Vísir - 18.05.1974, Side 1
64. árg. — Laugardagur 18. mai 1974. — 78. tbl.
Lýðrœðisflokkur
stofnaður
— býður fram til alþingis — sjá bls. 3
Gera gras-
flugvöll
á Selfossi
— sjá baksíðu
Gengu 200
km á eftir
golfboitanum
Um 140 manna hópur ís-
lenzkra golfara dvaldi I Skot-
landi I siðustu viku, þar sem
menn og konur á öllum aldri
örkuöu um heimsfræga golf-
velli berjandi litinn hvitan
bolta á undan sér. Þeir sem
harðastir voru af sér gengu
um 200 kilómetra þá 9 daga
sem fcrðin stóð yfir.
Sjá nánar grein og myndir
úr ferðinni á bls. 10.
D O
Forstjóri
Ferðaskrifstofu
ríkisins svarar
róðuneytinu
,/Hin
stálharða
klöpp
nakinna
staðreynda"
- bls. 3
a □
Hreint
ekki
hrœddur
— viðtal við
flugmanninn
— sjá bls. 2-3
Feikileg aukning á niðurgreiðslum, þrátt fyrir halla á ríkissjóði
Hálfur Björn unninn
Rikisstjórnin tekur
með geysimiklum niður-
greiðslum tæpan helm-
ing, eða 8 stig, af þeirri
kauphækkun, sem ella
hefði orðið 1. júni vegna
undangenginna
verðhækkana. t»ann
rúmlega helming, sem
eftir verður, er talið, að
stjórnin muni taka með
þvi að ,,kippa visitölunni
úr sambandi” með
bráðabir gðalögum.
Aukning niðurgreiðslna er sögð
munu kosta rikið hundrað og sjö-
tiu milljónir á mánuði. Rikis-
sjóður stendur fyrir i verulegum
halla.
Verðlækkunin á Iandbúnaðar-
vörum, sem niðurgreiðslurnar
valda, er talin vera 37,4%.
Nýtl verð tekur gildi á mánu-
daginn. Mjólk i 2ja litra fernu
kostar 41,60 i stað 66,50 kr. Rjómi
i fjórðungslitra hyrnu lækkar úr
66,70 i 49 kr. Kilóið af skyri lækkar
úr 73 kr. i 48,40 kr. Feiknarleg er
lækkunin á smjöri, þar sem kilóið
lækkar úr 464 kr. i 200 krónur!
45% ostur lækkar úr 376 kr. i 246
kr.
Kjötvörur lækka einnig mikið.
Kiló af súpukjöti til dæmis úr 300
kr. i 183 kr. Kiló af læri úr 337 kr. i
217 kr.
Af kartöflum lækkar kilóið i 5
kg pokum úr 29,60 kr. i 9 kr. eða
um 20 krónur.
— HH
Klofningi spáð
í Samtökunum
Magnús
Torfi
með
sérlista?
Alger klofningur er sagður
yfirvofandi i Samtökum frjáls-
lyndra og vinstri manna á fundi
fiokksins, sem verður um helg-
ina. Þvi er spáð, að þar takist á
llannibal og Magnús Torfi og
muni Magnús verða undir.
Magnús berst gegn kosninga-
samstarfi við Alþvðuflokkinn.
Er taliö að hann muni bjóða
l'ram sérstaklega i Reykjavík
til dæmis F-lista, en annars yrði
kosningabandlag Alþýðuflokks-i
ins og Samtakanna, nteð ,1-lista.1
llugmyndir eru um, að
Magnús Torfi semji við vinstri
framsóknarmenn um framboð.
Þá er talað um, að llannibal
verði efstur á sameiginlegum
lista fylgismanna hans og
Alþýðuflokksins i Reykjavik.
— HH
Höfuðfatið, sem Guðrún Erla ber á myndinni, er spánskt og nefnist mantilla. t útslitakeppninni munu
allar stúlkurnar bera þjóöbúning Spánverja, en viðhann er þessi höfuöbúnaöur hafður. Ljósm. BG
Leppnin Uog, borgfirzk stúlka á
óspóni: vegum vísis í keppnina
Guðrún Erla Aðalsteinsdóttir, 23 ára Borgfirðingur, fór utan i morgun til að taka þátt I hinni alþjóðlcgu
La Maja fegurðarsamkeppni á Spáni, en VIsi bauöst að velja fulltrúa tslands I keppnina.
Tilboðið um að senda fulltrúa Islands i keppnina barst til Visis fyrir nokkrum mánuöum frá forráöa-
mönnum keppninnar I Zaragoza. Guðrún Erla, sem varð fyrir valinu, nemur I öldungadeild MH. Auk
þess afgreiðir hún I tizkuverzluninni Jósefinu.
Hún mun dvelja 10 daga á Spáni. Eftir viku fer fram sjálft valið á La Maja International. Sú sem
hreppir fyrsta sætið hlýtur 400 þúsund krónur i verðiaun. La Maja keppnin hefur verið haldin niu sinnum
áður. Þátttakendur frá 30 löndum taka þátt I keppninni.
Vikan fram að krýningunni sjálfri verður sannkaliaður dans á rósum hjá stúlkunum, þvi ekki mun
ganga á ööru en veizlum og skemmtunum og ferðalögum þann tima. Keppnin er haldin i borginni Zara-
goza, en stúlkurnar munu einnig ferðast viðsvegar um Spán.
Ætlun Visis er, að i framtiðinni verði þátttakandi Islands i La Maja valinn úr hópi sumarstúlkna
blaðsins. — ÓH
Bréfahnifinn, sem Guðrún Erla
er að skoða á myndinni hjá Hall-
dóri gullsmið, valdi hún scm gjöf
handa borgarstjóranum í Zara-
goza. A bréfahnifinn er nafn Is-
lands skráð með rúnaletri, ásamt
kveöjum. Ljósm. BG.