Vísir - 02.03.1974, Síða 7

Vísir - 02.03.1974, Síða 7
Visir. Laugardagur 2. marz 1974. 7 cTYlenningarmál Hand- bœkur fyrir börn MANNSLÍKAMINN Höf. David Scott Daniell Myndir. Robert Ayton Þýð. Guðrún Karlsdóttir og Friða Haraldsdóttir Sigurður Björnsson læknir las yf- ir með tilliti til fræðilegra stað- reynda. GEIMFERÐIR Höf. Roy Worvill M.Sc. Myndir; B. Knigt og B.H. Robison Þýð. Sigrún K. Hannesdóttir Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur las yfir með til- liti til fræðilegra staðreynda. MERKAR UPPFINNINGAR Höf. Richard Bowood Myndir; Robert Ayton Þýtt og staðfært af Hcrdisi Sveinsdóttur Örnólfur Thorlacius las yfir með tilliti til fræðilegra staðreynda. Bjallan s.f. hefur gefið út allar bækurnar. Skortur á handbókum við hæfi barna og ung- linga hefur háð islenzku skólakerfi. En hand- bækur eru nauðsynleg forsenda sjálfstæðra vinnubragða hópa eða einstaklinga. Ég hef áð- ur vikið að þessari þörf á handbókum fyrir börn i spjalli minu um Myndabók dýranna frá Fjölvaútgáfunni. Kennsla i islenskum skólum hefur hingað til svo til eingöngu byggst á bekkjarkennslu, þar sem tekið er mið af einhverskon- ar imynduðu meðaltali, sem i reynd passar engum. Þetta fyrir- komulag hefur i för með sér að fá- ir njóta sin. Sérstaklega háir þetta þeim, sem fjærst liggja miðju þessa imyndaða meðaltals, þ.e. slökustu og skörpustu einstaklingunum. Bækur og kennsla Auk handbókaskortsins hefur uppbyggingu skólabókasafna verið skammarlega litill gaumur gefinn. Hvort þetta stirðnaða kennslufyrirkomulag er orsök eða afleiðing handbókaskortsins er ekki gott að segja. Alla vega kallarslikt skipulag ekki á útgáfu slikra rita. Þótt ég kvarti hér yfir dæma- lausum skorti á handbókum fyrir börn og unglinga má enginn skilja orð min svo að venjulegar hand- bækur, sem ætlaðar eru fullorðnu fólki séu ekki einnig brúklegar fyrir þetta aldursskeið. En þvi miður, þar er ekki heldur um auðugan garð að gresja og verður þvi þessi skortur enn tilfinnan- legri. Áður fyrr var litið á skólann sem nokkurs konar itroðslustofn- un. Menn litu svo á að megintil- gangur hans væri aö láta nemendurna tileinka sér vissar staðreyndir, sem skólamála- frömuðirnir töldu öðrum stað- reyndum nauðsynlegri. Þá var aðalvandinn sá að skera úr um hvaða fróðleiksmoli væri mikil- vægari en annar. Að endingu gáf- ust menn að sjálfsögðu upp á svo fánýtri umræðu, enda timi al- fræðinganna löngu liðinn. Þá kom fram sú skilgreining á mark- miði skólans, sem rikjandi er i dag, þ.e. að markmið skólans sé fyrst og fremst það að hjálpa nemendunum til að tileinka sér vissa tækni og þroska með þeim sjálfstæð vinnubrögð. Slikan þroska fá nemendurnir m.a. með þvi að læra að notfæra sér hand- bækur. Myndir og frásögn Nýlega bárust mér i hendur þrjár litlar bækur, sem siður en svo láta mikið yfir sér. Við nánari athugun kom i ljós að hér voru á ferðinni fræðandi bækur fyrir unga lesendur, einkar vandaðar að allri gerð. Þær voru sýnilega til þess gerðar að vekja áhuga lesenda og vera i senn til skemmtunar og fróðleiks. Mérþykir trúlegt að þær henti vel ieldri bekkjum barnaskólanna og i unglingaskólum. Eflaust geta fullorðnir einnig orðið margs vis- ari af þessum bókum, þvi mörg er i þeim matarholan. Hverri textasiðu fylgir mynd. Þessar myndir