eð þær
koma ekki þegar i stað i ljós all-
ar, en við verðum bara að vona,
að samningar takist i dag, eða i
siðasta lagi um helgina.
— GG.