Vísir - 04.06.1974, Page 10

Vísir - 04.06.1974, Page 10
Haukarnir ungu náðu í'tvo stig á ísafirði Haukar náðu sér i tvö stig i baráttunni um stigin i 2. deild með þvi að sigra ísfirðinga fyrir vestan á laugardaginn 2:1. Isfirðingar höfðu yfir i hálfleik 1:0, og skoraði örn Guðmundsson markið á 10. min hálfleiksins. t siðari hálfleik var mikill kraftur i Hafnfirðingunum, og þeir skoruðu tvö mörk með stuttu millibili um miðjan hálfleikinn — Arnór Guðmundsson og Guðjón Sveinsson. Haukarnir áttu mun opnari tækifæri i leiknum en Isfirðingar, en þau voru illa nýtt af þeim, Það voru lélegri færin, sem gáfu einhvern afrakstur. Haukarnir eru liklega með yngsta liðið, sem leikur i 2. deildinni i ár. Hvorki meira né minna en sjö leikmenn, sem léku með þvi i fyrra, eru nú hættir og ungir piltar komnir i staðinn. tsfirðingarnir eru einnig með ungt lið — þótt ekki séð það samt eins ungt og Haukaliðið. Erfitt mun vera hjá þeim þessa dagana — enda liðið þjálfaralaust, sem er langt frá þvi að vera gott hjá liði, sem leikur i 2. deild — nema Onnur martröð Armenninganna Armenningar upplifðu aðra álika martröö á Selfossvelli um helgina og þeir uppliföu á Húsa- víkurvelli fyrir hálfum mánuði. Þá fengu þcir á sig :i mörk á liðlega 10 minútna kafla f fyrri hálfleik, sem setti þá gjörsam lega út af laginu. i leiknum viö Selfoss endurtók sama sagan sig. Um miöjan hálfleikinn skoruöu Selfyssingar 3 mörk á ekki meir en 10 minútum og settu mcð þvi Ármannsliðið allt úr skoröum. Þeir náðu aö jafna sig í leik- hlénu og komu galvaskir inn á í siðari hálfleik. A fyrstu minút- um hálfleiksins skoruöu þeir 2 mörk meö stuttu millibili og voru aö ná tökum á leiknum þegar Selfyssingarnir náöu upp- hlaupi og skoruöu sitt 4 mark. Gestirnir böröust eins og ljón viö aö reyna aö jafna leikinn, en gestgjafarnir stóðu fastir fyrir og björguðu á siðustu stundu — m.a. tvivegis á linu. —klp— Tvöföld þrenna hjó FH-ingunum FH-ingar sýndu viö hverju má búast af þeim i sumar, er þeir léku gegn Völsungum frá Húsavik i 2. deild tslands- mótsins I knattspyrnu i Hafnar- firði á laugardaginn. Þeir bókstaflega tættu Húsvikingana i sig og skoruðu hjá þeim hvert markið á fætur öðru og hvert öðru fallegra. Þeir skoruðu 3 mörk i fyrri hálf- leik og bættu siðan öðrum 3 mörkum við i þeim siðari, en Húsvikingarnir komust aldrei á blað. Mörkin i leiknum skoruðu Leifur Helgason 3, Ölafur Danivalsson 2 og Gunnar Bjarnason 1, og það var glæsi- legasta markið af þeim öllum — sannkölluð „þruma”. Völsungarnir áttu lítið sem ekkert i leiknum og sárafá tæki- færi til að skora. FH-ingarnir voru þeim sterkari á öllum sviðum. Það getur orðið gaman að fylgjast með FH-liðinu i sumar. Ef það nær öðrum eins leikjum og þessum, þarf varla að spyrja að úrslitum i deildinni. En þeir hafa áður leikið vel, en siðan gengið of sigurvissir til næsta leiks..og fallið á þvi. —klp hugmyndin sé að fara beint niður i 3. deild aftur??? —klp Keppt í 14 greinum á EÓP-mótinu EÓP mótið i frjálsum iþróttum fer að þessu sinni fram mun seinna en áður. Var mótið ekki sett á skrá fyrr en það seint, að öruggt yrði, að Laugardals- völlurinn væri kominn i gagnið. Það er hann, og mun mótið fara fram n.k. föstudagskvöld og hefjast kl. 20,00 Keppt verður i eftirtöldum greinum: Karlar: 200, 800, 3000 metra hlaupi, 110 metra grindahl., kringlukasti, spjótkasti, há- stökki, langstökki og stangar- stökki. Konur: 100 metra hlaupi, hástökki og 800 metra hlaupi. Piltar 100 og 600 metra hlaupi. Evrópumet í grindahlaupi Frakkinn Gay Drut jafnaöi i gær Evrópumetiö f 110 m grinda- hlaupi — hljóp á hinum frábæra tima 13,2 