Tíminn - 15.01.1966, Page 14
14
ÍTARLEG SKRÁ
Framhald af bls 16
þrjú sem seld voru til Grikk
laöds, Apríl, Þorstein Ingólfsson
og Reykjafoss.
SkÍDaskránni lýkur á yfirliti
i«m sklp í smíðum og fjðlda og
rómlestatölu íslenzkra skipa.
Skipaskoðunarstjóri, Hjálmar
R. Bárðarson, veitti fréttamönn
nm þessar upplýsingar og gat
þess um leið, að þessi skipaskrá
væri fyrst og fremst ætluð mönn
um er störfuðu á vegum Skipa
skoðunar ríkisins, eða embætt
ismönnum, en þar sem oft hefðu
komið fram óskir um að fá bók
ina keypta, myndu nokkur ein
tök verða til sölu hjá skrifstof
unni og hjá skipaeftirlitsmönn
um úti. á landi.
14 INNBROT
Framhald af 16. síðu.
sinnið því tveir piltar hjálp
uðu honum við innbr'itíð.
Hinn 10. okt ‘64 brauzt
hann inn í Úra- og skart
gripaverzlun Magnúsar E.
Baldvinssonar, lét greipar
sópa og hafði á brott með
sér milli 60—70 karlmanns
úr, sem flest/öll eru komin
í leitirnar. Ándvirði þeirra
nemur á anpað hundrað þús
und króna.
f nóvember braut piltur
inn og tveir kumpánar hans
sýningarkassa á Laugavegi
28 og stálu 3% pari af gift
ingarhringjum.
Hinn 20. marz 1065
brauzt hann inn hjá A. Jó-
hannsson & Smith í Braut
arholti 4 og rændi útvarps
tæki og tékkhefti, sem hann
hefur ekki notað.
Hinn 22. marz brauzt hann
ennþá inn hjá Herratízkunni
»g stal í Þetta sinn 3060 kr.
og einhverju af fatnaði. Alls
fXun hann hafa stolið pen
íngum og fatnaði í Herra-
tízkunni fyrir um 50.000 kr.
Hinn 7. apríl brauzt hann
og tveir félagar hans inn í
Búslóð, Skipholti 19 og
höfðu upp úr krafsinu 2
'í’adiófóna. eitt stereotæki,
ferðaritvél og gamalt út-
varpstæki, alis að verðmæti
35—40 þús. kr.
Hinn 18. des. brauzt hann
inn í Hattabúðina á Lauga
vegi 10 og sta] þaðan með
aðstoð vinar síns töskum,
hönzkum, fatnaði o. fl. og
var þýfið virt á 40 þús. kr.
Hinn 8. ^janúar 1966
brauzt hann inn í Fók'us
Lækjargötu 6B og var þá
nappaður. Hann hafði áður
brotizt þar inn 28. septem
ber 1964 og laumast á brott
með fjórar Ijósmyndavélar.
Alls voru sex aðrir piltar
í slagtogi við hann í ein
hverjum þessara innbrota og
hafði aðeins einn Þeirra kom
ið undir lögregluhendur áð
ur. Mest af þýfinu er kom
ið fram. Píltur, sem verið
hefur svo athafnasamur í
verzlunum að næturlagi sit
ur í varðhaldi og verður mál
ið sent saksóknara innan tíð
ar.
ÓEIRÐIR
Framhald af bls. 1.
þar sem þeir fordæma Tasjkent
samninginn.
„Viðreisnarráðherra" Indlands,
Mahavir Tyagi, sagði af sér
í dag í mótmælaskyni við Tasj
kent-samninginn.
í útvarpsræðu sinni kom Ayub
Khan inn á Kashmírmálið, og
sagði, að samningurinn breytti
engu um það mál. Hann sagði
að samningurinn opnaði engar
nýjar leiðir til lausnar Kashmír-
deilunni, en að það væri mjög
þýðingarmikill undanfari lausn-
ar, að herlið beggja aðila yrði
dregið til baka frá landamærun
um áður en viðræður hæfust.
DÓTTIR NEHRÚS
Framhald at oi-
Ef einungis e'inn frambjóðandi
verður á miðvikudaginn, þegar
þingflokkurinn kemur saman til
fundar, þá verður hann eða
hún kjörinn forsætisráðherra með
lófaklappi. Ef tveir verða i
framboði, fer fram leynileg at-
kvæðagréiðsla, og ef fleiri eru
framþjóðendur, þá telst sá, sem
fær rúmlega helming atkvæð
anna, kjörinn forsætisráðherra.
