Vísir


Vísir - 22.02.1974, Qupperneq 12

Vísir - 22.02.1974, Qupperneq 12
12 Visir. Föstudagur 22. febrúar 1974. Geir R. Andersen: Vanefndir og vöruskortur Eru fréttatilkynningar um viðskiptaþvinganir staðleysa? 1 grein undirritaðs þ. 14. jan. ,sl. var vikift litillega að orku- og oliumálum og þeim vanda, sem við munum eiga við að etja i framtiðinni i þeim málum. Þar sagði m.a. „Við skyldum ekki halda, að þrátt íyrir hinn marglofaða oliusamning við Rússa, sem gerður er af núver- andi stjórnvöldum til þess að fá eins konar (h)rós i hnappagatið frá almenningi, sé allri hættu bægt frá. Hvenær sem er, getur verið klippt á þennan samning, og vist er um það, að við fylgj- um i öllu eftir venjulegu heims- markaðsverði á olium og ben- sini við hverja hækkun þess”. Ekki þurfti lengi að biða. Hinn 8. þ.m. var fregnum frá hinum þekktu fréttastofum NTB og UPI dreift til fjölmiðla um, aö Sovétstjórnin hygöist beita is- lendinga takmörkunum á af- hendingu umsamins oliumagns, ef bandariska varnarliðið yrði ekki látið fara af landinu. Einnig var i sömu fregnum látið að þvi liggja. að sú tregða, sem Sovétmenn hafa sýnt íslending- um gagnvart áframhaldandi kaupum á islenzkum útflutn- ingsvörum, væru runnin undan sömu rótum. Mismunandi skýring- ar: Ekki höfðu ofannefndar frétt- ir fyrr birzt i islenzkum blöðum en tveir ráðherrar okkar gáfu yfirlýsingar um, að fregnir um rússneskar hótanir af þessu tagi væru ,,markleysa” og ,,allt úr lausu lofti gripið”. Einn ráð- herrann kvað þessar fregnir staðlausar og sagði, að slikar staðhæfingar væru aðeins til þess lallnar að skaða hin þýð- ingarmiklu oliuviðskipti við Rússa. Utanrikisráðherra fullyrti (i Timanum 9. feb. sl.), að ,,engin slik hótun hefði borizt frá Rúss- um, hvorki fyrr né siðar, — en sá dráttur, scm orðið hefði á af- greiðslu oliunnar stafaði af tæknilegum ástæðum”,og enn- fremur, að ,,óvitað væri með öllu, hvernig þessi flugufregn hefði komizt á kreik.” Við- skiptaráðherra fullyrti hins vegar á blaðamannafundi dag- inn eftir. að „engar glöggar skýringar á þessum drætti liefðu komið fram af hálfu Kússa”. En einkennilegustu ummælin, sem islenzkum fjölmiölum bár- ust (einnig frá NTB) varöandi það að bera fréttina til baka, voru höfð eftir sendiherra okkar i Washington. Hann upplýsti, aö „þessi frétt ætti við cngin rök að styðjast, oliuflutningnum frá Sovétrikjunum hefði seinkað á siðustu mánuðum, en orsökin væri einungis tæknileg”. Hér virðist þvi komin sú skýr- ing, sem vantaði svo sárlega, þegar hérlendir blaðamenn gengu eftir nánari upplýsingum frá islenzkum ráðherrum. Sendiherrann fullyrti sem sé, að fréttin ætti viö engin rök aö styðjast, hvernig svo sem fjöl- miðlum og þar með almenningi gengur að kyngja þeim rök- semdum. Staðleysur fréttastota — Iláðherraskýringar: Hver er þá skýringin á þvi, að þekktar og virtar fréttastofur birta og dreifa slikum fréttum, ef engin heimild er fyrir þeim? Áróður, myndu einhverjir segja, hreinn áróður. Reyndar hafa islenzkir ráðherrar þegar fullyht, að tittnefnd frétt sé „markleysa” og „staðleysa” og undir venjulegum kringum- stæðum ættu vist slikar fullyrðingar opinberra ráða- manna að gilda sem endanleg niðurstaða. En þvi miður er ekki um venjulegar kringumstæður að ræða i þetta skipti. tsland hefur um alllangt skeiö verið áhrifa- rikur vettvangur fréttnæmra atburða fjölmörgum fréttastof- um viöa um heim. Fyrst var þaö eldgosið i Vestmannaeyjum og sú uppbygging og aðstoð, sem önnur riki urðu aðilar að, þá landhelgisdeilan og sú barátta eða kalt strið, sem háð var hennar vegna bæði á opnu hafi og i ráðstefnusölum, og nú sið- ast vegna hinnar ósammála afstöðu islenzku rikisstjórnar- innar i varnarmálunum, og sem gert hefur okkur að viðundri i hinum vestræna lýðræðisheimi. Það er þvi vel skiljanlegt