sekúndur á móti I Paris. Drut, sem varö i ööru sæti i greininni á Olympiuleikunum i Munchen 1972 hefur sýnt mikiö öryggi i keppni i ár — átta sinnum hefur hann hlaupiö vega- lengdina á 13.3 sekúndum, en tókst nú loks aö jana hiö fræga Evrópumet Martins Lauers. Heimsmetiö er 13.1 sek, og það á olympiumeistarinn bandariski, Rod Milburn, sá, sem sigraði Drut I Munchen. Hollenzkur smásigur! Hotlenzka HM-liöiö i knatt- spyrnu lék æfingaleik við vestur-þýzka liöiö Offenbach á laugardag i Den Bosch. Úrslit uröu 2-1 fyrir Holland og var þaö litill sigur eftir gangi leiksins. t leikhléi stóö 1-0 fyrir Holland og skoraði Rep markið á 40. minútu. A 53. min jafnaði Kostedde fyrir Vestur-Þjóöverj- ana. Neeskens skoraði sigur- markið, þegar 10 min. voru tii leiksloka. STJÖRNU 7T LITIRsh Ármúla 36 AAólningarverksmiðja Sími 8-47-80 Jóhannes Bárðarson, lengst til vinstri, skorar mark Vikings gegn KR. Ljósmynd Bjarnleifur. Meistararnir féllu fyrir KR //Það er alltaf sárt að tapa/ og hvað get ég því annað sagt en að ég sé óánægður. En ég vona, að strákarnir geri betur í næsta leik, sem er gegn Fram hér á Laugardalsvellinum á þriðjudagskvöldið...já, þeir verða að gera betur". Þetta sagði heldur brúna- þungur þjálfari Vikings, Tony Sanders, eftir tap Víkings gegn KRá laugardalsvellinum á föstudagskvöldið. Sanders hafði lika ástæðu til að láta brýrnar siga, bæði i leiknum og eftir hann. Vikingarnir hans komu ekki nærri þvi eins vel frá honum og i leikj- unum i Reykjavikurmótinu. Má vera, að það hafi verið vellinum að kenna — þeir eru óvanir að leika á grasi margir hverjir, en samt er ekki endalaust hægt að afsaka þá á þann hátt. Til að byrja með voru þeir eins og nýfæddir kálfar á grasinu. Þrátt fyrir það áttu þeir samt heiðurinn af þvi að eiga fyrsta verulega marktækifærið i leiknum. Það var Magnús Þorvalds- son, sem er að visu varnarmaður, sem átti glæsilegt skot af löngu færi, er rétt strauk stöngina — að utanverðu. KR-ingarnir náðu fljótlega betri tökum á miðjunni og byggðu upp hvert upphlaupið á fætur öðru. Þau voru þó öll stöðvuð eða runnu út i sandinn, þar til er um 30 min. voru liðnar af leiknum. Þá skallaði Haukur Ottesen boltann fram til Atla Þórs Héðinssonar, sem var umkringdur Vikingum. Eins og stórsvigsmaður sigldi Atli á milli Pólverjar sterkir HM-lið Pólverja i knattspyrnu sýndi mjög snjallan leik i Varsjá i gær og sigraði belgiska meistara- liðið Anderlecht meö 2-0. Pólverjar höföu mun meiri yfirburði en úrslitin gefa til kynna og einkum voru þeir Lato og Gadocha i miklum sóknarhug. Lato skoraði fyrra markiö á 33 min. og Deyna hið siöara úr vita- spyrnu á 48 min. Ahorfendur voru 30 þúsund. Pólland er I riöli meö ttaliu, Argentinu og Haiti á HM. Þá lék HM-lið Argentinu viö þýzka liðið Munchen 1860 I Munchen i gær og sigraði 1-0. Balbuene skoraöi sigurmarkiö á 63 min, en ekki tókst argentiska liöinu að sýna neitt sérstakt frekar en I fyrri leikjum sinum I Evrópu. þeirra með boltann á tánum og skaut siðan föstu skoti i markhornið. Aðeins tveim minútum siðar var boltinn aftur kominn i markið hjá Viking. 