Tíminn - 13.01.1966, Qupperneq 12

Tíminn - 13.01.1966, Qupperneq 12
/ 12 TÍMiMN FIMMTUDAGUR 13. janúar 1966 þá tillögu verður. q,- vJg ' mm m i ' j Landsmót skáta aí HreSavatni Landsmót skáta verður hald ið að Hreðavatni í Borgarfirði dagana 25. júlí til 1. ágúst 1966. Búizt er við miklum fjölda þátttakenda, bæði ínn- lendra og erlendra skáta. Þar á meðal verða hópar frá Norð urlöndum, Bretlandseyjum, Bandaríkjunum og Kanada auk minrii hópa frá meginlandi Evrópu, í allt líklega 200—300 erlendir skátar. Undirbúningur að mótinu er þegar í fullum gangi, enda í mörg horn að líta, þegar undírbúa skal jafn fjöl mennt mót. Þarna verða skátar á öllum aldri, frá hinum yngstu er lokið hafa nýliðaprófi til hinna elztu. Til þess að gera eldri skátum og fyrrverandi skátum hægara um vik, verða staðsettar fjölskyldubúðir á mótinu þar sem þeir geta dval ist með fjölskyldu sinni lengri eða skemmri tíma. í því sam bandi verður Þarna líka leikvöll ur með fjölda leiktækja fyrir yngstu mótsgestina. Mótsstjóri verður Ingólfur Ár- mannsson. 75 ára í dag SVHNN HALLDORSSON leikari, Kópavogi Flestum mun svo finnast, sem til þekkja, að fullvegið væri fram- lagið hans Sveins okkar Halldórs- sonar til leiklistar með þvi, sem hann hafði snarað á vogirnar hjá þeim Bolvíkingum og síðan nábýl- ingum okkar í Garðinum. Að stóra verkið og ævistarfið væri þegar unnið, er hann settist að hér í Kópavogi. Sagðar hafa mér verið sögur af því, þvílíkur risi Sveinn hafi verið til verka og sköpunar fyrr á árum, að hefði ég ekki Nýtt blað um tízkuna á Norðurlöndum FB—Reykjavík, miðvikudag. Nýtt blað Scandinavian Fashi- ons hefur hafið göngu sína. Blað- inu, sem skrifað er bæði á ensku og norðurlandamálunum er ætlað að veita upplýsingar á sviði fata- tízkunnar á Norðurlöndum og verði til þess að auka útflutning á tízkuvörum frá Norðurlöndun- um til annarra landa. Scandinavian Fashions á að koma út 1. marz, 1. júní, 1. sept- ember og 1. desember og er upp- lagi þess ætlað að vera 15.200 ein- tök. Ritstjóri og ábyrgðar maður er Heidi Nielsen, en útgefandi Fashion Press í Kaupmannahöfn. Blaðið er offsetprentað í fjórum litum, og mjög vandað að sjá. áeinna reynt sannleika þessa í kynnum við leikarann Svein Hall- dórsson hefði mér verið næst að halda, að þverbrestur væri í sög- unni. Á öndverðu árinu 1957 er Leikfélag Kópavogs stofnað. Frá þeim degi og til þessa er Sveinn virkur félagi í því. í stjórn hefur hann setið löngum. Öll störf hans sem stjórnar- manns hafa verið til mikillar bless unar og góðs. Sveinn Halldórsson er, ásamt frú Huldu Jakobsdótt- ur, gerður að heiðursfélaga L.K. árið 1961. Var það mjög verð- skuldað og stórt gleðiefni okkar allra félaganna, að hann hlyti sæmd þá. Mörg verða spor hans líka á sviðinu eftir að hann setur bú hér, vinnur stór verk og sigra og heggur vítt til fanga. Ég leyfi mér að nefna leik hans í Alvörukrónunni, léttur og ótrúleg- ur leikur. Þá lítið, en ^ skemmti- ! æga unnið hlutverk í Útibúinu í Arósum. Síðan fylgir stórt og vandasamt hlutverk lögreglufor- ingjans í Gildru Roberts Thomas. Afburða glæsilega gert. Annan bú- álfinn í barnaleikritinu Húsið í skóginum tókst honum að lifa svo, að mér er ekki grunlaust að slík- ir búi á hanabjálkalofti hugans hjá mörgu barni síðan. Það er reyndar ekki frítt við, að mér sýnist sjálfri ég síðan verða vör við sitthvað ekki alveg trúlegt á mínu lofti. Þá eru það síðustu af- rekin hans hér í Kópavogi, Arn- grímur holdsveiki í Fjalla-Eyvindi og síðast flutningur hans á köfl- um úr æviminningum Matthíasar á Matthíasarkvöldi, er hald- ið var hér i Kópavogi fyrr i vet- ur til kynningar á skáldverkum og leikritaþýðingum Matthíasar Jochumssonar. — Þeir sögðu upp- lestur — það var enginn lestur — mér fannst klerkurinn frá Akur- eyri