Vísir - 22.02.1974, Page 8

Vísir - 22.02.1974, Page 8
8 Visir. Föstudagur 22. febrúar 1974. íslandsblað hjá Courier Febrúarhefti timarits Menn- ingarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Unesco Courier, er að mestu leyti helgað Islandi. Er þetta gert i tilefni af 1100 ára af- mæli byggðar landsins. Rit þetta kemur út á 15 tungumálum, og er heildarupplag þess hátt á fjórðu milljón eintaka. Er vart hægt að hugsa sér betri landkynningu, enda fer ritið mest i hendur manna, sem sifellteru á ferðinni. Ýmsir þekktir tslendingar leggja blaðinu til efni og myndir. HVER ER SINNAR ÆFU SMIÐUR 0SAMVINNUBANKINN Þá byrjar ballið aftur... í byrjun vikunnar eyddu margir dýrmætum tima við bensin- stöðvar landsins i biðröð, sem virtist næstum endalaus. Þá átti verkfall að koma til fram- kvæmda. Enn stendur þjóðin frammi fyrir verkfallshættunni — á miðnætti i nótt á verkafall að skella á og fari svo að verkfall verði, þá verður ekki deigan dropa að fá á bensinstöðvum nema fyrir þá ljónheppnu, sem ganga með undanþágukort upp á vasann, en þau eru venjulega gefin út af verkfallsstjórnum til þeirra, sem nauðsynlega eru taldir hafa þörf fyrir slikt. Hjúrkunarnámið verður endurskoðað Frumvarp til laga um hjúkrunar- nám á að leggja fyrir næsta reglulega alþingi, en tillögur eiga þá að hafa borizt nægilega snemma til menntamálaráðu- neytisins frá nefnd, sem skipuð hefur verið til að endurskoða gildandi löggjöf um nám hjúkrunarfólks. 1 nefndinni eiga sæti borbjörg Jónsdóttir, skóla- stjóri Hjúkrunarskóla tslands, sem er formaður, læknarnir Arin- björn Kolbeinsson og Snorri Páll Snorrason, skipaðir skv. tilnefn- ingu háskólans, Elin Eggerz Stefánsson, hjúkrunarkona, skv. tilnefningu H júkrunarfélags tslands, Ingibjörg Magnúsdóttir, deildarstjóri, skipuð af heii- brigðisráðuneytinu og Sigurður H. Jónsson, hjúkrunarnemi, samvk. tilnefningu Hjúkrunar- nemafélags Islands. & HEIMDALLU SAMTÖK U'NGRA SJÁLFST/EÐISMANNA í REYKJAVÍK Stefnuskrárróðstefna Heimdallar, seinni hluti Heimdallur, samtök ungra sjálfstæðismanna, efnir til siðari hluta ráðstefnu um stefnuskrá Heimdallar á Hótel Loftleiðum (Leifs- búð) föstudaginn 22. febrúar, kl. 17:30. Lagðar verða fram álitsgerðir eftirtalinna starfshópa: 1. Starfshópur um þjóðmál. Málshefjandi: Pétur Kr. Hafstein. 2. Starfshópur um utanrikismál. Málshefjandi: Jón Magnússon. 3. Starfshópur um menntamál. Málshefjandi: Gústaf Nielsson. 4. Starfshópur um borgarmál: Málshefjandi: Gunnar Hauksson. 5. Starfshópur um skipulagsmál Heimdallar. Málshefjandi: Jón Zoé’ga. 6. Starfshópur um Sjálfstæðisstefnuna. Málshefjandi: Kjartan Gunnar Kjartansson. Álitsgerðir starfshópanna liggja frammi fjölritaðar á skrifstofu Heimdallar, Siðumúla 8 og á ráðstefnunni. HEIMDALLUR S.U.S. „Blésu þeir í sönglúðra..." Þessir snaggaralegu lúðra- þeytarar eru úr Kópavogi, til- heyra lúðrasveit skólanna þar og hafa oftlega vakið athygli fyrir góðan hljóm. Eflaust eiga mörg þessi ungmenni eftir að láta enn frekar að sér kveða annaðhvort sem einleikarar eða góðir liðs- menn hljómsveita. Kaffistofu lokað/ — nem- endur sátu þar að spilum Skólastjóri Iðnskólans i Reykjavik hefur látið loka kaffi- stofu nemenda skólans að þvi er segir i nýútkomnu hefti af Iðn- nemanum. Ástæðan segir blaðið, að sé talin sú, að nemendur hafi setið þar að spilum i stað þess að sækja tima. Segir blaðið þetta fá- sinnu. „Stundaskrá skólans er svo gloppótt og mætingar kennara svo stopular, að iðulega verða nemendur að eyða óeðli- legum tima þar upp frá og er þá ekki verra að hafa einhvern samastað, þó ekki sé nema til þess að menn geti leyft sér þann munað að vera þyrstir”. Segir Dlaðið óánægju nemenda vegna lokunarinnar á kaffistofunni mjög megna. Námsmenn hræöast söluskattshækkun t þeim hópi fólks, sem ekki óttast háa tekjuskatta, er námsfólkið. I ályktun stjórnar stúdentaráðs frá i fyrradag segir m.a.: ,,t þessu sambandi getur verið um geysi- lega hagsmuni islenzkra náms- manna að ræða. Svo sem al- kunnugt er orðið, munu náms- menn, samkvæmt þeim nýju hug- myndum um skattakerfi lands- manna, sem nú eru i deiglunni, greiða 5 stigum hærri söluskatt en ella, en hljóta upp til hópa engar ivilnanir frá tekjuskatti, vegna þess að hann er oftast enginn”. Telur stjórn SHt að ekki sé unnt að leysa skatttilfærslur þessar nema i samráði við samtök námsmanna hér á landi. HJONARUM Vorum að fá ný hjónarúm úr álmi, mahogny og palesander Falleg og vönduð rúm BÚSLÓÐ Borgartúni 29 - Sími 18520

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.