eru ýmist til að lýsa eða skýra efni textans, og stundum til áherslu eða til að vekja áhuga lesandans. Myndirn- ar, sem eru til að lýsa eða útskýra efnið, eru einkar ljósar og þjóna þvi vel sinu hlutverki. En þvi er ekki að leyna að mér falla ekki allar myndirnar. Þær eru margar of dramatiskar og litanotkunin er væmin fyrir minn smekk. Oft hefðu góðaj ljósmyndir verið bet- ur falinar til að sýna og segja það sem segja þarf. Bækurnar eru kaflaskiptar og fjallar hver kafli um ákveðið at- riði. Þó fylgir ekkert efnisyfirlit tveim bókunum og finnst mér það galli, þar sem þær henta eflaust betur til að slá upp á einstökum atriðum, heldur en að þær séu lesnar frá fyrstu til siðustu blað- siðu. Þessar bækur eru enskar að uppruna en leitast hefur verið við að staðfæra þær með þvi að skjóta inn eftir þvi, sem við á, upplýs- ingum, sem varða Island sérstak- lega. Ég ætla ekki að rekja efni bókanna og læt mér nægja að visa til bókatitlanna i upphafi þessar- ar greinar. Um faglegt gildi eftir Bergþóru Gísladóttur þeirra treysti ég mér ekki til að dæma, en vel virðist vera vandað til ráðgefenda. UTVARP Hinn vestfirzki fasismi útvarp: Hann var sérkennileg- ur, þátturinn þeirra Sigurðar A. Magnússonar og Gylfa Gíslasonar um það árvissa fíflarí, út- hlutun listamannalauna. Ég varð satt að segja hálfóánægður með vinnu- brögð þeirra félaga, því vel hefði mátt gera betri grínþátt en varð úr svo upplögðu efni. Gylfi byrjaði á þvi að útvarpa sérkennilegum blaðamanna- fundi, þar sem þeir tóku til máls, fulltrúar svokallaðs minnihluta i úthlutunarnefnd- inni. Minnihlutinn samanstend- ur af þeim Sverri Hólmarssyni, Andrési Kristjánssyni og Helga Sæmundssyni. Þegar þeir Helgi, Sverrir og Andrés höfðu rætt um sinar „sérskoðanir” á fundinum, hafði Sigurður viðtöl við þá alla þrjá i útvarpið. Ekkert nýtt kom frá þeim þremenningum i þeim viðtölum, nákvæmlega sama rollan lesin og á fundinum, sem búið var að útvarpa — aðeins var undirstrikað hve hneykslað- ir þeir allir eru á úthlutunar- reglunum, og raunar kom fram hjá Sverri, að hann er hreint ekki viss um, hvers vegna þess- um peningum er dritað út meðal fáeinna útvalinna listamanna. Pólitískar ofsóknir? Sigurður spurði þá alla þrjá, hvort þeir teldu, að um væri að ræða pólitiskar ofsóknir. Nei — enginn vildi beinlinis taka undir það með Sigurði, en bentu á, að hinn vestfirzki meirihluti réði mjög úthlutun- inni, og að hinn vestfirzki meiri- hluti, sem stjórnar úthlutuninni, væri vitandi eða óvitandi ihalds- samur i viðhorfum gagnvart list. Hér er drepið á merkt atriði. Mér þykir sennilegt að fræði- menn framtiðarinnar muni skrifa langar bækur um hinn vestfirzka listafasisma, sem rikt hafi um miðbik tuttugustu aldarinnar. En þeir Sigurður og Gylfi slepptu þvi alveg að ræða við fulltrúa hins vestfirzka fasisma, og það var sannarlega misráðið. Mönnum finnst ævinlega gaman að heyra til manna verja gerðir sinar. Fáránlegar úthlutunarreglur Þeim, sem rætt hafa um út- hlutun listamannafjárins i ár, hefur orðið tiðrætt um eitthvað, sem kallað er starfsaðferðir nefndarinnar. Það ætti að vera hægt að kippa þvi i lag — eða er ekki ætlunin með listamannafénu að styrkja og styðja ungt listafólk, sem rembist við að lifa á smánarlaunum, sem það fær fyrir vinnu sina? Ég