Vísir - 04.06.1974, Blaðsíða 12

Vísir - 04.06.1974, Blaðsíða 12
Nú er það Þór í Þorlákshöfn 3. deild og sigur gegn Víði á Garðskagavelli Viðispiltarnir gleyma vist seint siöustu 20 minútunum úr leik sinum við nýiiðana i ÍII- deiidinni, Þór frá Þorlákshöfn. Staðan var 3:1 Vlði I vil og von á þvi fjórða úr vitaspyrnu. En viti menn, Gísli Eyjólfss. hittir ekki markið, — og við það brotnar liðið gersamlega niður, en Þórs- menn margeflast að sama skapi og skora þrjú mörk: sigurmark- iðaðeins tveimur minútum fyrir leikslok. Þórsliðið er skipað ungum piltum, sem oft náðu góðum samleik, þrátt fyrir litla samæf- ingu. Þeirra beztu menn eru bræðurnir Eirikur og Björn Jónssynir, en þeir skorúðu öll- mörkin, tvö hvor. Vlðispiltarnir verða að taka sig heldur betur saman i andlit- inu, ef þeir ætla sér að verða með i úrslitabaráttunni i III- deildinni, sérstaklega virðast tengiliðirnir vera slappir. Mörk Víðis skoruðu Guðmundur Jens Knútsson, Hafsteinn Ingvarsson og Ómar Jóhannsson. Dómari var Ársæll Jónsson og dæmdi mjög vel. —emm. Frímerki Fyrstadagsumslög, 1. dagsumslög, 1. dagsútgáfu Þjóðhátiðarfrímerkja óskast keypt, helzt stærri gerð umslaga, gefnum út af póststjórninni. Uppl. i kvöld og annað kvöld i sima 32295. Nauðungaruppboð sem augiýst var I 87., 88. og 90. tbl. Lögbirtingablaðs 1973 á öldugötu 8, þingl. eign Elsu Margrétar Þórsdóttur o. fl. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjáifri, fimmtudag 6. júnl 1974 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið I Reykjavlk. Frá sjúkrasamlögunum í Hafnarfirði og Garðahreppi Guðmundur H. Þórðarson læknir byrjar störf sem heimilislæknir i Hafnarfirði og Garðahreppi 4. júni n.k. Viðtalstimi hans verður fyrst um sinn kl. 10 - 11 f.h. aö Strandgötu 8 -10. Simaviðtalstimi kl. 9.30 - 10. Simi 51756. Heimaslmi 42935. Sjúkrasamlag Hafnarfjarðar Héraðssamlag Kjósarsýslu « ■« • t / 17. |um m mm • f / m mm « / # m mm • r / 17. |uni — 17. |um — 17. juni — ^ m "m • w w c: l/,jum i i i FESTI auglýsir i; ' l Islenzkir fánar, _ Blöðrur, 12 gerðir. Sírenur og ýlublöðrur. Rysler — ýlustafir. i Stráhattar (cowboy — Mexican) Blöðrupumpur. 4: Heildsölubirgðir. * FESTI símar 10550-10590. ? m mm • f / m mm • / / f w • / / m mm • / / _ — 17. jum — 17. jum — 17. jum — 17. jum 2. Haraldur „gullskalli” Júliusson skallar knöttinn yfir Daviö Kristjánsson, markvörð fA, og I mark. Haraidur Sturlaugsson fylgist með. Ljósmynd Guðmundur Sigfússon. Sigur ÍA í Eyjum og forusta í 1. deild! var sigur liðsins alls ekki svo ósanngjarn. Það sýndi betri knattspyrnu, einkum i fyrri hálf- leik, og sótti þá mun meira, án þess að skapa sér góð marktæki- færi. Vestmannaeyingar, voru yfirleitt hættulegri i upphlaupum sinum. Akurnesingar höfðu völd á miðjunni — en aðall liðsins er fyrst og fremst hve jafnt það er, þó svo Matthias, Teitur, Eyleifur Hafsteinsson og Þröstur Stefáns- son væru beztir i þessum leik. 1 siðari hálfleiknum sóttu Vest- mannaeyingar talsvert i sig veðrið — einkum i lokin og þá var mikil spenna meðal leikmanna sém 900 áhorfenda, sem hvöttu heimamenn mjög. Þetta var beinlinis frábær aðsókn — þriðji hver bæjarbúi sá leikinn. En jöfnunarmarkið kom ekki og Akurnesingar voru tveimur dýr- mætum stigum rikari. I liði heimamanna báru þeir Ólafur Sigurvinsson og Frið- finnur af — og Ársæll var góður i marki, þó svo hann væri mjög óheppinn, þegar Skagamenn skoruðu mörk sin. Það dró tals- vertúr sóknarmætti Eyjamanna að örn Óskarsson lék meiddur og gat þvi ekki beitt sér af venjulegu harðfylgi. Eins og áður segir kom Sigþór i stað Teits i leiknum og ein breyting var einnig gerð hjá IBV. Viðar Eliasson, unglinga- landsliðsmaður, tók stöðu Sveins Sveinssonar, þegar nokkuð var liðið á leikinn. Sveinn er bróðir Ársæls markvarðar. Þá var Þórður Hallgrimsson, ÍBV, bókaður i leiknum og fer nú i keppnisbann. —GS—hsim. í sumar er það stutt hár! Ungur piltur Sigþór ómarsson, skoraði mark í Vestmannaeyjum rétt eftir að hann hafði tekið stöðu Teits Þórðarsonar, sem meiddist, og það reyndist sigurmark Akurnesinga í 1. deildinni gegn ÍBV á laugardaginn —og um leið forusta Skagaliðsins ' í deildinni eftir þrjár um- ferðir. Sigþór kom Akurnesingum i 2-0 á 37. min. siðari hálfleiks, þegar hann spyrnti á markið frá vita- teig. Arsæll Sveinsson virtist eiga létt með að verja — en á siðustu stundu kom knötturinn i læri Friðfinns Finnbogasonar, breytti um stefnu og rann fram- hjá Arsæli i markið. Strax á næstu min. minnkuðu Eyjamenn muninn i 2-1 — knötturinn var gefinn fyrir mark Akurnesinga og Haraldur Július- son skallaði fallega i mark. Loka- minúturnar sóttu heimamenn ákaft — en tókst ekki að jafna. En mikil var taugaspenna Akur- nesinga áður en ágætur dómari leiksins, Hannes Þ. Sigurðsson, flautaði leikslok. Matthias Hallgrimsson skoraði fyrra mark Akurnesinga á 17. min. fyrri hálfleiks eftir mistök Ársæls markvaðar — einu mistök hans i leiknum. Teitur lék þá upp hægri kantinn inn að vitateignum og spyrnti á markið úr þröngri, lokaðri stöðu. Arsæll hafði hendur á knettinum — missti hann siðan á brjóstið og beint fyrir fætur Matthiasar Hallgrimssonar, sem þakkaði gott boð og var fljótur að skora. Þarna fengu Akurnesingar mark, þegar litil sem engin hætta virtist yfirvofandi. Þrátt fyrir nokkurn heppnis- stimpil á mörkum Akurnesinga Látið okkur klippa og blása hárið Hárgreiðslustofan Valhöll Laugavegi 25 Sími 22138

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.