og eðlilegt. að erlendar fréttastofn- anir, sem hafa á að skipa hundr- uðum sérfræðinga i hinum ýmsu málefnum, fylgist náiö með sér- hverju máli, sem upp kemur og forvitnilegt þykir eða fréttnæmt er, og reyni með aðstoð sér- fræöinga sinna að finna orsök fyrir og samhengi á milli hinna ýmsu atburða, sem i gangi eru. Þess vegna er það harla óliklegt, þegar á allt er litið, að forsendur lyrir þeirri fregn, sem fréttastofurnar NTB og UPI dreifðu til fjölmiðla. og þeirri fregn, sem birtist i þvi þekkta timariti Newsweek um. að varnarmál lslands og við- skipti þess við Sovétrikin séu samtvinnuð, hafi ekki verið rannsakaðar gaumgæfilega af sérfræðingum þessara frétta- miðla. En jafnvel, þótt engin frétt hefði birzt frá erlendum frétta- stofum um tengsl milli varnar- mála tslands og viðskipti þess við Sovétrikin, fer ekki hjá þvi, að þetta samhengi er mörgum ofarlega i huga, ekki sizt þegar þær aðstæður hafa skapazt i reynd, að sala á fiskafurðum til Sovétrikjanna er öll i óvissu, — og vanefndir hafa orðið á af- greiðslu oliu frá Rússlandi. Tilgangslaust er þvi með öllu fyrir islenzka ráðherra að koma þvi inn hjá almenningi, að um þessi mál megi ekki ræða, þvi það geti haft hættulegar afleiöingar fyrir okkur.með til- liti til oliuviðskipta okkar við Rússa! Ef svo væri komið, mætti likja aðstööu okkar og möguléikum til frjálsra viðskipta viö Finna, sem i reynd eru orðnir mjög háðir Sovétrikj- unum, svo sem alkunnugt er, og nægir að nefna f þvi sambandi afturkipp Finna um aðild þeirra að NORDEK, efnahagssam- starfi Norðurlandaþjóða, vegna tilstuðlan Rússa. Enn sem komið er, munu þvi ráðherraskýringar vinstri- stjórnarmanna á lslandi ekki duga landsmönnum. varðandi það, hvernig tala eigi eða hvernig túlka skuli einstaka þætti efnahagslifs landsmanna. Þeir munu telja sig frjálsa að bollaleggja um þá hluti i ræðu og riti, óþvingað og tæpitungu- laust. Vöruskipti eöa frjáls verzlun? Það hefur komið i ljós af við- skiptum okkar við Rússa og Austur-Evrópu, aö vöruskipta- verzlun við þær þjóðir eru okkur ekki hagstæð. Þaö er þvi ærin ástæða að huga að þvi, hvort við getum ekki losað okkur undan áðurnefndri vöruskiptaverzlun með þann hluta útflutnings- verðmæta okkar, sem henni er háð. og beina viðskiptum meira til nálægra þjóða i Vestur- Evrópu og Bandarikjanna. Þar sem öll okkar viðskipti viö Sovétrikin eru byggð á vöru- skiptaverzlun, eru það ekki þeir verzlunarhættir, sem bjargað hafa þjóðarbúi okkar og efna- hagslifi á siðustu árum, heidur sú staðreynd, að mikii verð- hækkun hefur orðið á fiskafurð- um okkar i Kandarikjunum og Vestur-Evrópulöndum eða þeim löndum, sem hafa svipaða stefnu og við i verzlunarrétti. Liftaug islenzks efnahagslifs svo og utanrikisverzlunar landsins er tengd þeirri for- sendu, að verzlunarlög þeirra þjóða, sem við skiptum við, séu sem likust. Það gilda ekki sömu lögmál i vöruskiptaverzlun og frjálsri verzlun. Nú hafa orðið vanefndir á af hálfu Rússa viö afgreiðslu til fslands á oliu þeirri, sem pöntuð haföi verið samkvæmt vöruskiptasamning- um. Slikur afturkippur þarf engum að koma á óvart, þegar tekið er tillit til þess, að Sovét- rikin hafa lengi átt við gjald- eyrishungur að etja eins og við, en standa þó vel að vigi með eftirsótta vöru.