Vísir - 02.03.1974, Page 3

Vísir - 02.03.1974, Page 3
Visir. Laugardagur 2. marz 1974. 3 Sovétmenn kaupa fyrir hundrað og tíu milljónir Sölustofnun lagmetis hefur gert samning um sölu á fullunnum sjávarafurðum-Japanir kaupa loðnu í dósum fyrir 150 milljónir Lítil loðnu- veiði Tólf bátar tilkynntu loönuafla til loðnunefndar i gærdag, sam- tals 2.100 tonn. Flestir bátanna fengu aflann á miðunum fyrir austan, þ.e. við Hrollaugseyjar, en siðdegis i gær tilkynnti einn bátur afla norður af Snæfellsnesi. Þeir hjá loðnunefnd töldu, að aflinn færi að mestu i bræðslu, þar eð loðnan er orðin léleg, á Faxaflóasvæðinu er hún langt komin með að hrygna. Sæmilegt veður var á loðnumiðum i gærmorgun, en þegar leið á daginn var komin bræla á öllum loðnuslóðum, og enginn bátur tilkynnti afla. Nýtt lágmarksverð Nýtt verð er nú komið á loðnu til bræðslu. Verðlagsráð sjávar- útvegsins ákvað á fundi á fimmtudagskvöldið, að verð sem gilti frá 1. marz til 10 marz væri 3.00 kr. hvert kg. Frá 11. marz til 31. marz verður verðið 2.60 kr. hvert kg., en frá 1. april til 15. mai verður verðið 2.30 kr. hvert kg. Verðið er miðað við loðnuna komna á bil við hlið veiðiskips. Auk framangreinds verðs greiða kaupendur svo tuttugu aura á hvert kg. i loðnuflutningasjóð. Verðlagsráðið ákvað lika, að verð á ferskri loðnu til skepnufóð- urs verði frá 1. marz til 15. mai 4.30 kr. hvert kg. í yfirnefnd Verðlagsráðsins áttu sæti: Jón Sigurðsson hag- rannsóknarstjóri, sem var odda- maður, Kristján Ragnarsson og Ingóifur Ingólfsson af hálfu loðnuseljenda og Guðmundur Kr. Jónsson og Jón Reynir Magnús- son af hálfu loðnukaupenda. — GG Sovétmenn munu kaupa 15.000 kassa af gaffalbitum af Is- lendingum i ár, 60.000 kassa af þorskhrognum og 4.000 kassa af lifrarpöstu. Samtals kaupa Sovét- menn lagmeti af tslendingum fyrir 110 milljónir króna. Það er Sölustofnun lagmetis, sem samið hefur við Sovétmenn- ina, og var samningurinn undir- ritaður i gærdag. Dr. örn Erlendsson, fram- kvæmdastjóri Sölustofnunar lag- metis, sagði Visi i gær, að hann væri nú á förum austur til Japans að ganga frá samningi milli Japans og Islands um sölu á loðnu i dósum. Japanir komu hingað i desem- ber sl. en þá var ekki hægt að gera út um viðskiptin vegna óákveðins loðnuverðs á heims- markaði. örn kvaðst ganga að þvi sem visu, að Japanir keyptu fimm milljónir dósa af loðnu, eða 50.000 kassa fyrir 150 milljónir islenzkra króna. Japanir munu enga gaffalbita kaupa af okkur, enda er mikill skortur á hráefni, og fá Sovét- mennirnir alla þá gaffalbita, sem við nú höfum að bjóða — og kaupa þá á mun hærra verði en gilt hef- ur. Lifrarpasta er ný vörutegund, sem verið er að gera tilraun með að selja. Framkvæmdu Sovét- menn markaðskönnun i heima- landi sinu i vetur varðandi lifrar- pöstu og ákváðu siðan að kaupa 4.000 kassa. Japanir kaupa hugsanlega litið magn af lifrarpöstu, en örn Er- lendsson sagði, að það tæki jafnan langan tima að koma nýrri vöru- tegund inn á markaðinn, jafnvel mörg ár. Sovétmenn hafa ekki áður keypt þroskhrogn af okkur, en þessi samningur, sem við nú höf- um gert við þá um 60.000 kassa, er hinn stærsti, sem við höfum gert varðandi sölu á þorskhrognum. Hingað til hafa þorskhrogn verið seld óunnin úr landi, þannig að nú hefur merkt skref verið stigið varðandi fullvinnslu aflans hér heima. —GG SEXTAN MILLJONIR DUGA EKKI þurfum meira, segja slysavarnafélags menn, sem efna til landshappdrœttis „Þær 16 milljón krónur, sem við höfðum i tekjur á seinasta ári, koma hvergi til með að nægja i ár, ef Slysavarnafélagið á að geta sinnt öllu þvi, sem þarf að koma i framkvæmd.” Þetta sagði Gunnar Friðriks- son, forseti Slysavarnafélags ís- lands, á blaðamannafundi, sem félagið hélt i gærdag. Það einfalda, sem félagið ætlar að gera til að fá aukið fé til fram- kvæmda, er að afla þess. Til þess er landshappdrætti sett á stofn, og munu félagar i Slysavarna- félaginu sjá um sölu happdrættis- miða. „Við fengum á seinasta ári um 6milljónir i framlag frá rikinu, en hinna teknanna öfluðum við sjálf. Þar hefur kvenfólkið verið sér- lega duglegt,” sagði Gunnar einnig. Þær framkvæmdir, sem Slysa- varnafélagið ætlar út i, eru fyrst og fremst endurnýjun og aukning tækjabúnaðar og svo eðlilegt framhald starfseminnar. Þess má geta, að björgunarskýli og stöðvar eru 91 talsins um allt land, og þurfa allar tæki og út- búnað sem er dýr í innkaupi. „Það má ekki heldur gleyma tilkynningaskyldunni, sem er al- veg I okkar höndum og kostuð af okkur. Sá kostnaður varð tæpar tvær milljónir i fyrra. Við höfum þó von um, að sérstakt framlag komi frá rikinu vegna þessa,” sagði Gunnar. Hann sagðist vilja leggja áherzlu á, að happdrættið gengi fljótt og vel fyrir sig, og að al- menningur tæki vel á móti sölu- mönnum slysavarnafélaganna. Það má þvi búast við hressum félögum Slysavarnafélagsins á næstu vikum. —ÓH Flestir þekkja nafniÖ en færri þekkja manninn sjdlfan. Skipulagshæfileikar og dugnaður eru þeir eiginleikar,sem hafa gert Pétur Sveinbjarnarson að þjóðkunnum manni, aðeins 28 óra að aldri. Nú, þegar Sjdlfstæðismenn endurnýja, að hluta, mannval sitt í borgarstjórn Reykjavíkur, er margs að gæta. Við viljum að þar gæti sjónarmiða atvinnuvega og launþega, að konur sitji við sama borð og karlar, að ungir starfi með þeim eldri. Við, stuðningsnrenn Péturs Sveinbjarnarsonar, höfum trú ó því,að hann geti með skipulagsreynslu sinni, óhuga og dugnaði átt þátt í að leysa þau margbrotnu vandamál, sem fylgja daglegu lífi nútíma borgar. REYKVÍKINGAR! Vinnum að kjöri þeirra,sem eru reiðubúnir að VINNA FYRIR OKKUR. Bókamarkaöur Bóksalafélags Islands, í noröurenda Hagkaups, Skeifunni 15 Góöar bækur- gamatt verö

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.