1 þetta sinn var að Ólafur Ólafsson, sem skoraði eftir langt innkast Atla Þórs. Varnarmenn Vikings létu boltann renna við tærnar á sér hver á fætur öðrum, þar til hann stöðvaðist hjá Ólafi, en þá var orðið of seint að gera nokkuð i málinu. Með þessi tvö mörk i pokahorninu héldu KR-ingarnir áfram að verjast og berjast allt fram á 20. min sfðari hálf- leiks, er Vikingarnir minnkuðu bilið i 2:1. Jóhannes Bárðarson var þar að verki, eftir að KR-ingurinn Ottó Sænska HM-liðið i knatt- spyrnunni lék við Dani i Kaupmannahöfn i gær og sigraði með 2-0 i skemmti- iegum leik. Það voru sænskir atvinnumenn i þýzkum knattspyrnuliðum, Guðmundsson hafði lagt boltann svo að segja á fótinn á honum rétt við markið — og hann þakkaði gjaf- mildina með þvi að renna honum inn i netið. Eftir að markið kom, gáfu KR-ing- arnir eftir á miðjunni, enda varð eitt- hvað að láta undan fyrir ákveðni Vikinganna. Við það náðu þeir meiri tökum á leiknum og sóttu stift, en af og til náðu þessir i svart/hvita búningn- um hættulegum upphlaupum, sem ollu glundroða i röðum þeirra rauð/svörtu og fengu hörðustu stuðningsmenn Vikings i stúkunni til að hvitna upp og loka augunum. En hvorugu liðinu tókst að bæta við mörkum þrátt fyrir góð tækifæri og oft sem skoruðu mörk sænska liðsins. Stáðan I hálfleik var 1-0 og Roland Sandberg, sem leikur meö þýzka 1. deildarliðinu, Kaiserslautern, skoraði markið á 28. minútu. Þegar fjórar minútur voru til leiksloka skoruðu Sviar aftur — nú var þaö Conny Thor- stensson, einn bezti leikmaður Evrópumeistaranna, Bayern skemmtileg upphlaup. Það voru varnir liðanna, sem sáu fyrir þvi enda voru þær sterkustu deildirnar á vellinum. Framlinur beggja voru friskar, KR-linan þó öllu friskari og útsjónarsamari, en þær máttu sin lítið gegn hinum sterku vörnum — nema þegar þær gerðu mistök, og það var ekki oft. Varla er ástæða til að hrósa einstökum leikmönnum, þeir stóðu sig flestir með sóma og enginn bar af öðrum svo um munaöi. Þó má gjarnan geta eins manns á vellinum sérstak- lega, en það var dómarinn, Steinn Guðmundsson, sem dæmdi þennan leik i tveim orðum sagt...mjög vel. —klp skoruðu Munchen, sem sendi knöttinn I danska markið. Ahorfendur voru 41 þúsund og hrifning þeirra af leik danska liðsins var oft mikil, þó svo liðinu tækist ekki að skora. Danir fengu mörg góð tæki- færi i leiknum — léku oft skfnandi sóknarleik — og hefðu átt aö vera búnir að skora tvö til þrjú mörk áður en Sviarnir skoruöu sitt fyrsta mark. Skotar töpuðu í Belgíu og brutu af sér í Osló Skozka landsliðið, sem tek- ur þátt í heimsmeistara- keppninni, lék við Belgíu í Brugge á laugard. og tapaði 2-1. Hélt siðan til Osló, þar sem liðið mun leika við Norð- menn i vikunni. Nokkrir leik- menn liðsins brutu á sunnu- dagskvöld illa agareglur þær, sem settar hafa verið, og landsliðseinvaldurinn, Willie Ormond, náði ekki upp í nef sér fyrir reiði. Hann tók umrædda leikmenn til bæna — og án þess að skýra frá nöfn- um þeirra, tilkynnti hann að um- ræddir leikmenn yrðu sendir heim ef slikt endurtæki sig. Nýir leikmenn yrðu þá valdir i þeirra stað i HM—hópinn. Leikmennirnir hafa beðizt afsökunar á framferöi sinu. Skotar sóttu miklu meira i leiknum gegn Belgum á laugardag, en kom- ust litið áleiðis gegn hinni sterku vörn Belga. Sem kunnugt er fengu Belgar ekki á sig mark i undan- keppni HM (i riöli með tslandi, Noregi og Hollandi), en komust þó ekki áfram. Leiftursóknir Belga voru hættuleg- ar og á 23. min. skoraöi Roger Hen- rotay fyrsta mark leiksins. Jimmy Johnstone, Celtic, jafnaði fyrir hlé. Markverði Belga, Christian Piot, mistókst þá að slá knöttinn frá eftir aukaspyrnu Billy Bremner og þurfti Johnstone ekki nema ýta knettinum i opið markið. Sigurmark Belga var skorað úr umdeildri vitaspyrnu 15 min. fyrir leikslok. Ken Dalglish hindraði þá kunnasta leikmann Belgiu, Paul van Himst, innan vitateigs og hinn þýzki dómari leiksins, Klaus Ohmsen, dæmdi vitaspyrnu. Raoul Lambert skoraði örugglega úr vitinu — David Harway, Leeds, átti enga möguleika aö verja. Leikurinn var mjög harður, en leikmenn beittu þó litið ólöglegum brögðum. Skozka liðið var þannig