Vísir - 18.05.1974, Qupperneq 20
vísir
Laugardagur 18. mai 1974.
Tala ofan
af vöru-
bílum á
útifundi
við Fella-
skólann
„Við hvctjum auðvitað alla til
að mæta i hverfunum, en það fcr
að sjálfsögðu allt eftir veðrinu,
hversu inargir koma. Við höfum
gamla lagið á þessu, menn taia
ofan af vörubilum, en við verðum
með tvo bíla”.
Þetta sagði Hjálmar Hannes-
son, formaður Framfarafélags
Breiðholts 3, þegar við höfðum
samband við hann. A mánudags-
kvöldið 20. mai boðar félagið til
útifundar við Fellaskóla kl. 20.00.
— Hvers vegna ætti ibúi i Breið-
holtshverfum að kjósa flokk minn
og stefnu i komandi borgar-
stjórnarkosningum? — Þessari
spurningu leitast frambjóðendur
allra flokka, sem bjóða fram til
kosninganna 26. mai, við að
svara.
Hver flokkur hefur 15 minútur
tilumráða, og ýmist 2 eða 3 ræðu-
menn. Tvær umferðir verða.
Breiðholtsbúar fá svo þjóðlaga-
trióið Trióla til að hlusta á, og
hljómsveit, ef veður verður gott.
—EA
Afmœlisheimsókn:
Nœstum
jafnmargir
og allir
okkar
blaðamenn
Þeir eru litlu færri en allir
islenzkir blaðamenn. Rúmlega 70
manns á vegum danska
Publicistklúbbsins eru hingað
komnir til að kynna sér tsland á
1100 ára afmælinu.
Þetta eru blaðamenn og aðrir
fréttamenn fjölmiðla og úr
skyldum greinum, sumir með
konur sinar. Þeir sátu hádegis-
verðarboðborgarstjóra igær, og i
dag ræða þeir við formenn stjórn-
málaflokkanna niðri i Alþingi.
Fleira en stjórnmál heillar þá.
Þeir munu ferðast til Eyja og um
Suðurland, sitja boð sendiherra
og svoframvegis. 1 gærkvöldi var
móttaka, hanastél og snittur, á
vegum islenzka blaðamanna-
félagsins.
Hinn kunni blaðamaður, Bent
Koeh ritstjóri, sem jafnan hefur
sýnt málum tslands áhuga, er
fyrirliði þessa flokks. Danirnir
verða hér fram i næstu viku.
—HH
Einbýlishús í Garðahreppi:
Kostaði 3 milljónir í
byggingu — söluverð
nú um 8 til 12 milljónir
— Ungt fólk stofnar byggingasamvinnufélög, sem eiga að
byggja ódýrt
„Markmið féiagsins er að
byggja ibúðir á kostnaðarverði
fyrir félagsmenn sina með þvi
að nýta vinnukraft féiags-
manna, notkun nýjustu bygg-
ingaraðferða, fjöldaframleiðslu
litilla ibúöareininga.” Þannig
komst Þorvaldur Mawby að
orði, er hann skýrði VIsi frá
stofnun nýs féiags, sem á að
bera nafniö Byggung — skamm-
stöfun fyrir Byggingafélag
ungs fólks.
Og Þorvaldur ætti að vera
orðinn kunnugur ódýrustu
byggingaraðferðunum: Þegar
hann var formaður Starfs-
mannafélags Straumsvikur,
stóð hann fyrir stofnun bygg-
ingasamvinnufélags þar. Þvi
félagi hefur tekizt að byggja
mjög ódýrt yfir félagsmenn
sina.
„Samkvæmt mati sérfróðra
manna er söluverð þeirra
einbýlishúsa, sem við byggðum
i fyrra, nú eitthvað á milli átta
og tólf milljónir króna. Bygg-
ingarkostnaður þessara húsa
var rétt liðlega þrjár milljónir
króna,” sagði Þorvaldur i við-
talinu við Visi.
„Nú er Byggingasamvinnu-
félag Straumsvikur að ráðast i
að byggja fjölbýlishús i Hafnar-
firði, en þar hefur félagið byggt
fimm raðhús. Félagið hefur
sömuleiðis byggt tiu einbýlishús
i Garðahreppi og þrjú raðhús,”
sagði Þorvaldur.
„Einbýlishúsin, sem ég nefndi
áðan, að núna væri hægt að selja
fyrir þrefalt eða fjórfalt meira
en þau kostuðu i byggingu eru i
Garðahreppnum. Þau eru 220
fm og eru með tvöföldum bil-
skúr og standa á þúsund
fermetra lóð,” sagði Þorvaldur.
„Nú má gera ráð fyrir, að
næst verði úthlutað lóðum á
Eiðsgranda eða i Korpúlfs-
staðalandi,” sagði Þorvaldur.
næst. „Þar gerum við i hinu
nýstofnaða byggingafélagi ungs
fólks okkur vonir um að geta
fengið um 50 til 100 lóðir, þar
sem byggja má einbýlishús eða
raðhús á sem ódýrastan hátt, þá
t.d. einingahús. Það er
byggingarmáti, sem ryður sér æ
meir til rúms hérlendis, enda
ódýrt og hagkvæmt,” sagði
Þorvaldur.