sé ekki nema eitt ráð til að setja undir þessa brotalöm á kerfinu, eða „starfsreglunum”: Borga ungu listafólki meira af peningum. Og ef einhver heldur, að vand- ræði séu að finna þá peninga, þá er það mikill misskilningur. Það mætti t.d. virkja listamenn, eldri og yngri, til að flytja list sina — vinna á virkan hátt að listsköpun og flutningi, og fá þannig aura i vasann fyrir strit sitt. Eða hvers vegna er verið að skammta fáeinum viðurkennd- um öldungum sem svarar þriðjungi af árslaunum skrif- stofumanns, en halda ungum og starfandi mönnum úti i kuldan- um og féleysinu? Ég skil ekki að þurfi að eyða mörgum rifrildisþáttum i út- varpi i þetta mál, heldur kippa þessu bara i lag á mennilegan hátt. Og þá væri um leið hægt að koma i veg fyrir „vestfirzkan fasisma” eða fasisma af öllu tagi, með þvi að taka út- hlutunarvaldið af þessari póli- tisku nefnd. Hvers vegna hneykslast Sigurður A. Magnús- son á þvi, að úthlutunin er póli- tisk? Eru það ekki pólitikusar sem ráða — menn sitja i nefnd- inni vegna þess að þeir eru i stjórnmálaflokki — hafa af- stöðu, pólitiska afstöðu til allra mögulegra og ómögulegra hluta, m.a. lista. Fréttastofan laus úr böndum Nú eru fréttamenn lausir und- an hinum ströngu timatak- mörkum, sem þeim voru settar i haust, þegar fréttatiminn að kvöldi var færður hálftima framar i dagskrá. Fréttir eru enda með allt öðrum brag núna, lengri, ýtarlegri og meira áhugavekjandi. Sjónvarp: Og i framhaldi af þvi langar mig að minnast aðeins á frétta- tima sjónvarps. Það er raunar svolitið ankannalegt, að þær tuttugu og fimm minútur, sem fréttastofa sjónvarps hefur til umráða á hverju kvöldi, skuli ekki öðru- visi nýttar. Flestir sjónvarpsnotendur munu lesa fréttir i blaði eða blöðum yfir daginn, auk þess sem hlustað er á fréttatima út- varps. Siðan rennur upp kvöldfrétta- timinn — þ.e. þá sex daga vik- unnar sem sjónvarpað er — og þá lesinn sami söngurinn. Væri ekki vitlegra að standa öðruvisi að vinnubrögðum á fréttastofunni? Fréttaskýringar koma bezt út i sjónvarpi af öll- um fjölmiðlum, og þvi fyndist mér upplagt að breyta frétta- skrifum sjónvarpsmanna i þá veru. Taka fyrir færri frétta- efni, en gera þeim betri skil. Snúið upp á nef... Sjaldan eða aldrei held ég að haff eftirminnilegar verið snúið upp á nef nokkurs manns i um- ræðuþætti og þegar herstöðva- andstæðingar sneru upp á Tómas Karlsson. Það var reyndar eðlilegt, að herstöðvaandstæðingar færu EFTIR GUNNAR GUNNARSSON með sigur af hólmi i þessari skemmtilegu viðureign, þvi að þeir Helgi Sæmundsson, Svavar Gestsson, Jóhann Tómasson og Pétur Einarsson komu mjög vel undirbúnir til leiks. Hið sama verður varla sagt um mótherj- ana, einkum varð Tómas illa úti, enda lá hann vel við höggi. Benedikt Gröndal er allra pólitikusa sleipastur og kemur jafnan manna bezt út úr sliku ati, sem sjónvarpið bauð upp á á miðvikudagskvöldið — en nú brást honum bogalistin. Hann gleymdi sér andartak, missti atvinnumannsyfirbragðið og lét framsóknarmann úr Kópavogi bregða fyrir sig fæti með þvi einu að vitna i skrif Benedikts. Og Magnús Bjarnfreðsson hafði góð tök á umræðuþættin- um og vel til fundið að hafa timaverði —en hvaðhefði gerzt, ef annar aðilinn hefði lent i timaþröng?

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.