Auk frú Gandhi eru eftirtaldir
menn líklegastir að hljóta emb
I ættið. Kamaraj, formaður Kon-
gressflokksins, Nanda, núverandi
forsætisráðherra, Chavan, land
varnarráðherra, og Subra.r.an/-
am, matvælaráðherra.
Lal Bahadur Shastri var i-,>‘æi.
ur maður. Hann átti ekkert. Hann
bjó í húsi, sem hann leigði af
ríkisstjórninni. Hann var for
maður samtakanna „Þjónar Ind
lands“, sem hafa gert mikið
fyrir þróun landsips, efnahag'.’tega
og félagslega. Hanr gekk í sam
tökin skömmu ■ ftir aö þau voru
stofnuð 1921. í samtökunum eru
30 félagsmenn, sem allir gefa
laun sín til þeirra, en í stað
inn veitir félagið félagsmönnum
sínum litla upphæð til þess að
greiða nauðsynleg gjöld.
Shastri hafnaði tilboði um að
búa í höll fyrrverandi Maha-
rajah, og hélt áfram að búa í
leiguhúsinu, sem var átta her-
bergja Kona hans, Lalita, lifði
sama einfalda lífinu og hann, og
bjó sjálf til matinn fyrir 21
barn og barnabarn þeirra hjón
anna. Lalita fær mánaðarleg eft
irlaun, sem nema um 10.000 krón
um íslenzkum, og auk þess auka
greiðslu fyrir börn þau, sem hún
hefur á framfæri.
SÖKKTU
TÍMINN
Pærno. Þeim tókst að
halda glæpnum leyndum
í 15 ár, og það var fyrst,
þegar Johannes Raag fékk
skilnað frá konu sinni fyrir
yári síðan, að málið komst
upp. Konan gekk til lög-
reglunnar og tilkynnti um
glæp manns síns. Hann
gaf fljótt eftir við yfir-
heyrslur, og játaði glæp-
inn, jafnframt því, sem
hann gaf upp nöfn þeirra,
sem samsekir voru. Hann
fullyrti einnig, að tveir
þeirra, sem fórust hafi ver
ið samsekir. Raag hefur
skrifað 40 síðna greina-
gerð, þar sem hann skýrir
frá því, hvernig Energi
var sökkt.
Ein af ástæðunum fyrir
glæpnum virðist vera trygg
ingasvik. Þetta gamla, ryðg
aða skip var tryggt fyrir
750.000 sænskar krónur,
og Mægi útgerðarmaður
vildi, að Raag og Pærno
sprengdu skipið í loft upp
á ferð á Eystrasalti. Þegar
þeim hafði verið lofað um
25.000 sænskum krónum
fyrir verkið, féllust þeir
á þetta, og Raag keypti
15 kg. af dýnamiti. Þeír
lögðu dynamitið í fötu,
sem pakkað var inn í
plast og sökkt niður 1 í
vatnstank skipsins. En brátt
kom í Ijós, að hleðslan var
sterkari, en þeir höfðu
haldið, og auk þess var
skipið fullhlaðið málm
vörum, en ekki trévörum,
eins og þeir héldu. Afleið
ingin var sú, að skipið
sökk á örfáum mínútum.
Samtals 10 manns — 9
menn og ein kona — fór
ust, en sex var bjargað, þar
á meSal Raag. Pærno átti
að vera með í ferðinni, en
þega. á reyndi, hélt hann
sig í landi.
Rannsókn málsins hef
ur verið mjög víðtæk, og
gagnasafnið fyllir nú 1200
síður. Rannsóknin hefur
farið fram fyrir luktum
dyrum.
Einn maður snnar, prest
ur, hefur blandazt inn i
rannsókn málsins. Lögregl
an gerði tvær tilraunir
til þess að fá hann fang
elsaðan, en rétturinn hafn
aði því, og hefur ákæru
valdið því hætt við að
hefja mál gegn honum.
Presturinn á að hafa, að
því er sagt er, lagt mik
ið fé i þetta vafasama út
gerðarfyrirtæki.
Auslvsið í íímamjm
Framhald af bls. 1.
stjóri og gullsmiðirnir Jo-
jhannes Raag og Oskar
LIPPMANN
Framhald af bls. 5
meiri hernaðaraðgerðir en við
getum með góðu móti innt af
höndum.
Telja má fullvist, að við get
um ekki gert okkur vonir um
betri árangur af hemaðarað-
gerðum i s-austur Asíu en að til
verði fyr, eða síðar sameinað
Víetnam, sem lúti fornum ótta
sínum við Kínverja, leggi
stund á vinsamleg samskipti
við Sovétríkin og aðhyllist
stefnu árekstralausar sambúð
ar gagnvart Vesturveldunum
S«-óttir
Framhald at 10. síðu
ara áframhald vonlaust og gafst
upp.