BYGGUNG var stofnað i
marzmánuði, og boðaði
Heimdallur til þess fundar.
Stofnfélagar urðu 150, en nú er
tala félagsmanna óðfluga að
nálgast annað hundraðið.
„Félagið gengst fyrir fundi að
Hótel Esju klukkan tvö
næstkomandi sunnudag, og
verða þar rædd nánar
framtiðarverkefni félagsins. A
þeim fundi getur ungt fólk
gengið i félagið,” sagði Þor-
valdur að lokum. Hann vildi
jafnframt, að það kæmi fram,
að unnið er að stofnun
byggingafél^ga, af sama toga i
Kópavogi, Garðahreppi og
Hafnarfirði að frumkvæði
félaga ungra sjálfstæðism. - ÞJM
nokkurra daga gamlir. En þess-
ir tveir eiga von á félaga, þriðja
kálfinum, einhvern næsta
daginn. (Ljósm. VIsis Bj. Bj.)
„Tekið hef ég hér kálfa tvo, —
hvað skal viö þá gera?” spyr
Jón Kr. Gunnarsson, for-
stööumaður Sædýrasafnsins,
þar sem hefur oröið fjölgun i
hreinahjörðinni.
Þeir eru reikulir, greyin litlu á
fótunum, svona nýfæddir, rétt
Sements-
verksmiðjan
hrósar sigri
„Þetta sannar bezt, hve
tilefnisiausar og fráleitar
ákærurnar um verðlagsbrot
voru”, sagði Svavar Pálsson, for-
stjóri Sementsverksmiðjunnar, i
viðtali við VIsi í gær. Saksóknari
hefur, að undangenginni
dómsrannsókn, lýst þvi yfir, að
ekki sé tilefni til aðgerða á hendur
verksmiðjunni.
Með þvi er visað frá ákæru
Jóhannesar Bjarnasonar verk-
fræðings á hendur vérksmiðjunni
fyrir verðlagsbrot og vörusvik.
Mál þetta vakti mikla athygli á
sinum tima, þegar ákærurnar
komu fram.
„Ákærurnar um vörusvik
byggðust á misskilningi”, segir
Svavar Pálsson.
Hann segir ennfremur og
skirskotar til réttarskjala, að
ákærandi hafi lýst þvi yfir fyrir
rétti, að málið væri hafið, enda
þótt sér væri ekki kunnugt,
hvernig verðlagning færi fram.
—HH
„Möðruvell-
ingur" só
af sœti
Magnús Gfslason bóndi var
varamaður Björns Pálssonar,
þingmanns frá Ytri-Löngumýri,
og hefði eftir þvi átt að taka við
sætinu, þcgar Björn hættir nú
þingmennsku.
En Magnús hefur skipað sér i
fylkingu „Möðruvallahreyfingar-
innar” og gert uppreisn gegn
flokksforystu Framsóknar.
Niðurstaðan hefur þvi orðið, að
i 2. sæti á framboðslista
Framsóknarflokksins i Norður-
landskjördæmi vestra verður
Páll Pétursson frá Höllustöðum,
frændi Björns.
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra verður áfram i 1.
sætinu. —HH
Gera flugvöll á Selfossi
— Flugklúbbur
stofnaður og eitt
markmiðið að
koma upp gras-
flugvelli
„Vélflugfélag tslands hefur hug
á þvi að fjölmenna hingað austur
á Selfoss 24. ágúst nk„ og þá er
meiningin að reyna að vera búinn
að koma flugveliinum upp”, sagði
Einar Elíasson, bygginga-
meistari á Selfossi, i viötali viö
Visi, en nú hyggjast nokkrir ungir
og gamlir flugáhugamenn á
Selfossi byggja þar flugvöll.
Á fimmtudagskvöldið var
stofnaður flugklúbbur á Selfossi,
og á Einar sæti i stjórn hans. 1
flugklúbbnum eru menn, sem eru
að læra flug, og svo flugáhuga-
menn. Eitt af markmiðunum er
að koma upp flugvelli.
Áætlað er að koma upp aðal-
braut, 600 metrum á lengd, og svo
þverbraut, 400 metrum á lengd.
Flugvöllurinn verður grasvöllur
og sáð i hann siðar i sumar.
Enn er málið aðeins á
byrjunarstigi, en gengið hefur
verið frá öllum samningum, búið
er að mæla völlinn út, og aðeins er
beðið eftir vélum til vinnslu.
Flugáhugamennirnir munu allir
vinna við völlinn, en hann verður
á árbökkunum neðan við Haga
svokallaðan, eða sunnan við
Selfossþorp. Er landið leigt hjá
bændum i Sandvikurhreppi, sem
létu það i té á hagstæðum kjörum
fyrir velvild.
Meiningin er sú, að minni vélar
geti lent á vellinum, og það er
alveg óhætt að segja, að flug-
völlur á Selfossi er enginn óþarfi.
Til hans verður áreiðanlega mjög
oft gott að gripa, i stað þess að
verða að fara beina leið yfir
heiðina til Reykjavikur, ef veður
versnar.
—EA