Vísir - 22.02.1974, Page 3
Visir. Föstudagur 22. febrúar 1974.
3
Kópavogur:
TÖLUVERÐAR
BREYTINGAR í
EFSTU SÆTUM
D-USTANS
Töluverðar breytingat- hafa
orðið á framboðslista Sjálfstæðis-
manna i Kópavogi frá þvi, er var i
siðustu kosningum. Axel Jónsson
bæjarfulltrúi fer nú í „baráttu-
sætið” á listanum, hið fjórða.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk i sið-
ustu kosningum 1521 atkvæði og 3
menn kjörna.
í 1. sæti er Sigurður Helgason
hæstaréttarlögmaður, sem verið
hefur bæjarfulltrúi, en nýir menn
koma i 2. og 3. sætið. Richard
Björgvinsson viðskiptafræðingur
er i öðru sæti og Stefnir Helgason
framkvæmdastjóri i þriðja sæti.
Eggert Steinsen verkfræðingur,
sem var kjörinn fulltrúi siðast, er
nú ekki á listanum.
t siðustu kosningum fékk
„Félag óháðra kjósenda og Al-
þýðubandalagið” 1252 atkvæði og
2 menn kjörna. Framsókn fékk
881 atkvæði og 2 fulltrúa. Hanni-
balistar fengu 615 atkvæði og 1
mann, og Alþýðuflokkurinn 493
atkvæði og 1 mann.
Listi Sjálfstæðismanna er
þannig: 1. Sigurður Helgason
hæstaréttarlögmaður, 2. Richard
Björgvinsson viðskiptafræðingur,
3. Stefnir Helgason fram-
kvæmdastjóri, 4. Axel Jónsson
bæjarfulltrúi, 5. Bragi Michaels-
son húsgagnasmiður, 6. Helgi
Hallvarðsson skipherra, 7. Árni
Örnólfsson rafvirki, 8. Ingimund-
ur Ingimundarson bifreiðarstjóri,
9. Kristófer Þorleifsson cand.
med., 10. Ásthildur Pétursdóttir
húsfreyja, 11. Guðmundur Gisla-
son bókbindari, 12. Erlingur
Hansson fulltrúi, 13. Guðfinna
Helgadóttir nemi, 14. Kristinn
Skæringsson skógarvörður, 15.
Torfi Tómasson framkvæmda-
stjóri, 16. Ólafur E. Einarsson
framkvæmdastjóri, 17. Björg
Pétursdóttir húsfreyja, 18. Stein-
ar Steinsson tæknifræðingur. 19.
Sigurður Steinsson framkvæmda-
stjóri, 20. Ólafur St. Sigurðsson
héraðsdómari, 21. Jósafat Lindal
sparisjóðsstjóri, 22. Kjartan J.
Jóhannsson héraðslæknir.
Prófkjör fór fram, en röðin á
listanum er ekki alveg hin sama
og úrslit þess.
—HH
Þjóðverjar
senda fleiri
eftirlits-
skip hingað
segir þýzkt blað
Þjóðverjar ætla að senda
fleiri eftirlitsskip á Islandsmið
og auka „verndina” á
togurum sinum, segir vestur-
þýzka blaðið VDI
Nachrichten.
Blaðið segir, að matvæla-
ráðuiieytið i Bonn ætli enn að
taka á leigu tvo togara og láta
breyta þeim i eftirlitsskip.
Málið sé i nefndum þingsins,
og kostnaður verði 6,3 millj-
ónir marka, sem eru riflega
220 milljónir islenzkra króna.
Blaðið segir, að aðgerðir
islenzkra varðskipa gegn
þýzkum skipum hafi aukizt
mikið siðan i júli 1973, og þvi
þurfi að fjölga eftirlitsskipum
frá þvi, sem þá hafi verið.
—HH
„Ekki er ég
verkfalls-
brjótur"
„Við erum engir verkfalls-
brjótar hér hjá bílaleigu Loft-
leiða”, sagði Kristján G.R.
Tryggvason, forstöðumaður bila-
leigunnar, en verkfallsverðir
V.R. sögðu Vísi í gær, að þeir
hefðu vakandi auga á téðri bila-
leigu vegna hugsanlegra verk-
falisbrota þar.
„Við vinnum hérna þrír. Tveir
okkar eru i V.R. og þeir vinna
ekki”, sagði Kristján, „ég er hins
vegar forstöðumaður bilaleig-
unnar, og ég er ekki i V.R. Þess
vegna get ég alveg unnið hér einn
— þótt erfitt sé.
Það kæmi aldrei til greina, að
ég færi að bendla mig eða fyrir-
tækið við verkfallsbrot. Vesenið
út af þessu er nóg fyrir”.
Kristján vildi koma þessari
yfirlýsingu á framfæri vegna
ummæla verkfallsvarða V.R. i
Visi á miðvikudaginn.