Biðskákir verða tefldar i dag í
Lídó, en þriðia umferð á sunnudag
og tefla þá saman. Þeir, sem eru
taldir á undan hafa hvítt.
Böök—Guðmundur Pálmason
0‘Kelly—Guðmundur Sigur jónss
Björn Þorsteinsson- Kieninger
Friðrik Ólafsson — P, Wade
Vasjúkof — lón Hálfdánarson
Jón Kristinsson — Freysteinn 1
HVAÐ VARÐAR ....
Framhald aí 9 síðu.
með það. — Þannig var komið
1965 um haustið — að ætt-
jörð — þegnskapur og skyldur
var ekki lengur munað, heldur
gleymt. Og eldri maðurinn
varð hugsi. Hvað skal til
bragðs taka? Hvar er kjarkur
hug og þor þessarar þjóðar —
ættjörð og föðurland, er það
steingleymt? Lesendur, sem
ef til vill hafa fylgzt með hing
að til munu sumir spyrja:
— Hvert er maðurinn að
fara — þetta eru allt hugar-
órar og rugl. — En þessir
sömu lesendur munu þó eftir
nokkra umhugsun, komast að
raun um, að svo er ekki.
Þetta er eintal við yður.
Það er reynt að vekja athygli
yðar á miklu þjóðfélags-
iegu vandamáli. — Þeir eru
of margir, sem segja — „hvað
varðar mig um hann Jón“
„þetta getur gengið án mín“.
— Þeir vilja hvergi nærri
koma. — Að taka á sig ábyrgð
arstarf — nei, það getur hinn
gert. — Þeir vilji fá sinni
kröfu fullnægt og margir
þeirra eru farnir að heimta
kaup í dollurum umreiknað í
krónum — en gleyma því, að
við erum ekki eins ríkir og
Ameríkanar , og getum þvi
ekki greitt þeim 1000$ —
2000$ í mánaðarkaup enda
þótt þeir gætu fengið slíkt i
U.S.A. — Við skulum nema
staðar, hugsa þetta nokkuð og
taka höndum saman og vinna
að þjóðfélagsmálum í einingu.
Við skulum gleyma mönnum,
deilum og flokkum, en muna
eftir þjóðinni, — það erum
við sjálf.
Gisli Sigurbjörnsson.
DÁTASJÓNVARP
Framhald af 9 síðu.
brögð að því, að þau sjái kvik-
myndir. Ef stálpuð börn og hálf
vaxnir unglingar sækja morðsýn
ingar kvikmyndahúsa þrátt fyrir
skýlaust bann, er sannarlega eng
in bót að auka í þeim hrollinn með
enn verri ódáðasýningum í heima
húsum,
Sem sagt, rök dátasjónvarps
vina eru þessi: Einn ósómi helgar
annanl
Það nær engri átt að ætla ís-
lenzku sjónvarpi samkeppni við
Svartaskóla í Keflavík. Við vitum,
að þau ungmenpi sem þegar líta
smáum augum á allt íslenzkf, virða
okkar menn i sjónvarpi ekki við-
lits.
Eg beypti af handahófi eina
vikudagskrá Keflavíkursjónvarps-
ins. Þetta eru kaflar úr henni:
Sunnudagur: „Bónanza: Lítil
stúlka bíður með eftirvæntingu
heimkomu föður sins, en heim
koman verður ekki góð, yegna
þess, að faðir hennar hefur verið
myrtur á leiðinni _. Starfsmaður
brezku lögreglunnar hefur . átt i
höggi við niósnarflokk. — —
Mánudagur: „ _ — Dagur i
Dauðadal. Sýnt frá upphafi frægð
arferill Walters Reeds.---Saka
málaþáttur Flökkumaður nokkur
handtekinn. grunaður um morð. í
fangelslnu híttir hann hinn raun
••erulega morðingja — ____ _“
Þrlðjudagur: _ Sýndur 1.
kaflinn úr ævi Trumans forseta.
- — Stríðsmypd:‘Hanley liðþjálfi
og menn hans rannsaka hús nokk
urt, sem þeir héldu. að væri mann
laust. — — Enskur liðþjálfi og
iapanskur rifja upp atburðinn, þeg
ar Bretar misstu vfirráð yfir Singa
nore. — — Ungur vísindamaður
kemur fram með nýja uppfynd-
ingu á sprengiefní, sem leiðir til
morðs — —“
Miðvikudagur; — — Úr undir
heimum stórborganna: Leynilög-
LAUGARDAGUR 15. janúar 1966
reglumaðurinn Elli'ot Ness og
starfsbræður hans eíga í höggi við
meðlim óaldarflokks í Chicagó,
sem hyggst starfa á eigin spýtur.