kominn þar, gnæfandi hátt sem jötunn og skuggar risans flökta um loft og veggi — tal hans eldur og logi. Þannig verður skáld skapur lifandi. Eldur sem öllu ylj- ar, öllu lýsir og öllu brennir. Mér finnst, sem haldi ég tveim fagurskyggðum perlum, sinni í hvorri hendi, er ég hugsa um þess- ar tvær síðustu gjafir hans til okk- ar hinna. Ég kreppi hnefa og opna til skiptis, hrædd og for- viða, hvort hverfa muni gersem- arnir. En djásnin eru þar og munu alltaf verða, sem gjöf frá þér, Sveinn, og eign okkar, dýrmæt eign okkar, sem höfum séð þig vera á sviðinu, lifað þar og starf- að með því, og við segjum — hafðu hjartans þökk. Ekkisens fjandans bull er í stelp- unni, ætlar hún ekki að hætta, nú er nóg komið, hugsar hann Sveinn nú. En það er svo, að aldrei verð- ur sögð öll sagar, af honum Sveinj Halldórssyni. Bæði er, að afköst mannsins, persóna hans og líf allt, er svo viðamikið að meira þyrfti en smágrein til að gera nokkur skil. Enn lætur Sveinn pennann hvissa hratt yfir ævibókina og er alls ekki hættur. Þú hefur reyndar oft sagt að nú værir þú hættur, en það verður ekki og má ekki verða í bráð. Því þegar 'sá eldurinn logar skærast og brennur heitast, sem lengst hefur brunnið, þá ber hon um að ylja og orna hinum, sem ekki var gefin slík gnægð. Og nú á 75 ára afmælinu þínu ertu vest ur í Bolungarvík að starfa . og vera með Bolvíkingum. Þac fer vel á því —; en mikið ^jandi öf- unda ég þá. Ég tala ekki um, hvað ég öfunda þá af því ag vera með þér á morgun og eiga og eyða deginum með þér. Ég vildi vera komin þangað til að drekka lúkku laði, eins og Gestur sagði í gríni og eins og var svo gaman að gera þegar þú varst sjötugur. Ég óska þér svo til lukku með daginn og Bolvíkinga og þeim með þig. — Farðu svo að koma suður, því að við þolum ekki, að eldurinn sé langt frá oss svo lengi — okkur er kalt á klónum, og hana nú. morgum stulkum listsaum og aðrar þær hannyrðir, sem konur má prýða. Frá 1943 annaðist Guðríður stjórn og kennslu við bama skóla Hlíðar-skólahverfis og ann aðist það til hinzta æviárs. Auk nefndra starfa tók Guð- ríður mikinn Þátt í félagsmálum sveitar sinnar og héraðs. Hún var formaður kvenfélags Hlíðar hrepps og jafnan fulltrúi félags síns á fundum Kvenfélagasam- bands Austurlands, og hafði verið kosin heiðursfélagi þess. Vottar það atgjörvi hennar og álit. Börn þeirra hjóna eru: Sigur- björn, Svavar bóndi í Sleðbrjóts seli ásamt föður sínum, Sólveig og Sigríður Ása báðar búsettar í Reykjavík. Auk eigin barna ólu þau hjón upp þrjú fósturbörn: Magnús Guð mundsson bónda í Vopnafirði, Guð mund Björgvinsson vélstjóra, Eg ilsstöðum og Jónínu Magnúsdóttur Skammbeinsstöðum, Rangárþingi. Frá mörgum ferðalögum mínum um ^lúlaþing fyrr á árum eru mér í minni alúðlegar móttöukr hinnar svipprúðu og háttprúðu húsfreyju í Sleðbrjótsseli. Og Þannig mun mynd hennar og minning lifa í hugum þeirra allra sem henni kynntust. Halldór Stefánsson. Fleiri bátar ætla að sigla með sí SJ-Reykjavík, föstudag. Eins og Tíminn skýrði frá fyrir skömmu ætla Reykjaborg og Jör- undur 2. að sigla með sfldarafla til Þýzkalands. Nú hefur frétzt að fleiri bátar ætli að sigla, þ. á m. Guðmundur Þórðarson og Þor- steinn. ÍÞRÖTTIR Framhalð af bls. 13 Merki Glímusambands fslands. Glímusambandið hefur ákveðið að eignast sérstakt merki. í því sambandi hefur glímusambandið í huga að efna til hugmyndasam- keppni um gerð merkisins, og þá að veita sérstök verðlaun fyrir að merki, sem valin raai syiiinyai cuu, Gamansöngleikurinn Járnhausinn hefur nú veriS sýndur 46 sinnum viS mjög góða aðsókn og verður næsta sýning leiksins á föstudag. Það eru aðeins eftir fáar sýningar á ieiknum. Myndin er af Val Gíslasyni og Helgu Valtýsdóttur í hlutverkum sinum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.