Vísir - 18.05.1974, Page 5
Vísir. Laugardagur 18. mai 1974.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: BB/GP
FROSKUR MEÐ
KRAFTADELLU
Bill Steed, sem er sjálfskipaður doktor i sálfræði froska, hefur
ástæðu til þess að brosa. Einn „nemenda” hans er aö æfa sig I
„lyftingum” fyrir árlega stökkkeppni froska í Kaliforníu. Steed
segist þjálfa froska sina með þvi að kenna þeim, á meðan þeir
sofa, auk þess scm hann beiti dáleiðslu. Froskar Steeds hafa 6
sinnum unnið stökkkeppnina, sem efnt er til i þvi skyni að minn-
ast sögu Mark Twain um stökkmeistara froskanna i Cala-
veres-liéraði.
SKIPT UM HELLUR
Á RAUÐA TORGINU
Hérsjást Moskvubúar reyna að
gægjast inn fyrir nýju „Krcml-
múrana” á Rauða torginu.
Skyndilega og orðaiaust reistu
hermenn þar fleka-girðingu á
dögunum. Siðan komu háværar
vinnuvéiar og byrjuðu að skipta
um jaröveg i torginu. Þegar þvi
er lokið er ætlunin að setja nýjar
hellur á torgið. Sagt er, að þess-
ara aðgerða sé þörf, þar sem
torgið hafi ekki lengur þolað þau
þungu hergögn, sem flutt eru
um það á sovézkum hátiðis-
dögum.
Drepum Pide-menn!
Þannig hljóðuðu slagorðin, sem hrópuð voru á götum Lissabon,
eftir að herforingjarnir höfðu tekiö völdin i sinar hendur. PIDE
er skammstöfun á pólitisku lögreglunni I iandinu, en hún var
augu og eyru gömiu einræðisstjórnarinnar. Hér á myndinni sjá-
um við einn af starfsmönnum PIDE undir vernd hermanna. Þeir
björguðu honum frá þvi að verða drepinn af æstum múgi, sem
þekkti hann á götu úti og ætlaði að hengja hann umsvifalaust.
Herforingjastjórnin stöövaði öll slik morð án dóms og laga.
Myndin er tekin, þegar Alvaro Cunhal, foringi kommúnista i Portúgal (t.v.) sneri aftur til ættjarðar
sinnar 5 dögum eftir valdatöku hersins. Cunhal fiúði land 1960 og dvaldist síðan i Austur-Evrópu hjá
flokksbræðrum sinum, þar til hann kom heim 30. apríl s.l. í vikunni var Cunhal gerður að ráðherra án
ráðuneytis og mun láta nýlendumál Portúgala i Afriku til sin taka á næstunni. Sá, scm stendur til hægri
á myndinni á bak við kommúnistafánann, er Mario Soares, foringi portúgalskra sósialista. Nú I vikunni
var hann skipaður utanrikisráðherra. Hann segist fylgjandi aðild lands sins aö NATO og ekki munu
hrófla við bandariskum herstöðvum á Atlantshafseyjum Portúgala, fyrst um sinn að minnsta kosti.
W
BILAVARA-
HLUTIR
NOTAÐIR
VARAHLUTIR
í FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ
T.d. M. BENZ 220'64
Opel Kapitan
Vauxholl VIVA
Fiat 850 og Cortina
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5
laugardaga.