þar sem er olian, sem getur gefið þeim miklar tekjur i beinum gjaldeyri, hvar sem er á hinum frjálsa markaði Vestur-Evrópu. Samningar um áframhaldandi vöruskipti (olia — fiskur) við fsland eru þvi ekkert sérstaklega eftirsóknar- verðir frá þeirra sjónarmiði, eins og nú stendur á. Dæmið um tregðu Rússa til nýrra fisksölu- samninga við fslendinga er áþreifanlegt i þessu sambandi, og gætiorðiðþaðsvoum munar, ef málin taka ekki aðra stefnu von bráðar, ekki sizt þar sem islenzkt efnahagslif er svo viðkvæmt fyrir vanefndum á oliuafgreiðslu einmitt nú. Einnig má hafa i huga, að það eru fleiri riki i Evrópu, sem finnst þau eiga tilkall til umframoliumagns Rússa, ekki hvaðsizt þau lönd, sem beinlinis eru i tengslum við þá eins og öll Austur-Evrópurikin. Það er þvi sannarlega timi til kominn, að fslendingar reyni eftir megni að ná fastara sambandi við Bandarikin, svo og næstu nágrannariki i Vestur-Evrópu með tilliti til langtima viðskipta um allar útflutningsafurðir okkar. Atburðir siðustu vikna og daga hafa ekki dregiö úr mikilvægi þess. að slikar tilraunir verði gerðar svo fljótt, sem verða má. Enginn getur sagt um, hvenær muni verða orðið of seint að gera slikar tilraunir, en mikið skal til mikils vinna, og l'rjáls verzluner eitt af þvi, sem verður að telja undirstöðu fyrir tilveru þessarar þjóðar. Eöa er ef til vill svo komið nú þegar. að sendiráð erlendra rikja hérlendis geta koinið i veg fyrir með mótmælum einum saman, að við tökum upp aðra verzlun- arhætti, likt og reynt hefur verið varðandi tal- og hugsunarhætti? „Beðið eftir nauðsynjum. Þurfum viö að búast við siikum aðstæð um i framtiðinni? SLAGUR UNl VINSÆLDIR MILLI SINATRA, MINELLI OG PRESLEY & Elvis Fresley — hefur lítið breytzt i tiu ár — samt alltaf vinsæll Sinatra — veiktist eftir drykkju- veizluna Það eru engar smástjörnur, sem skína við aðalgötuna i Las Vegas þessa dagana. Idza Min- elli, Elvis Presley og Frank Sinatra syngja þar og skemmta kvöld eftir kvöld með aðeins nokkur hundruð metra miilibiii. Slagurinn stendur milli þessara þriggja um að draga að sér tilheyrendur. Hingað til hef- ur þá ekki skort, og kvöld eftir kvöld er útúrfullt á öllum stöð- um. Vinsælust er þó Liza Minelli, enda er hún nýtt nafn á staðn- um. Sinatra hefur sungið og trallað þarna i áratugi og Presley i tiu ár. Presley skemmtir á Hilton hótelinu, og þykir mönnum sýning hans og söngur likur þvi sem verið hefur undanfarin ár. Sinatra hefur mörgum sinnum haldið lokaskemmtanir eftir yfirlýsingar um að hætta nú i „sjóbisniss”. Hann hættir þó ekki. Eftir frumsýninguna á „sjói” sinu. hélt hann heljar- mikið trall. Til að skapa meira umtal um trallið lét hann dóttur sina Tinu og tónlistarmanninn Wes Farrell giftast á staðnum þá um nóttina. Daginn eftir var hann svo fárveikur eftir allt hafariið. SNOWDON SEM ÞJONN TIL AD VINNA VEDMÁL Snowdon lávarður, sem er giftur Margréti Englands- prinsessu, „sjokkeraði” marga finu frúna i New York á dögun- úm. Ilann kom i stóra og fina veizlu, sem haldin var i góðgerðarskyni. Þar var fínasta fólkið samankomið. Snowdon kom hins vegar i veizluna sem þjónn og starfaði sem slikur allt kvöldið ásamt vini sinum. — Þetta byrjaði á þvi að ég hitti blaðamanninn Susie Knickerbocker, sem skrifar um fina fólkið fyrir New York blöðin. Hún vildi ekki trúa þvi, að ég hefði verið i viku i Detroit án þess að þekkjast. Við veðjuð- um áttatiu pundum um það, að ég gæti gert hvað sem er i New York án þess að þekkjast,” segir Snowdon. Hann fékk starf sem þjónn, og einnig vinur hans Peter Schub. sem er ljósmyndari. Og þeir stóðu sig svo vel i þjónsstarf- inu, að margir gestanna hringdu daginn eftir i Jane Langley, sem hélt veizluna, og þökkuðu henni fyrir sérlega góða þjónustu. „Ég sagði þeim þá frá, hverjir höfðu þjónað, og það lá við, að liði yfir margar frúrnar,” sagði Jane. Snowdon vann veðrnálið og gaf peningana til þeirrar vel- gjörðarstarfsemi, sem veizlan var haldin fyrir. Til að þekkjast ekki breytti Snowdon útlitinu aðeins. Hann skipti hárinu í miðju og setti á sig litil gleraugu. Hann og Peter Schub töluðu svo enskuna með frönskum hreim. — Þetta er eitthvert skemmti- legasta kvöld, sem ég hef átt, saeði Snowdon. V Snowdon — skipti i miðju og setti upp gleraugu til að verða óþekkjanlegur.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.