skipað. Harway, Jardine, Rangers, McGrain, Celtic, Bremner, Leeds, McQueen, Leeds, Blackley, Hibern- ian, Johnstone, Celtic (Willie Morgan, Manch.Utd. kom inn á fyrir hann), Dalglish, Celtic, (Hutchison, Coventry, skipti við hann), Jordon, Leeds, Hay, Celtic og Jordan, Leeds. hsim „Þýzku" Svíarnir 1. deild Staðan i 1. deild eftir leikina um helgina: Vikingur-KR ÍBV-Akranes Keflavik-Akureyri 1:2 1:2 3:0 Akranes Keflavik KR ÍBV Valur Akureyri Fram Vikingur 3210 6:1 5 3201 5:2 4 3201 3:2 4 3111 3:3 3 3021 2:3 2 3102 1:7 2 2011 3:4 1 2011 2:3 1 Markhæstu menn: Matthias Hallgrimsson, Akranes3 Stcinar Jóhannsson, Keflavík 3 Teitur Þórðarson, Akranes 2 2. deild Staðan i 2. deild eftir leikina um helgina: Þróttur-Breiöablik 0:0 Selfoss-Ármann 4:2 Ísafjörður-Haukar 1:2 FH-Völsungur 6:0 Breiðablik Selfoss FH Þróttur Haukar Völsungur Ármann isafjörður 3120 4:1 4 3201 6:5 4 2110 7:1 3 2110 3:2 3 3111 5:5 3 3111 5:8 3 2002 3:8 0 2002 1:4 0 Markhæstu menn: Sumarliöi Guðbjartsson, Self. 4 Guðmundur Þórðarson, Brbi. 4 GOLF: Hans skaut aftur upp á yfirborðiðl Hans isebarn frá Golfklúbbi Reykjavikur sigraði bæði með og án forgjafar i Bridgestone/Camel golfkeppninni, sem háð var á Hólmsvelli I Leiru um helgina. Hans vann þarna sinn fyrsta stóra sigur i golfi i ein 4 ár, en litiö hefur borið á honum i röðum beztu kylfinganna á undanförnum árum. Eftir fyrri daginn var hann á 75 höggum-fimm yfir par — ásamt þeim Jóhanni Benediktssyni GS og Björgvin Þorsteinssyni GA. Síðari daginn lék Hans á 77 höggum i mjög leiðinlegu golf- veðri, en þeir Jóhann og Björgvin á 81 höggi. Við það féllu þeir niður i 3. og 4. sæti, en upp i 2 sætið kom Þorbjörn Kjærbo, GSÓ sem lék á 77-77 eða samtals 154 höggum. Hans var á 152 höggum, Björgvin og Jóhann á 156, Óttar Yngvason GR, Ragnar Ólafsson GR og Einar Guönason GR á 158 höggum og Sigurður Albertsson GS á 159 höggum. Þessir átta skipta með sér stigum mótsins i keppninni um sæti i landsliðinu i golfi. Hans vann einnig i keppninni með forgjöf, þar sem keppt var um Camel bikarinn. Hann er með 7 i forgjöf og var þvi á 138 höggum nettó. i öðru og þriðja sæti urðu jafnir Sigurður Albertsson GS og Skarphéðinn Skarpheðinsson GS á 145 höggum. —klp Markvarzla af beztu te „Þetta er einhver bezta markvarzla sem ég hef séð i langa tima. Mig dauðlangaði hvað eftir annað til að stöðva leikinn til að geta gefið stráknum langt og gott klapp — hann átti það svo sannarlega skilið. Það er heldur ekki á hverjum degi, sem maður sér svona nokkuð”. Þetta sagði Einar Hjartar - son, hinn góðkunni knattspyrnu- dómari, að loknum leik Þróttar og Breiðabliks i 2. deild, sem fram fór um helgina. Og mark- vörðurinn, sem hann talaði um, var hinn ungi og efnilegi mark- vörður Þróttar, Jón Þorbjörns- son. Hann átti stjörnuleik i Þróttarmarkinu og varði oft, af slikri snilld, að menn bókstaf- lega stóðu gapandi af undrun. Þróttarar geta þakkað honum annað stigið sem þeir fengu i leiknum — ef hans hefði ekki notið við má fullvist telja að bæði stigin hefðu farið i Kópa- voginn. Hann hélt markinu hreinu allan leikinn og það sama gerði markvörður Breiðabliks, en á hann var litið skotið i saman- burði við hinn. —klp Hans isebarn með eignar- og farandsverðlaunin sem hann fékk f Bridgcstone/Camel golfkeppninni um helgina. Þar tók hann fyrstu verölaun I báðum, sem ekki hefur gerzt áður I þessu móti. Ljósmynd Bjarnleifur. Volvo öryggisgrind Utan um farþegarýmið er níðsterk öryggisgrind sem verndar ökumann og farþega ef óhapp hendir. Fram og afturhlutar Volvo gefa hinsvegar eftir og draga þannig úr höggi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.