Vísir - 04.06.1974, Page 6
6
Vísir. Þriðjudagur 4. júni 1974.
VISIR
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Fréttastj. erl. frétta:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiösla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Haukur Helgason
Björn Bjarnason
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 32. Simi 86611
Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Áskriftargjaid 600 kr. á mánuöi innanlands.
t lausasölu 35 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Alira lítilmannlegast
Er vit i þvi að halda verðlagi i skefjum, svo að
ekki þurfi að hækka kaupið, með þvi að skrifa
gúmmitékka á galtóman rikissjóð? Er vit i þvi að
afla fjár i rikissjóð með þvi að skuldbinda
innflytjendur til að leggja inn á reikning i Seðla-
bankanum 25 prósent af þvi, sem þeir kaupa
vörur fyrir, svo að af leiði vöruskortur á nauð-
synjum og rekstrarvörum atvinnuveganna?
Þessum spurningum munu vist fáir svara nema
neitandi.
Þessar og aðrar slikar aðferðir rikisstjórnar-
innar eru brandari á hvers manns vörum, nema
þeirra, sem þurfa að borga reikninginn nú þegar,
til dæmis stórkaupmanna. En engum dylst hvað
er að gerast. Rikisstjórnin hefur tekið „skyndi-
lán” til að komast hjá þvi, að almenningur greiði
reikninginn fyrir stefnu hennar fyrr en eftir
kosningar.
Rikisstjórnin ein telur sig sjá vit i þessu. Hún
telur, að hún geti þolað háð og spé alþýðu manna
án þess að tapa verulega i kosningunum. Hún
vonar, að menn láti brandarann nægja, en hugsi
litið til þess, hvað i honum felst. Vist muni menn
skilja, að tjaldað sé til einnar nætur. En menn
muni samt ekki veita Framsóknarflokknum,
Alþýðubandalaginu og flokki Magnúsar Torfa
Ólafssonar þá ráðningu, sem þessir flokkar hlytu,
ef fólk fengi að sjá reikninginn sjálfan.
Sumir Framsóknarmenn hafa beðið um, að
litið sé á Ólaf Jóhannesson sem mikinn foringja.
Hann hafi tekið af skarið, ekkert verið að hlusta á
skraf um rétt og rangt, heldur sent þingmenn
heim til sin, þótt meirihluti þeirra vildi ekki fara.
„Þetta”, hafa sumir framsóknarmenn verið að
segja”, er karl i krapinu”. En hið sanna er, að
Ólafi fórst ekkert stórmannlega. Hann átti þess
kost að „taka af skarið”, en hann þorði það ekki.
Ólafur Jóhannesson hefði getað tekið á efna-
hagsmálunum, snúið við blaðinu með raunveru-
legum aðgerðum og lagt spilin á borðið i kosning-
unum. Hann hefði getað sýnt þjóðinni reikninginn
og staðið eða fallið með honum. Hann hefði vafa-
laust fallið, þvi að reikningurinn var orðinn alltof
hár. Þetta hefði þó verið stórmannlegri afstaða,
að viðurkenna skyssur sinar og taka afleiðing-
unum.
I stað þess fórst Ólafi Jóhannessyni litilmann-
lega, það verður að segjast blátt áfram vegna
staðhæfinganna um hið gagnstæða. Rikisstjórnin
tók þá afstöðu, sem litilmótlegust er, að skrifa
innistæðulausar ávisanir og tina eitthvað til i
rikissjóð úr Seðlabankanum, sem tæki með
þvingunum fé að láni hjá stórkaupmönnum, fá-
mennum hópi. Stefnan er þessi: Verðið lækkað
með niðurgreiðslum, sem teknar verða af og fjár
aflað til að greiða eftir kosningarnar, þvingað lán
af stórkaupmönnum, sem verður endurgreitt
þeim eftir kosningarnar, boðið heim vöruskorti,
sem dynur aðallega yfir eftir kosningarnar,
gengislækkun „laumað inn” fyrir kosningar með
það fyrir augum, að stór gengisfelling komi ekki
fyrr en að 'kosningunum loknum. Hrunið komi
sem sé ekki fyrr en eftir að búið er að kjósa.
Hvergi er tekið i alvöru á hinum raunverulega
efnahagsvanda.
Þetta er sú litilmannlegasta afstaða, sem
hugsazt getur. Það er hvergi vit i henni.
„tþróttakonungurinn” um borö I skútu sinni „Norna X”. Hann vann til gullverölauna á ólympiuleikun-
um i Amsterdam 1928.
konungur V
Eins og Hákon VII. bjó soninn undir ævistarfiö, sem beið hans, býr
Ólafur V. Harald krónprins undir framtiöina.
Ólafur
Hann var jafnan kall-
aður Alexander, og
hlaut enda að skirn
nafnið Alexander Ed-
ward Christian Freder-
ik. En eftir að Carl
Danaprins, faðir hans,
var kjörinn konungur
Noregs, var honum valið
nafnið Ólafur. Hann er
fimmti konungur Norð-
manna, sem ber það
nafn.
A morgun kemur Ólafur
Noregskonungur i þriöja sinn i
opinbera heimsókn til íslands. t
fyrsta sinnið kom hann áriö 1947,
þá krónprins, færandi Islend-
ingum að gjöf styttu af Snorra
Sturlusyni. t annað sinn kom
hann 1961.
Ólafur konungur er ekki fæddur
i Noregi. Hann fæddist i Englandi
2. júni 1903. Faðir hans var eins
og áður segir danskur, en móðir
hans ensk. Var Ólafur orðinn
tveggja og hálfs árs, þegar hann
var borinn fyrst á norska fold.
En þegar ungi prinsinn komst á
legg, veittu Norömenn fljótlega
athygli þessum unga manni, sem
var á sifelldum ferðalögum um
landið. Var haft á orði, að varla
væri sú byggð til i landinu, sem
krónprinsinn hefði ekki heimsótt.
Þrátt fyrir danskt faðerni og
enskt móðerni, samdi hann sig
svo fljótt að háttum og siðum
Norðmanna, að það var tekið til
þess, hve fagra norsku hann tal-
aði.
Þegar Hákon konungur VII féll
frá þann 21. september 1957, og
Ólafur konungur sté i hásæti,
hafði hann verið búinn vel undir
ævistarf sitt. Naut hann ekki slzt
föður síns, þvi að Ólafur hafði
verið nánasti samstarfsmaður
hákons konungs allt frá þvi að
hann náði 21 árs aldri.
En aðeins þrem árum áður en
Ólafur missti föður sinn, hafði
hann orðið fyrir öðrum sárum
ástvinamissi, þegar eiginkona
hans, Marta krónprinsessa, lézt á
bezta aldri. Hún var kona vinsæl,
glæsileg og geðþekk.
Þegar Ólafur sótti sér brúði til
Sviarikis, var þvi vel fagnað af
þjóðum beggja landanna. Opin-
berun trúlofunar þeirra þann 14.
jan. 1929 þótti farsæll endir á mis-
sætti þvl, sem var milli landanna
fyrir 1905, meðan Noregur laut
Sviþjóð.
Þeim hjónum varð þriggja
Ólafur konungur V. flytur hásætisræöu viö setningu norska stórþingsins. Honum til vinstri handar er
Haraldur krónprins .
—HH