— — Sonur auðugs skipaeiganda
er sakaður um morð. og Roy Mark
ham fer á stúfana. —------“
Fimmtudagur: „ — — Sagan
um eina af mestu orrustunum á
Kyrrahafinu — — Ted og Jim
taka að sér að kenna ungri stúlku
listir flugsins. en komast að því,
að þeir eru orðnir félagar henn
ar í að smygla demöntum inn í
Bandaríkin. — — Ung stúlka
gerir örvæntingarfulla tilraun til
að leita að föður sínum. En hann
hefur/horfið, eftir að hafa verið
sýknaður af ákæru um, að hafa
myrt konu sína,--------Góðlynd
ræstingakona er myrt, og Jed fer
á stúfana".
Föstudagur: ,,---Mike Nelson
fær það verkefni frá lögreglunní,
að taka mynd af fundi afbrota-
manna. — — Úr villta vestrinu.
-----Hnefaleikar. — — Það hef
ur komið í Ijós, að einhver vinnur
á því, að gera veðbanka gjald-
þrota með því að falsa vinninga-
seðla. ------“
Laugardagur: .,-----Fréttir af
flughernum. — — Ljósmyndara
nokkrum tekst að ná mynd af
því, þegar maður verður konu
sinni að bana. — — Ástamál
ungrar stúlku fá voveiflegan endi.
Mac Dillin verður á vegi hennar,
er hún kemur' til að gefa sig fram
fyrir morð á föður sínum.-----f
viðureign sinní við demantssmygl
ara verður John King að dulbúast
sem milljónamæringur frá Texas.
_______((
Þetta er viðburðarík vika f
ævi drengs og felpu í heímahúsum.
Þau hafa séð 7 morð fyrir utan
það, sem gerist í stríðsmyndum og
er ekki talið með morðum, Hvað
gerist í „villta vestrinu“, er ekki
nánar nefnt, en hver veit neraa
einhverjum hafi verið lógað þar í
augsýn drengs og telpu. Tveir
menn myrða konur sínar. Stúlka
myrðir föður sinn. Fundir afbrota
manna eru kynntir. Smyglarar
leika listir sínar. Njósnarar læð
ast. Hnefaleikar! Bandarísk leyni
lögregla, bandarískur flugher og
bandarískir falsarar eru gestir í
stofu Jóns Jónssonar íslendings og
barna hans.
í þessari vikudagskrá hefur byrj
að ævisaga Trúmans. í siðarí þátt
unum mun væntanlega hafa verið
vikið að sögulokum Rósenbergs
hjóna og framkvæmdum þessa
merka manns í japönskum borg
um. En um það fullyrði ég auð-
vitað ekkert.
Þetta, sem hér er talið. er úr
föstum liðum dagskrárinnar. og
sennilega eru þær keimlíkar Að
minnsta kosti er kunnuglega getið
um, að Roy og Jed fari á stúf
ana. Þessi Roy og Jed eru, ef til
vill. heimilisvinir á sjö þúsund
Svartaskólaheimilum, svipað og
útvarpsþulirnir okkar og barna-
tímafólkið eru hjá okkur hlnum.
En bjartsýnismennirnir virðast
halda, að bijrnunum á sjö þúsund
Svartaskólaheimilum sé við engu
hætt, vegna þess, að víð eigum
Eddukvæð hér og þar í skápum
og sknnhandrit. sem kannske
koma heim.
Sálfræðingar eru stundum að
flytja erindi um rétta framkomu
við börn. Það á að eyða ótta barns
ins og tortryggni. Það á að læra
að treysta öðrum og sjálfu sér.
Ekkí á að ávíta það snúðuglega,
heldur með varkárni. Og ekki á að
trufla það hvatskeytislega í leik.
Þetta er enginn hégómi, heldur
reynsla og vísindi mannvina,
sem komizt hafa að því, hve auð-
velt er ag skaða unga sál, svo að
hún beri örkuml alla æví. Digur
barkalegar fullyrðingar um ódrep
andi menníngu eru engin trygging
gegn hrollvekjum Keflavíkursjón
varpsins.,
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar þakkir flyt ég öllum, sem minntust sjö-
tíu og fimm ára afmælis míns.
Gleðilegt ný^ár.
Jón ívarsson.
Konan mín, móðir og amma,
María S. Helgadóttir
Hólmavík,
andaðist é Landsspítalangm 14, þ. m.
Ingimundur Ingimundarson,
börn, tengdabörn og barnabörn,