Vísir - 23.03.1974, Síða 10

Vísir - 23.03.1974, Síða 10
1Q Vísir. Laugardagur 23. marz, 1974 KR (ON) á Valsbúningi! Því hefði maður aldrei trúað að óreyndu — en það verða stórir stafir á Vals- búningnum í sumar og tveir þeir fyrstu eru KR, Já, KR á Valsbúningi í knattspyrnu — en það verður að bae.ta því við, að tveir aðrir stafir fylgja á eftir, ON. Kaupfélag Reykjavikur og nágrennis auglýsir sem sagt á Valsbúningnum — KRON. Valur verður þannig fyrsta Reykjavikurliðið í meistara- flokknum i knattspyrnunni, sem setur auglýsingu á búning sinn. Félögin úti á landi eru mörg hver meö auglýsingu á búning sínum — og öll Reykjavikurliðin i 1. deildinni i handboltanum eru með auglýsingu — til dæmis LOFTLEIÐIR á fjórum, hjá Vik- ingi, Fram, IR og Ármanni. Það er KRON, sem riður á vað- ið með auglýsingu i knattspyrn- unni — og liklegt að önnur fyrir- tæki fylgi á eftir á búningum ann- arra Reykjavikurfélaga, einkum þó þeirra, sem eru i 1. deildinni. Fram, KR og Vikingur leika þar auk Vals. fjölbreytt f ramboð smjörs: sérsaltað - létlsdtað - ósaltað Fjölbreytni er krydd lífsins. Og nú er ekkert til lengur, sem heitir „bara“ smjör. Nú velur maður smjör eftir smekk; létt- saltað uppá gamla móðinn, sérsaltað til að fá svoldið bragð á tunguna, ósaltað (til dæmis) ef læknirinn hefur mælt með því. Við höfum einnig aukið fjölbreytni í gerð pakkninga til að gera þér hægara um vik að borða og bjóða smjör við öll tækifæri. Okkur finnst þú eiga rétt á því. Annar leikurinn i meistara- keppni KSl veröur háður i dag og leika þá Valur og Fram. Leikur- inn veröur á Melavellinum og hefst kl. tvö. I fyrsta leiknum urðu úrslit þau, að Keflavik og Valur gerðu jafntefli 0-0 i Keflavik. Þriðji leikurinn verður svo um aðra helgi milli Fram og Keflavikur. Allir beztu leikmenn Fram og Vals leika með liðum sinum I dag HLAUP Viðavangshlaup Islands verður háð á morgun og hefst hlaupið kl. tvö á Há- skóla vellinum. Hlaupið verður i Vatnsmýrinni. Þátt- takendur eiga að mæta á Melavelli kl. eitt. Gifurleg þátttaka er i hlaupinu. 1 kvennaflokki eru 77 stúlkur skráðar — meðal annars Ragnhildur Pálsdóttir, sem sigraði i fyrra. í piltaflokki eru keppendur 95 og þar er einnig sigurvegarinn frá i fyrra, Guðmundur Geirdal. í drengjti/lokki eru 49 þátt- takendur og 40 i karlaflokki. BLAK Fyrstu landsleikir islands i blaki verða háðir i dag og á morgun. Mótherjarnir eru Norðmenn. Fyrri leikurinn verður á Akureyri i dag og hefst kl. tvö í iþrótta- skemmunni. A morgun leika islendingar og Norðmenn annan landsleik og hann verður háður i iþróttahúsinu ' i Ilafnarfirði annað kvöld — hefst kl. 20.30. KARFA Þýðingarmiklir leikir verða 11. deild i körfuboltan- um um helgina. i dag ieika ÍR og Valur i 1. deildinni — en á undan verður leikur ÍS og HSK. Sá leikur hefst kl. fjögur. A sunnudag leika KR og Ármann — afar þýðingarmikill leikur. Fyrst, kl. sex. leika ÍS og UMFN. HANDBOLTI Það verður mikill hand- bolti á dagskrá um helgina. i dag verða tveir leikir á Akureyri — Þór-Haukar i 1. deild karla og Þór-Vikingur i l.deild kvenna. Þar verður hart barizt um fallið. i LaugardalshöII er úrslita- leikur 2. deildar karla, þar sem Grótta og Þróttur berj- ast um réttinn til að leika i 1. deild næsta keppnistimabil. Leikurinn hefst kl. sex. Hinir stolnu munir! Einhvern veginn komst rottan inn i þetta virki og bjósér hreiður úr . skjölum og \rttaL segulböndum. I H rJT 3P| r w Pokarottan hefurskrítið eðli J|Í — húnelskaraðstela hldtum og fela þá. (k\\\ —i öryggis- V/ / kerf ið, og hún kom / öllu á annan endann ' W hérna— hvernig Jf \ uppgötvaðirðu ( \ þetta, Teitur? / Þýðir ' ekki að spyrja. Töframenn segja aldréi W frá. Næstu viku: Nýtt ævintýri!

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.