-GG
„Út með alki íbúana
fyrír klukkan tólf"
— þrjátíu íbúar í bragga í Keflavík settir út í fyrradag
að skipan fjögurra
eftirlita hins
opinbera
. ,,Það verða allir að
vera fluttir úr þessum
húsakynnum fyrir klukk-
an tólf á'mlðnætti næsta
miðvikudags," var
ákveðin skipun, sem
Karvel Ögmundssyni út-
gerðarmanni J Keflavík
var gefin, þegar ýmsir
eftirlitsmenn hins opin-
bera höfðu skoðað bragga
við Borgarveg í Njarðvík-
um sem Karvel á og leigði
sem íbúðarhús.
Eftirlitsmenn frá ekki færri
en fjórum aðilum hins opinbera
úrskurðuðu braggann óhæfan
sem ibúðarhúsnæði og gáfu
ofangreinda skipun. Voru það
eftirlitsmenn frá rafmagnseft-
irlitinu, byggingareftirlitinu,
heilbrigðiseftirlitinu og eld-
varnaeftirlitinu.
Börnin syðra kalla þessa braggaþyrpingu gjarnan „draugaborg-
ina”. Þarna var mannabústaður þar til siðastliðinn miðviku-
dag. ..
Sjálfur fær Karvel ekki séð,
að neitt sé athugavert við
braggann, en þar hafði hann
innréttað átta ibúðir, og var bú-
ið I þeim öllum, þegar fyrr-
nefndir eftirlitsmenn gripu inn i
málið.
Þarna voru samtals um 30
manns á öllum aldri, og voru
það bæði Færeyingar og Banda-
rikjamenn.
„Hér sérðu pappirana frá þessum herrum.” Og Karvel
ögmundsson (t.v.) sýnir fréttamanni VIsis, Magnúsi Gíslasyni,
fyrirskipanir embættismannanna.
Það, sem húsnæðinu var helzt
fundið til foráttu af hálfu eld-
varnaeftirlitsins, var það,
hversu gluggar eru fáir, en þeir
eru ekki manngengir. Þá eru
aðeins einar litlar dyr i hvorri
álmu, en ibúðirnar eru fjórar á
tveim hæðum i hvorum enda
braggans. Er augljóst, að það
gæti orðið miklum erfiðleikum
háð að komast út úr braggan-
um, ef eldur kæmi þar upp.
„Maður frá heilbrigðiseftirlit-
inu skoðaði hér húsakynnin fyr-
ir nokkuð löngu siðan og fann
þá ýmislegt að, sem ég svo bætti
strax úr,” sagði Karvel i stuttu
spjalli við fréttamann Visis i
fyrradag. „Ég var lika búinn að
mála allt i hólf og gólf og gera
ýmsar aðrar lagfæringar, sem
bættu útlitið. Það er viða óþrifa-
legra en hér.”
— ÞJM/EMM.
Tveir ibúar braggans flytja út.
Þeir vildu engu svara spurning-
um Visis.
Ovarkárir spreng-
ingamenn
— sleppa yfirbreiðslum á sprengistaði til að spara tíma
Framrúða I bil sprakk i fyrra-
dag, er stór steinn lenti á rúðu-
karminum. Ástæðan fyrir stein-
fluginú var sú, að i 130 metra
fjarlægð voru menn að sprengja
klappir.
Þeir höfðu sleppt þvi að
breiða yfirbreiðslur yfir
sprengistaðinn, og þvi fór svo að
grjótflug var i allar áttir. Þetta
var i nýja hverfinu i Breiðholti.
Að sögn lögreglunnar i
Árbæjarhverfi, þá kemur það
iðulega fyrir að sprenginga-
menn sleppa þvi að breiða yfir-
breiðslur yfir sprengistaðina.
Það er lögreglustjóri á hverj-
um stað, sem sér um að veita
sprengingaleyfi, og þá um leið
að svipta menn þeim.
„Það kemur mjög oft fyrir að
fólk hringir hingað vegna
sprengingamanna sem fara
ógætilega”, sagði Vilberg
Helgason, öryggisskoðunar-
maður hjá öryggiseftirlitinu, i
viðtali við blaðið.
„Við visum öllu sliku til lög-
reglunnar. Við getum ekkert
eftirlit haft með þessu, þar sem
það er annar aðili sem sér um
veitingu leyfanna”.
Vilberg sagði, að þeim
öryggiseftirlitsmönnum virtist
sem þekkingu hjá sprenginga
mönnum virtistyoft ábótavant.
Iðulega er kvartáð til öryggis-
eftirlitsins út af slikum mönn-
um.
„Þar sem verktakar eru að
vinna við sprengingar, vill
stundum brenna við að menn
sleppi að breiða yfir sprengi-
staðinn til að spara tima. En
þeir ættu að reyna að fara ekki
hraðar en það, að þeir fari ekki
yfir i eilifðina”, sagði Vilberg
að lokum. óH.
GJAFAVÖRUR
í mjög miklu úrvali
★
OPIÐ TIL KL. 7
4 TÉKK - KRISTALL
Skólavörðustig 16 simi 13111